Borgarráð
-
fer, ásamt borgarstjóra, með framkvæmdastjórn Reykjavíkurborgar og fjármálastjórn, að því leyti sem þessi mál eru ekki öðrum falin
-
hefur umsjón með stjórnsýslu Reykjavíkurborgar almennt og fjárstjórn hennar sérstaklega
-
undirbýr fjárhagsáætlanir og sér um að ársreikningar Reykjavíkurborgar séu samdir reglum samkvæmt.
Í borgarráði sitja sjö borgarfulltrúar kjörnir af borgarstjórn til eins árs í senn og jafnmargir til vara.
Hugmyndir sem tengjast málaflokknum „Stjórnsýsla“ á Betri Reykjavík fer til borgarráðs til umfjöllunar.
Íþrótta- og tómstundaráð
-
mótar stefnu á sviði íþrótta- og tómstundamála Reykjavíkurborgar og gerir tillögur sem varða verksvið þess til borgarráðs
-
vinnur að eflingu íþrótta- og tómstundastarfs í Reykjavík
-
hefur samvinnu við þá aðila sem um slík mál fjalla og við félög sem hafa íþrótta- og tómstundamál á stefnuskrá og mótar stefnu um samstarf við þá aðila
-
gerir tillögur til borgarráðs að gerð og staðsetningu nýrra íþróttamannvirkja ásamt tillögum um rekstur þeirra eftir því sem við á
-
hefur eftirlit með rekstri íþrótta- og æskulýðsmannvirkja sem eru í eigu Reykjavíkurborgar og borgarráð hefur veitt styrk til og jafnframt þeim mannvirkjum öðrum sem borgarráð hefur veitt styrk til
-
stuðlar að eflingu hollrar tómstundaiðju meðal almennings í samstarfi við samtök borgarbúa svo og í samstarfi við aðrar borgarstofnanir
-
skipuleggur dagskrá 17. júní hátíðarhaldanna í Reykjavík ár hvert
Íþrótta- og tómstundaráð er skipað sjö fulltrúum kjörnum af borgarstjórn og jafnmörgum til vara.
Hugmyndir sem tengjast málaflokkunum „Frístundir og útivist“ á Betri Reykjavík fara til íþrótta- og tómstundaráðs til umfjöllunar.
Hugmyndir sem tengjast málaflokkunum „Íþróttir“ á Betri Reykjavík fara til íþrótta- og tómstundaráðs til umfjöllunar.
Mannréttindaráð
-
mótar stefnu í mannréttindamálum, tekur ákvarðanir og gerir tillögur til borgarráðs hvað varðar verksvið þess
-
hefur eftirlit með rekstri mannréttindaskrifstofu borgarinnar og að samþykktum og stefnumörkun þess sé fylgt
-
fer með verkefni jafnréttisnefndar og önnur verkefni á sviði mannréttindamála samkvæmt mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar
-
gerir tillögur til borgarráðs um mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar og ber ábyrgð á að henni sé framfylgt
-
fylgist með verkefnum fagsviða er tengjast mannréttindamálum
-
er fagsviðum til samráðs og ráðgjafar um forgangsröðun verkefna á sviði mannréttindamála
-
hefur samvinnu við ríki, önnur sveitarfélög og félagasamtök um mannréttindamál
-
veitir árlega mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar
Mannréttindaráð er skipað sjö fulltrúum kjörnum af borgarstjórn og jafnmörgum til vara.
Hugmyndir sem tengjast málaflokknum „Mannréttindi“ á Betri Reykjavík fara til mannréttindaráðs til umfjöllunar.
Menningar- og ferðamálaráð
-
mótar stefnu í menningar-, ferða- og markaðsmálum, tekur ákvarðanir og gerir tillögur til borgarráðs varðandi valdsvið þess og hefur eftirlit með að samþykktum og stefnumörkun þess sé fylgt
-
fer með hlutverk stjórnar Borgarbókasafns Reykjavíkur og stjórnar Borgarskjalasafns Reykjavíkur
-
fer með hlutverk byggingarnefndar skv. lögum um húsafriðun
-
gerir tillögur til borgarráðs varðandi samninga við Leikfélag Reykjavíkur, Sinfóníuhljómsveit Íslands og Listahátíð í Reykjavík
-
gerir tillögur til borgarráðs um styrki og starfslaun til menningarstarfs í borginni
-
tilnefnir fulltrúa í dómnefnd um bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar og útnefnir borgarlistamann
-
fylgist með útgáfu örnefnaskrár og merkingu fornminja
-
gerir tillögu til borgarráðs um staðsetningu hvers konar myndverka á almannafæri
-
fer með málefni Höfuðborgarstofu í samræmi við ferðamálastefnu Reykjavíkurborgar
-
vinnur að því að efla og samræma kynningar og markaðsmál Reykjavíkur til að styrkja stöðu höfuðborgarinnar í alþjóðlegri samkeppni á sviði ferðamála
-
vinnur að undirbúningi viðburða og hátíða í Reykjavík á sviði ferðamála
Menningar- og ferðamálaráð er skipað sjö fulltrúum kjörnum af borgarstjórn og jafnmörgum til vara.
Hugmyndir sem tengjast málaflokkunum „Ferðamál“ á Betri Reykjavík fara til menningar- og ferðamálaráðs til umfjöllunar.
Hugmyndir sem tengjast málaflokkunum „Menning og listir“ á Betri Reykjavík fara til menningar- og ferðamálaráðs til umfjöllunar.
Skóla- og frístundaráð
-
mótar stefnu í menntamálum á vegum Reykjavíkurborgar tekur ákvarðanir og gerir tillögur til borgarráðs hvað varðar verksvið þess
-
hefur eftirlit með að samþykktum og stefnumörkun borgarinnar í menntamálum sé fylgt og fylgist með gæðum skólastarfs
-
fer með verkefni skólanefndar skv. grunnskólalögum
-
gerir tillögur til borgarráðs um stefnu Reykjavíkurborgar í menntamálum og frístundastarfi barna og ungmenna
-
hefur eftirlit með að framfylgt sé lögum um leik- og grunnskóla og reglugerðum settum á grundvelli þeirra
-
gætir þess að leik- og grunnskólar á vegum borgarinnar búi við fullnægjandi húsnæði til skólastarfs og að annar aðbúnaður sé fyrir hendi
-
gerir tillögur um byggingu nýrra leik- og grunnskóla eða viðbyggingar við eldri skóla
-
fylgir eftir framkvæmd 37. gr. laga um framhaldsskóla varðandi stofnun og byggingu framhaldsskóla
-
hefur eftirlit með starfsemi skólahljómsveita og fullorðinsfræðslu á vegum Reykjavíkurborgar
-
hefur eftirlit með starfi einkarekinna skóla sem styrktir eru af borginni, þ.e. grunnskólum, tónlistarskólum og myndlistarskólum
-
ræður skólastjóra grunnskóla
-
fer með málefni félags- og frístundamiðstöðva
Skóla- og frístundaráð er skipað sjö fulltrúum kjörnum af borgarstjórn og jafnmörgum til vara.
Hugmyndir sem tengjast málaflokknum „Menntamál“ á Betri Reykjavík fara til skóla- og frístundaráðs til umfjöllunar.
Skipulagsráð
-
mótar stefnu í skipulags- og byggingarmálum og tekur ákvarðanir og gerir tillögur til borgarráðs um skipulags- og byggingarmál á grundvelli skipulags- og byggingarlaga
-
hefur eftirlit með að stefnumörkun og samþykktum sé fylgt
-
er borgarráði og öðrum borgaryfirvöldum til ráðuneytis á sviði skipulags- og byggingarmála, þ.m.t. vegna umhverfismatsáætlana
-
hefur frumkvæði að gerð skipulagstillagna og skipulagsskilmála
-
gerir tillögur til borgarráðs um skipulagsáætlanir og breytingar á þeim, þ.m.t. varðandi skipulag umferðar
-
fjallar ásamt byggingarfulltrúa um umsóknir um byggingarleyfi, ályktar um úrlausn þeirra til borgarráðs og afgreiðir framkvæmdaleyfi
-
veitir menningar- og ferðamálaráði umsagnir um mál er varða húsafriðun skv. ákvæðum laga um húsafriðun
gerir tillögur til borgarráðs um fjárveitingar úr húsverndarsjóði
-
veitir ár hvert viðurkenningu aðilum sem skarað hafa fram úr, hvað varðar metnaðarfulla byggingarlist
-
afgreiðir, án staðfestingar borgarráðs, eftirtalin verkefni: a) óverulegar breytingar á deiliskipulagi, b) ákvörðun um að hefja gerð deiliskipulags, c) framkvæmdaleyfi, sbr. skipulags- og byggingarlögum, d) skiptingu jarða, landa og lóða og breytingar á landamerkjum
Skipulagsráð er skipað sjö fulltrúum kjörnum af borgarstjórn og jafnmörgum til vara.
Hugmyndir sem tengjast málaflokkunum „Skipulagsmál“ á Betri Reykjavík fara til skipulagsráðs til umfjöllunar.
Hugmyndir sem tengjast málaflokkunum „Framkvæmdir“ á Betri Reykjavík fara til skipulagsráðs til umfjöllunar.
Umhverfis- og samgönguráð
-
mótar stefnu í umhverfis-, náttúruverndar- og samgöngumálum
-
hefur eftirlit með rekstri umhverfis- og samgöngusviðs og að samþykktum og stefnumörkun þess sé fylgt
-
fer með verkefni náttúruverndarnefndar skv. lögum um náttúruvernd
-
fer með málefni Vinnuskóla Reykjavíkur
-
verkefni á sviði umhverfis- og náttúruverndar og reksturs borgarlandsins eru m.a. að gera tillögu til borgarráðs um umhverfisstefnu Reykjavíkurborgar og bera ábyrgð á gerð umhverfisáætlunar og ákveða framkvæmdir á opnum svæðum borgarinnar
-
er í fyrirsvari um fólkvanga
-
fylgist með búfjáreftirliti skv. lögum um búfjárhald
-
veitir umsagnir um tillögur að skipulagi og framkvæmdir sem haft geta veruleg áhrif á umhverfisþætti
-
mótar stefnu í úrgangsmálum, þ.m.t. sorphirðu
-
veitir umhverfisverðlaun Reykjavíkurborgar
-
verkefni á sviði samgangna og umferðarmála eru m.a. að vinna að gerð samgöngustefnu Reykjavíkurborgar og gera tillögur að forgangsröðun framkvæmda á sviði samgöngumála, ákveða framkvæmdir í samgöngukerfi borgarinnar að höfðu samráði við framkvæmda- og eignasvið og móta stefnu í umferðaröryggismálum
-
vinnur að umferðarfræðslu
-
gerir tillögur til lögreglustjóra eða leitar samþykkis hans varðandi skipulag umferðar
-
mótar stefnu á sviði almenningssamgangna m.a. með því að gera tillögur um breytingar á leiðakerfi Strætó bs.
-
mótar stefnu í bílastæðamálum í Reykjavík og fer með málefni Bílastæðasjóðs Reykjavíkurborgar
-
er stefnumótandi um starfsemi Vinnuskólans og gerir tillögur til borgarráðs um launagreiðslur til nemenda skólans og vinnur að samstarfsverkefnum við menntaráð
Umhverfis- og samgönguráð er skipað sjö fulltrúum kjörnum af borgarstjórn og jafnmörgum til vara.
Hugmyndir sem tengjast málaflokkunum „Umhverfismál“ á Betri Reykjavík fara til umhverfis- og samgönguráðs til umfjöllunar.
Hugmyndir sem tengjast málaflokkunum „Samgöngur“ á Betri Reykjavík fara til umhverfis- og samgönguráðs til umfjöllunar.
Velferðarráð
-
fer með verkefni félagsmálanefndar skv. lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga og lögum um húsaleigubætur
-
fer með verkefni húsnæðisnefndar skv. lögum um húsnæðismál
-
mótar stefnu í velferðarþjónustu, s.s. félags-, heilbrigðis-, húsnæðis- og öldrunarmálum
-
tekur ákvarðanir og gerir tillögur til borgarráðs hvað varðar verksvið þess
-
hefur eftirlit með að samþykktum og stefnumörkun sé fylgt
-
gerir tillögur til borgarráðs um stefnumörkun á sviði félagsþjónustu og húsnæðismála í Reykjavík
-
fylgir eftir framkvæmd laga um málefni aldraðra, laga um málefni fatlaðra, barnalaga og laga um ættleiðingar
-
gerir tillögur til borgarráðs um stefnu og framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar í samráði við barnaverndarnefnd
Velferðarráð er skipað sjö fulltrúum kjörnum af borgarstjórn og jafnmörgum til vara.
Hugmyndir sem tengjast málaflokknum „Velferðarmál“ á Betri Reykjavík fara til velferðarráðs til umfjöllunar.