Frá hugmynd til aðgerða

Á þessari síðu er fjallað um:

Hvað gerir íbúi hverfisins fyrst? Hugmyndir kostnaðarmetnarHugmyndir verða að verkefnumBindandi kosning um verkefniRafræn kosning og auðkenning Framkvæmd verkefna


Hvað gerir íbúi hverfisins fyrst? - Íbúinn hefur frumkvæði að því að setja hugmynd á Betri Reykjavík – Betri hverfi. Við stofnun nýrrar hugmyndar þarf að haka við hvaða hverfi hún á við.

Íbúar geta einnig „rætt“ hugmyndir annarra á samráðsvefnum, gefið þeim vægi sitt og forgangsraðað þeim þar með (hér gilda sömu reglur og á Betri Reykjavík). Notendur á Betri Reykjavík – Betri hverfi eru hvattir til að gefa sér góðan tíma til að skoða hugmyndir annarra, taka afstöðu til þeirra og gefa þeim vægi sitt, annað hvort með því að styðja þær eða vera á móti þeim. Í þessu er ekki síst hið mikilvæga samráðsferli íbúanna fólgið.

Hægt er að setja inn hugmynd um nýframkvæmd eða viðhaldsverkefni í hvaða hverfi borgarinnar sem er, óháð búsetu. Með sama hætti er hægt að bæta við rökum við hugmynd eða gefa henni vægi sitt.

Mikilvægt er að hafa í huga þegar hugmynd er sett inn, að hún sé ekki kostnaðarmeiri en það fjármagn er sem hvert hverfi hefur til umráða. Einnig að þau falli að þeirri lýsingu og skilmálum verkefna sem borgin er að óska eftir. Sjá nánar… . Verkefni sem verða kostnaðarmetin hærri en það fjármagn sem hverfi hefur, svo og ef þau falla ekki að skipulagi, hlutverki eða stefnu borgarinnar, mun ekki verða kosið um.

Íbúarnir geta sett inn hugmyndir að nýframkvæmdum og viðhaldsverkefnum í umferð á „Betri Reykjavík – Betri hverfi“ frá 5. desember til 23. janúar 2012.

Hér má nálgast kort og upplýsingar á vefsíðu Reykjavíkurborgar sem kunna að gagnast við hugmyndavinnuna - Borgarsjáin, Framkvæmdasjáin, Skipulagssjáin , Hverfi Reykjavíkurborgar


Hugmyndir kostnaðarmetnar – Frá og með 23. janúar geta íbúar ekki lengur sett inn hugmyndir á samráðsvefinn Betri hverfi eða gefið hugmyndum vægi sitt. Starfsfólk framkvæmda- og eigna-, skipulags- og byggingar-, og umhverfis- og samgöngusviða, tekur við hugmyndum íbúanna til vinnslu eftir 23. janúar. Í því felst að hugmyndirnar eru kostnaðarmetnar, auk þess sem metið er hvort framkvæmd þeirra sé í verkahring borgarinnar og þær falli að skipulagi hennar, svo og hvort þær séu í samræmi við þá lýsingu um nýframkvæmdir og viðhaldsverkefni sem hér er óskað eftir Sjá nánar… .

Þær hugmyndir sem eru kostnaðarmeiri en það fjármagn sem hvert hverfi hefur til umráða (sjá nánar… ), detta sjálfkrafa út, þ.e. ekki verður kosið um þær meðal íbúanna síðar í samráðsferlinu sjá nánar… .

Fagsviðin meta og skila af sér allt að 26 hugmyndum sem íbúarnir hafa lagt til á Betri Reykjavík – Betri hverfi. Þetta eru þær hugmyndir sem mest vægi hafa fengið meðal íbúanna, falla innan fjárhagsramma hvers hverfis og eru framkvæmanlegar. Annars vegar er um að ræða allt að 13 hugmyndir sem skilgreinast sem nýframkvæmdir og hins vegar allt að 13 hugmyndir sem teljast viðhaldsverkefni (sjá nánar… ). Hugmyndirnar geta orðið færri en 26 fyrir hvert hverfi ef ekki berast nógu margar hugmyndir frá íbúunum og eða ef þær falla ekki að þeirri skilgreiningu um hugmyndir sem hér er kallað eftir. Sjá nánar… .

Niðurstöður fagsviðanna skulu liggja fyrir í síðasta lagi 10. febrúar.


Hugmyndir verða að verkefnum - Eftir að allt að 26 hugmyndir íbúanna, fyrir hvert hverfi, hafa verið kostnaðarmetnar og metið hvort þær séu framkvæmanlegar sjá nánar… , fara hverfaráð borgarinnar yfir þær og skoða m.a. dreifingu þeirra. Þau horfa einnig til þess hvort nægilegur fjöldi og fjölbreytileiki sé til staðar þannig að íbúar hafi ásættanlegt val þegar kosning fer fram. Sjá nánar… . Hverfaráð geta þannig sjálf lagt til allt að 6 hugmyndir fyrir hvert hverfi. Þau hafa einnig heimild til að taka út allt að 6 hugmyndir íbúanna, þ.e. í þeim tilvikum þegar hugmyndir þeirra eru fleiri en 26. Að lokum stilla hverfaráðin upp allt að 26 verkefnum fyrir hvert hverfi sem kosið verður um. Allt að 13 þeirra eru skilgreind sem nýframkvæmdir og allt að 13 sem viðhaldsverkefni. Sjá nánar… .

Þeir sem ekki vilja setja hugmyndir á Betri Reykjavík – Betri hverfi eða gefa hugmyndum annara vægi sitt, geta sent hugmyndir sínar á netfang viðkomandi þjónustumiðstöð eða með pósti til viðkomandi þjónustumiðstöðvar merkt hverfisráðinu. Lýsing á hugmyndinni þarf að öðru leyti að vera í samræmi við það sem fram kemur hér sjá nánar… Viðkomandi hverfisráð getur notað hugmyndir sem berast með þessum hætti og ákveðið hvort þær verði einhverjar þeirra allt að 6 hugmynda sem hverfaráð getur sjálft lagt fram til að kjósa um.

Niðurstaða hverfaráðanna skal liggja fyrir í síðasta lagi 1. mars.


Bindandi kosning um verkefni – Íbúar Reykjavíkurborgar geta kosið um þau allt að 26 verkefni sem hverfaráðin hafa stillt upp fyrir hvert hverfi. Kosningin er rafræn og fer fram í gegnum samráðsvefinn Betri Reykjavík – Betri hverfi. Heimild til að kjósa hafa þeir sem eru 16 ára og eldri og eru með lögheimili í Reykjavík 31. desember 2011.

Kjósandi getur sjálfur valið það hverfi sem hann vill, en aðeins er hægt að kjósa verkefni í einu hverfi.

Kosið er um verkefni í tveimur flokkum. Annars vegar er um að ræða verkefni sem skilgreind eru sem nýframkvæmdir og hins vegar viðhaldsverkefni. Sjá nánar… . Hægt er að velja á milli allt að 13 verkefna í hvorum flokki.

Gerð er grein fyrir kostnaði við hvert verkefni og því geta kjósendur valið þann fjölda verkefna sem þeir vilja þar til þeirri heildarupphæð er náð, sem hverfið hefur til umráða.

Hægt er að kjósa oftar en einu sinni, t.d. ef kjósandi hefur skipt um skoðun, en aðeins síðasta kosningin er gild.

Kosning fer fram á Betri Reykjavík – Betri hverfi og hefst á miðnætti fimmtudaginn 22. mars og lýkur formlega í lok þriðjudagsins 27. mars. Kosningin verður opin til kl. 04.00 aðfaranótt 28. mars.

Kosningin felur í sér endanlega ákvörðun um val verkefna í hverfum Reykjavíkurborgar.

Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar hefur eftirlit með því að skráðum ferlum rafrænu kosningarinnar sé fylgt til hlítar.


Rafræn kosning og auðkenning - Kosningin verður rafræn og fer fram hér á vefnum. Kosið verður í gegnum kosningakerfi þar sem notandi auðkennir sig með öruggum hætti og þar sem atkvæði er dulkóðað. Þannig er aldrei hægt að tengja atkvæði við kjósanda. Kosning um verkefni stendur yfir dagana 8. – 13. mars og getur kjósandi kosið hvenær sem er á því tímabili. Nánari upplýsingar um kosingakerfið, uppbyggingu þess og öryggi verða aðgengilegar þegar nær dregur kosningu.

Auðkenning hvers kjósanda er örugg og er um að ræða auðkenni sem þegar eru í notkun og hafa verið prófuð og tekin út.

Kosningakerfið verður tekið út af óháðum fagaðila áður en kosið verður.

Nánari leiðbeiningar um auðkenni og hvernig þau eru notuð til þess að taka þátt í kosningunni verða aðgengilegar þegar kosning hefst.


Framkvæmd verkefna - Á Betri Reykjavík – Betri verður gerð grein fyrir afgreiðslu og meðferð þeirra hugmynda sem teknar hafa verið til umfjöllunar og kostnaðarmats fyrir viðkomandi hverfi (Hugmyndir kostnaðarmetnar – sjá nánar…). Að lokinni kosningu verður gerð grein fyrir niðurstöðum hennar.

Verkefnin verða framkvæmd á árinu 2012.