Um Betri hverfi

„Betri Reykjavík – Betri hverfi“ er samráðsvefur sem gefur íbúum Reykjavíkurborgar tækifæri að setja inn hugmyndir að smærri nýframkvæmdum og viðhaldsverkefnum í hverfum Reykjavíkur. Verkefnið er byggt á og er frekari útfærsla á verkefni um s.k. hverfapotta, sem áður hefur verið framkvæmt.

Um að ræða hugmyndir er haft geta áhrif á umhverfi og möguleika til útivistar og samveru, geta haft áhrif á aðstöðu eða tækifæri til leikja eða afþreyingar, hvetja til aukinna hjólreiða, bæta aðstöðu og möguleika gangandi eða bæta aðstöðu fyrir notendur strætó.

Auk þess sem íbúar Reykjavíkur geta sett inn hugmyndir eða tillögur að verkefnum í hverfum borgarinnar, rökrætt þær og gefið þeim vægi sitt, munu fagsvið Reykjavíkurborgar meta verkefnin. Í framhaldinu munu hverfaráðin stilla upp verkefnum sem íbúum gefst kostur á að kjósa um með rafrænum hætti. Með þessu er íbúunum gert kleift að forgangsraða fjármunum í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2012. Niðurstaða kosninganna um val verkefna er bindandi. Sjá nánar…

Heildarfjarmagn til þessara verkefna er 300 milljónir sem skipt er á milli hverfa borgarinnar samkvæmt ákveðinni reglu. Sjá nánar…

Hafa verður í huga að ekki er verið að kjósa um allar verklegar framkvæmdir á vegum Reykjavíkurborgar. Mun meira verður framkvæmt í hverfunum á næsta ári.

Tímasetningar

5. des – 23. jan

23. jan – 10. feb

10. feb – 1. mar

22. mar – 27. mar

30. mars

2012

Íbúarnir

Sviðin

Hverfaráðin

Íbúarnir

Að kosningu lokinni

Framkvæmd verkefna

Íbúar setja inn hugmyndir

Sviðin meta allt að 26 hugmyndir fyrir hvert hverfi

Hverfaráðin stilla upp allt að 26 verkefnum fyrir hvert hverfi

Íbúar kjósa um verkefnin

Niðurstöður settar á samráðsvefinn

Verkefnin framkvæmd 2012


Ferill aðgerða og ákvörðunartöku, skref fyrir skref.

1.

Íbúar setja inn hugmyndir á Betri Reykjavík – Betri hverfi, sem geta verið smærri nýframkvæmdir eða viðhaldsverkefni

2.

Lokað fyrir möguleikann að setja inn hugmyndir og gefa þeim vægi

3.

Allt að 26 efstu hugmyndirnar fyrir hvert hverfi teknar af Betri Reykjavík – Betri hverfi og metnar af starfsfólki sviða – allt að 13 nýframkvæmdir og 13 viðhaldsverkefni

4.

Ef hugmyndir eru of dýrar eða ekki framkvæmanlegar detta þær út (ekki verður kosið um þær)

5.

Næstu hugmyndir á eftir nr. 26 teknar eins og þarf og metnar

6.

Allt að 26 hugmyndum skilað til hvers hverfaráðs; alls allt að 260 hugmyndir

7.

Hverfaráð skoða dreifingu og geta bætt við allt að 6 verkefnum að eigin frumkvæði en fækka verkefnum íbúanna , ef þarf, þannig að þau verði ekki fleiri en 26

8.

Hverfaráð stilla upp allt að 26 verkefnum fyrir hvert hverfi sem íbúarnir kjósa á milli

9.

Íbúarnir kjósa á milli verkefnanna í tvo flokka; nýframkvæmdir og viðhaldsverkefni

Íbúarnir velja á milli allt að 13 verkefna í hvorn flokk eins og ráðstöfunarfé leyfir

10.

Reykjavíkurborg lætur framkvæma verkefnin á árinu 2012