|
Þær persónuupplýsingar sem krafist er við skráningu á Betri Reykjavík eru geymdar í gagnagrunni sem vistaður er á öruggum netþjóni á ábyrgð Íbúa ses.
Vinnsla þessara upplýsinga mun ávallt hafa það að leiðarljósi að tryggja að upplýsingar sem kunna að verða unnar verði aldrei persónugreinanlegar eða með nokkrum hætti hægt að samkeyra við virkni notanda á Betri Reykjavík. Einungis verður um að ræða upplýsigar um aldursbil notenda og kynjahlutfall sem notaðar verða til að meta hvort notendur Betri Reykjavíkur endurspegli þýði Reykvíkinga þannig að hægt verði að gera breytingar á vefnum sem kunna að verða til þess að auka notkun tiltekinna hópa.
Skráðar persónuupplýsingar verða aldrei afhentar þriðja aðila.
Við gefum hvorki upp nafn þitt né netfang. Einungis starfsmenn sjálfseignastofnunarinnar Íbúar Samráðslýðræði og ritstjórn Betri Reykjavíkur hafa aðgang að persónuupplýsingum sem geymdar eru í gagnagrunni og hafa þeir allir undirritað yfirlýsingu um trúnað.
Innskráning í gegnum facebook
Þeir sem eru innskráðir notendur á samskiptavefnum Facebook geta notað þá innskráningu til að gerast notendur á Betri Reykjavík. Aðgangur að Betri Reykavík verður ekki virkur fyrr en viðkomandi hefur samþykkt notendaskilmála betri Reykjavíkur. Auk þess getur hver sem er skráður á Facebook farið inn á Betri Reykjavík og nota like-takka við hugmynd. Mun Betri Reykjavík hvorki senda upplýsingar um notendur til Facebook né taka á móti neinu frá þeim nema upplýsingum um aðgang notanda sem vill tengjast Betri Reykjavík með þessum hætti.
Notendastillingar
Þú getur smellt á Stillingar til að velja hvaða nafn birtist við þínar færslur.
Allar aðrar valkvæðar upplýsingar sem þú gefur upp sjást á þinni síðu sem allir geta skoðað. Þú getur fjarlægt þær með því að smella á Stillingar
Skráðir notendur fá af og til póst frá kerfinu sem tengjast oftast málum sem þeir hafa sýnt áhuga. Þú getur slökkt á þessari virkni, en það hefur þær afleiðingar að þú munt þurfa að fara sjálfur á vefinn til að fylgjast með framgangi þinna hugmynda og munt ekki fá einstaka póst frá okkur um mikilvægar breytingar.
Ábyrgðaraðilar Betri Reykjavíkur eru:
Íbúar samráðslýðræði
Skipholt 11 – 13
108 Reykjavík
S: 8978229
ibuar@ibuar.is
Reykjavíkurborg
Ráðhúsi Reykjavíkur
Tjarnargata 11
101 Reykjavík
S: 4 11 11 11
upplysingar@reykjavik.is