Netfang

Lykilorð


Gleymt lykilorð

Hugrún - over 1 year síðan
Þessi hugmynd kom í síðustu viku í Kastljósi hjá Ellen Guðmundsdóttur .
Gunnar Páll Leifsson - over 1 year síðan
Þetta er langt frá því að vera ný hugmynd og er mun eldri en eins-tveggja ára gömul. En gott að hún skuli vera komin á loft á ný undir þessum formerkjum og vonandi að hún verði að veruleika. Helst vildi maður sjá nokkra veggi í Rvk sem væru ætlaðir til slíks brúks. Hugsanlega væri hægt að færast upp "stigann" og skreyta veggi sem eru meira áberandi en aðrir þegar árangur viðkomandi gæfi tilefni til slíks?
Ellen Guðmundsdóttir - over 1 year síðan
Takk fyrir þetta gott fólk. Ég vil taka það fram að þessi hugmynd um að hafa aðsetur fyrir veggjakrotara er ekki ný hugmynd og hefur verið í umræðunni annað slagið. En þessi hugmynd sem ég er búin að vera að smíða undanfarin tvö ár snýst um innri starfsemi og hvað unglingurinn þarfnast í þessu samhengi, þar sem áhorfandinn leikur lykilhlutverk og vil ég leggja upp úr sýningum og ýmsu öðru. Já vonum svo sannarlega að borgaryfirvöld taki við sér og skoði greinagerðina og hvað ég hef fram að færa þar ásamt því fagfólki sem verður með mér um borð.

3 more discussions in Setja upp aðstöðu fyrir unga vegglistamenn

Fólk sem gerir athugasemdir
Hugrún 0s

Gunnar Páll Leifsson 50s

Ellen Guðmundsdóttir 4s