|
|
|
Í vinnslu
Opið nefndarstarf með útvíkkun á netinu
Umræðan á vef Stjórnlagaráðs var oft til að dýpka eða varpa nýju ljósi á málefni nefnda.
Í okkar litla landi þurfum við að vinna saman til að ná fram bestu hugmyndum og lausnum.
Þessi vefur er stórt skref, svo er bara að halda áfram og prjóna þetta enn frekar inn í stjórnsýsluna.
15 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Í vinnslu
Opnunartíma sundstaða eins og hann var.
Í sumar var opnunartími sundlauga borgarinnar styttur í sparnaðarskyni. Sem dæmi þá er það svo að á LAUGARdögum loka allar laugar klukkan 17:00 - nema Laugardalslaug. Ég vil komast í kvöldsund í Vesturbæjarlauginni um helgar, það var hluti af mínu lífsmynstri. Ég held þetta hafi verið vond hugmynd og það sé góð hugmynd að breyta þessu aftur - niðurskurðarhnífnum á ekki að beita á sundlaugar, þær eru musteri líkama og sálar í Reykjavíkurborg.
13 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Hvers vegna 95% en ekki 100%? Því ofur-frjálshyggjumarkaðssinnar vilja alltaf hafa samfélagslega tryggingu þegar allt klúðrast hjá þeim - til dæmis þegar enginn sér sér fært að leggja pening í að laga Miklubrautina vegna þess að "aðrir nota hana meira en ég". Kannski þetta myndi ganga upp, en róttækt stökk í átt að lágmarksborg myndi svipta okkur trygggingu fyrir vegakerfi, grunn- og leikskólum, menningarstofnunum og sorphirðu, svo fátt eitt sé nefnt. Veljum frekar meiri valddreifingu.
13 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Ég gæti skrifað langan pistil á móti þessari hugmynd, en læt það nægja að segja þetta:
Gleðigangan hefur verið nákvæmlega það í reykvísku menningarlífi - borgarbúum til gleði, óháð kynhneigð og öðrum atriðum sem stundum skilja okkur að.
Í Gleðigöngunni geta allir tekið þátt og hafa borgarbúar svo sannarlega sýnt afstöðu sína til hennar og þeirra málefna sem barist er fyrir í henni, með gríðarlegri þátttöku sem ekki þekkist í neinni annarri borg.
Gleðigangan fagnar öllum mannréttindum!
10 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Í vinnslu
OPIN STJÓRNSÝSLA
Leyndarhyggja er landlægt vandamál í opinberri stjórnsýlsu. Þessu þarf að breyta. Ég legg til að Reykjavíkur borg setji sér eigin upplýsingalög (sem Alþingi heykist á að gera) um opna stjórnsýslu, þar sem allar ákvarðanir og rök fyrir þeim eru opinber gögn - og þau mál sem ekki eru talin þola ljósið þurfi að skilgreina nákvæmlega og færa rök fyrir því hvers vegna.
9 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Gleðigangan er gegn fordómum. Fordómar eiga aldrei rétt á sér.
8 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Ég vil að Reykjavík stuðli að sameiningu allra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í eina rekstrareiningu. Í stað bæjarstjórna og endalausra nefnda og ráða má gera því skóna að hvert bæjarfélag hafi sitt hverfaráð sem hefur vald til að skjóta málum til sameinaðrar yfirstjórnar þessa nýja sveitarfélags. Með þessu móti yrðu byggðasamlögin úr sögunni og þau fyrirtæki kæmust á bein fjárlög frá hinu stóra sveitarfélagi. Þannig myndu ákvarðanir verða teknar hraðar og framkvæmdir þar af leiðandi örari.
9 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
|
|
|
segja bragð af því. Það er fáránlegt að erlendar stóriðjur séu þeir einu sem fá ódýrt rafmagn. Ódýrara rafmagn til garðyrkjubænda kæmi til með að lækka verðið og gera afurðirnar mögulegar fyrir láglauna fólk. Það er fátækt í þessu landi og sorglegt að þeir lægst launuðu geti ekki keypt hollt og gott sem er vitað hvaðan það kemur. Það gagnar lítið að tala um heilsueflingu og styðja ekki íslenskar afurðir.
7 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Í vinnslu
Betri Reykjavík á landsvísu
Ísland á að vera leiðandi í að nýta samráðslýðræði við ákvarðanir og stefnumótun. Betri Reykjavík er komin til að vera en það er engin ástæða til að stoppa þar. Það er rakið að nýta þetta frábæra tæki fyrir landið í heild - og svo fleira og fleira. Útbreiðsla hugmyndarinnar út fyrir landssteinanna er þegar hafin en líklegast er að hún gerist nokkurn veginn af sjálfu sér. Byrjum heima.
6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Í vinnslu
Opið nefndarstarf með útvíkkun á netinu
Ég er sammála en vill benda á að oft hefur verið reynt að framkvæma þessa hugmynd í ýmsum útfærslum sem allar dóu drottni sínum sökum þess að stjórnvöldin sem yfirleitt áttu frumkvæðið enduðu með að taka aldrey mark á því sem almeningur hafði fram að færa.
7 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
|
|
|
Afgreitt
Betri samskipti við borgara
Sendi inn svo kallaða fyrirspurn til Skipulagassviðs Reykjavíkurborgar í sumar. Málið tafðist um viku þar sem gögn vantaði frá aðila inna stjórnsýslunnar, það hefði verið lítið mál fyrir viðkomandi að senda tölvupóst og upplýsa mig um stöðuna. Það tók mig nokkur símtöl og tölvupósta til að komast að því. Svo þegar niðurstaða fékkst þá var svarið bara eitt orð: Nei. Ekki gefnar neinar upplýsingar um hvað hægt væri að gera ef ég væri ekki sáttur né heldur frekari rökstuðningur fyrir neitun.
6 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
|
|
|
if energy is cheaper for food growers, iceland could be closer to being self-sufficient in food production. Why not support cheaper energy to these causes rather than heavy industry?
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Í vinnslu
Opið nefndarstarf með útvíkkun á netinu
Ætli það sé ekki réttast að lýsa þessu aðeins betur ef málið fer í vinnslu um næstu mánaðarmót.
Ég sé fyrir mér að dagskrá nefndarfunda verði gerð aðgengileg á vefnum 1-2 dögum fyrir fund. Þá væri í boði að setja inn athugasemdir við dagskrárliði áður en fundur hefst og eftir að fundargerð hefur verið rituð.
Þannig hefðu bæjarbúar tækifæri til að taka virkan þátt og fulltrúar jafnvel óskað eftir umsögn almennings fyrir fundi.
Þetta er frekar þurrt svona: http://bit.ly/rJUul5
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Borgarfulltrúar gætu tekið 4 tíma á viku í að svara fyrirspurnum hér á vefnum sem tengjast hinum og þessum málum. Með þvi er hægt að sjá hvar þeir standa í hinum og þessum málum. Þetta ætti að skapa gagnsæi og endurskapa traust á embættismönnum. Að sálfsögðu geta þeir stundum svarað með "Ég veit ekki"!
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
"Samkeppni" eru kjánaleg rök. Það þarf klárlega meiri samvinnu milli sveitarstjórnareininga höfuðborgarsvæðisins, en slíkt mætti betur ná fram með sameiginlegu höfuðborgarráði sem er samsett af fulltrúum hvers hverfis. Það er erfitt að ímynda sér að eitt sveitarfélag sem spannar allt höfuðborgarsvæðið geti sinnt íbúum í öllum smáhverfunum jafn vel og vel skipulögð hverfi með sjálfstætt ákvörðunarvald.
7 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Er ekki nóg að benda á það að hátt í 1/3 af íslensku þjóðinni sæki Gleðingönguna til að benda á að hún sé ekki tímaskekkja :)
Uppruni: http://www.gaypride.is
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Gleðiganga Hinsegin daga er svo sannarlega framför, þar sem hinsegin fólk staðfestir tilveru sína, sýnileika og gleði og er gangan hluti að mun stærri hátíð og baráttu. Já hugsanlega stuðlar slík hátíð að betri heilsu þar sem fólk t.d. þorir frekar að koma út úr skápnum, færri svipta sig lífi þegar auknum mannréttindum er náð. Ég fagna því að samfélagið okkar sé að þroskast á þennan hátt og að mannréttindi, menning og margbreytileiki renni styrkari stoðum undir betri Reykjavík - betri Ísland!
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Þannig að ég læt mér nægja að kjósa gegn þessum fordómum.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Ég get ekki séð að það sé neinn skortur á fólki sem vill vera í borgarstjórn og hafa áhrif. Launin skipta þar ekki höfuðmáli. Það er hins vegar gott fyrir þá sem hafa lítil laun að tengja laun stjórnenda við þau - því stjórnendur hafa yfirleitt möguleika á að tosa sín laun upp á við umfram aðra. Þannig getur þessi tenging orðið til þess að hífa aðra upp - þá sem raunverulega þurfa þess með.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Það er staðreynd að við flytjum inn 93% af grænmeti og ávöxtum. Mundi skapa mjög mörg störf, spara gjaldeyri og við fengjum ferskari vöru. Það sem við fáum hér er ekki fyrsta flokks, er yfirleitt viku á leiðinn með skipi.
Reykjavík hefur allt til að vera frumkvöðull á þessu sviði, landsvæði, orku og markað fyrir vöruna.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
á móti
skattur á tyggjó 10 krónur.
Borgin getur ekki séð um að leggja skatt á tyggjó.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Sameining sveitarfélaganna myndi koma í veg fyrir þá samkeppni sem þó ríkir á milli sveitarfélagana um að veita sem besta þjónustu og leggja á sem lægsta skatta. Það veitir óneitanlega ákveðið neytendaaðhald að ef bæjarfélag stendur sig ekki í stykkinu, þá getur það misst burt útsvarsgreiðendur. Eins ef það stendur sig laðar það að fleiri og auðugari íbúa. Nógu slæm er nú ástandið samt.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Hér á Betri Reykjavík gæti verið svarbox þar sem hægt að beina ákveðnum fyrirspurnum til borgarfulltrúa ýmist einhver einn fulltrúi eða allir. Þeir þurfa að svara spurningum og við getum öll séð fyrir hvað þeir standa. Tökum sem dæmi leikskólapláss. Hvernig má það vera að leikskólar séu með laus pláss en megi ekki nota þau vegna sparnaðar í starfsmannagildum? Er það þjónusta við borgara að skerða þjónustu við yngstu þegna borgarinnar? Hvar standa borgarfulltrúar í þessum málum?
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Til er opinn hugbúnaður til að auðvelda borgurum að tilkynna með símaboðum það sem þeir sjá að er að í umhverfinu og vilja að borgaryfirvöld lagfæri. Með því að Reykjavíkurborg taki í notkun slíkt kerfi geta borgarar tekið þátt í að fylgjast með hvar viðhalds sé þörf og létt þannig undir með borginni. Þetta er ókeypis, opinn hugbúnaður og því enginn kostnaður nema innlend þróunarvinna við uppsetningu og þýðingu.
Uppruni: http://www.fixmystreet.com/
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Við sjáum daglega hærra vöruverð og lægri ráðstöfunartekjur einstaklinga - einkum þeirra sem hafa það verst. Ein leið til að bæta þetta er að binda laun stjórnenda við laun þeirra sem hafa minnstar tekjur, öryrkja og verkafólks. Til dæmis hafa þau tvöföld eða svo. Það myndi fljótlega heyrast eitthvað úr því horninu og örugglega myndu lægstu laun hækka mjög fljótt. Eins á ekki að sjá þeim sem hafa hæstu tekjurnar fyrir hlunnindum á borð við bíla, síma og mat. Þeir geta borgað fyrir sig sjálfir.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Fólk á að fara útí pólitík af hugsjón, ekki vegna peninga.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Garð hirða Rvk var einkavædd= túnin eru í órækt í öllum úthverfum. Götusóparar voru einkavæddir= Svifryk er að drepa alla, Orkmæla aflestur og leiga í höndum Finns Ingólfs. Ég minni á Hraðbraut svíkjandi út 165 miljónir. Einkavæðingar hafa ansi oft reynst almenningi dýrt og iðulega gerðar til að hampa einhverjum vinum.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Var ekki vandamálið þegar þeim var lokað kl 3 að skemmtunin færðist frekar inn í hverfin og heimahús eftir lokun með tilheyrandi röskunum og óþægindum. Að auki mundi ég ætla það of stórt stökk að færa opnunartímann frá 5 upp í 1. Eitthvað sem ég gæti trúað að væri erfitt að fá bæði rekstrarfólk veitingahúsa sem og neytendur til að samþykkja svo glatt.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Auk þess sem áður var sagt, þá eru ástæður þess að fólk kemur seint í bæinn (og langar því seinna heim) fleiri en það að staðirnir séu opnir lengi. T.d. held ég að hátt verð á áfengi vegna himinhárra skatta á því sé meiri áhrifavaldur í því samhengi - fólk vill drekka ódýrt heima/í partýi til að þurfa ekki að eyða jafn miklu þegar komið er á barinn. Lækkun áfengisskatta væri þ.a.l. áhrifameiri við að koma fólki út fyrr (og því heim fyrr) en að færa til lokunartíma staðanna, ef þess væri óskað.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Afgreitt
Gera bókhald borgarinnar sýnilegra
Almenningur þarf að fá betri og nákvæmari vitneskju um það í hvað skattpeningarnir fara. Væntanlega má gera betur í að spara í stjórnkerfinu sjálfu - áður en til þess kemur að skerða þjónustu.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|