|
|
Í vinnslu
Stúka við Fylkisvöll
Fylki vantar stúki við knattspyrnuvöll til þess að geta áfram spilað heimaleiki sína í Árbæ frá og með maí 2012.
53 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Í vinnslu
Stúka við Fylkisvöll
Fylkir er eina stúkulausa félagið á höfuðborgarsvæðinu. Reykjavíkurborg hefur ekkert verið að spara peningaeyðsluna í stærri knattspyrnulið höfuðborgarinnar undanfarin ár. Löngu kominn tími á smá aðstoð fyrir tæplega 10% íbúa borgarinnar. Fyrir utan það þá er enginn að tala um að henda 300 milljónum í áhorfendastúku, en við þurfum vissulega aðstoð. Hvort sem það er með lánveitingu eða styrki, þá eiga Árbæingar það skilið.
31 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Í vinnslu
Björnslundur - Norðlingaholt
Geri hér tillögu um að Reykjavíkurborg haldi áfram framkvæmdum við Björnslund, Norðlingaholti. Hér þarf að leggja til fjármagn til að setja upp lýsingu í lundinn-ljósastaura, bekki fyrir fólk að setjast, ruslatunnur, bæta gangstíga, nytja skóginn rétt og rækta hann upp, efla vitund fólks um umgengni lundarins, bæta alla aðstöðu fyrir börn og gamalmenni, bæta þarf bílastæðamál við lundinn, bæta aðstöðu fyrir jólasveina og aðra sem vilja koma fram, ofl ofl. Alger útivistar paradís... Koma svo..
19 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Gengur út á það að tengja hverfið betur við þetta vinsæla útivistarsvæði sem Rauðhólar eru og skapa möguleika til að taka hring um svæðið. En í dag er einungis ein brú á svæðinu yfir Bugðu niður við ósinn.
Hugmyndin miðast við að áframhaldandi stígur verður frá miðju Móvaðs yfir Bugðu annarsvegar og inn í hverfið aftur við Hólmvað.
Miðast við malarstíga og einfaldari brýr yfir Bugðu.
13 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Í vinnslu
Báta og vesti fyrir krakkana í hverfinu
Útvega báta og einhvern ákveðinn fjölda af björgunarvestum sem yrði haldið utan um af útivistarteymi Norðlingaskóla.
Mat á fjölda báta og vesta gagnvart þessari hugmynd skal vinna kostnaðargreiningu í samráði við útivistarteymi Norðlingaskóla.
13 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Það vantar lokað leiksvæði sem getur nýst foreldrum og dagmæðrum í hverfinu til útiveru. Þessi hugmynd gengur út á að lagfæra opið svæði innst í Kambavaði og girða það af, allavega að hluta til. Skoða möguleg leiktæki til viðbótar.
12 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Í vinnslu
Lítil snjóþotubrekka í Norðlingaholti
Það er samkvæmt skipulagi ætlunin að hafa hól á lóð Norðlingaskóla sem gæti nýst þessu hlutverki. Okkar ábending er að skoða það sérstaklega með framkvæmdum þar að hugsað verði sérstaklega að þessum þörfum á þeim hól og styðjum við þessa hugmynd heilshugar.
12 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Halda áfram með og bæta verulega við þann trjágróður sem nú þegar er. Mun hjálpa gríðarlega til við að brjóta upp vindstrengi inn í hverfið.
Hugmyndin gengur út á að gróðursetja blandaðan trjágróður og gott væri að byrja með örlítið stærri tré af fljótvaxnari tegundum eins og öspum sem má svo fjarlægja þegar annar gróður kemst á skrið.
Fjármagn vantar til plöntukaupa en gróðursetningin sjálf mætti vera í samstarfi með grunnskóla og leikskóla ásamt öllum þeim sem áhuga hafa. Vor og haust átak.
11 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Hugmyndin gengur út á fjármögnun ávaxtalundar að nýju í Björnslundi á fyrirfram ákveðnu svæði þar. Til viðbótar innan þessarar hugmyndar þarf að kostnaðargreina þá grisjun sem þarf innan Björnslundar ásamt því að gróðursetja ýmsar tegundir.
Lykilatriðið er að öll nánari útfærsla varðandi umfang og kostnað sé í fullu samráði við samstarfshóp sem er til staðar um Björnslund.
11 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Í vinnslu
Björnslundur - Norðlingaholt
Útbúa og lagfæra göngustíga sem eru nú þegar skilgreindir á teikningu. Göngulýsing stíga gegnum skóginn ásamt lýsingu lykilsvæða innan lundarins. Útvega efni þannig að Norðlingaskóli gæti jafnvel smíðað bekki fyrir lundinn sem hentar betur lundinum en hefðbundnir bekkir.
Ýmislegt fleira mætti skoða en úttekt hefur verið gerð á lundinum um hvað þörf er á.
Lykilatriðið er að öll nánari útfærsla varðandi umfang og kostnað sé í fullu samráði við samstarfshóp sem er til staðar um Björnslund.
11 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Íbúar í Norðlingaholti sækja þjónustu í Ögurhvarf.Þar eru matarbúðir,bakarí,apótek ofl.Ef maður vill vera umhverfisvænn og hjóla eða ganga þangað frá Norðlingaholti með börnin sín þá gerir göngubrúin yfir Elliðaá það manni erfitt fyrir.Brúin er mjög brött,það er mjög erfitt og stundum hættulegt að fara þar yfir með barnavagn eða hjól.Það er heldur ekki hægt að fara yfir með hjólavagn.Með lagfæringu brúarinnar styrkist Norðlingaholtið í að vera sjálfbært hverfi og útivistar-og barnafólk þakklátt.
10 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Í vinnslu
Fjölga ruslatunnum í Norðlingaholti
Teljum þörf á að fara yfir fjölda ruslatunna innan hverfis og bæta við ruslatunnum á gönguleiðum á útivistarsvæðum í kringum Norðlingaholtið, sérstaklega svæði Rauðhóla, Björnslundar og í átt til Elliðavatns/Heiðmerkur.
10 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Fjölga nettari trjálundum á opnum svæðum innan hverfis. Með áherslu á nytjategundir svo sem berjarunna og ávaxtatré, t.d. kirsuberjatré víða um hverfið.
10 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Vantar litla girðingu eða runnkenndan gróður sem hindrar börn við fjölbýlishúsið Reiðvaði að renna út á götuna þegar leikið sér er á sleðum þar við. Hefur legið við alvarlegum slysum nú þegar út af þessu.
Mætti setja upp runnkenndan gróður víða milli gangstétta og gatna til að hindra börn í að fara út á götur hér og þar.
10 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Í vinnslu
Stjörnufræði miðstöð í Norðlingaholti
Með tilliti til þess að þessi frábæra hugmynd verður væntanlega sett til hliðar þar sem kostnaður er of hár gagnvart hverfapottinum þá viljum við leggja til byrjun að þessu verkefni með því að kaupa nokkra stjörnusjónauka sem yrðu þar til notkunar fyrir hvern þann sem áhuga vill úr hverfinu. 5-10 stk. kannski en nánar í samráði við Norðlingaskóla.
10 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Alls ekki er lagt til að breyta notkun hverfisverndarsvæðis við Bugðu. Einungis gróðursetning þar sem leyft er samkvæmt skipulagsskilmálum.
Ef ekki er svigrúm samkvæmt skipulagi þá fellur þessi hugmynd niður.
10 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Í vinnslu
Stúka við Fylkisvöll
Lög haf breyst í umgjörð knattspyrnunar og snúa ein lögin að því að nú verða félög að hafa stúku þ.e oryggiskrafa,þetta er kostnaðarsamt verkefni verða sveitarfélög að styðja við þau.Það þarf ekki að fara mörgum orðum um forvarnir knattspyrnunar.Fylkir hefur staðið sig frábærlega sem íþróttafélag og á hrós skilið,þess vegna verður borg að styðja við verkefnið.Árbær er appelsínugulur á sumrin vegna þess að Fylkir er að spila knattspyrnu,félagið er borginni til sóma bæði innan sem utan vallar.
9 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Í vinnslu
Lagfæring á göngubrú við Breiðholtsbraut
Göngubrúin við hlið Breiðholtsbrautar yfir Elliðaá tengir Norðlingaholt, Breiðholt og Kópavog saman. Hins vegar er hún að komast til ára sinna og eru ramparnir upp á hana mjög brattir og erfitt að fara upp og niður hana með t.d. barnavagna eða hjól, sérstaklega hjól með tengivagni.
Tillagan er því sú að breyta römpunum upp á brúna þannig að þeir séu mun meira aflíðandi og auðveldara að fara yfir hana. Það yrði mikil samgöngubót milli hverfanna þriggja.
9 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Í vinnslu
Hljóðvarnir gagnvart umferðaræðum.
Gengur út á að setja upp fleiri og betri manir við umferðaræðar eins og Breiðholtsbraut og Suðurlandsveg. Einnig að gróðursetja í belti meðfram þessum götum sem þjónar þá sama tilgangi.
Gæti verið saman, gróðursett í manir.
9 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Samkvæmt skipulagsskilmálum eru stígar leyfðir.
"4. Gera má útivistarstíga / malarstíga á völdum leiðum um svæðið."
9 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Mig langar að sjá nýja göngubrú yfir Bugðu, svo hægt sé að gera gönguleið sem er í hring, það er svo hægt sé að ganga frá Norðlingaholti yfir í Rauðhóla/Heiðmörk og svo aftur til baka yfir aðra brú en sú sem fyrir er. Þannig verður hægt að ganga yfir í Rauðhóla á einum stað og svo aftur til baka á öðrum stað. Þetta myndi skapa enn meiri útivistarmöguleika í Norðlingaholti og tengja betur holtið við Rauðhóla. Brúin gæti komið upp við Hólmvað, og göngustígur þar yfir í Heiðmörk/Rauðhóla.
9 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Á þessum gatnamótum getur skapast ansi mikil umferð á álagstímum. Einnig er aðstaðan fyrir gangandi vergfarendur yfir Bæjarbrautina allt of nálægt gatnamótunum og því getur skapast mikil hætta þar þá sérstaklega fyrir börn. Það er nauðsynlegt að taka þessi gatnamót í skoðun og finna góða lausn hvort sem það felur í sér að setja upp hringtorg eða einhverja aðra lausn. Það verður að vera hægt að tryggja öryggi gangandi vegfarenda og þá sérstaklega barnana í hverfinu.
9 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
|
|
|
Í vinnslu
Stjörnufræði miðstöð í Norðlingaholti
Mig langar að sjá nýja Stjörnufræðimiðstöð rísa í Norðlingaholti. Stjörnufræði miðstöð til að efla áhuga og vitund barna okkar á geiminum, stjörnunum, sólkerfinu og öllu öðru sem sést á himinhvolfi. Setja upp stóran geim-sjónauka og tengja þessa miðstöð Norðlingaskóla. Fræði- og lærdóms miðstöð á heimsmælikvarða. Gæti verið staðsett í Rauðhólum, með göngustíg frá Norðlingaskóla, yfir nýja brú yfir Bugðu og allir alsælir. Kveðja Konráð Gylfason, Norðlingaholti.
Uppruni: http://www.stjornufraedi.is/
8 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Í vinnslu
Trukkana burt úr íbúðahverfum
Geymsla atvinnubíla (Trukka af öllum tegundum) í íbúðarhverfum flokkast undir umhverfissóðaskap,sofandahátt í
skipulagsmálum og tillitsleysi við íbúa þeirra hverfa sem mega sætta sig við þennan ófögnuð.Þegar trukkarnir eru
hita sig upp eftir næturdvöl í friðsælu úthverfi leggur dísilstybbuna um nágrennið.Þetta skapar líka aukna slysahættu
á þeim tíma sem börn eru á leið í skóla . Reykjavíkurborg á ekki að sjá fyrirtækjum fyrir geymslusvæði f bílana
8 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
|
|
|
Þarna eru gríðarlega mikil umferð og óhöpp nokkuð tíð. Einnig eru gangbrautir allt of nálægt sjálfum gatnamótunum og skapast því mikil hætta fyrir börn sem fara þarna yfir. Það verður að skoða þann möguleika að setja upp hringtorg. Einnig væri hægt að skoða það að opna á bílaplanið fyrir aftan Bónus og hleyp umferð út þar inn á suðurlandsveg. Það gæti létt talsvert á þessum gatnamótum.
6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Ef maður lendir í slíku slysi á hjólinu, þá orsakar girðing það bara að maður steypist framyfir sig yfir girðinguna, á meðan það að maður hjólar beint útaf ef girðingin er ekki. Ég hugsa að það sé alltaf öruggara að sleppa girðingunni heldur en að hafa hana. Sennilega líklegra að koma heill frá þessu ef girðingin er ekki.
6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Ég vil leggja til nýja nálgun á 17. júní skemmtunina í borginni. í staðin fyrir að stefna öllum í miðbæinn væri betra að halda skemmtanir sem væru nær íbúunum. T.d halda sér skemmtun í Grafarvogi, Aðra í Árbæ og enn aðra í Breiðholti.
Þetta myndi minnka umferð og myndi líka efla ímynd hverfisins meðal íbúa.
6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Yngstu iðkendur Fylkis í knattspyrnu hafa sl ár stundað sumaræfingar á grassvæðum við Hraunbæ þar sem umferð bifreiða er talsverð. Til að komast að svæðinu fyrir gangandi þarf að fara yfir umferðargötuna. Mörg börn eru keyrð á æfingar með tilheyrandi umferð. Með því að búa til afgirt grassvæði á Brennuhól ( þar sem Fylkisbrennan var áður ) verður hægt að skipuleggja æfingar barna á frá fjögurra ára aldri í öruggu umhverfi og við höfuðstöðvar Fylkis, ýmist á gervigrasvellinum eða Brennuhól.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Í vinnslu
Stúka við Fylkisvöll
Lög haf breyst í umgjörð knattspyrnunar og snúa ein lögin að því að nú verða félög að hafa stúku þ.e oryggiskrafa,þetta er kostnaðarsamt verkefni verða sveitarfélög að styðja við þau.Það þarf ekki að fara mörgum orðum um forvarnir knattspyrnunar.Fylkir hefur staðið sig frábærlega sem íþróttafélag og á hrós skilið,þess vegna verður borg að styðja við verkefnið.Árbær er appelsínugulur á sumrin vegna þess að Fylkir er að spila knattspyrnu,félagið er borginni til sóma bæði innan sem utan vallar.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Í vinnslu
Stúka við Fylkisvöll
Lög haf breyst í umgjörð knattspyrnunar og snúa ein lögin að því að nú verða félög að hafa stúku þ.e oryggiskrafa,þetta er kostnaðarsamt verkefni verða sveitarfélög að styðja við þau.Það þarf ekki að fara mörgum orðum um forvarnir knattspyrnunar.Fylkir hefur staðið sig frábærlega sem íþróttafélag og á hrós skilið,þess vegna verður borg að styðja við verkefnið.Árbær er appelsínugulur á sumrin vegna þess að Fylkir er að spila knattspyrnu,félagið er borginni til sóma bæði innan sem utan vallar.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|