|
|
|
|
|
|
|
|
Óskar Guðlaugsson
- 20 dagar síðan
Þetta er eiginlega kjarni málsins. Ökumenn eru annars ekkert minna útsettir fyrir þessa mengun (hvaðan kemur loftið inn í bílana?), svo ekki sé minnst á íbúa við ákveðna vegakafla eins og Miklabraut við Hlíðar og Hringbraut í Vesturbæ. Mengun bílaumferðar er bara ein af mörgum mikilvægum ástæðum til að draga úr þessari umferð. |
|
|
|
|
Jórunn Edda Helgadóttir
- 20 dagar síðan
- |
|
|
|
|
Óskar Guðlaugsson
- u.þ.b. 1 mánuður síðan
Gott fólk. Áður en þið veljið að styðja þessa hugmynd, takiði augnablik til að athuga að vandamálið er alls ekki til staðar og þar með er öll hugmyndin byggð á misskilningi. Á hlekknum að ofan kemur fram að 600 matjurtagarðar verða í boði í Reykjavík sumarið 2012 og skráning hófst 18. janúar. Skólagörðum var aldrei lokað! - Nafninu var breytt í "fjölskyldugarðar" ásamt einhverjum öðrum smáatriðum. |
|
Valgerður Marinósdóttir
- 21 dagar síðan
Er það þá ekki rétt skilið að Reykjavíkurborg leggi ekki lengur til grænmeti og aðstoð í görðunum ????? Rök með því að opna þetta aftur fyrir börn og ungmenni eru þau m.a. að ekki hafa allir foreldrar ráð á að kaupa grænmeti fyrir garðana, né hafi þeir tækifæri til að styðja börnin sín í ræktuninni. Fjölskyldugarðar eru fínt úrræði, þeim sem það hentar. |
|
|
|
|
FHS
- 22 dagar síðan
Flest íbúasamök eru með hreinsunardag, það mætti líka hugsa sér sérstaka sópdaga. En því ætti fólk ekki að taka til í kringum sig, af hverju á einhver annar alltaf að gera það ? Annars væri best að kenna sæmilega umgengni, bæði í heimahúsum og skólum. Það er raunverulega það eina sem gæti breytt ástandinu. |
|
|
|
|
Mynta
- 3 mánuðir síðan
Mér finnst Sundhöllin heillandi eins og hún og ekkert athugavert við hana. Annars mæli ég með því að þið sendið póst bara beint á Sundhöllina og leggið þetta til til þeirra. |
|
Bergur E. Sigurðarson
- u.þ.b. 1 mánuður síðan
Vissulega er Sundhöllin afar skemmtileg og falleg bygging og góð til síns brúks.... og ég myndi alls ekki vilja láta breyta henni á nokkurn veg þannig að nokkuð af arkitektúrnum myndi líða fyrir... en almenninlegt viðhald... ekki bara rétt nægilegt - er nauðsynlegt! Núna eru sturtur oft ansi lélegar og mættu oft vera í betra standi - en umfram allt, almenninleg gufa og nudd sem virkilega NUDDAR...ekki þetta gutl sem nú er ! Það eru hlutir sem er grunnur fyrir að séu og séu í lagi í byggingunni án neinna meiriháttar breytinga og ÆTTU því að vera í lagi ! |
|
|
|
|
Óskar Guðlaugsson
- u.þ.b. 1 mánuður síðan
Þessi rök eru ætluð sem málefnaleg mótrök, þó ég sé ekki alfarið á móti hugmyndinni og sé yfirleitt hlynntur takmörkunum á umferð. Get vel skilið að Rakel sé sem íbúi götunnar ósátt við ástandið eins og það er. |
|
|
|
|
Rakel Kristinsdóttir
- u.þ.b. 1 mánuður síðan
Þetta myndi eflaust einnig draga úr umferð hjá þeim sem búa á Háteigsveginum fyrir ofan Lönguhlíð og bæta öryggi barna sem eru á leið í skólann. |
|
|
|
|
Jórunn Edda Helgadóttir
- u.þ.b. 1 mánuður síðan
- |
|
|
|
|
Vidar Eggertsson
- u.þ.b. 1 mánuður síðan
Óþörf tillaga, því þetta er þegar hægt. Gámaþjónustan leigir út svona tunnur til tímabundinna nota og maður borgar í raun fyrir losun þeirra. |
|
Vidar Eggertsson
- u.þ.b. 1 mánuður síðan
Eins bjóða þeir græna garðapoka. Í verði þeira er fólgið að þeir sækja þá heim til fólks þegar það hefur fyllt þá af garðaúrgangi. Sumum finnst það hentugra en grænu tunnurnar sem þeir bjóða upp á. |
Betri hljóðvist í Reykjavík