Betri Fjárhagsáætlun 2013 rök

Á vetrum og miklum rigningum er oft erfitt að fara eftir þeim göngstígum sem ekki eru malbikaðir á Klambratúni. Þeir verða forarsvað og þá sekkur maður í drullu. Það er eins og frágangi sé ekki lokið á þessu svæði þó áratugir séu síðan túnið var gert eins og það er nú.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Við höfum öll tekið eftir þeim fjölbreytta hópi tekjulágs fólks sem gægist ofan í ruslatunnur til að safna dósum og flöskum til endurvinnslu. Þetta fólk þykir mér eiga skilið þakklæti, því það hjálpar samfélaginu við flokkun og endurvinnslu. Væri athugandi að setja upp einhvers konar aukahólf við almenningsruslakassa sem taka sérstaklega við flöskum & dósum, sem fólkið gæti svo auðveldlega losað?
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Barnafólk og fleiri þurfa hollar og ódýrar afþreyingar, ótrúlegt að sundlaugin í svona hverfi lokar kl. 18 um helgar. Nær að loka fyrr í miðri viku.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það er vel þekkt í fyrirtækjum á Norðurlöndunum að mikinn pening má spara með því að senda þá sem keyra fyrirtækjabíla á námskeið í umhverfsivænum akstri (ecodriving). Auk þess að spara pening myndi umhverfisvænn akstur hafa jákvæð áhrif á mengun í borginni.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Ótrúlegt má virðast að í gegnum alla umræðuna um möguleikann á stöðumælum við HÍ hefur nánast engin umræða átt sér stað um hversu ömurleg skilyrði gangandi og hjólandi vegfarenda á þessu svæði eru, þó nátengd sé. Eitt eða fleiri eftirtalinna atriða eiga við of stóran hluta gangstétta: a) ekki til staðar b) bjóða ekki upp á neitt nálægt stystu leið frá A til B c) sífellt undir vatni (t.d. stígar á lóð bókhlöðunnar) d) bjóða ekki upp á gott, ef eitthvað, aðgengi fatlaðra eða fólks með barnavagna
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Vil endilega benda á betri strætó-leiðarkerfi borgarinnar s.br. leiðarkerfið í Osló og Kaupmannahöfn sem dæmi. Þar stendur farþeginn í skýli sínu og getur fylgst með strætó, hvar hann er og hversu langt er í hann í mínútum.Stafræn leiðartafla við hvert skýli, tengt vagninum sjálfum. Þetta kerfi er tengt inní strætisvagninum sjálfum og öll áætlun stenst alveg. Rafrænt strætókerfi, takk! Reykjavík, borg rafmagnsins! Þetta er tillaga inn í framtíðar-leiðarkerfi borgarinnar.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Einn besti staður í Reykjvík þar sem hægt væri að setjast niður og njóta sólarlagsins að sumri til er við hlið JL-hússins í Vesturbænum. Ég sting upp á því að þessi auða lóð þar sem Lýsisverksmiðjan stóð eitt sinn ýmsum til ama verði nýtt öllum til góðs. Á þessum stað vil ég að Sólsetursgarðurinn verði hannaður þar sem hægt væri að tylla sér og horfa á sólina hníga í sjóinn. Margt eldra fólk býr í nágrennigu sem rogast með matarpoka heim til sín gæti hvílt sig þar á leið heim úr matvöruverslun.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Bráðaþörf er á vitrænni umferðartengingu á milli Skerjafjarðar (687 íbúar + norðurhlutinn) og KR íþrótta- og verslunarsvæðisins í Vesturbæ, líka fyrir strætótengingu. Best er að fylgja jaðri byggðarinnar, enda eru Ægisíða (og Þorragata) einungis með hús öðru megin. Mikil hætta fylgir núverandi ástandi sikk sakk í gegn um hverfin. Beintenging Ægisíðu við hringtorgið fylgir framtíðarsýn með minnstum óþægindum fyrir íbúana. Umferð inn og út úr hverfunum meðfram flugvelli minnkar álag á Melatorgi.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Hvernig væri nú að hægt væri að leigja grænar tunnur í nokkrar klst eða daga, svona rétt á meðan garðurinn er þrifinn ? Innifalið í leigunni væri, sækjum og sendum þjónusta, - þetta kemur sér vel fyrir aldraða, fyrir þá sem ekki eiga bíl, og kemur í veg fyrir að garðaúrgangur fari í svörtu tunnuna. Og borgin gæti fengið örlítið hærri tekjur með því að leigja sömu tunnuna nokkrum sinnum í mánuði.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Draga úr óþarfa framkvæmdum OR og einbeita sér að kjarnastarfsemi. Reykjavík þarf ekki á meiri orkuframleiðslu að halda næstu áratugi en lægra verð á rafmagni og hita væri kærkomin búbót. Virkja minna, skulda minna.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
á móti Grænu tunnurnar
Óþörf tillaga, því þetta er þegar hægt. Gámaþjónustan leigir út svona tunnur til tímabundinna nota og maður borgar í raun fyrir losun þeirra.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það er borgað sérstakt aukagjald ef maður notar nagladekk í Osló, og hefur dregið úr notkun. Auðvitað verður að skoða málið vel, og kannski stefna að þessu haustið 2013 frekar en frá janúar 2013.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Nagladekkin slita göturnar og auka þannig kostnað borgarinnar við malbikun. Þá draga hjólförin úr umferðaröryggi og ofmat á öryggi með nagladekkjum getur líka haft áhrif í sömu átt. Nagladekkin bæta við oþægilegt og heilsuspillandi svifrykið. Alþjóðleg vimið um svifryk fara lækkandi, og eru braðum að ná okkur í skottið. Það verður því að grípa til aðgerða. Heilsa borgarbúa hefur áhrif á rekstrarkostnaði borgarinnar i gegnum velferðarkerfið og vanheilsa dregur úr skatttekna.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Td. Hornið milli Lauglæks og Sundlaugavegar mætti lyfta upp. "Í tengslum við endurbætur hjóla-og gönguleiða meðfram Sundlaugavegi, verða áningarstaðir. Áningarstaðirnir eru hugsaðir sem hvíldar eða sælureitur fyrir þá sem leið eiga hjá. Á áningarstöðunum er gert ráð fyrir bekkjum og gróðursetningu trjáa í tengslum við gróðursetningu trjáa meðfram Sundlaugavegi." Tengil að vefsíðu sem er hugmynd að deiluskipulagi. "TEIGAR NORÐAN SUNDLAUGAVEGAR. REITIR 1.346 OG 1.347"
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Matjurtagarðar fyrir almenning eru ekki horfnir. Sjá hlekk um fjölskyldugarða. Mér þótti þessi breyting úr skólagörðum í fjölskyldugarða jákvæð því hún styrkir þá hugmynd að matjurtarækt sé verðugt verkefni fyrir fólk á öllum aldri en ekki bara fyrir krakka til skemmtunar.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Hringbraut vestan við Vatnsmýrina er farartálmi fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Háskólanemar fara daglega yfir á gönguljósum úr strætó og þurfa að hraða sér undan óþolinmóðum ökumönnum sem skilja ekki merkingu gul-blikkandi ljóss. Hringtorgið er fjandsamlegt öllum sem ekki aka bíl. Gatan var á sínum tíma skipulögð sem hraðbraut *í kringum* borgina ("hring"-braut) en borgin óx fljótt langt út fyrir þennan hring svo að í dag liggur hún um þétta og rótgróna íbúabyggð og sker hana sundur.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Umferð til og frá háskólasvæðasvæðinu gæti farið um Njálsgötuna austan við Vatnsmýri. Hringbraut vestan Njálsgötu væri þá aðeins með eina akreina í hvora átt, með 50 km hámarkshraða. Akreinar sem losna mætti gera að sérakreinum strætó. Utan við það væru hjólastígar (pláss skapast við að fjarlægja umferðareyju). En hvert fer bílaumferðin? Svona breytingar gætu t.d. dregið úr bílanotkun háskólanema. Ökumenn þurfa aðallega bara að sætta sig við að keyra hægar um þetta svæði. Ekki flóknara en það!
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það er hætt við að þessi sama umferð leitaði þá í Flókagötu og Stórholt, sem eru líka íbúagötur. Til að leysa vandamálið endanlega þyrfti nánast að gera allt hverfið að botnlanga, sem gæti skapað vandamál annars staðar.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það ætti að snúa frá þeirri vitleysu sem borginn er að gera með því að innleiða þetta sjálfbæra félagsstarf , hveju skilar það í sparnaði engu fólkið hættir að koma og koðnað niður heima hjá sér og bara fjárútlát til sjálfboðaliðana það er skömm hvernig borg og ríki fara með fólkið sem byggði upp fyrir okkur sem yngri erum svei
3 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
Umferð frá einni átt, Mikið af börnum á leið til skóla, það er auðveldara að átta sig á umferð frá einni átt. Einnig mætti bæta bílastæði við Breiðagerðisskóla, sem mundi minka umferð mikið í Mosgerði.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
þarna er hægri beigja við bensínstöðina úr suðurfelli held ég og inn á breiðholtsbraut , þegar er grænt ljóst á umferð þar þá koma bílar hratt að ljósunum úr austri eftir bb , og biðskilda er við beigjuna. , það er kannski nokkuð langt bil í bílinn sem er að koma frá vinstri austri en erfitt að meta hraða og sumir aka mjög hratt að ljósum á stofnæðum til að ná þeim , öruggar að stoppa og hleypa þeim yfir fyrst, þá hef ég tvisvar fengið bíl aftan á mig.td setja afrein meðfram bb niður hlíðina
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Við sem búum nálægt Miklubrautinni verðum fyrir miklum óþægindum vegna hávaðar af bílaumferð. Þessi akbraut er aðalumferðaræð Reykjavíkurborgar og er það ekki líðandi að ekki séu reistar hljóðmanir eða önnur mannvirki til að draga úr hljóðmengun sem af umferðinni hlíst. Þetta má sjá víða í nágrannasveitarfélögum okkar eins og í Kópavogi þar sem búið er að reisa víða hlómanir til að draga úr hávaða og bæta lísgæði allra íbúa í hverfum nálægt stórum akbrautum.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Borgin mætti að skaðlausu spara sér málun á gulum brotalínum á gangstéttarbrúnir víða í borginni, sér í lagi framan við innkeyrslur við íbúðarhús. Í senn óþarfi og ósmekklegt. Ef fólk er svo tillitslaust að ætla að leggja framan við innkeyrslur annara, er ljóst að gul brotalína hindrar ekkert. Einnig er löngu tímabært að hætta að banna bílastæði framan við brunahana út frá einfaldri tölfræði.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Mér finnst Sundhöllin öll orðin frekar sjúskuð og næstum sóðaleg. Nuddið í heitu pottunum virkar ekki, kalt í búningsklefum og sturtum ásamt því að sturturnar sjálfar eru lélegar. Tröppur upp á sólþak sóðalegar og sólþak kvenna með grænu sjúskuðu plastteppi, vatnsgufa ógeðsleg. Tími til kominn að endurbæta almennilega en ekki bara einhverjar reddingar. Þessi sundlaug virðist sitja á hakanum hjá Reykjavíkurborg.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Ég er sammála APP. Sundhöllin er/var glæsileg og eina sundlaugin fyrir 101-hverfinga að synda í, án þess að keyra langar vegalengdir í næstu sundlaug, sem hvorki sparar orku, mengunar-minnkun né stuðlar að jöfnum aðgangi fólks að góðri, ódýrri hreyfingu. Sundhöllin er flottur staður og algerlega nauðynlegur. Það er skammar fyrir miðborgina/Reykjavík ef hún er látin drabbast niður!
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Hringtorg myndi tengja Skerjafjörð, litla Skerjó og flugvallarsvæðið við S-Vesturbæ og Seltjarnarnes og spara mikinn akstur hjólandi og keyrandi. Til vara (ódýrara) mætti skoða að opna fyrir innakstur af Suðurgötu til vinstri inn á Lynghaga þegar ekið er til norðurs. Nú þarf að taka U-beygju á móts við Grímshaga vilji maður komast til vesturs án þess að þurfa að keyra Hjarðarhagann fyrst, sem er fáránlegt.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Víxlböð eru böð þar sem gengið er til skiptis í heitu og köldu vatni. Setja þarf upp tvær litlar laugar með kálfadjúpu vatni, aðra 38-42°C og hina 15-20°C. Víxlböð eru þekkt náttúrulækningaaðferð og eykur blóðflæði og dregur úr verkjum og þreytu í fótum.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Fremur en að láta fólk flýja betur mengunina er aðeins ein lausn til í raun, að minnka mengunina.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Í borginni okkar er mikið af útilistaverkum, en þau eru alls ekki vel merkt. Nafn verks og listamanns á ekki að vera leyndarmál. Tek sem dæmi þau tvo sem eru við göngustíginn neðan við golfvöllinn í Grafarvogi., Lítil plata með nöfnunum getur ekki kostað svo mikið.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Hreyfihamlað fólk sem þarf að nota Ferðaþjónustu Fatlaðra hefur ekki sömu möguleika og aðrir á ferðafrelsi. Ákveða þarf með dags fyrirvara hvort og hvenær skuli bregða sér af bæ. Þetta dregur verulega úr frelsi einstaklinganna til athafna. Til að mynda getur einstaklingur ekki stokkið með vinum sínum í bíó - kaffihús eða tekið þátt í öðrum félagslegum athöfnum nema hafa ákveðið það með góðum fyrirvara.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.