Umræður um Breiðholt
Ef þú vilt taka þátt, vinsamlegast gerstu áskrifandi. Aðild er ókeypis og þú getur líka tengst í gegnum Facebook.

Svava Frá Strandbergi - 7 mánuðir síðan
Fellahverfið yrði miklu opnara og fallegra ef þessi blokk hyrfi af sjónasviðinu. Íbúum hverfisins myndi líða betur yfir því að helsta kennileiti hverfisins Langavitleysan sem oft birtist á sjónvarpsskjánum með fréttum sem tengjast efnalitlu fólki væri ekki til lengur. Einnig yfir því að hverfið myndi ekki minna lengur á ghettó sem er lokað inni af löngum 'múrvegg' þ.e. Lönguvitleysunni.
Svava Frá Strandbergi - 22 dagar síðan

Asparfell og Æsufell blokkin er jú öðruvísi í laginu rétt er það hjá þér FHS. Samt er það ekki BARA lögunin sem munurinn liggur í.
. Asparfell/Æsufell blokkin stendur nokkuð sér á stórri lóð. En 'Langavitleysan' liggur meðfram öllu Fellahverfinu og skyggir á allt útsýni frá því í þá áttina. Þessi blokk minnir einna helst á fangelsisvegg eða jafnvel Berlínarmúrinn þegar hann var og hét. 'Múrinn' lokar Fellahverfinu algjörlega og hvergi í nokkrum öðrum blokkarhverfum í borginni hef ég séð neitt svipaða byggingu sem lokar af heilu hverfi. Aftur á móti eru stórhýsi eins og Asparfell/Æsufell hér og hvar um borgina t.d. háhýsin á Austurbrún þó þau séu ekki eins mikil um sig og Asparfell/Æsufellblokkin. Sú blokk er heldur ekki beint falleg en þó skömminni skárri en Langavitleysan. Annars úir og grúir Reykjavík af svipuðum 'slysum' og má þar t.d. nefna turninn í Túnahverfi sem trónir
þar innan um örlítil einbýlsihús. Annars er allt Fellahverfið að segja má
byggingarsögulegt slys. En gera mætti hverfið búsetuvænna með því að fjarlægja
Múrinn/Lönguvitleysu.

FHS - 22 dagar síðan

Flest íbúasamök eru með hreinsunardag, það mætti líka hugsa sér sérstaka sópdaga. En því ætti fólk ekki að taka til í kringum sig, af hverju á einhver annar alltaf að gera það ? Annars væri best að kenna sæmilega umgengni, bæði í heimahúsum og skólum. Það er raunverulega það eina sem gæti breytt ástandinu.

lolo setti inn upplýsingar á "Velkominn" skilti þegar keyrt er inn í úthverfin u.þ.b. 1 mánuður síðan 1 Athugasemd
lolo - u.þ.b. 1 mánuður síðan

þetta er snyrtilegt skilti en það stendur ekki velkomin á því

lolo setti inn upplýsingar á Lækka hraða í Vesturbergi niður í 30 km/klst u.þ.b. 1 mánuður síðan 1 Athugasemd
lolo - u.þ.b. 1 mánuður síðan

en ætti þá að lækka líka í austurberginu, norðurfelli , suðurfelli, hólum svo er sagt að það þýði lítið að lækka hraða með skiltum þar sem fólki finnst eðlilegt að aka hraðar. minnir mig.

lolo setti inn upplýsingar á Rífa löngu blokkina sem gengur undir nafninu Langavitleysan. u.þ.b. 1 mánuður síðan 1 Athugasemd
lolo - u.þ.b. 1 mánuður síðan

ja þetta þykja mér götótt rök , ok ef væri gert gat á blokkina fyrir miðju til að hleypa fólki í gegn , hvert gæti það farið , ekki beint áfram þv´þar eru bílastæði og umferðargata og svo háar girlðingar fótboltavalla, blokkin var höfð svona með vilja til að beina gangandi að fellaskóla í vestri og að austurbergi í austri, grunar mig. og halda gangandi frá umferðargötu sem liggur við norðurhlið blokkar.

lolo setti inn upplýsingar á bekkir í Hólahverfið fyrir gigtveika gamlingja u.þ.b. 1 mánuður síðan 1 Athugasemd
lolo - u.þ.b. 1 mánuður síðan

austurlandabúar hafa svo heilbrigð hné því þeir kunnað að sitja á hækjum sér, svo er hægt að taka með sér göngugirnd með sæti

Sveinn Guðni setti inn upplýsingar á Búa til útigerði fyrir hunda í Reykjavík 6 mánuðir síðan 2 Athugasemds
Sveinn Guðni - 6 mánuðir síðan

Ég sá svona útigerði víða í Kaupmannahöfn í haust. Skemmtilegt að sjá borgaryfirvöld þar vinna með hundaeigendum og koma með lausnir í stað boða og banna. Þessi gerði þurfa alls ekki að vera stór og nóg er af ónýttu svæði sem gæti hentað vel fyrir svona gerði.

FHS - u.þ.b. 1 mánuður síðan

Geirsnef - Laugardalur og Klambratún. En hvað með hin hverfin ? Hvernig væri að þeir sem þekkja sitt hverfi, settu inn hugmynd að staðsetningu.
Nægilega nálægt til að skreppa út - samt nægilega langt frá byggð til að smábörn geti sofnað.

Það er ekki nóg að segja að þetta þrufi að gerast, það þarf líka að koma með hugmyndir.
Grafarvogur - hvað með styttugarðinn neðan við Strandveg ?
Í hlíðinni neðan við Húsahvefið, gegnt Vesturlandsvegi ?
Túnið milli Hallsvegar og Gylfaflatar ?

Andrea Ásgeirsdóttir - u.þ.b. 1 mánuður síðan

Okkur vantar rýmri kennslustofur.

lolo setti inn upplýsingar á skilti sem banna notkun bifhjóla í Bakkahverfi u.þ.b. 1 mánuður síðan 1 Athugasemd
lolo - u.þ.b. 1 mánuður síðan

lög banna akstur ökutækja á göngustígum , en gúgl finnur engin dæmi um að það sé sektað við því, það virðist sjaldan sektað . Margir vilja aka að húsum sínum með kerrur við framkvæmdir og flutninga eða hjólhýsi til geymslu við hús, sumir leggja bíl bakvið hús , sumir stutt til að bóna , spurning um viðgerðir, , aðrir yfir nótt . og eini aðgangurinn eftir göngustígum. Ég spurði löggu hvort mætti ýta bíl eftir stígum ,nei.en umferð þjónustubíla, hann sagði nei. það er ákveðin skerðing á réttindum að mega ekki aka bakatil að húsi sínu eða blokk. flestir aka hægt eftir stígum, spurning um að leyfa það ef í fyrsta gír og engri gjöf. og stoppa ef börn sjást nálægt. Að sekta vélhjól en ekki sekta bíla með kerru er það mismunun, ætti að vera sama regla fyrir alla.

lolo setti inn upplýsingar á merkja undirgöng undir Breiðholtsbraut betur við Leirubakka u.þ.b. 1 mánuður síðan 1 Athugasemd
lolo - u.þ.b. 1 mánuður síðan

þarna neðst við götustubbin sem ég held heiti stöng mætti líka setja rúnnaða beigju þar sem göngustígarnir mætast, maður kemur niður langa stíginn eftir hlíðinni úr norðri, hallar niður þarna , og þarf svo að bremsa til að ná beygjunni inn á svigstíginn upp að bensínstöð, væri betra að geta nýtt skriðþungann, eða ætti maður að fara af langastíg og upp í vesturberg áður en hann byrjar að halla niður , kannski.