Breiðholt rök

Hundar hverfa ekki úr borginni þó þjónustan sé lítil sem engin. Það hefur reynslan sýnt, en undanfarin 10 ár hefur hundaeign í borginni meira en tvöfaldast. Íbúar í Reykjavík greiða meira en 30 milljónir í hundaleyfisgjöld á ári og íbúar í öðrum sveitarfélögum borgarinnar meira en 20 milljónir. Samt eru einungis 1-2 hundasvæði í allri borginni. Hundar þurfa hreyfingu og efla félagsþroskann með því að leika lausir við aðra hunda daglega. Því ættu hundagerði að vera í öllum hverfum borgarinnar.
24 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Allir sem hafa séð aðstöðu skátanna í Breiðholti ættu að átta sig á því að hún er með allra lélegasta móti. Í kjallara iðnaðarhúsnæðis sem hentar starfseminni mjög illa og uppfyllir ekki kröfur Reykjavíkurborgar um starfsleyfi. Svæðið í kring hentar illa til kennslu í útivist og öðrum skátafræðum og því nauðsynlegt að finna nýja og hentugri staðsetningu fyrir skátanna og þeirra starfsemi í stærsta hverfi Reykjavíkur.
17 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Hundahald er alltaf að verða útbreiddara og hundaeigendur eiga misauðvelt með að hleypa þeim út að viðra sig, eins hafa eigendur og hundar auðveldara með samskipti við aðra eigendur ef hægt er að hitta aðra í sama tilgangi. Eins þurfa hundar að læra að umgangast aðra hunda og fólk og geta það á svona stöðum.
15 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Börn úr Stekkjarhverfi þurfa að fara yfir Arnarbakka á leið sinni til Breiðholtsskóla en þar er umferð mikil og hröð, þrátt fyrir 30km hámarkshraða. Auk þess eru aðstæður við þá gangbraut sem þorri barnanna notar á leið til og frá skólanum ekki nógu góðar (gangbrautin næst Dvergabakka). Þar skyggja trjágróður og strætóskýli á útsýni bæði gangandi og akandi vegfarenda. Ég tel þetta mikilvægt mál, við þurfum að huga betur að öryggi barnanna okkar.
11 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það eru 121 hús í Stekkjunum sem hafa hag af þessum ljósum (amk. 3-400 manns) fyrir utan alla sem búa í Bökkunum og þurfa að komast í Fálkaborg eða njóta Elliðaársdalsins.
9 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Geymsla atvinnubíla (Trukka af öllum tegundum) í íbúðarhverfum flokkast undir umhverfissóðaskap,sofandahátt í skipulagsmálum og tillitsleysi við íbúa þeirra hverfa sem mega sætta sig við þennan ófögnuð.Þegar trukkarnir eru hita sig upp eftir næturdvöl í friðsælu úthverfi leggur dísilstybbuna um nágrennið.Þetta skapar líka aukna slysahættu á þeim tíma sem börn eru á leið í skóla . Reykjavíkurborg á ekki að sjá fyrirtækjum fyrir geymslusvæði f bílana
8 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
Útisvæðið þarf að henta öllum aldurshópum, ekki bara minni börnum og krökkum með boltaáhuga. Mættu vera góð leiktæki, fyrir bæði yngri og eldri, bekkir, borð, gróður og huggulegheit
6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Í vinnslu Hundasvæði
...sem hundaeigendur eru nú þegar að greiða!!! Hundaeigendur í Reykjavík greiða meira en 30 milljónir í hundaleyfisgjöld á ári, en þjónustan er samt sem áður lítil sem engin. Við hundaeigendur erum ekki að biðja fólk sem á ekki gæludýr um að greiða þetta fyrir okkur. Við viljum að peningarnir sem við greiðum nú þegar fari í almennilega þjónustu við hundaeigendur. Þar að auki hef ég fengið þær upplýsingar frá Umhverfissviði Reykjavíkur að það sé ekki svo dýrt að setja upp hundagerði!
6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það þarf að uppfæra leiksvæðið við Ölduselsskóla, uppfæra mjög gömlu og stundum brotin leiktæki og gera svæðið skemmtilegt fyrir krakkana sem fara út í "frímó" 3 á dag allan veturinn og hittast þarna á sumrin til að leika.
6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það er skelfilegt að aðhafast á þessu bílastæði, ég legg til að það verði annað hvort byggt annað bílastæði á bakvið eða að bílar hafi aðgang að bílastæðinu frá fleiri en einum inngnagi, t.d. frá bílastæðinu við hliðina.
6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Víða á stígakerfi Breiðholtsins eru stálbogar settir í veg fyrir gangandi / hjólandi. Víða er þetta þannig að ógerningur er að komast í gegnum hindrunina ef vagn eða kerra er meðferðis. Eins er snjó rutt upp að þessum hindrunum við snjómokstur sem gerir umferð ómögulega.
6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Í vinnslu Hundasvæði
Þegar ég segi borgarinnar þá er ég að meina borgarinnar almennt en ekki eingöngu Reykjavíkurborgar. Alls staðar annars staðar í kringum okkur er gert ráð fyrir þessum elsta félaga mannsins og þarfir hans og mannanna fyrir félagsskap hundsins. Fleiri hundasvæði þýða bættari hundamenningu og bætt hundamenning þýðir bættara mannlíf.
6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Skátastarf er mikilvægur partur af æskulýðsstarfi Reykjavíkur, uppeldishreifing sem byggir á góðum gildum, leiðtogaþjálfun og sjálfstæðri hugsun. Skátastarf henntar öllum og oft sem að krakkar sem eru ekki fyrir íþróttir eða keppnir finna sig í skátastarfi. Til að hafa gott starf þarf góða aðstöðu, bæði inni og úti. Aldrei myndi fótboltafélag sætta sig við að vera ekki með völl til að æfa sig á, er það nokkuð?
6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Í stekkjunum eru 400 íbúar og íbúum á grunnskólaaldri fer fjölgandi í hverfinu. Þó svo þarna séu gönguljós og 30 km hámarkshraði þá virða ökumenn það illa og börnin eru í hættu þess vegna. Þar að auki er útsýni barnanna þegar þau eru á leið heim aftur takmarkað vegna hleðslu sem skyggir á útsýni yfir bílaumferð.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Undanfarna daga hef ég þurft að ganga með barnið mitt í leikskóla yfir alls konar hindranir þar sem gangstéttar eru ekki nógu vel mokaðar í snjóþyngslunum auk þess sem það sárvantar að dreifa sandi yfir gangstéttar í fljúgandi hálku. Þegar götur eru ruddar vegna snjóa, þarf að passa að skaflarnir teppi ekki gangstéttir í kring, sérstaklega ef gangstéttirnar eru við skóla, leikskóla eða verslunarkjarna í hverfi. Snjóþotur og barnavagnar verða að komast leiðar sinnar.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Við Þórufell gengur fólk yfir götuna, þó engin gönguljós séu til staðar. Ljós eru nokkur hundruð metrum ofar og neðar við götuna, en þrátt fyrir umferðarþunga og augljósa hættu, gengur fólk frekar yfir á þessum stað, og a.m.k. eitt banaslys hefur orðið þarna. Ef göngubrú yrði reist, frá göngustígnum sem liggur milli Yrsu- og Þórufella og yfir að strætóskýlinu til móts við Seljabraut 54, ykist öryggi íbúa til muna.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Gatnamót Höfðabakka og Vesturhóla eru hættuleg. Á hættuna bætist umferð frá Fálkabakka sem tekur U beygju við enda Höfðabakkans. Svo má athuga hvort ekki megi taka 90° hornið af beygjunni rétt fyrir neðan gatnamótin. Svo mætti setja strætóstoppstöðvar við hringtorgið. Getur stytt gönguleiðir þeirra sem nota leiðir 12 og 17.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Bið barna eftir þjónustu talmeinafræðinga "úti í bæ"er iðulega löng og oft líða 2 vikur á milli meðferðartíma. Þó slík inngrip geti nægt börnum með smávægilega framburðargalla, þá eru þau ekki næg fyrir þann hóp sem glímir við meiri frávik. Ég vil sjá talmeinafræðinga við grunnskóla Reykjavíkur, í nærumhverfi barnanna sem þeir þjóna og í daglegu samneyti við aðra fagaðila þar sem vinna að menntun og hagsmunum þessara barna. Slíkt hlýtur að þjóna hagsmunum barna, fjölskyldna og fagfólks.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Undirgöngin undir Breiðholtsbraut frá Leirubakka að Miðskógum eru ómerkt. Ég hef séð marga reyna að fara yfir Breiðholtsbraut við Stöng en þar eru engin gönguljós!!
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Flest svokölluð strætóskýli hér í Hólunum standa alls ekki undir nafni,eru einhverskonar vindföng sem snúa flest móti aðal rigningaáttum ! , hafa enga "framhlið",skýlin veita nær ekkert skjól (skýli í Suðurhólum er undantekning) Til að gera almannasamgöngur aðlaðandi kost þarf að bæta úr svona augljósum ágöllum,Áfram STRÆT'O Rauntímakerfið er frábært og styttir biðtíma fyrir þá sem kunna að nýta sér það
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það er til skammar fyrir Breiðholtið sú niðurnýðsla sem er í Fellagörðum, Mér finnst að það þurfi að endurreisa það eða gera nýjar framkvæmdir. Finnst að borgin ætti að ýta því úr vör ásamt einkaaðilum, Það mætti byggja þarna nýtt hús upp á nokkrar hæðir með lyftu og jafnvel fleiri en eitt og hafa þarna íbúðir og fyrirtæki á jarðhæðum. Þarna var einu sinni mikið líf og fullt af fyrirtækjum. Þarna vantar vítamínsprautu. Vona að það verði eitthvað að gert, með kærri kveðju, Kolbrún Ólafsdóttir.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Um árabil hafa starfsmenn og foreldrar barna í Fálkaborg rætt um að vegna þrengsla á bílastæði við leikskólann skapist þar iðulega slysahætta, ekki síst á snjóþungum vetrum. Í leikskólanum er pláss fyrir um 63 börn og þar starfar örugglega hátt í 20 starfsmenn. Bílastæði við leikskólann eru um 10 talsins. Flestir foreldrar koma með börn sín í leikskólann á leið sinni til vinnu og flestir sækja líka börnin sín á leiðinni heim. Öngþveiti myndast, óhöpp verða, vörnum slysum, fjölgum stæðum.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
Það þarf hringtorg við enda Höfðabakkans. Það þarf að koma alveg í veg fyrir ólöglegar vinstri beygjur af Fálkabakkanum. Það mætti banna hættulegar U-beygjur við enda Höfðabakkans. Umferð úr Bakkahverfi og í Árbæinn á að fara um Stekkjarbakkann.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Byggja rampa sitthvorumeginn við þannig það sé hægt að hjóla uppá og niðraf. jafnvel væri hægt að breikka brúnna með því að nýta núverandi undirstöður án mikils kostnaðar.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það er geysileg umferð gangandi yfir Stekkjarbakka að Mjódd á gönguljósunum milli Réttarbakka og Staðarbakka. Margir hlaupa yfir á rauðu og margir bílstjórar virðst ekki sjá rauða ljósið, ég hef 2x rétt sloppið, þó ég hafa gengið yfir á grænu. Þetta kostar sjálfsagt skildinginn en er ódýrara en 1 slys!!
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Tónlistarkennsla í skólum var mjög öflug en hefur hrakað hræðilega undanfarin ár. Bæta úr og styðja þannig við börnin.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Þessi rör eru sett svo börn á hjólum fara ekki á miklum hraða útí götu, þessi rör eru sett þar sem bílar sjá ekki gangandi vegfarendur eða hjólreiðafól sem koma að götu. þessi rör verða að vera en jú það mætti stækka bilið þar á milli. ekki er alltaf hægt að setja spegla þar sem oft eru þeir brotnir
4 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
Það er alltaf verið að stela ú 10 11 í Breiðhollti
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Gera ætti íbúðir í eigu borgarinnar í Fellahverfi að stúdentaíbúðum en þannig fáum við fjölbreyttari íbúsamsetningu í hverfið. Skólar og leikskólar yrðu ekki eins einsleitnir og nú er. Hverfið er eitt best skipulagða hverfið í borginni því þarna er að finna þjónustu miðlægt frá vöggu til grafar. Þarna eru leikskólar, skólar, menningarmiðstöð, íþróttahús o.fl. Þetta yrði kjörið fyrir stúdenta ekkert skutl og vesen með börnin og foreldrar geta tekið strætó í skólann en strætósamgöngur eru greiðar þaðan.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Í vinnslu Hundasvæði
Ég hef tekið eftir að það eru margir sem hafa hund hér í Breiðholtinu en enginn staður til að geta leyft þeim að spretta úr spori án þess að eiga á hættu að rekast inn í enhvern fílupúka. Þessvegna væri gott hundasvæði mjög jákvætt framtak hjá borginni. Og ekki bara í Breiðholtinu heldur víðar um bæinn. Það eru margir sem hafa ekki bíl til að bruna út á Geirsnef. Einnig mætti setja inn strætisvagna sem leyfa hunda og ketti. Margir þurfa að komast til t.d.dýralæknis með dýrin sín.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.