Framkvæmdir rök

Fylki vantar stúki við knattspyrnuvöll til þess að geta áfram spilað heimaleiki sína í Árbæ frá og með maí 2012.
53 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Fylkir er eina stúkulausa félagið á höfuðborgarsvæðinu. Reykjavíkurborg hefur ekkert verið að spara peningaeyðsluna í stærri knattspyrnulið höfuðborgarinnar undanfarin ár. Löngu kominn tími á smá aðstoð fyrir tæplega 10% íbúa borgarinnar. Fyrir utan það þá er enginn að tala um að henda 300 milljónum í áhorfendastúku, en við þurfum vissulega aðstoð. Hvort sem það er með lánveitingu eða styrki, þá eiga Árbæingar það skilið.
31 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Geri hér tillögu um að Reykjavíkurborg haldi áfram framkvæmdum við Björnslund, Norðlingaholti. Hér þarf að leggja til fjármagn til að setja upp lýsingu í lundinn-ljósastaura, bekki fyrir fólk að setjast, ruslatunnur, bæta gangstíga, nytja skóginn rétt og rækta hann upp, efla vitund fólks um umgengni lundarins, bæta alla aðstöðu fyrir börn og gamalmenni, bæta þarf bílastæðamál við lundinn, bæta aðstöðu fyrir jólasveina og aðra sem vilja koma fram, ofl ofl. Alger útivistar paradís... Koma svo..
19 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Á lóð Breiðagerðisskóla vantar tilfinnanlega upplýstan og upphitaðan sparkvöll. Svona vellir hafa verið byggðir við langflesta grunnskóla borgarinnar á síðustu árum í samstarfi við KSÍ og eru í stöðugri notkun frá morgni til kvölds. Á lóðinni er nægt rými og þar að auki liggur fyrir samþykkt skipulag sem gerir ráð fyrir boltagerði. Í skólanum eru 332 nemendur sem margir æfa knattspyrnu og yrði sparkvöllur algjör bylting í aðstöðu og mundi breyta öllu fyrir möguleika þeirra til að taka framförum.
17 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Allir sem hafa séð aðstöðu skátanna í Breiðholti ættu að átta sig á því að hún er með allra lélegasta móti. Í kjallara iðnaðarhúsnæðis sem hentar starfseminni mjög illa og uppfyllir ekki kröfur Reykjavíkurborgar um starfsleyfi. Svæðið í kring hentar illa til kennslu í útivist og öðrum skátafræðum og því nauðsynlegt að finna nýja og hentugri staðsetningu fyrir skátanna og þeirra starfsemi í stærsta hverfi Reykjavíkur.
17 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það væri lítið mál að lífga upp á Hverfisgötuna þannig að hún væri meira en bara umferðaræð fyrir fólk sem þarf að komast á bílum meðfram Laugavegi - það er mjög margt fallegt og mikilvægt þarna. Hægt væri að hægja á umferð, fjölga trjám, bæta skjól við garðinn á horninu við Smiðjustíg, og hreinsa upp svæðið á móti Regnboganum við Lindargötu, sem er svolítið niðurnítt svæði.
14 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Gengur út á það að tengja hverfið betur við þetta vinsæla útivistarsvæði sem Rauðhólar eru og skapa möguleika til að taka hring um svæðið. En í dag er einungis ein brú á svæðinu yfir Bugðu niður við ósinn. Hugmyndin miðast við að áframhaldandi stígur verður frá miðju Móvaðs yfir Bugðu annarsvegar og inn í hverfið aftur við Hólmvað. Miðast við malarstíga og einfaldari brýr yfir Bugðu.
13 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Útvega báta og einhvern ákveðinn fjölda af björgunarvestum sem yrði haldið utan um af útivistarteymi Norðlingaskóla. Mat á fjölda báta og vesta gagnvart þessari hugmynd skal vinna kostnaðargreiningu í samráði við útivistarteymi Norðlingaskóla.
13 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það vantar lokað leiksvæði sem getur nýst foreldrum og dagmæðrum í hverfinu til útiveru. Þessi hugmynd gengur út á að lagfæra opið svæði innst í Kambavaði og girða það af, allavega að hluta til. Skoða möguleg leiktæki til viðbótar.
12 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það er samkvæmt skipulagi ætlunin að hafa hól á lóð Norðlingaskóla sem gæti nýst þessu hlutverki. Okkar ábending er að skoða það sérstaklega með framkvæmdum þar að hugsað verði sérstaklega að þessum þörfum á þeim hól og styðjum við þessa hugmynd heilshugar.
12 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það eru þéttbýlar götur í næsta nágernni Skeifunnnar en samt er aðgengi gangandi vegfarenda um svæðið verulega ábótavant. Gangstéttarnar eru margar hverjar komnar í verulega lélegt ásigkomulag og það er mikill skortur á gangbrautum til að auðvelda fótgangandi vegfarendum að komast leiðar sinnar. Sérstaklega finn ég fyrir þessu eftir að ég eignaðist barn og hef reynt að komast um svæðið með barnavagn eða kerru. Þá eru nánast engin hjólastæði og óöruggi mikið þegar farið er um svæðið hjólandi.
11 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Halda áfram með og bæta verulega við þann trjágróður sem nú þegar er. Mun hjálpa gríðarlega til við að brjóta upp vindstrengi inn í hverfið. Hugmyndin gengur út á að gróðursetja blandaðan trjágróður og gott væri að byrja með örlítið stærri tré af fljótvaxnari tegundum eins og öspum sem má svo fjarlægja þegar annar gróður kemst á skrið. Fjármagn vantar til plöntukaupa en gróðursetningin sjálf mætti vera í samstarfi með grunnskóla og leikskóla ásamt öllum þeim sem áhuga hafa. Vor og haust átak.
11 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Hugmyndin gengur út á fjármögnun ávaxtalundar að nýju í Björnslundi á fyrirfram ákveðnu svæði þar. Til viðbótar innan þessarar hugmyndar þarf að kostnaðargreina þá grisjun sem þarf innan Björnslundar ásamt því að gróðursetja ýmsar tegundir. Lykilatriðið er að öll nánari útfærsla varðandi umfang og kostnað sé í fullu samráði við samstarfshóp sem er til staðar um Björnslund.
11 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Útbúa og lagfæra göngustíga sem eru nú þegar skilgreindir á teikningu. Göngulýsing stíga gegnum skóginn ásamt lýsingu lykilsvæða innan lundarins. Útvega efni þannig að Norðlingaskóli gæti jafnvel smíðað bekki fyrir lundinn sem hentar betur lundinum en hefðbundnir bekkir. Ýmislegt fleira mætti skoða en úttekt hefur verið gerð á lundinum um hvað þörf er á. Lykilatriðið er að öll nánari útfærsla varðandi umfang og kostnað sé í fullu samráði við samstarfshóp sem er til staðar um Björnslund.
11 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Íbúar í Norðlingaholti sækja þjónustu í Ögurhvarf.Þar eru matarbúðir,bakarí,apótek ofl.Ef maður vill vera umhverfisvænn og hjóla eða ganga þangað frá Norðlingaholti með börnin sín þá gerir göngubrúin yfir Elliðaá það manni erfitt fyrir.Brúin er mjög brött,það er mjög erfitt og stundum hættulegt að fara þar yfir með barnavagn eða hjól.Það er heldur ekki hægt að fara yfir með hjólavagn.Með lagfæringu brúarinnar styrkist Norðlingaholtið í að vera sjálfbært hverfi og útivistar-og barnafólk þakklátt.
10 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Teljum þörf á að fara yfir fjölda ruslatunna innan hverfis og bæta við ruslatunnum á gönguleiðum á útivistarsvæðum í kringum Norðlingaholtið, sérstaklega svæði Rauðhóla, Björnslundar og í átt til Elliðavatns/Heiðmerkur.
10 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Fjölga nettari trjálundum á opnum svæðum innan hverfis. Með áherslu á nytjategundir svo sem berjarunna og ávaxtatré, t.d. kirsuberjatré víða um hverfið.
10 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Vantar litla girðingu eða runnkenndan gróður sem hindrar börn við fjölbýlishúsið Reiðvaði að renna út á götuna þegar leikið sér er á sleðum þar við. Hefur legið við alvarlegum slysum nú þegar út af þessu. Mætti setja upp runnkenndan gróður víða milli gangstétta og gatna til að hindra börn í að fara út á götur hér og þar.
10 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Með því að leggja tiltölulega stuttan hjólreiða og göngustíg meðfram sjó á milli Hamra og Víkurhverfa, framhjá Gufunesi, væri komin samfeld tenging stíga sem ekki lægju um brekkur eða fast við umferðargötur. Þannig væri jafnframt komin falleg, nánast brekkulaus samfelld leið eftir Reykjavík endilangri frá Seltjarnarnesi upp í Mosfellsbæ.
10 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Með tilliti til þess að þessi frábæra hugmynd verður væntanlega sett til hliðar þar sem kostnaður er of hár gagnvart hverfapottinum þá viljum við leggja til byrjun að þessu verkefni með því að kaupa nokkra stjörnusjónauka sem yrðu þar til notkunar fyrir hvern þann sem áhuga vill úr hverfinu. 5-10 stk. kannski en nánar í samráði við Norðlingaskóla.
10 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Alls ekki er lagt til að breyta notkun hverfisverndarsvæðis við Bugðu. Einungis gróðursetning þar sem leyft er samkvæmt skipulagsskilmálum. Ef ekki er svigrúm samkvæmt skipulagi þá fellur þessi hugmynd niður.
10 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Lög haf breyst í umgjörð knattspyrnunar og snúa ein lögin að því að nú verða félög að hafa stúku þ.e oryggiskrafa,þetta er kostnaðarsamt verkefni verða sveitarfélög að styðja við þau.Það þarf ekki að fara mörgum orðum um forvarnir knattspyrnunar.Fylkir hefur staðið sig frábærlega sem íþróttafélag og á hrós skilið,þess vegna verður borg að styðja við verkefnið.Árbær er appelsínugulur á sumrin vegna þess að Fylkir er að spila knattspyrnu,félagið er borginni til sóma bæði innan sem utan vallar.
9 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Gott aðgengi í fjöruna við Eiðisgranda myndi auðga líf Reykjavíkurbúa. Áður en að steinkanturinn kom var mjög gaman að fara í fjöruna en nú er bara hættulegt að klöngrast niður steinhleðsluna. Fjaran er mjög falleg og gaman er að geta gengið niður í fjöru. Ég sé fyrir mér að settur verði upp stálstigi utan á grjótgarðinn. Þessi fjara er algjör perla í Reykjavík og synd að hún skuli ekki vera nýtt meira til útivistar og skoðunar.
9 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Göngubrúin við hlið Breiðholtsbrautar yfir Elliðaá tengir Norðlingaholt, Breiðholt og Kópavog saman. Hins vegar er hún að komast til ára sinna og eru ramparnir upp á hana mjög brattir og erfitt að fara upp og niður hana með t.d. barnavagna eða hjól, sérstaklega hjól með tengivagni. Tillagan er því sú að breyta römpunum upp á brúna þannig að þeir séu mun meira aflíðandi og auðveldara að fara yfir hana. Það yrði mikil samgöngubót milli hverfanna þriggja.
9 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Hundaeign er orðin mikil í Reykjavík, ekki er hægt að horfa fram hjá því að hundar eru orðnir partur af borgarlífinu. Það er öllum til hagsbóta, bæði hundaeigendum og ekki síður þeim sem ekki eiga hunda að horfast í augu við þá staðreynd. Sérstök hundagerði auka öryggi allra og uppsetning þeirra þarf ekki að vara dýr í framkvæmd.
9 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Gengur út á að setja upp fleiri og betri manir við umferðaræðar eins og Breiðholtsbraut og Suðurlandsveg. Einnig að gróðursetja í belti meðfram þessum götum sem þjónar þá sama tilgangi. Gæti verið saman, gróðursett í manir.
9 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Samkvæmt skipulagsskilmálum eru stígar leyfðir. "4. Gera má útivistarstíga / malarstíga á völdum leiðum um svæðið."
9 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Á þessum gatnamótum getur skapast ansi mikil umferð á álagstímum. Einnig er aðstaðan fyrir gangandi vergfarendur yfir Bæjarbrautina allt of nálægt gatnamótunum og því getur skapast mikil hætta þar þá sérstaklega fyrir börn. Það er nauðsynlegt að taka þessi gatnamót í skoðun og finna góða lausn hvort sem það felur í sér að setja upp hringtorg eða einhverja aðra lausn. Það verður að vera hægt að tryggja öryggi gangandi vegfarenda og þá sérstaklega barnana í hverfinu.
9 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
Mig langar að sjá nýja Stjörnufræðimiðstöð rísa í Norðlingaholti. Stjörnufræði miðstöð til að efla áhuga og vitund barna okkar á geiminum, stjörnunum, sólkerfinu og öllu öðru sem sést á himinhvolfi. Setja upp stóran geim-sjónauka og tengja þessa miðstöð Norðlingaskóla. Fræði- og lærdóms miðstöð á heimsmælikvarða. Gæti verið staðsett í Rauðhólum, með göngustíg frá Norðlingaskóla, yfir nýja brú yfir Bugðu og allir alsælir. Kveðja Konráð Gylfason, Norðlingaholti.
8 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Íbúar Skerjafjarðar þurfa að fá greiðari aðgang að Vesturbænum en þangað sækja þau skóla, íþróttir og tónlistarnám. Í dag þarf að taka 2 vagna til að komast út í KR. Þvíeru nánast öll börn sem búa í Skerjafirði keyrð til og frá KR sem eykur umferð umtalsvert um íbúahverfi. Ef leið 15 tæki þennan litla krók (inn í Skerjafjörð á leið sinni til og frá litla-Skerjafirði og þ.m.t. Vesturbæ) myndu íbúar Skerjafjarðar fá aðgengi að íþróttafélagi sínu, skólum, búð, apóteki, sundi, kirkju, Vesturgarði..
8 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.