Menning Og Listir rök

Matur er menning og list. Matarmarkaðir eru borg jafn mikilvægir og tónlistarhús eða leikhús. Víða í hafnarborgum eru matarmarkaðir á hafnarbakka (San Francisco, Helsinki). Brim-húsið á hafnarbakkanum er kjörið sem matarmarkaður Reykvíkinga. Þar getur túristaverslun sameinast þjónustu við mið- og vesturbæ, veitingasölu og stærri helagrmarkaði á bílastæðinu austan megin hússins. Sá markaður myndi síðan tengjast útimarkaði frá Kolaportinu á sumrin (Helsinkibúar halda reyndar útimarkaði á vetrum).
25 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Við erum með þetta frábæra húsnæði á besta stað. Það er allt lokað og læst kl. 17.00. Hvernig væri að hugsa út fyrir rammann skella á jazzi á fimmtudagskvöldum, prjónakvöld á þriðjudögum, Heimspeki kaffi, Visnavinum á sunnudögum, jólaföndri, hafa kaffihúsið opið fram á kvöld svo vina hópar geti kíkt í kaffi ......osfrv
19 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Veggjakrot er mikið lýti í borginni. Eigur borgar og almennings eru ítrekað skemmdar og kostnaður við hreinsun er gríðarmikill. Ná til ungra krotara með því að bjóða þeim í vinnustofur þar sem reyndir vegglistamenn kenna réttu handtökin. Uppfræða unga listamenn um það hversu dýrt er að hreinsa veggjakrot af. Jafnframt væri hægt að útvega aðstöðu þar sem slíkt athæfi væri leyfilegt. Hluti af verkefninu er að fá unga vegglistamenn til samstarfs um að mála og lagfæra skemmdir vegna veggjakrots.
18 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
Frábær staðsetning fyrir jólaþorp. Lýsum upp dalinn með jólaljósum. Nýtum Kaffi Flóru á veturna líka. Markaðir, lifandi tónlistarflutningur, upplestur frá rithöfundum, verk frá ýmsum listamönnum, framlög frá leikskóla- og grunnskólabörnum, eldri borgurum o.s.frv. Kaffihús á hjólum gæti komið vel að notum hér sem og aðrir matarbílar. Endalausir möguleikar.
14 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Frábær hugmynd. Nú vantar bara að e-r framtakssamir einstaklingar hrindi þessu í framkvæmd. Finnst ekki að Rvk eigi að vera með kaffihúsarekstur og fara í raun í samkeppni við aðra. Hins vegar gæti verið hægt að hringja í viðkomandi og panta slíkt kaffihús sem myndi þá koma hjólandi.
14 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
Þetta er frábær hugmynd sem gengur út á að útvíkka hlutverk hússins og efla starfsemi þar. Opna húsið meira og bjóða meiri starfsemi velkomna þangað. Þótt Kjarvalsstaðir séu listasafn, þá má það gjarnan vera lifandi listasafn og verða miðstöð menningar í Hlíðum og Miðborg!
12 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Með því að tengja þessa hugmynd annarri sem er hér (Meira skjól í borgina ...) má gera Lækjartorg bæði skemmtilegt og vistlegt.
10 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Kona að nafni Ellen Guðmundsdóttir var að leggja inn greinagerð til borgarráðs með þessarri hugmynd í síðustu viku og heitir tilraunaverkefnið Úr veggjakroti í verðmæti.Hún Ellen var í Kastljósi í síðustu viku og er búin að fá gott fólk með sér í þetta þarfa verkefni. Vonum nú bara að borgaryfirvöld sjái hag sinn í því að samþykkja þessa tillögu. Rosalega flott hugmynd hjá henni sem hún var búin að þróa í 2 ár. Held að hún sé mjög flott í þetta verkefni.
14 aðilum fannst þetta gagnlegt, 2 fannst það ekki.
Tilraunin tókst vel. Meðal lokaorða skýrslu, sem var unnin að henni lokinni, voru: “Mikinn áhuga má merkja hjá almenningi og hafa þeir sem selt hafa varning sinn á markaðnum í sumar orðið varir við mikla umferð um svæðið og góða sölu“. Slíkur markaður verður bara að vera í skjóli. Bendi á skrif Hilmars Þórs Björnssonar arkitekts á blogginu hans.
7 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Samgangur íbúa í hverfum Reykjavíkurborgar er ábótavant. Skortur er á uppákomum innan hverfa í Rvk þar sem fólk úr hverfinu getur komið saman, fullorðnir drukkið kaffi og spjallað, meðan krakkarnir leika sér. Þetta er hægt að leysa með því að vera með nokkur kaffihúsi á hjólum. Hugmyndin er sú að Reykjavíkurborg útbúi sértilgert kaffihús á hjólum sem keyri milli hverfa í Reykjavík yfir sumartímann. Kaffihúsið gæti verið starfrækt frá fim til sun og stoppi á flottustu útivistarsvæðum borgarinnar.
6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Sem tónlistamaður sjálfur veit ég hversu erfitt er að starfa á Íslandi, Það spilar mikið inní hvern maður þekkir hversu vel manni gengur. Ef hljómsveitir koma saman og spila á opnu svæði á föstum tíma reglulega þannig að hlustendur geta treyst á það að það sé eitthvað að gerast í miðbænum, þá geta mannleg samskipti orðið miklu opnari. Sérstaklega ef það er kaffihús/veitingar með borð og stóla í kring svo fólk hafi fleiri ástæður til að stoppa við. Plús það gerir fólk vísara að rölta um bæinn.
6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Á aðalgötunni okkar - Laugaveginum - er ekkert sem skýrir merka sögu götunnar og heiti hennar. Ég legg til að haldin verði samkeppni um útilistaverk á Laugavegi til að heiðra þvottakonurnar sem roguðust í öllum veðrum fram og aftur götuna með þvott á leið í þvottalaugarnar í Laugardal. Slíkt listaverk gæti, auk þess að fegra borgina, kæta ferðamenn og varpa ljósi á söguna, verið viðleitni til að gera meira úr hlut kvenna í Íslandssögunni og óbreytts almúgans. Þessar konur voru algjörar hetjur!
6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Gott dæmi um hvað listamenn geta gert góða hluti ef þeir fá aðstöðu er á hverfisgötu við biðstöð strætó móti Bíó Paradis. World wide friends hafa sett upp flotta verslun í húsinu og listamenn hafa sett upp bekki og skreytt undirgöngin. Þarna var áður óreglufólk til húsa en núna blómstrar húsið af lífi. Ef ungum listamönnum er gert kleyft að fá aðstöðu gerast góðir hlutir :-)
9 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
Hönnunarsafn Íslands ber íslenskri hönnun gott vitni og kveikir áhuga og umræður um hönnun. Það er synd að slík merkisstofnun hafi ekki sess nærri öðrum menningarstofnunum og á stað sem er aðgengilegastur sem flestum. Þá eru Háskóli Íslands og Listaháskóli Íslands nærri Miðborginni en söfn eru ómetanleg þeim sem vilja læra meira. Flestar verslanir með íslenska hönnun eru í Miðborginni og þar starfa hönnuðirnir. Í Miðborginni væri safnið komið heim og nyti mikillar aðsóknar.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Orkuveita Reykjavíkur á nóg af vatni og gosbrunnar eða vatnslistaverk gera umhverfið aðlaðandi, lifandi, náttúrulegra og skapa ákveðinn glæsileika! .... No! - Yes ! :-)
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Skemmtilegt horn í Hljómskálagarðinn þar sem tónar, hreyfing, samvinna og útivist eru sameinuð. Dæmi: 1. Stór sílófónn sem hægt er að hoppa á milli plata og mynda mismunandi hljóð. 2. Stór "flauta" sem hægt væri að kalla í gegnum en aðrir loka fyrir götin. 3. Stór spiladós sem þarf að hjóla til að spila á eða spiladós þar sem 2-4 snúa sér í hring saman með höndum eða fótunum. 4. Misstór rör sem má berja á jafnvel með steinum. Bjöllur og sennilega svo margt margt fleira.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Stytta af Jóni Páli Sigmarssyni þyrfti alls ekki að vera niðri í bæ - miklu frekar í Laugardalnum - og klassíska ímyndin þar sem hann heldur á hnettinum væri auðvitað málið. Kraftamót sem kennt væri við hann og væri með lokasennu á þessum stað væri viðeigandi - en raunar óskyld hugmynd. Jón Páll var tragísk hetja horfins tíma sem óþarfi er að sópa undir teppið; Hófí mætti standa þarna hjá honum... Og svo væri styttan líka áminning til ungs afreksfólks um að þekkja öfgarnar og varast vítin!
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það er frábært að hafa Hljómskálagarðinn þar sem hann er og hann er síst of stór. Græn svæði eru nauðsynleg í borgum og því miður eru mörg af þeim að hverfa undir byggingar og bílastæði. Það er búið að eyðileggja stóran hluta Laugardals með risastórum mannvirkjum og loka af með girðingum þar sem seldur er aðgangur inn. Endurtökum ekki mistökin í Hljómskálagarðinum. Stöndum vörð um grænu svæðin.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
Í skammdeginu gæti þetta orðið dramatískt augnayndi.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Þetta er mjög góð hugmynd og það væri mjög skemmtilegt að rekast á kaffihús af þessu tagi á útivistarsvæðunum. Hér er lag fyrir einkaframtakið að stíga fram og framkvæma en hafa samráð við borgina um afnot af borgarlandinu.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Að mínu viti er Ingólfstorg ekki mikið nýtt í dag fyrir utan hjólabrettanotkun og samverustað Sniglanna. Það á að geta haldist óbreytt. Möguleikarnir á þessu svæði eru samt margfalt meiri. Hægt að auðga viðskipti, mannlíf og íþróttalíf t.d. með viðburðum um helgar. Sem dæmi um mánaðarlega viðburði: bændamarkaður með ferskum vörum, tónleikahald fyrir ungar sem aldnar hljómsveitir, fótboltamót (líkt og var hérna um árið) / körfuboltamót, fiskmarkað...endilega komið með fleiri hugmyndir.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Fyllum torgið af lífi
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það hefur verið reynt annars staðar með góðum árangri að veita götuhliðum sem styðja við mannlífið fyrir framan þær verðlaun. Hefur það aukið vitund fólks um þessi mál, auk þess að skila sér í betri verslunarsvæðum. Þetta gæti verið ein leið til að bæta Reykjavík og væri hægt að gera í samvinnu við samtök verslunar og þjónustu. Eins væri hægt að setja þá þætti, sem vitað er að styðja við mannlífið fyrir framan þær, inn í staðla eða skipulagsáætlanir, bæði aðal- og deiliskipulög.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það yrði rosalega gaman að hafa eitt lítið jólaþorp í Árbænum.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Hugmyndin er sölumarkaður fyrir listamenn og aðrar skapandi greinar. Hugmyndin er að auka mannlíf í miðbænum yfir daginn um helgar. Listamennirnir sjálfir myndu sjá um að selja sínar vörur sjálfir. Breytilegt hverjir væru að selja til að auka fjölbreytni. Þetta myndi gefa skapandi greinum jöfn tækifæri þar sem Borgin styrkir þegar æfingahúsnæði fyrir tónlist. Ráðhússalurinn myndi t.d. henta vel, er yfirleitt laus um helgar, kaffihús er til staðar og setur ákveðin standard á markaðinn
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Þú vilt semsagt nota listaverk til eineltis eða hvað?
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Þessi tónlist út um allt er alveg að æra mig -- þó svo að hún sé róleg. Ég vil fá að velja hvað ég hlusta á. Og ég vil get heyrt mínar eigin hugsanir. Tónlistin er slævandi og ég þarf á allri minni athygli að halda þegar sótt er að mér úr öllum áttum með hvers konar áreiti.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Gosbrunnar og vatnslistaverk gæfi borginni glæsileika og stórborgarabrag! Orkuveita Reykjavíkur á nóg af vatni og hönnun slíkra listaverka mætti taka náttúruna í myndina. Hönnun slíkra listaverka tæki að sjálfsögðu mið af íslenska rokinu til að koma í veg fyrir fjúkandi vatn á götur og gangstéttir
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Hvað með Ingólfstorgið? Ég mundi telja það henta betur, er afmarkaðra, skjólsælla, auðveldara að setja upp svið og nægt pláss fyrir áhorfendur.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það er alltaf rok á Lækjartorgi. Veljum annað torg
6 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.