Umræður um Umhverfismál
Ef þú vilt taka þátt, vinsamlegast gerstu áskrifandi. Aðild er ókeypis og þú getur líka tengst í gegnum Facebook.

FHS - 3 dagar síðan


Frábær hugmynd - einföld og sennilega ódýr í framkvæmd. Góð viðbót við göngutúra á höfuðborgarsvæðinu ( man ekki hvort þessi er í bókinni 25 gönguleiðir), og fræðandi. Muna að láta strætó stoppa við byrjun leiðarinnar eða enda.

Sigurjon Axelsson - 5 dagar síðan

Hleðslutækin eru til. 3fasa rafmagn er í all flestum húsum á landinu, svo rafmagnskerfið er til staðar. það sem þarf eru innstungurnar í bílana. þau eru til, svo það sem orkuveitan þarf að gera er að kaupa þær í massavís, fá þau þannig á hagstæðu verði og selja á kostnaðarverði til notenda. í staðinn græðir orkuveitan á aukinni rafmagnsnotkun.

Sigurjon Axelsson - 5 dagar síðan

Hleðslutækin eru til. 3fasa rafmagn er í all flestum húsum á landinu, svo rafmagnskerfið er til staðar. það sem þarf eru innstungurnar í bílana. þau eru til, svo það sem orkuveitan þarf að gera er að kaupa þær í massavís, fá þau þannig á hagstæðu verði og selja á kostnaðarverði til notenda. í staðinn græðir orkuveitan á aukinni rafmagnsnotkun.

FHS setti inn upplýsingar á Orkuveitan setji upp bíla-rafmagnshleðslur við hvert hús. u.þ.b. 1 mánuður síðan 2 Athugasemds
FHS - u.þ.b. 1 mánuður síðan

Tilmæli til arkitekta: Í öllum nýjum byggingum verði gert ráð fyrir innstungum, og við allar endurgerðir líka.

Sigurjon Axelsson - 5 dagar síðan

já góð hugmynd. á íslandi er þessi hugmynd reyndar auðveld í framhvæmd þar sem að 3fasa rafmagn er í all flestum húsum. Þannig innstunga er það sem þarf til að hlaða rafmagnsbíla.

Arna - 13 dagar síðan

Það ætti að vera moltutunna fyrir mat við öll heimili. Þetta hefur minnkað ruslið okkar ótrúlega mikið. Tunnan er einangruð og það er líf og hiti í henni allt árið. (búum í Noregi).
Svo tæmum við sjálf, afraksturinn er frábær áburður sem fer beint út í beðin.
Það er allt til í Bauhaus, en ekki svona tunna. (búin að tékka fyrir ykkur)
Kannski hægt að setja í gang íslenska framleiðslu til þess arna?
Það er fullt af upplýsingum um þetta á netinu, t.d. hérna: http://www.davidsuzuki.org/what-you-can-do/food-and-our-planet/start-composting-your-food-scraps/

Guðrún Ægisdóttir - 7 dagar síðan

Sammála.

Askur Tré Asparson - 11 dagar síðan

Planta 2 epl.trjám í Grafarv. í sumar frá mér

FHS setti inn upplýsingar á Hreinsa tjörnina 15 dagar síðan 1 Athugasemd
FHS - 15 dagar síðan

Er hún ekki aðallega skítug vegna þess að gegnumstreymi vatns er lítið sem ekkert ? Hvað þarf að gera/er hægt að gera til að auka það ? Verkfræðingar - aðstoð óskast :)

FHS setti inn upplýsingar á Gosbrunn með landvættunum á Lækjartorg. 16 dagar síðan 1 Athugasemd
FHS - 16 dagar síðan

og nota tækifærið til að segja sögu þeirra.
( tengist hugmyndinn Hvernig er hægt að fergra Lækartorg ? )

Árni Viðar setti inn upplýsingar á Skipulagt eftirlit með umhverfi grenndargáma 7 mánuðir síðan 4 Athugasemds
Árni Viðar - 7 mánuðir síðan
Ég hef nú bara alls ekki tekið eftir því að það sé neitt sóðalegt í kringum grenndargáma borgarinnar. Hvar ert þú, sem er svona mikill sóðaskapur?
Þóra Jónsdóttir - 21 dagar síðan

Langar að bæta við að núna á vormánuðum 2012 er allt annað að sjá þetta. Gámarnir fyllast en þeir virðast vera tæmdir áður en fer að flæða út úr þeim. Besta mál.

Óskar Guðlaugsson - u.þ.b. 1 mánuður síðan

Gott fólk. Áður en þið veljið að styðja þessa hugmynd, takiði augnablik til að athuga að vandamálið er alls ekki til staðar og þar með er öll hugmyndin byggð á misskilningi. Á hlekknum að ofan kemur fram að 600 matjurtagarðar verða í boði í Reykjavík sumarið 2012 og skráning hófst 18. janúar.

Skólagörðum var aldrei lokað! - Nafninu var breytt í "fjölskyldugarðar" ásamt einhverjum öðrum smáatriðum.

Valgerður Marinósdóttir - 21 dagar síðan

Er það þá ekki rétt skilið að Reykjavíkurborg leggi ekki lengur til grænmeti og aðstoð í görðunum ????? Rök með því að opna þetta aftur fyrir börn og ungmenni eru þau m.a. að ekki hafa allir foreldrar ráð á að kaupa grænmeti fyrir garðana, né hafi þeir tækifæri til að styðja börnin sín í ræktuninni. Fjölskyldugarðar eru fínt úrræði, þeim sem það hentar.