Framkvæmdir rök

Miðbærinn og Lækjartorg sérstaklega, líða fyrir ískaldan vind af hafi. Með því að huga að veðurlagi við skipulag miðbæjarins í grennd við Hörpu er vonandi hægt að gera torgið vistlegra og 17.júní yndislegri
6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
af Vedurvaktin.is: "Í skipulagi byggðar hér á landi skiptir miklu að byggðin sjálf myndi skjól í algengustu vindáttunum og að einstakar byggingar séu hannaðar og staðsettar þannig að vindstrengir nái sér síður á strik. Vindur eykst alla jafna með hæð og hærri byggingar geta hæglega dregið aukna veðurhæð niður á lóð umhverfis bygginguna. Samsetning og gerð hærri bygginga, innbyrðis staða og bilið á milli þeirra eru allt þætti sem áhrif hafa á vindskilyrði. "
6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Með því að einn aðili hafi yfirumsjón yfir öllum stígum borgarinnar, nær borgin að slá margar flugur í einu höggi. Fegra umhverfið, ýta undir hjólreiðar og göngur, koma í veg fyrir slys og um leið gera borgina betri og heilsu borgarbúa betri. Í dag er stígakerfið i umsjón margra og engin fer og skoðar hvort eitthvað sé að, einungis bregst við ef einhver kvartar og þá er það spurning um í hvaða forgangsröðun málið lendir.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Nýtt embætti er ónauðsynlegt og flækir bara stjórnsýslu, enn fremur býst ég sterklega við að núþegar sé staða sem felur í sér hönnun samgöngumannvirkja. Frekar ætti að hvetja til þess að viðkomandi aðilar fái frekari menntun í hönnun hjólreiðastíga. Að greina stígana með tilliti til vandamála er síðan aftur ágætis hugmynd...
5 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
Um árabil hafa starfsmenn og foreldrar barna í Fálkaborg rætt um að vegna þrengsla á bílastæði við leikskólann skapist þar iðulega slysahætta, ekki síst á snjóþungum vetrum. Í leikskólanum er pláss fyrir um 63 börn og þar starfar örugglega hátt í 20 starfsmenn. Bílastæði við leikskólann eru um 10 talsins. Flestir foreldrar koma með börn sín í leikskólann á leið sinni til vinnu og flestir sækja líka börnin sín á leiðinni heim. Öngþveiti myndast, óhöpp verða, vörnum slysum, fjölgum stæðum.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
Það er ekki nóg að stjórnvöld marki sér stefnu um að efla hjólreiðar og göngu sem fararmáta, það þarf að fylgja henni eftir á öllum sviðum og svona embætti gæti gengt því hlutverki. Þetta er nefnilega ekki bara samgöngumál. Allt heilbrigðiskerfið hefur ávinning af bættri lýðheilsu ef fleiri kjósa að hjóla. Allir hafa hag af umhverfisáhrifum þess ef fólk velur fararmáta sem menga minna og s.frv. Eitt dæmi er Harpa þar sem fólk er ekki velkomið á hjólum, þvert á stefnu stjórnvalda sem fjármagna þó
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Þessi tónlist út um allt er alveg að æra mig -- þó svo að hún sé róleg. Ég vil fá að velja hvað ég hlusta á. Og ég vil get heyrt mínar eigin hugsanir. Tónlistin er slævandi og ég þarf á allri minni athygli að halda þegar sótt er að mér úr öllum áttum með hvers konar áreiti.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það er augljóst að eftir þessa miklu snjódaga að húsagötur þurfa líka að vera ruddar. Þær hafa verið ruddar nokkrum sinnum en ekkert gert til að ná niður hálkuhryggjum sem versna svo bara strax daginn eftir. Það þarf að koma húsagötum í hærri forgang í snjóruðningi borgarinnar. Ekki bara sem undantekningu þegar neyð er mest. Það er ekki nóg að ryðja aðalgöturnar ef fólk kemst ekki einu sinni úr húsagötunni sinni.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Ég tel að það sé stórhættulegt sem nú virðist vera í tísku hjá þeim sem fara með umferðarmál í borginni (og hefur verið um nokkurt skeið), að merkja ekki gangbrautir skýrt og greinilega með því að sebramála þær. Þetta er mikilvægt öryggisatriði fyrir alla vegfarendur (ekki síður ökumenn en aðra) og ætti að vera einfalt og ódýrt að kippa í lag. Það er alls ekki nóg að hafa skilti sem vísar að bílstjórum - algjört lágmark að gangandi vegfarendur SJÁI auðveldlega hvar gangbrautir eru!
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Biðstöð Strætó á Vesturlandsvegi við Viðarhöfða er stórhættuleg. Þar er engin gangstétt en umferð mikill og hröð. Farþegar þurfa að paufast upp og niður snarbratta brekku og eiga á hættu að velta í veg fyrir bíla sem koma frá Viðarhöfða. Neðan brekkunnar er ekki heldur gangstétt. Ökumenn sem koma undan brúnni geta ekki séð gangandi vegfarendur fyrr enn á síðustu stundu. Einfaldur stigi með góðu handriði og ljósastaur eða kastari væru til mikilla bóta meðan betri leiða er leitað.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Þjarkar virka kannski vel í einangruðu verksmiðjuumhverfi. Hinsvegar eru þeir óáreiðanlegir í borgarumhverfi og RÁNDÝRIR bæði í þróun, smíði og rekstri. Enn fremur myndu við þessa breytingu fjöldinn allur einstaklinga sem virka vel í starfi ruslheimtumanna (og síður í öðrum störfum) missa vinnu sína. Good job!
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það verður aldrei hægt að finna einhvern almennan tónlistarsmekk sem hentar öllum. Sá sem vill hlusta á tónlist, hvernig sem hún er, getur notað heyrnartól. Það er ekki búið að banna það ennþá.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það eru nú þegar fleiri embætti en þörf krefur í stjórnsýslunni. Miklu frekar ætti að gera störf þeirra sem þegar þiggja laun fyrir þau markvissari.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
Íþróttaiðkun er besta forvörn sem hægt er að fjárfesta í en jafnframt fyrirbyggjandi heilsugæsla. Börn í íþróttaiðkun gengur jafnan betur í skóla svo og í listsköpun.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Gosbrunnur og útikaffihús á sumrum þar sem borð og stólar eru í básum umhverfis gosbrunninn og e.t.v. þak yfir sem taka mætti niður á góðvirðisdögum, skapar eftirsóknarvert afslappandi andrúmsloft á Lækjartorgi. Gosbrunnurinn prýddur landvættunum fjórum gæti orðið einn af kennileitum Reykjavíkur. Hann mætti hanna þannig að ekki væri hægt að vaða í honum til að koma í veg fyrir óæskilega hegðun. Blómaker til prýðis Efna mætti til samkeppni meðal listamanna til að hanna gosbrunninn.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Fólk sem býr í miðbænum þarf að búa við að migið sé á hús þeirra og það sama þurfa verslunareigendur að glíma við. Þó er vart við gerendur að sakast þegar salernisaðstaða almennings í miðbænum er bundin við 3 klósett sem falin eru innaní 5 metra háum ruslatunnum. Skemmtistaður ætlaður 80 manns fengi aldrei úthlutað leyfi með slíka salernisaðstöðu. Afhverju þykir þetta þá nóg fyrir miðbæ Reykjavíkur sem fær 600.000 ferðamenn í heimsókn á ári og tugir þúsunda Íslendinga skemmta sér í hverja helgi?
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
já mér finnst mikið um það að þar sem eru gangbrautir t.d. við ljós en ekki sebramerktar, eru vegfarendur ótilitsamir göngumerkinu, ég fylgist vel með því hvort bílar stoppi eða ekki fyrir mér áður en ég labba yfir, semsagt þegar það er begjuljós á sama tíma og gönguljós, flesstum gæti bara ekki verið meira sama, fólk virðist hafa þá rök huggsun að vera að flíta sér og þurfa ekki að spá né bera tillit.
1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Einfaldlega ekki nógu mörg stæði til að sinna starfsfólki og börnum leikskólans. Þetta leiðuir til þess að keyrt er yfir gróður og kant steina í grennd við stæðið. Malbik einnig illa farið og lýsing léleg
1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það vantar víkinga- og sögusafn hér og í miðbæinn þar sem ferðamenn geta kynnst sögu, menningu og jafnvel bragðað mat þess tíma. Spennandi og viðeigandi staður væri að grafa út Arnarhól að hluta og byggja staðinn inn í hann og samhliða lappa uppá Arnarhól, t.a.m. gera hann stallaðan þannig að hægt væri betur að sitja þar á honum. Setja mætti kýraugu í stallana sem nýttust sem ljósop í safnið! Aðgengi mætti vera undir styttunni af Ingólfi Arnarsyni
1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Auka þarf eftirlit með umferð á þeim tímum er börn eru að fara til og frá skólum. Of margir ökumenn vriða ekki umferðarreglur og flýta sér um of í kringum skóla. Nauðsynlegt er að fylgjast með og skrá niður umferð, umferðalagabrot og aðrar hættur og gera ráðstafanir. Gefa áminningar, tímabundnar lokarnir, breyta akstursleiðum varanlega - Nýlega var ekið á tvö börn sama daginn hér á höfuðborgarsvæðinu sem betur fer ekkert alvarlegt. Gerum bara það sem þarf til úrbóta - verum á undan einu sinni.
1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Lögregla myndi framkvæma mælingu/eftirlit við hvern skóla einu sinni í mánuði og sá skóli sem væri með bestu niðurstöðu hverju sinni fengju einhverja umbun - ÍTR kæmi með leiktæki, slökkvubíll í heimsókn og eldur slökktur, veltibíll, eitthvað skemmtilegt fyrir þann skóla. Fjölmiðlar myndu svo kynna þetta vel og þannig myndu nemendur fara að þrýsta á foreldra og ættingja til að bæta umferðarmenninguna.
1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
sjá
1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Setja upp rólega tónlist í allan miðbæ Reykjavíkur þar sem hengt er upp svona sérstaka hátalara sem gefa góðan hljóm. Þetta á að vera róleg tónlist sem er ekki með neinum söng heldur einungis rólega og lága tóna sem maður heyrir varla neitt í en samt getur maður greint einhverja bylgjuhreyfingu sem gerir það að verkum að umferðin verður ekki einungis það sem maður heyrir. Þetta á að vera tónlist sem hefur róandi áhrif á mann og gerir mann hressari.
1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það er ekki á miðbæinn bætandi með góðu veðri. Ég legg til að hlúð verði að menningu austar í borginni svo fólk þar hafi að einhverju að hverfa í fásinninu í sínu hverfi.
1 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
Með því að bæta lífið og umhverfið í Viðey getum við ferðast þangað annaðhvort með báti eða í undirgöngum fyrir gangandi fólk. Það eiga ekki að vera bílar eða slík farartæki á Viðey, heldur getum við gert Viðey líkt og Laugarveg eða svoleiðis því það á bara að vera stór göngugata fyrir gangandi fólk. Það verða þá einnig veitingahús, verslanir, skemmtanir, þjónustur, heilsugæsla og gisting. Einnig verða líka einhver íbúðarhúsnæði.
1 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
Það ætti að vera einhver möguleiki á að gera ruslatunnur sjálfvirkar því að yfirleitt eru ruslatunnur fljótar að fyllast, sérstaklega í miðbæ Reykjavíkur. Með því að fjölga ruslatunnum getur það haft áhrif á störfin fyrir tæmingu þeirra. Það verður meira álag og auk þess eru ekki margir sem velja þetta starf. Það ætti að vera hægt að gera mjög ódýrar og endingargóðar sjálfvirkar ruslatunnur fyrir borgina sem gerir það að verkum að fleiri kjósa að henda ekki ruslinu á jörðina heldur í tunnurnar.
1 aðilum fannst þetta gagnlegt, 2 fannst það ekki.
Afsakið, en ég held að fólk sem vinnur við að losa rusl í borginni, hafi bara gott af því að vinna sína vinnu. Ef það vantar fólk í svona störf, þá þarf bara að auglýsa eftir meira fólki.
0 finnst þetta ógagnlegt
Með því að ráða sérstakan einstakling sem hefur það hlutverk að skoða, fylgjast með, passa uppá og skipuleggja alla göngustíga borgarinnar, sjá til þess að stígarnir séu hreinir, í lagi, upplýstir, merktir og samkvæmt þörfum og óskum notenda, munu hagsmunir þess hóps sem notar stíganna vænkast og um leið betri samgöngur í borginni. Þessi einstaklingur getur svo á sumrin ráðið undir sig c.a tvo nemendur til að hjóla borgina þvera og endilanga með myndavél til að greina vandamál.
1 aðilum fannst þetta gagnlegt, 2 fannst það ekki.