|
|
Á opnum svæðum borgarinnar er mjög kostnaðarrík túnrækt, það þarf að slá grasið reglulega og bera einhvern áburð á það, svo það líti sæmilega út. Með því að planta ýmsum trjátegundum, með amk 4-6m millibili, myndi með tíð og tíma vaxa bjart og sjálfbært (að mestu) skóglendi. Helst þyrfti að nota um 50- 150 cm háar plöntur, svokallaðar beðplöntur. Í stað grassins, mun vaxa meira af blómplöntum, gæti jafnvel leitt til minna frjós í umhverfinu. Skóglendi á að vera "normið", ekki túnrækt.
8 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Miðbærinn og Lækjartorg sérstaklega, líða fyrir ískaldan vind af hafi.
Með því að huga að veðurlagi við skipulag miðbæjarins í grennd við Hörpu er vonandi hægt að gera torgið vistlegra og 17.júní yndislegri
6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
af Vedurvaktin.is:
"Í skipulagi byggðar hér á landi skiptir miklu að byggðin sjálf myndi skjól í algengustu vindáttunum og að einstakar byggingar séu hannaðar og staðsettar þannig að vindstrengir nái sér síður á strik. Vindur eykst alla jafna með hæð og hærri byggingar geta hæglega dregið aukna veðurhæð niður á lóð umhverfis bygginguna. Samsetning og gerð hærri bygginga, innbyrðis staða og bilið á milli þeirra eru allt þætti sem áhrif hafa á vindskilyrði. "
Uppruni: http://www.vedurvaktin.is/um.html#
6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Með því að búa til grasgrænann malbikaðann hjólreiðastíg frá Reykjavíkur í gegnum Kópavog, Garðabæ og Hafnarfjörð til Keflavíkur væri stígið stórt umhverfisvænt skref í átt að náttúru Íslands. Hægt væri að hafa 10km Vatnsstopp á leiðinni þar sem fólk gæti sest niður og spjallað og notið umhverfisins. Þetta er sameiginlegt og mikilvægt verk allra sveitafélaga sem að máli koma. Að auki væri hægt að halda allskonar keppnir í tengslum við þessa leið.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Með lokun Rauðarárstígs og Miklubrautar, skapast mun meira umferðaröryggi, bílar frá Miklubraut keyra á miklum hraða niður Rauðarárstíg. Þetta veldur mikilli hættu fyrir allt mannlíf í Norðurmýri, og það gesti Klambratúns. Umferð getur beinst frekar á Snorrabraut og Lönguhlíð.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
|
|
|
Einelti er eins og allir vita mannréttindabrot og börnin okkar verða að virða allar manneskjur, ekki bara þá sem eru eins í hópi.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Á hverju ári taka lönd út um allan heim þátt í hinni svokölluðu Earth Hour. Þá slökkva borgirnar öll óþarfa ljós í borginni í klukkutíma. Fyrirtæki myndu slökkva á auglýsingaskiltum og flóðljósum. Borgin gæti hvatt íbúa sína til að slökkva öll ljós og hafa kósí kvöld inni með kerti og spil, eða fara út í náttúruna og njóta þess að horfa á stjörnurnar þar sem öll götulýsing væri slökkt. Ljósmyndarar myndu fá ný og óþekkt tækifæri til myndatöku og rafmagnsreikningurinn myndi lækka í þokkabót :)
Uppruni: http://www.earthhour.org/
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Það er búið að griða af og loka stórum hlutum Laugardals. Stöndum vörð um grænu opnu svæðin í borginni og forðumst að loka þeim af fyrir t.d. golfvelli eða annarri aðstöðu sem væri seldur aðgangur að.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Reykjavíkurborg tekur nú þátt í Earth hour í fyrsta sinn. Borgin slekkur ljósin í miðborginni og hvetur alla til að njóta myrkurs við kertaljós!
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Til að þessi leið geti orðið að veruleika þarf að leggja viðbótar stíg um nokkurra km leið frá Straumsvík og að gamla Keflavíkurveginum. Þar væri hægt að merkja þann veg sérstaklega með reglulegum hjólmerkingum, svo geta menn stoppað í Vogum og fengið sér hressingu og síðan er nú eignlega ekki margt langt til Keflavíkur. Við þurfum ekki að festast í því að hjólafólk hjóli samsíða hraðbrautum, stórar hjólaleiðir erlendis fara oftast um fáfarnari vegi og minni bæi.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Par 3 golfvöllur er sú týpa af völlum sem er með stuttar brautir og nýtist best til að æfa stuttu höggin, fyrir byrjendur og þá sem eru styttra komnir í íþróttinni eða þá ungu og höggstuttu. Tilvalið fyrir þá sem vilja kíkja í stutt rölt með 1-2 kylfur með sér á kvöldin, eftir vinnu, æft púttin á púttvellinum, tekið nokkrar stuttar holur, rabbað við nágranna og aðra áhugamenn um íþróttina, eða farið með fjölskyldunni og kennt ungviðinu handtökin eða látið það kenna sér :)
1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Sem fyrrverandi íbúi við þetta svæði sem ég hef í huga, get ég sagt af minni reynslu að þetta svæði er ekki nýtt, þetta eru blettir sem skurðir girða af sem gerir fólki erfitt um vik að vafra þar um. Einnig er þetta svæði afar þúfótt sem kemur í veg fyrir ýmis konar notkun. Ég er því að hvetja til að þessu grænu svæði séu í raun nýtt en ekki látið standa óhreyfð.
sjá nánari útfærslu á http://golfvollur.wordpress.com/2011/10/19/golfvollur-i-fossvogsdalinn/
1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
á móti
Betra veður í miðbæinn
Það er ekki á miðbæinn bætandi með góðu veðri. Ég legg til að hlúð verði að menningu austar í borginni svo fólk þar hafi að einhverju að hverfa í fásinninu í sínu hverfi.
1 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
|
|
Gera Egilshöll að almennilegri miðstöð íþrótta í Grafarvogi og austur hluta Reykjavíkur með því að setja sundlaug á svæðið. Með því verður svæðið við Egilshöll líkt og annar Laugardalur.
1 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
|