|
|
|
Í kringum tankana er malbikaður hringur sem hallar innávið, á einum stað í hringnum eru tröppur. Það sem þyrfti að gera að að leggja gólf úr krossvið og byggja þak.
6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Það verður að fylla uppí stórhættulega húsagrunna í hverfinu áður en það verður slys. Reykjavíkurborg á nokkra grunna í hverfinu sem þarf að fylla uppí og setja grasþökur yfir bæði til að koma í veg fyrir slys og til að fegra hverfið.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Ég vil líka benda á að Úlfarsárdalur fylgir þarna með. Ört stækkandi hverfi sem þarf sína þjónustu eins og önnur hverfi borgarinnar.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Meðfram Úlfarsfelli er skelfilegur malarvegur með 70 km lítilsvirtum hámarkshraða og mörgum blindum punktum. Þessum vegi deila m.a. bifreiðar, mótorkross- og fjórhjól, gangandi, skokkandi og hjólandi vegfarendur auk hestamanna. Engin lýsing eða vegastikur eru á veginum og því myrkrið algjört yfir vetrartímann. Þá er ekkert sem gefur til kynna að þarna sé búseta og börn að leik. Það myndi auka útivistargleði og öryggi allra ef þarna yrði afmarkaður stígur fyrir mýkri umferð, nóg er plássið!
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Hér voru hjólabrettarampar sem hurfu einn daginn og margir krakkar sátu eftir með sárt ennið og rándýr bretti sem ekki var lengur hægt að æfa sig á. Við viljum að börn hreyfi sig meira og stundi heilbrigðari lífshætti en þá er ekki hægt að koma svona fram við þau. Það ætti að setja upp almennilega rampa á góðu undirlagi með ráðgjöf frá fólki sem stundar þessa íþrótt og veit hvað þarf til. Eflum hreyfingu í hverfinu og aukum fjölbreytni!
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Það þarf að bæta strætó þjónustu í Grafarholtinu. Á virkum kvöldum, laugardagsmorgnum og -kvöldum og alla sunnudaga gengur leið 18 einungis á klukkutíma fresti. Það þarf að fjölga þessum ferðum þannig að hálftími líði á milli. Einnig þarf strætó að byrja að ganga fyrr á sunnudagsmorgnum, ég hef oftar en ekki þurft að sleppa vinnu eða guðþjónustu á sunnudögum vegna þess að strætó er ekki byrjaður að ganga. Einnig þarf að virkja leið 5 á kvöldin og um helgar aftur!
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Það vantar gangstíg á Vínlandsleið. Þegar maður hjólar eða gengur þarna þá neyðist maður til að ganga á götunni.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Við frágang göngustígs, sem liggur meðfram Leirdalnum og áfram undir norðanverðum Nónás, var bara skyndilega
hætt í miðju skóglendi. Frábært væri að þarna yrði haldið áfram og lokið við að tengja þennan göngustíg niður að Reynisvatninu, svo ekki þurfi að ganga í gegnum urð og grjót. Með þessu yrði lokið við samfelldan göngustíg og
stuðlað að enn betri útivist í hverfinu.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Það liggur malarstígur meðfram Úlfarsá, fyrir neðan Reynisvatnsveg og Nóatún, sem tengir göngustíga úr Grafarholti við göngustíg niður á Korputorg. Hann lítur út fyrir að eiga að vera malbikaður en er það ekki heldur er hann grýttur og leiðinlegur yfirferðar, svona eins og hann hafi bara ekki verið kláraður. Það gerir manni erfitt fyrir þegar maður vill fara hjólandi eða með barnavagn niður á Korputorg, t.d. til að komast í Bónus. Einnig vantar alveg lýsingu á þessum kafla.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
eru fullt af glerkrukkum sem er hent í ruslið, en með glergámum væri auðvelt að henda gleri sem ekki fæst neitt úr endurvinnslunni fyrir þarna,, því ekki eiga allir leið í endurvinnsluna..
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Með tilkomu gervigrasvallarins í Úlfarsárdal og með frekari uppbyggingu á íþróttasvæðinu er nauðsynlegt að huga að bættum samgöngum fyrir notendur. Núverandi staða er sú að öll umferð inn í hverfið og að íþróttasvæðinu liggur um Úlfarsbraut, sem er hægakstursgata og liggur á milli skóla og meginhluta hverfisins. Þar er börnin okkar mikið á ferðinni á leið í og úr skólanum. Það er því mjög brýnt að fara að huga að þessari vegtengingu á milli hverfanna með tilheyrandi brú yfir Úlfarsá.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Í vinnslu
Ganga frá opnum svæðum í Úlfarsárdal
Það eru mörg svæði í Úlfarsárdal sem eru merkt sem opin svæði. Þessi svæði eiga að fegra hverfið og hafa tré og annað sem prýðir gott hverfi. Leikvellir og annað eiga heima á svona stöðum, einnig er hægt að fegra þau til með nokkrum trjám og blómum.
Mín tillaga er að koma þessum svæðum í fallegt horf og þarmeð auka rýmið til útiveru í okkar eigin hverfi. Með þessu má koma í veg fyrir frekari misnotkun á þessum svæðum af hálfu byggingaverktaka og öðrum.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Í vinnslu
Gróðursetja tré í Úlfarsárdal
Það má vel gróðursetja nokkur þúsund græðlinga í hlíðum Úlfarsárdal til að minnka rok og þarmeð moldfok sem er vandi í hverfinu okkar. Tréin fegra auðvitað hverfið í leiðinni og skapa betra útivistarsvæði fyrir íbúendur þar.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Bætir aðkomu inn í Grafarholtshverfi bæði fyrir íbúa og aðra þá sem sækja verslun og þjónustu í vaxandi þjónustukjarna við Vínlandsleið
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Vantar betra leiksvæði fyrir börnin, leiktæki og afmarkað svæði. Fyrir er opið grassvæði, fullt af glerbrotum og rusli (það er krá í næsta húsi) og moldarsvað þar sem auðveldlega myndast pollar. Enginn stétt til að leika sér á (bara almennur gangstígur), engir skjólveggir, enginn gróður, bara opið svæði sem er ekki nóg fyrir flotta krakka í leik.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Íbúar í Úlfarsárdal eiga bæði rétt á og kröfu á að borgin gangi frá þessum húsgrunnum þannig að öryggi sé tryggt og umhverfið vistlegt fyrir íbúa. Íbúarnir greiddu nú ekki lítið fyrir byggingarréttinn, háar tölur sem borgarfulltrúar sögðu eiga tryggja snemmborið þroskað umhverfi (mín túlkun), þ.e. þjónusta ýmiss konar ætti að vera til staðar þegar fyrstu íbúar flyttu inn.
Efndir eru litlar, en lágmark er að ganga snyrtilega frá lóðunum! En kostnaðurinn ætti ekki að koma úr hverfapottunum.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Þegar komið er eftir Vínlandsleið og að gantamótum Þúsaldar móti Húsasmiðjunni og bílar eru að beygja bæði til vinstri, og hægri upp Þúsöldina, ef þarna væru tvær akreinar svo bílar gætu raðað sér upp aðrir til vinstri og hinir til hægri.
Þetta mundi flýta mjög fyrir umferð á þessum gantamótum.
Þetta ætti ekki að kosta mikið.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Margir ganga reglulega kringum Reynisvatnið. Þar er aðeins einn bekkur, sem er staðsettur í trjálundi í suðaustur
horni við vatnið. Setja þarf 2-3 bekki við göngustíginn, þar sem hægt væri að horfa yfir vatnið. Þar með myndi
útivistarfólk, sérlega það sem er í eldri kantinum, njóta betur því frábæra svæði sem er við Reynisvatnið.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Lóð milli Ingunnarskóla, Guðríðarkirkju og verslunarmiðstöðvar á Grafarholtinu er til skammar fyrir hverfið, Það er frábært tækifæri til að búa til flott torg eða huggulegt svæði fyrir íbúana á holtinu
Kveðja
Gunnar
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Biðskýli Strætó sunnan Kristnibrautar við Prestastíg er samsíða götunni, eins og venja er. Gatan liggur í sveig austur af Grafarholtinu. Vagn sem kemur niður Kristnibrautina sést ekki úr skýlinu og vagnstjórinn sér farþega sem bíður ekki fyrr en á síðustu stundu og þarf iðulega að nauðhemla. Betra væri fyrir alla að að komast hjá því, fyrir vagnstjórann, farþega á biðstöð og í vagninum og ekki síst fyrir aðra ökumenn. Auðvelt er að snúa skýlinu ofurlítið eða setja glugga á efri hlið þess.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Strætó leið 6 gengur ekki fyrr ef eftir kl. 18 virka daga í Grafarholt
Til sendur að sameina unglingadeildir grunnskóla í Grafarvogi í safnskóla. Börn og unglingar sem búa í Grafarholti en ganga í skóla í Grafarvogi verða að geta tekið strætó í og úr skóla á skólatíma.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Breyta strætó leið 26 þannig að í stað þess að vagninn gangi Vikurvegi taki hann örlítinn hring, þ.e. fari af Víkurvegi inn á Gagnveg, þaðan Hallsveg og aftur út á Vikurveg og öfugt. Ekkert aðgegni er að íþróttamiðstöðinni og sundlaug Grafarvogs með strætó úr Grafarholti. Þeir sem búa í Grafarholti og stunda íþróttir hjá Fjölni í Dallhúsum þurfa að geta tekið strætó sem og þeir sem vilja sækja sund í næstu sundlaug.
Það yrðu 2 stoppustöðvar á Gagnvegi og tæki örstutta stund að taka þennan krók.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Ýmsa þjónustu fyrir Grafarholtsbúa þarf að sækja í Árbæinn t.d. er Heilsugæslustöð, sundlaug og Þjónustumiðstöð staðsett þar. Strætisvagn gengur einungis á klukkutímafresti virka daga til kl. 18.00 en ekki kvöld og helgar.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Það eru ekki allir sem eiga þess kost að komast upp á Úlfarsfell.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Þetta þekkist víða erlendis og auðveldar flokkum til muna. Minkar heimilissorp og léttir störf þeirra sem sinna heimilissorpi höfuðborgarinnar.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Bæta þarf stígakerfi borgarinnar í botni Úlfarsárdals. Tengingu vantar frá Lambhagavegi og inn að Reynisvatnsáshverfi meðfram Reynisvatnsvegi, Hann myndi tengjast stígnum yfir miðjan dalinn á móts við Framsvæðið. Um leið fæst tenging við nýju gras sparkvellina sunnan Úlfarsár sem eiga að verða klárir næsta sumar. Einnig þarf að huga að stígagerð samhliða vegtengingu yfri Úlfarsá á milli Reynisvatnsáss og Úlfarsárdals. Með þessum stígum opnast góðir möguleikar fyrir útivist úr hverfunum í kring.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Skiltið Marteinslaug hjá Þórðarsveig er allt of lítið það sést varla Marteinslaug. Einnig væri gott að færa skiltið ofar sem er í Marteinslaug, það er 2-3 metrum frá horni og erfitt að sjá það ef þú ert að leita af götuheitinu Marteinslaug.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Lofnarbrunnur í Úlfarsfelli er sú gata sem liggur samsíða Úlfarsbraut meðfram Dalskóla. Hraðahindranir á Úlfarsbrautinni draga mikið úr hraða. Það hefur hins vegar leitt til aukinnar umferðar um Lofnarbrunninn þar sem engar hraðahindranir eru þar, en þetta er gata sem mörg skólabörn ganga um, í og úr skóla og frístundir. Þá hefur með opnun íþróttasvæðis Frams umferðin aukist gífurlega. Mjög mikilvægt er að fá hraðahindranir í þessa götu sem fyrst til að auka öryggi gangandi vegfarenda.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Mikil umferð er eftir Vínlandsleið kvölda og morgna þar sem margir nota leiðina sem styttingu á milli hverfa. Frá hringtorgi á mótum Grafarholtsvegar og Vínlandsleiðar er enginn stígur. Hægt væri að leggja stíg meðfram hitaveitustokknum og losna þannig við hæðina.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Ef það er klukka í strætóskílum þarf ekki að spurja aðra ef maður er ekki með klukku
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|