Grafarvogur rök

Með því að leggja tiltölulega stuttan hjólreiða og göngustíg meðfram sjó á milli Hamra og Víkurhverfa, framhjá Gufunesi, væri komin samfeld tenging stíga sem ekki lægju um brekkur eða fast við umferðargötur. Þannig væri jafnframt komin falleg, nánast brekkulaus samfelld leið eftir Reykjavík endilangri frá Seltjarnarnesi upp í Mosfellsbæ.
10 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Þörf er á ferðum almenningsvagna milli þessara sveitarfélaga (um korpúlfstaðaveg) þar sem fjöldi fólks sækir atvinnu og skóla.milli þessara staða. Í dag tekur það að minsta kosti 1 klst ef strætisvagnar eru nýttir, en ef farið er korúlfstaðaveg tekur þetta 5 til10 mínútur. einnig má benda á ýmissa afþreyingu sem auðveldara er að nálgst ef úr þessu er bætt, eins og t.d.bíó og keilu
8 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Að byggja upp gott stígakerfi á svæðinu við Gufunesbæinn og niður að sjó myndi klárlega auka á útivistarmöguleika Grafarvogsbúa innan hverfis. Samhliða þessu mætti gróðursetja og þannig mynda útivistarparadís fyrir Grafarvogsbúa sem og aðra.
7 aðilum fannst þetta gagnlegt.
eimnitt Það sem hefur vantað styð þetta mörgum sinnum
6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Frá því að Bryggjuhverfið var byggt upp var sagt að Björgun yrði flutt úr hverfinu. Umferð flutningabíla fylgir drulla. Sandfok og hættur fylgja starfseminni. Liðinn er áratugur og ekkert bólar á flutningi né frekari uppbyggingu hverfisins. Verðmæti eigna lækkar þótt húsin séu ný. Erindum til borgarstjóra svarað af embættismönnum. Lagfæringar hér og þar en ekki pólitísk forysta um flutning. Þolinmæði íbúa er á þrotum. Kæri Jón, tíminn til að gera Bryggjuhverfið einnig betra er þetta kjörtímabil!
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Þó að Bryggjuhverfið í Grafarvoginum teljist vissulega til Grafarvogshverfis þá er eina tengingin frá því í gegnum gamla og þreytta iðnaðarhverfið á Höfðanum. Látum vera að svo sé en er ekki í lagi að viðhalda vegtengingunni, þ.e. brekkunni uppá höfða frá Bryggjuhverfinu? Gatan er holótt, nánast eins og slæmur fjallvegur á hálendinu. En látum það vera að vegurinn sé slæmur, umhverfið við þessa einu tengingu okkar er vægast sagt hörmuleg. Hægt er að lagfæra umhverfið með litlum tilkostnaði.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Geldinganes er annar af tveimur stöðum sem má leyfa hundum að hlaupa lausum. Það er löngu kominn tími á að laga aðstöðu og ekki síður aðkomuna þar. Vegurinn yfir eyðið er skelfilegur og eftir að lokað var fyrir bílaumferð inn á nesið þá þarf að gera betri svæði til að skilja bílana eftir. Bekkir og jafnvel skjólgirðingar eða gróður myndu bæta aðstöðu mikið. Göngustígur eða troðningur í kringum nesið væri svo toppurinn og myndi auka mjög á útivistarmöguleika á þessu víðáttumikla og fallega svæði
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Ég myndi vilja sjá fleiri ruslatunnur á göngustígum í grafarvoginum. Það ýtir undir hreinlæti og sérstaklega fyrir hundafólk. Er ekkert það skemmtilegasta að ganga um með kúk í poka kannski allann göngutúrinn. Er ótrúlega fáar tunnur sértstaklega við voginn þar sem er gríðarlega mikið af göngufólki og hundafólki.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Mikil umferð bæði upp og niður götuna, sérstaklega þegar skólinn er að byrja á morgnanna. Hraðahindrun við leikskólann illa staðsett fyrir skólakrakkana sem þurfa þá að fara yfir bílastæðið hjá skólanum. Upplýstur göngustígur frá skólanum að götunni Vættaborgum endar á gangstétt við götuna, en þá er engin örugg leið til að fara yfir hana.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
mikil þörf á þessari leið
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Frábært einmitt það sem vantar
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Þarna er ég að tala um óræktina sem er ofan Bryggjuhverfisins að Gullinbrú og áfram neðan Stórhöfða. Þéttur trjágróður á þessu svæði myndi draga verulega úr hljóð og svifryksmengun í hverfinu, svo ekki sé minnst á hvað íbúum þætti útsýnið úr efri hluta hverfisins batna.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
þar sem hann er ómalbikaður þá getur hann verið hættulegur fyrir börn jafn sem fullorna. Mölin og allt þarna í kring er mjög gróft sem skapar mikla hættu. Sum börn ná ekki valdi á hjólunum þegar þau fara þarna yfir einnig er auðvelt að detta þarna þegar farið er fótgangandi. Þetta er eina örugga leiðin fyrir börnin að fara úr Staðarhverfi í Egilshöllina fótgangandi og hjólandi.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Börn í Húsahverfi þurfa að fara yfir tvær hættulegar götur á leið sinni í Egilshöll, þ.e. Hallsveg og Víkurveg. Á gatnamótum Hallsvegar/Víkurvegar eru engin gönguljós og undirgöngin við Hallsveg/Fjallkonuveg nýtast þeim ekki á leiðinni í Egilshöll. Mjög mikil umferð er við Borgaveg/Víkurveg og undirgöngin undir Víkurveg eru þannig staðsett að þau nýtast ekki börnum úr Húsa-, Hamra-, Folda- eða Rimahverfi. Það þarf nauðsynlega að bæta öryggi á þessari leið - helst með undirgöngum.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Mætti legga göngustíg frá Grafarvogi yfir að Korputorgi, Til að komast í þennan fína verslunarkjarna núna þá verður maður að ganga göngustíg frá Egilshöll niður að golfvellinum og fara þar yfir trébrú og svo endar stígurinn. Þar þarf maður að ganga yfir golfvöllinn sem er ekki heppilegt þegar golfararnir mæta. Væri fínt að fá góðann göngustíg hér á milli.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Barnafólk og fleiri þurfa hollar og ódýrar afþreyingar, ótrúlegt að sundlaugin í svona hverfi lokar kl. 18 um helgar. Nær að loka fyrr í miðri viku.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Núverandi göngustígur er nánast ófær hjólreiðafólki og fólki með barnavagna/kerrur. Það myndi opna ýmsa möguleika að malbika stiginn frá Hamrahverfinu að Gufunesbæ. Síðan mætti halda áfram og malbika niður að sjó og fyrir Hamrahverfishöfðann. Þetta myndi opna mikla möguleika
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Þetta hvetur hundaeigendur frekar til að taka upp skítinn eftir hundana sína þannig að allir græða. Hundaeigendur þurfa ekki að ganga um með kúkapoka í hálftíma og aðrir vegfarendur fá hreinni göngustíga og gangstéttir.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Ég er virk í tómstunda starfi, að taka fyst vagn í Ártún og svo þaðan í Mosó er ósættanlegt þar sem þú ferð fyst í vitlausa átt. Einnig tekur klukkutíma að fara þessa leið að kvöldi til. Fólk eins og ég sem hef ekki tíma í það og ekki bílpróf þarf að hafa einkabílstjóra.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Ég þar t.d að skipuleggja ferðir hjá starfsfólkinu mínu frá mosfellsbæ og þetta yrði mikill sparnaður
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Til að auka öryggi gangandi vegfarenda má gróðursetja trjábelti meðfram öllum göngustígum við golfvöllinn að Korpúlfsstöðum og heim að Egilshöll þar sem töluverð hætta er á að gangandi vegfarendur verði fyrir golfkúlu. Þekki það að eigin raun að verða fyrir kúlu og jafnframt skjóta kúlu yfir göngustíg. Einnig mun þetta gefa mikið skjól fyrir golfara og íbúa. Spurning um að GR kosti gróðurinn en unglingavinnan sjái um að gróðursetja.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Mikilvægt að hafa strætisvagn sem keyrir um Hamrahverfið fyrir unglinga okkar sem eru að fara í safnskólann í Foldaskóla, fyrir gamla fólkið okkar sem hefur ekki bílpróf og þarf að komast í búðir og fyrir nýbökuðu mömmurnar sem eru ekki á bíl og þurfa að komast í Spöngina með ungana sína til að sækja heilsugæsluna og eftirlit.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Er með hugmyndinni ef þú tekur út íbúabyggð. :) svæðið sjálft er mjög fallegt. mæli með að fólk gangi þarna. allt annað svæði en úr fjarska. en já það mætti allveg gera eitthvað HÓFLEGT við svæðið.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Já hér er ég mikið sammála. Það hefur verið "stoppað í" göt á veginum með því að setja möl, en það dugir mjög skammt. Ég hef oft séð bíla skella niður í götin og það á við um minn bíl líka. Ég hef einnig komið að slysi þar sem stelpa rann til í möl á veginum og stórskemmdi vespuna sína. Einnig er þessi vegur hættulegur reiðhjólafólki. Vegurinn er hálf malbikaður en það vantar bara herslumuninn og þarna þarf að bara að klára dæmið.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það er fáránlegt að geta ekki ekið beint milli Egilshallar og Korputorgs.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Merkingar / Varúð til ökumanna ábótavant eða þörf að færa göngubraut (ómerkt) um nokkra metra þar sem blindpunktur myndast fyrir ökumann frá strandvegi / Borgaveg. Mikil hætta fyrir gangandi vegfarendur þar sem umferð er mikil og hröð.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Ég skil ekki af hverju ekki er boðið upp á gáma þar sem hægt er að losa sig við einnota gler (glerumbúðir af mat og drykkjarmatvælum). Í Þýskalandi eru slíkir gámar bæði fyrir hvítt, brúnt og grænt gler og eru þeir við hliðina á pappírsgámunum þannig að hægt er að losa sig við pappír og gler á saman tíma. Þetta sparar heimilisrusl og ef fólk fer að flokka og skila meira, þá ætti það að spara heilmikið hvað sorpið varðar.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Ég hef tvisvar sent inn bréf til að óska eftir því að þessi vegur verði lagaður en mér hefur ekki verið svarað. Það er stoppað í götin með möl sem er komin upp úr holunum eftir 2-3 daga. Núna eru holurnar mjög slæmar. Þær eru það djúpar að ég rak bílinn minn niður áðan og hann er meira að segja frekar hár. Ég er ekki til í að þurfa að skemma bílinn minn við það að keyra út úr hverfinu mínu og sendi borginni þá reikninginn ef svo fer, það er á hreinu.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
50 km/klst þekkist varla hérna á Íslandi á götu sem er staðsett hjá grunnskóla, fjöldi barna sem fara þarna yfir götuna daglega, það á ekki alltaf að bíða eftir slysi áður en eitthvað er gert. Það var einu sinni breytt hraðanum í Hamrahverfi í 30 km/klst en Strætó fékk því breytt aftur upp í 50, það var greinilega talið mikilvægara að strætó væri á réttum tíma en öryggi barnanna í hverfinu. En í dag gengur strætó ekki lengur inn í hverfið svo ég efast um að þeir mótmæli núna ef þessu yrði breytt
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Þessi hverfi eru að mestu byggð í brekkum og því lítið um leiksvæði sem eru á sléttum svæðum. Erfitt fyrir börn og fullorðna sem vilja stunda boltaleiki í hverfinu.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.