Umræður um Háaleiti Og Bústaðir
Ef þú vilt taka þátt, vinsamlegast gerstu áskrifandi. Aðild er ókeypis og þú getur líka tengst í gegnum Facebook.

Eiríkur Sigurðsson - 3 dagar síðan

Auka öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda

FHS setti inn upplýsingar á Undirgöng undir eða göngubrú yfir Bústaðaveg. 3 dagar síðan 1 Athugasemd
FHS - 3 dagar síðan

á mótum Tunguvegs og Bústaðavegar - og síðan á mótum Réttarholtsvegar og Bústaðavegar. Og lengja tímann á gangbrautarljósunum við Grímsbæ.

Eiríkur Sigurðsson - 5 dagar síðan

Mjög mikilvægt öryggismál!

Eiríkur Sigurðsson - 5 dagar síðan

Mjög mikilvægt öryggismál!

bjalla - 18 dagar síðan

Endurbætur á lóð Breiðagerðisskóla

Vidar Eggertsson setti inn upplýsingar á Laga körfuboltavöll við Fossvogsveg u.þ.b. 1 mánuður síðan 2 Athugasemds
Vidar Eggertsson - u.þ.b. 1 mánuður síðan

Algjörlega sammála.

Á fundi með þáverandi borgarstjóra, fyrir nokkrum árum, var tillaga mín um að sett yrði upp girðing við körfuboltavöllinn til varnar að bolti skoppaði á götuna og börn myndu síðan hlaupa á eftir boltanum, samþykkt sem sérstakt forgangsverkefni.

Síðar sama sumar var síðan girðing sett upp, rúmlega 1 meters há!!! Slík girðing við körfuboltavöll er bara sýndarmennska, því hún er langt frá því azð þjóna tilgangi sínum.

Ég hafði margoft samband við hinar ýmsu skrifstofur í borgarkerfinu, sem og borgarstarfsmenn, en það skilaði engu. Þeir skildu ekki sjálfir tilgang girðingarinnar og hvað þá ábendinguna.

En það skilja þessir ungu körfuboltamenn! Ég styð þá heilshugar og megi þeir eiga góðar stundir á körfuboltavellinum!

Árni Blöndal - 25 dagar síðan

sammála þessu

Lena Lenharðsdóttir - 5 mánuðir síðan

Við skulum bara gera ráð fyrir að við fáum eins flotta skólalóð og er við Langholtsskóla. Þar eru fullkomin sparkvöllur, körfubotavöllur með nokkrum körfum, niðurgrafið trampólín, nokkur klifur- og æfingartæki, sleðabrekka og svo framvegis. Þá hafði einn nemandi á orði við þáverandi borgarstjóra að hann langaði að láta laga skólalóðina og hans ósk rættist fullkomlega. Nokkrir nemendur úr Breiðagerðisskóla hafa lagt á sig mikinn undirbúning og fund með núverandi borgarstjóra og nú er að sjá hvort þeirra óskir rætast. Stjórn foreldrafélags Breiðagerðisskóla óskaði eftir að fá nokkur tæki á lóðina fyrir nokkrum árum en fékk þau svör að ekkert gerðist fyrr en lóðin yrði endurskipulögð frá grunni og skipt um jarðveg. Við vildum nokkur tæki sem hægt væri að nota þangað til og eftir þær framkvæmdir en það var ekki hægt. Þegar við báðum um að fá körfurnar okkar aftur, sem teknar voru niður þegar byggt var við skólann, var okkur sagt að skrifa skólastjórnendum bréf. Þeir kæmu bréfinu áleiðis til framkvæmda-eða menntasviðs sem fundaði einu sinni í viku og ef þeir samþykktu færi erindið áfram. Við buðumst til að stytta ferlið og sækja körfurnar sjálf á hverfismiðstöðina og láta setja þær upp en því var hafnað. Ég styð tillögu um sparkvöll heilshugar en vona að við þurfum ekki að berjast fyrir honum frekar en nemendur Langholtsskóla.

Thelma Logadóttir - u.þ.b. 1 mánuður síðan

sorglegt að sjá hvernig aðstaða fyrir börn í Breiðagerðisskóla er á skólalóðinni.
Ég vona að hugsanlegar framkvæmdir muni fara eitthvað í þá átt eins og lóðin hjá Langholtsskóla er.

Hattur eyddi 2s í auglýsingu fyrir Ræktun skjólbeltis við Grensásveg u.þ.b. 1 mánuður síðan 1 Athugasemd
Hattur - u.þ.b. 1 mánuður síðan

Ræktun skjólbelta

Hattur eyddi 1s í auglýsingu fyrir Ræktun skjólbeltis við Grensásveg u.þ.b. 1 mánuður síðan 1 Athugasemd
Hattur - u.þ.b. 1 mánuður síðan

Ræktun skjólbelta