Háaleiti Og Bústaðir rök

Á lóð Breiðagerðisskóla vantar tilfinnanlega upplýstan og upphitaðan sparkvöll. Svona vellir hafa verið byggðir við langflesta grunnskóla borgarinnar á síðustu árum í samstarfi við KSÍ og eru í stöðugri notkun frá morgni til kvölds. Á lóðinni er nægt rými og þar að auki liggur fyrir samþykkt skipulag sem gerir ráð fyrir boltagerði. Í skólanum eru 332 nemendur sem margir æfa knattspyrnu og yrði sparkvöllur algjör bylting í aðstöðu og mundi breyta öllu fyrir möguleika þeirra til að taka framförum.
17 aðilum fannst þetta gagnlegt.
En að segja að þurfi bara að fjölga þeim, gerir strætó í raun óáhugaverðari kost. Því það gerir hann hægari og óþægilegri. Í raun þarf bara að endurskoða margar stoppustöðvar (hef ekið strætó, svo ég þekki allar leiðirnar). Og í Sumum hverfum eru alltof margar stoppustöðvar, þar sem tæki fólk 2 mínútur að labba á milli. En svo kemur fyrri að það eru ótrúlegar vegalengdir á milli stöðva. Svo það ætti að endurskoða allt kerfið, og þá staðsetningar stoppustöðva, með tilliti til allra hópa fólks.
9 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Lóð Breiðagerðisskóla hefur mjög lengi verið í hörmulegu ástandi. Þar eru nánast engin leiktæki fyrir þá 300 nemendur sem þar stunda nám. Þarna þarf að koma upp almennilegum tækjum og svo þarf líka að koma upplýstur sparkvöllur eins og er við flesta skóla borgarinnar. Á lóðinni eru líka lífshættulegar slysagildrur. Á tveimur stöðum myndast stórir pollar í leysingum á vetrum og oft með svelli undir. Börn (og fullorðnir) sem detta þarna eiga erfitt með að standa upp aftur og geta hæglega rotast.
8 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Stórhættulegir sumir göngustígar á borgarlandi í fossvogi vegna misfella, t.a.m. niður dalinn frá Bústaðavegi
6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Styð þessa hugmynd en um leið vil ég benda á að er svo margt sem vantar á lóð Breiðagerðisskóla sem er stór og gæti verið mjög fjölbreytileg. Það er t.d. leiðinlegt að hvorki við Breiðagerðisskóla né Réttarholtsskóla eru almennilegir körfuboltavellir einsog voru þar áður. Einnig finnst mér aðstaða til hjólabrettaiðkunar á lóð Laugalækjaskóla til fyrirmyndar. Framkvæmdir á lóð Breiðigerðsskóla eru aðkallandi og mér finnst að sú aðstaða sem þar mun vera byggð upp verði fjölbreytileg og skemmtileg.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Að mínu mati á Fossvogurinn að vera almenningsíþróttarsvæði. Það vantar alveg sundlaug á þetta svæði. Næstu laugar eru í Laugardal og Árbæ. Umferðin hefur aukist jafnt og þétt í dalnum, síðustu tvo áratugi, sérstaklega síðustu tvö ár. Sundlaug hefði mjög hvetjandi áhrif á almenningsíþróttir (s.s. göngur, skokk, hlaup, hjólreiðar). Það mætti byrja smátt (lítil laug, pottar og stórt tún) kostar ekki mikið, sparar skólakeyrslu í sund. Hafa sundlaugina græna þ.e. fyrir gangandi, ekki bílastæði.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það er varla hægt að fara þarna yfir í hjólastól eða með barnavagn og stórhættulegt fyrir fólk sem á erfitt með gang því stéttin er svo ójöfn og tætt. Þetta er stígurinn sem fer meðfram Háaleitisbraut frá Austurveri og niður að gatnamótum Listabrautar/Brekkugerðis.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Skeifunni var aldrei ætlað að vera þetta mikla verslunarhverfi sem hún er orðin. Slæm aðkoma að verslunum, veitingahúsum og ýmissi þjónustu hefur lengi hrjáð bílaeigendur, en gangandi og hjólandi eru þó verr staddir. Algerlega verður að taka samgöngukerfið þar í gegn og gera það betra og öruggara fyrir alla viðkomandi.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Grundargerðisgarður er falin perla sem alltof fáir vita um og nota. Þar væri tilvalið að koma upp betri leiktækjum og svo væri frábært að fá útikennslustofu sem Breiðagerðisskóli, leikskólinn Jörfi og fleiri leikskólar í hverfinu gætu notað. Hluti af því væri svo útieldhús (grillaðstaða) sem íbúar hverfisins gætu nýtt sér á sumrin.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Grundargerðisgarður er falin perla sem alltof fáir nota og vita um. Þar væri tilvalið að koma upp betri leiktækjum og svo væri frábært að koma upp útikennslustofu sem Breiðagerðisskóli, leikskólinn Jörfi og aðrir leikskólar í hverfinu gætu notað. Hluti af því væri útieldhús (grillaðstaða) sem íbúar hverfisins gætu notað á sumrin.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Ef hægt er að reiða sig á að þurfa ekki að bíða í meira enn 5-10 mín. eftir vagni munu freiri nota vagnana. Þetta mundi minnka bílaumferð í miðborginni og gefa hana aftur fótgangendum. Þetta mundi stuðla að gera miðborgina umhverfisvænni, fjölga göngugötum (undansk. strætó), og gera miðbæinn að umhverfissvæði fótgangenda, sem hefði jafnframmt jákvæð áhrif á íbúa, verslun og atvinnulíf. Til að íbúar úthverfa gætu notið góðs af, ætti að mynda ókeypis (neðanjarðar) bílahús við strætóendastöðvar.
Uppruni: http://Strætó
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Í vestanverðum Fossvogsdal voru fyrir nokkrum árum gerðar úrbætur sem bættu dalinn sem útivistarsvæði. Graslendi var lagfært, komið fyrir nýjum göngubrúm yfir lækina og setbekkjum meðfram göngustíg dalsins. Svæðið allt mun snyrtilegra og fallegra. Eystri hluta dalsins mætti lagfæra og gera fallegri í samræmi við það sem er í vestari hluta hans, sérstaklega þyrfti að loka fyrir lækinn sem liggur meðfram Fossvogsskóla. Þar er fjöldi barna að leik og ótækt að hafa leiksvæði við lækinn það býður bara hættunni heim.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Aðallega þarf að setja hærri grind við völlinn svo að boltinn skoppi ekki út af vellinum og út á götuna sem setur lítil börn í hættu. Auk þess skoppar boltinn áfram á blómabeð sem maður í blokkinni á móti vellinum hefur búið til sérstaklega og honum finnst ekki skemmtilegt þegar boltinn skoppar á það. Völlurinn er ójafn, allur bylgjóttur sem hentar verulega illa þegar kemur að körfubolta. Svo má taka aspirnar sem er við hlið vallarins, þær koma í veg fyrir allt sólskin sem kæmi á völlinn.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Þessi hugmynd snýst eingöngu um sparkvöll. Lesendum er bent á annað erindi sem heitir "Endurbætur á lóð Breiðagerðisskóla" ef þeir vilja koma með hugmyndir um heildarútlit lóðarinnar. Á lóðinni er nægt rými fyrir allskonar velli fyrir hinar ýmsustu íþróttagreinar en það er bara allt önnur umræða. Sparkvöllur gæti hugsanlega komið strax á þessu ári en heildarendurgerð lóðarinnar er ekki komin næstum því eins langt og flestir núverandi nemendur verða útskrifaðir þegar að því kemur.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það kostar sitt að reka sundlaug og reka hana. Þessutan nóg af laugum útum allt. Stutt í Kópavogslaug og ekki má gleyma Salarlaug. Hef verið duglegur að synda og sýnist að nýtingin á þeim mannvirkjum mætti gjarnan vera betri. Væri frekar ráð að setja pening í áframhaldandi uppbyggingu á þeim mannvirkjum sem að fyrir eru en byggja ný á tímum samdráttar og niðurskurðar. ps: svo væri ráð að setja allar sundlaugar á höfuðborgarsvæðinu undir einn hatt. Að sundlaugarkort myndi gilda allsstaðar!
6 aðilum fannst þetta gagnlegt, 2 fannst það ekki.
Göngustígarnir eru illa farnir sérstaklega hjá Keldulandi, Kjalarlandi og Kúrlandi. Malbikið er víða sprungið og stígurinn getur verið slysagildra fyrir lítil gangandi börn eða hjólandi. Svo mætti alveg laga leiksvæðið þarna aðeins og bæta við leiktækjum efst á svæðinu (fyrir ofan fótboltavöllinn). Til dæmis setja rólur þar.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Of hár kanntur við innkeyrslu á fjölbýlishúsum nr. 34, 36 og 38 hefur lengi verið til vandræða því að það er virkilega erfitt að keyra bifreiðum inná bílastæðin útaf þessum of háa kannti, það þarf nauðsynlega að taka þennan kannt í burtu. Á veturna hefur fólk jafnvel skemmt bifreiðar sínar útaf þessum of háa kannti við innkeyrsluna þannig að endilega laga þetta eins fljótt og hægt er. Bestu kveðjur Stg. 34, 36 og 38
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Við austurenda Hæðargarðs er bílum lagt beggja vegna götunar. Þetta er tenging Hæðargarðs við Réttarholtsveg þar sem mikið er um gangandi vegfarendur. Bílamergðin orsakar það að lítið útsýni er oft fyrir þann sem beygir inn á Réttarholdsveg til að sjá gangandi vegfarendur. Einnig er mjög erfitt fyrir tvo bíla að mætast í götunni þar sem bílum er svona lagt. Nóg pláss er í grasbala upp að heitaveitustokknum sem er notaður sem göngustígur til að búa til auka bílastæði. Það myndi stórbæta öryggi.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
breiðagerðisskóla nemendur hafa beðið lengi eftir þessu!
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Garðurinn sem er á móti Jörfa, á milli Hæðargarðs og Hólmgarðs er dimmur og drungalegur. Hópur allt of þétt gróðursettra Grenitrjáa liggur upp að Hæðargarði og skapar drungalegt andrúmsloft. Leiktæki og bekkir eru illa farin þar sem auðvelt hefur verið að skemma þau í skjóli trjánna. Ég mæli með því að grisjað verði úr trjánum. Jafnvel væri hægt að gera skemmtileg borð og stóla, eða litlar göngubrýr milli trjástubbana. Þetta myndi gera garðinn fallegri og skemmtilegri, sem og opnari.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Í austurenda Hæðargarðs við Réttarholtsveg er bílum lagt beggja vegna götu. Þetta er klárlega ólöglegt, en er látið viðgangast. Réttast væri þá að gera sömu framkvæmd þarna og í vesturenda götunnar,að búa til skáskotin bílastæði að stokkinum sem liggur meðfram götunni. Hæðargarður er skilgreind tveggja akreina gata og núverandi fyrirkomulag býr oft til einbreiða götu vegna bílafjöldans sem þarna er lagt. Nóg pláss er á grasbalanum frá götu að stokk til að framkvæma þetta. Gatan yrði öruggari.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Hugmyndin er ef Kolaportið lokar í vor að það verði flutt í gömlu hesthúsin við Elliðarárdalinn, þarf að vísu að gera smá endurbætur á húsunum, en þau eru alveg tilvalinfyrir markað. það er líka nóg landsvæði í kringum húsin fyrir útimarkaði í góða veðrinu. Nokkur skref í fallegasta útivistarsvæði borgarinnar. Hjólastígar liggja að staðnum frá öllum áttum og staðurinn er miðsvæðis í borginni. Svo má ekki gleyma fossvogsdalnum sem er líka frábær aðstaða til göngu,hjóla og útiviasar. Líf og flör
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það vantar víða perur í lýsingu. Þegar maður er að hljóla í myrkir er þetta vandamál. Til dæmis vantar a stórum hluta lýsingu í átt að hesthúsakverfi efst í árbæ þegar maður er á leiðinni í Norðlingaholt.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Til prýði og aukins skjóls mætti gjarnan gróðusetja fleiri tré meðfram Bústaðavegi á móts við efstu löndin í fossvogi, þ.e. Efstaland, Gautland, Hörðaland, Kelduland og Markland
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það þarf að auðvelda gangandi og hjólandi fólki að komast yfir eða undir Bústaðaveginn. Mikill fjöldi barna úr Smáíbúðahverfinu sækir æfingar hjá hverfisfélaginu Víkingi og þarf þess vegna að fara þar yfir. Unglingar úr Fossvoginum þurfa líka að komast yfir veginn til að komast í Réttó. Legg til að annaðhvort komi undirgöng skammt ofan gatnamóta Sogavegar og Bústaðavegar eða göngubrú en helst hvorttveggja á sitthvorum staðnum.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Mikilvægt er að loka Fellsmúla við Síðumúla þar sem gatan er íbúðarhverfi og umferð orðin alltof mikil þar í gegn. Flest allir sem eiga leið um Fellsmúla eiga ekki erindi í götuna sjálfa heldur í flestum tilfellum, í aðra Múla eða Skeifuna. Hverfið er að yngjast upp aftur og mikill fjöldi barna að leik. Eins og ástandið er í dag eru garðar og leikvellir nánast ónothæfir sökum mikillar umferðar. Komið er fordæmi fyrir lokun sem þessari þegar Rauðilækur var lokaður um hann miðjan.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Ég er alveg sammála með göngustígana það má endilega taka þá í gegn.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Fyrir um 2 − 3 árum var hluta Háaleitisbrautar breytt - hlykkir settir á götuna, hraðahindarnir og gróður. Þessu verki hefur ekki verið lokið - það á eftir að klára neðri hluta Háaleitsbrautar
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það er búið að griða af og loka stórum hlutum Laugardals. Stöndum vörð um grænu opnu svæðin í borginni og forðumst að loka þeim af fyrir t.d. golfvelli eða annarri aðstöðu sem væri seldur aðgangur að.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Mikilvægt að setja göngubrú yfir Kringlumýrarbraut milli Háaleitisbrautar og Miklubrautar. Slíkt myndi auka öryggi gangandi og hjólandi til muna. T.d barna úr Holtunum sem sækja íþróttir hjá Fram. Einnig væri þá hægt að koma upp strætóskýlum sitt hvorum megin við göngubrúnna og auka stórlega strætósamgöngur báðum megin við Kringlumýrarbraut, m.a með tilliti til Kennaraháskólans, Framsvæðisins og Lágmúlasvæðisins svo fátt eitt sé nefnt.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.