Umræður um Hjólreiðar
Ef þú vilt taka þátt, vinsamlegast gerstu áskrifandi. Aðild er ókeypis og þú getur líka tengst í gegnum Facebook.

Páll Guðjónsson setti inn upplýsingar á Hægri umferð á göngu- og hjólastíga 7 mánuðir síðan 3 Athugasemds
Páll Guðjónsson - 7 mánuðir síðan
Þessar línur þar sem hjólandi áttu að fara eftir einbreiðri ræmu á göngustígum eru bara slysagildrur sem þarf að fjarlægja. Reykjavíkurborg er fyrir þó nokkru búin að samþykka að hætta með þær en hefur lítið gert í því að fjarlægja þær því miður. Þar sem umferðin er mest er þörf á að aðskylja alveg umferð gangandi og hjólandi, enda fer hún ekki vel saman. Sjá nánar hér: http://blogg.smugan.is/hjolablogg/2011/09/13/burt-med-slysagildrurnar/
Óskar Guðlaugsson - u.þ.b. 1 mánuður síðan

En, varðandi þessa hugmynd almennt, þá verður að benda á að borgin er nú þegar búin að taka upp nýtt vinnulag við gerð stíga. Hjólastígar eiga nú að vera aðskildir göngustígunum, með tvær akreinar í hvora átt. Í Fossvogsdalnum er t.d. verið að framkvæma slíka breytingu eins og stendur.

Arnaldur Hilmisson - u.þ.b. 1 mánuður síðan

Track hjólreiðar og Roller Derby!

Inga Sörens - 3 mánuðir síðan

Frábær hugmynd, helming verksins þegar lokið, þarf bara aðeins að klára og fjölbreytileiki í íþróttum mun aukast til muna, þar sem þetta styður áframhald RollerDerby á Íslandi og styður undir fleiri hjóla/hjólabretta/hjólaskauta/línuskauta-íþróttir!! :)

Inga Sörens styður Búa til velodrome í kringum tankana á Grafarholti og setur það í 103. sæti 3 mánuðir síðan 1 Athugasemd
Inga Sörens - 3 mánuðir síðan

klárlega 1.sæti samt í að vera mikilvægt og vera algjör snilld!

Iðunn setti inn upplýsingar á Búa til velodrome í kringum tankana á Grafarholti 3 mánuðir síðan 1 Athugasemd
Iðunn - 3 mánuðir síðan

Þetta er æðisleg hugmynd, frábær fyrir Roller Derby og aðrar hjólaíþróttir:)

Reynir Hübner - 6 mánuðir síðan

frábær hugmynd!

Rakel - 3 mánuðir síðan

æðislegt fyrir Roller Derby :)

Kalli - 4 mánuðir síðan

Einfalda hjólastíga

Reynir Hübner setti inn upplýsingar á Labb gert að neðanjarðarstarfsemi 7 mánuðir síðan 1 Athugasemd
Reynir Hübner - 7 mánuðir síðan

Pawel: ég er alveg sammála því, að það væri vel hægt að stilla þessi ljós þ.a. þau hennti betur fyrir gangandi/hjólandi. - Það þarf samt meira að koma til, umferðaeyjurnar eru alltaf fullar af snjó og ógeði yfir vetrartíman, og hjólareinarnar sem Páll talar um hafa, hingað til, ekki heldur verið hreinsaðar af snjó á veturna, þ.a. það er ekki hægt að hjóla þær með góðu móti (og mér sýnist hreinsunin vera vandkvæðum bundin líka).

Það að nota undirgöngin getur verið ágætt, þó það hennti eflaust ekki öllum. Ég reyndar sé ekki marga ókosti við það, og mér liði mun betur með að senda börnin mín í undirgöng undir miklubraut, en um gangbrautirnar, því ég hef oft verið vitni að ökumönnum þar aka yfir á rauðu ljósi.
Sú neðanjarðarstarfsemi sem ég hef orðið vitni að í þessum undirgöngum eru krakkagemlingar að "tagga" veggina þarna niðri... óæskileg já, en skaðar engan.

Þórgnýr Thoroddsen - 7 mánuðir síðan
Hjólastefna ER skýr. Það gildir hægri umferð eins og annarstaðar.
Reynir Hübner - 7 mánuðir síðan
já Páll, betur má ef duga skal - þeir verða að klára málið, það er ekki mikið mál að þvo þetta burt með háþrýstiþvotti, eða mála yfir gömlu línuna, og mála svo nýja línu í miðjuna, og jafnvel einhverjar pílur sem lýsa akstursátt, og hættusvæðum, við bekki og þessháttar, þar sem fólki ber að fara varlega.
Páll Guðjónsson - 7 mánuðir síðan
Þessi undirgöng munu aldrei henta hjólreiðafólki. Í dag er gert ráð fyrir hjólandi umferð til suðurs til hliðar við bílaakreinina og inn á hjólastíginn sem liggur þarna til suðurs. Leiðin til norðurs fyrir hjólandi er skrítnari. Það er annað mál með gangandi og barnavagna. Þau þurfa að kljást við grindverk og vinkilbeygjur sem snjóruðningstæki ráða yfirleitt ekkert við, frekar en margir sem þurfa að fara leiðar sinnar þarna. Burt með grindurnar af öllum gatnamótum.
Baldur Örn Óskarsson - 7 mánuðir síðan
Auðvitað á að breyta þessum undirgöngum og gera þau notendavænni. Núverandi ástand gerir það að verkum að það notar þau nánast enginn.