|
|
Styð Borgarlandbúnaður
Gróðurhúsið verður með svipuðu sniði og skólagarðarnir nema innandyra. Hver fær sinn reit til umráða og ræktar þar til eigin brúks matvæli og jurtir allt árið um kring eða þann tíma sem reiturinn er til leigu. Leigutímabilið er hálft ár í senn. Einungis verður hægt að rækta lífrænt í húsinu. Hitinn verður í kringum 20° svo hægt verður að rækta margskonar tegundir innan marka laganna þó. Notast verður við ljósaperur og affalsvatn úr hitaveituleiðslum borgarinnar.
25 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Hundar hverfa ekki úr borginni þó þjónustan sé lítil sem engin. Það hefur reynslan sýnt, en undanfarin 10 ár hefur hundaeign í borginni meira en tvöfaldast. Íbúar í Reykjavík greiða meira en 30 milljónir í hundaleyfisgjöld á ári og íbúar í öðrum sveitarfélögum borgarinnar meira en 20 milljónir. Samt eru einungis 1-2 hundasvæði í allri borginni. Hundar þurfa hreyfingu og efla félagsþroskann með því að leika lausir við aðra hunda daglega. Því ættu hundagerði að vera í öllum hverfum borgarinnar.
24 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Í vinnslu
Lífvænleg Snorrabraut!
Í dag er Snorrabrautin eins og óskilgetið barn hraðbrautar og beinlínis lífshættuleg gangandi vegfarendum. Ástandið er óviðunandi sérstaklega vegna nálægðar við Norðurmýrina. Það þarf að upphugsa götuna alveg upp á nýtt. Í dag er ástandið þannig að það eru engar hraðahindranir, engin skilti sem gefa til kynna hámarkshraða ofl. í þeim dúr. Umferðaljósin 4 á stuttum kafla hægja ekki á hraðanum nema síður sé, gönguljósin eru enn of stutt! Það þarf að fækka akreinum, gera hjólastíga. Lífvænlegra!
23 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Við erum með þetta frábæra húsnæði á besta stað. Það er allt lokað og læst kl. 17.00. Hvernig væri að hugsa út fyrir rammann skella á jazzi á fimmtudagskvöldum, prjónakvöld á þriðjudögum, Heimspeki kaffi, Visnavinum á sunnudögum, jólaföndri, hafa kaffihúsið opið fram á kvöld svo vina hópar geti kíkt í kaffi ......osfrv
19 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Spennistöð OR stendur ónotuð á lóð Austurbæjarskóla. Hún er 385 fm og lofthæð er 6-7m með millilofti yfir hluta húsnæðisins yrði það um 600 fm. Tilvalið er að henni verði breytt í félags- og menningarmiðstöð auk þess sem skólinn fái afnot að húsnæðinu fyrir ýmsa starfsemi sem nú er á hrakhólum. Aðstaðan gæti einnig nýst fyrir tónleika, leiksýningar,dansleiki, listasmiðjur, íbúasamtök, frjáls félagasamtök og átthagafélögum útlendinga til fundarhalda og annarar starfsemi.
18 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Hundahald er alltaf að verða útbreiddara og hundaeigendur eiga misauðvelt með að hleypa þeim út að viðra sig, eins hafa eigendur og hundar auðveldara með samskipti við aðra eigendur ef hægt er að hitta aðra í sama tilgangi. Eins þurfa hundar að læra að umgangast aðra hunda og fólk og geta það á svona stöðum.
15 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Í vinnslu
Lífvænleg Snorrabraut!
Ég horfði á 30 bíla keyra framhjá syni mínum á gatnamótum Flókagötu og Gunnarsbrautar, þar er engin sebrabraut og engin hraðahindrum, einungis niðurlækkuð gangstétt (sem ég veit ekki alveg hvað þýðir) og mér varð nóg um. Það þarf að aðlaga Snorrabrautina að þeirri þéttu byggð sem umlykur hana og setja hraðahindranir á Rauðarárstíg, Flókagötu og Gunnarsbraut og stöðvunarskylti á öll horn.
15 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Gefum spennistöðinni nýtt líf sem félagsmiðstöð, tómstunda og tilraunamiðstöð ungs fólks í miðborg, þar sem áhersla er lögð á að börn og ungt fólk geti þroskað hæfileika sína í öruggu umhverfi og gert tilraunir með það sem hugur þeirra stendur til. Spennistöðin yrði tilrauna- og átaksverkefni, bæði hvað varðar uppbyggingu, starfsemi og samnýtingu. Forgangsröðum framkvæmdum í þágu barna og ungs fólks.
12 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Þetta er frábær hugmynd sem gengur út á að útvíkka hlutverk hússins og efla starfsemi þar. Opna húsið meira og bjóða meiri starfsemi velkomna þangað. Þótt Kjarvalsstaðir séu listasafn, þá má það gjarnan vera lifandi listasafn og verða miðstöð menningar í Hlíðum og Miðborg!
12 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Í vinnslu
Lífvænleg Snorrabraut!
Það ætti að skoða aðgerðir strax, ekki biða eftir nýju skipulagi, sem er í vinnslu í borgarkerfinu. Í sumar voru ymis verkefni í gangi í miðborginni sem voru undir hatti sem kallaðist torg í biðstöðu. Ódyrar aðgerðir sem gerðu einmitt torgin lífvænlegri. Breytingar sem auðvelt var að snúa við. Að stilla gangbrautarljósin þannig að logi lengur ætti að vera nokkuð auðvelt. Þá mætti taka af nokkur bílastæði þar sem bílar birgja mönnum sýn við gangbrautum. Mögulega mála hjólareinar, hraðamælaskilti
9 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Klambratún er útivistarperla sem er allt of lítið notuð. Eins og er virðast hundaeigendur vera þeir sem nota túnið hvað mest. Víða erlendis eru hundagerði í almenningsgörðum, allt í sátt og samlyndi við aðra starfsemi í görðunum, því ekki eins í Reykjavík? Í Vínarborg eru 163 hundasvæði, samtals 1000km2 svæði (sjá tengil). Þar búa um 2.000.000 manna. Það væri svipað og að við hefðum 16 hundasvæði, samtals 100km2 svæði, á höfuðborgarsvæðinu. 1-2 hundasvæði er einfaldlega ekki ásættanlegt.
9 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Í vinnslu
Hundagerði á Klambratúni
Hundaeign er orðin mikil í Reykjavík, ekki er hægt að horfa fram hjá því að hundar eru orðnir partur af borgarlífinu. Það er öllum til hagsbóta, bæði hundaeigendum og ekki síður þeim sem ekki eiga hunda að horfast í augu við þá staðreynd. Sérstök hundagerði auka öryggi allra og uppsetning þeirra þarf ekki að vara dýr í framkvæmd.
9 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
En að segja að þurfi bara að fjölga þeim, gerir strætó í raun óáhugaverðari kost. Því það gerir hann hægari og óþægilegri.
Í raun þarf bara að endurskoða margar stoppustöðvar (hef ekið strætó, svo ég þekki allar leiðirnar). Og í Sumum hverfum eru alltof margar stoppustöðvar, þar sem tæki fólk 2 mínútur að labba á milli. En svo kemur fyrri að það eru ótrúlegar vegalengdir á milli stöðva. Svo það ætti að endurskoða allt kerfið, og þá staðsetningar stoppustöðva, með tilliti til allra hópa fólks.
9 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Síðan að húsin voru rifi niður,hefur þessi reitur verið ein ruslahaugur.Þetta er nú nokkuð stór lóð. Hvernig væri að Reykjavíkurborg myndi nú gera einhvað í þessum reit.Ekki bara fyrir íbúðaeigendur í kring,sem hafa þurt að horfa á þetta vessna og vessna. Heldur fyrir fólkið í Reykjavík.Hlemmur Plús hefur aldrei orðið að veruleika. Á þessum reit gæti komið: Góður skóli / með góðum garði þar sem fólkið í reykjavík gæti notast við. Eða útivistasvæði með íþróttatækum fyrir almening. Takk Takk
7 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Í vinnslu
Lífvænleg Snorrabraut!
Fer þarna yfir oft í viku og lendi nær alltaf í því að bílar fari á rauðu yfir gönguljósin við Austurbæjarbíó, það þarf að ná hraðanum þarna niður til að minnka slysahættu.
7 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Það þarf að minnka umferð og umferðarhraða á Snorrabraut. Gatan sker beint á rótgróin íbúðahverfi og börn í Norðurmýrinni þurfa að fara yfir götuna til að komast í skóla. Þetta er hættuleg gata með 4 akreinum (inn í miðju íbúðahverfi!), engar hraðahindranir og of stutt gönguljós. Það hafa orðið 2 banaslys gangandi vegfaranda á síðustu árum. Við þurfum aðgerðir STRAX! Það þarf ekki að vera dýrt að fækka akreinum, má t.d. setja tré í pottum og/eða hjólastíg meðfram götunni til bráðabirgða.
7 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Við gatnamótin Miklubraut-Lönguhlíð eru undirgöng sem eru í dag eingöngu með tröppum, og því einungis hægt að fara um þau fótgangandi. Þetta neyðir fólk með barnavagna og á hjólum til að fara um gangbrautirnar. Þröngar umferðaeyjur eru á leiðinni, þar sem slæmt er að mæta hjólum. Á veturna fyllast umferðaeyjurnar af snjó og drullu sem ekki er hreinsuð. Það yrði mikil bragabót á málinu ef hægt væri að breyta göngunum þannig að hægt væri að fara um þau með barnavagna og á hjólum.
6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Tíminn sem er núna, eitthvað um tíu sekúndur sýnist mér, er ekki nægur. Til að komast yfir þarf maður að hlaupa, ella er maður á rauðu ljósi þegar um helmingurinn er eftir af leiðinni. Maður kemst helst yfir ef maður er á reiðhjóli. Þetta er einföld breyting, myndi auka öryggi.
Einnig mætti virkja gangbrautarhnappa. Þeir virðast ekki gera neitt. Mig grunar að þeir séu placebo buttons (sjá hér: http://tinyurl.com/m9hutg).
6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Það er borðleggjandi að setja upp frístundamiðstöð á Klambratúni fyrir Hlíðaskóla, Háteigsskóla og Austurbæjarskóla. Þetta er akkúrat á milli allra skólanna og frábær leið til að mynda brú á milli nemendanna og hafa aukin tækifæri til útivistar- og íþróttakennslu.
Þarna er nú svæðismiðstöð fyrir framkvæmdasvið sem þjónar ekki hverfinu, heldur hverfi austan Kringlumýrarbrautar. S.s. þarna er geymsla fyrir vinnuvélar sem eru að vinna í öðru hverfi.
Miklu sniðugra að þarna sé hverfisþjónusta.
6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Hér býr eflaust gott að baki en ég held að það sé of bílmiðuð hugsun að setja gangandi/hjólandi undir jörðu til að þeir trufli ekki bílanna. Þessi gatnamót eru ömurleg, fyrst og fremst vegna þess að ljósagangurinn er hannaður undir bíla. Maður þarf að bíða á miðeyjunni milli fasa svo heilagur vinstribeygjandinn þurfi ekki að kíkja eftir gangandi vegfarendum. Borgir sem frábært eru að labba um senda hjólafólkið sitt ekki undir jörð eða upp á brú eða í undirgöng að óþörfu.
6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Í vinnslu
Hjólastígur meðfram Miklubraut
Á Miklubraut milli Kringlumýrarbrautar og Snorrabrautar er gjarnan mikil umferð gangandi og hjólandi vegfarenda. Oft liggur við slysum þegar hjólandi og gangandi umferð mætast, t.d. þegar fólk kemur úr eða fer í strætó. Þetta er sérstaklega slæmt í myrkri. Mæli með að gerður verði sérstakur hjólreiðastígur meðfram Miklubraut á þessu svæði. Það myndi auka öryggi vegfarenda, jafnt gangandi sem hjólandi. Plássið fyrir sérstakan hjólastíg á þessu svæði er feykinóg.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Samkvæmt byggingarreglugerð og mengunarvarnarreglugerð á hávaði utan við vegg íbúðar ekki að fara yfir 55 dB(A) jafngildishljóðstig, mælt yfir heilan sólarhring, en leiðbeinandi gildi er gefið 45 dB(A).
Hljóðstig við hús við Miklubraut, Bólstaðarhlíð og Stigahlíð eru allt að 75 dB. Alltaf miðað við þurrt malbik og enga nagla. Það er engin áætlun í gangi um hvernig eigi að bregðast við þessu ástandi sem á eingöngu eftir að versna, verði af stækkun Landsspítala.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Borgin samþykkti árið 2009 þriggja ára áætlun til að ljúka langþráðu skipulagi túnsins, og var hún unnin í miklu og góðu samstarfi við íbúa undir yfirskriftinni: Hvernig getur Miklatún orðið sælureitur borgarbúa? Er ekki tilvalið að drífa í þessum framkvæmdum svo allir aldurshópar geti loks nýtt til fulls þá gríðalegu möguleika sem eru á þessu fallega svæði í hjarta borgarinnar? Næsta sumar verða 55 ár liðin frá því að fyrst var haldin samkeppni um garðinn! Með fylgir tengill á tillöguna.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Það vantar úti-/flóamarkað um helgar í Reykjavík yfir sumartímann og mætti nýta leikvöllinn og garðinn fyrir aftan Austurbæjarbíó til þess.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Ef hægt er að reiða sig á að þurfa ekki að bíða í meira enn 5-10 mín. eftir vagni munu freiri nota vagnana. Þetta mundi minnka bílaumferð í miðborginni og gefa hana aftur fótgangendum. Þetta mundi stuðla að gera miðborgina umhverfisvænni, fjölga göngugötum (undansk. strætó), og gera miðbæinn að umhverfissvæði fótgangenda, sem hefði jafnframmt jákvæð áhrif á íbúa, verslun og atvinnulíf. Til að íbúar úthverfa gætu notið góðs af, ætti að mynda ókeypis (neðanjarðar) bílahús við strætóendastöðvar.
Uppruni: http://Strætó
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Á Flókagötu er óviðunandi ástand vegna mikils hraðaksturs. Nauðsynlegt er að fara í aðgerðir til að laga þetta:
-Gera alla götuna að 30 km götu.
-Setja hraðahindranir sem eru jafnframt merktar gangbrautir við Rauðarárstíg og Gunnarsbraut.
-Setja hlykk með miðeyju eða þrengingu á móts við Kjarvalsstaði.
-Leggja gangstétt meðfram Klamratúni.
-Fræsa götu niður svo að bílar leggi síður upp á stétt og hraðahindrun/gangbraut sem er jafnhá stéttum sé hærri en gatna en ekki lægri.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Í vinnslu
Lagfæra hjólastígin við lönguhlíð
Hjólastígurinn við Lönguhlíð er því miður afskaplega misheppnaður, hann er nokkuð hlykkjóttur og við beygjur á stígnum koma gangstéttabrúnir út á stíginn. Á veturna virðist ekki vera hægt að ryðja hann vegna hækkanna á milli stígsins og akbrautarinnar, stígurinn er því beinlínis hættulegur í snjó, enda er hann ekkert notaður í slíkri færð. Legg til að hækkanir verði teknar og stígurinn gerður beinn. Jafnvel væri skárra að fjarlægja stíginn, lækka hámarkshraðann og nota frekar hjólavísa.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Því meira aðgengi sem fólk hefur að því að rækta eigin mat, því betra.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Auðvitað ætti fólk með barnavagna ekki að þurfa að hlaupa yfir miklubrautina á alltof stuttum gangbrautarljósum frekar en aðrir, en einhverra hluta vegna eru bara tröppur niður í undirgöngin.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Lega ganganna er þannig að þau henta aðeins þeim hjólreiðamönnum sem eru að fara eftir Lönguhlíð vestanmegin í suðurátt, sömu leið og er í dag greiðfær eftir hjólarein. Lausnin sem er til staðar í dag er betri en það sem hér er stungið upp á.
Umhverfið er þannig að langa rampa er ekki hægt að gera nema í vesturátt meðfram Miklubraut, amk. sunnanmegin. Þannig að hjólandi þyrftu að fara ansi hlykkjótta leið með fjórum 90 gráðu beygjum og tveim u-beygjum.
Sjá myndir af aðstæðum
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|