|
|
|
|
|
|
|
Heinrich
- 2 mánuðir síðan
Mjög málefnaleg og góð tillaga. Hef einmitt haft þetta í huga og gáttað mig á hvervegna þetta er eins og þetta er. |
|
|
|
|
stefania
- 3 mánuðir síðan
? |
|
Magnea Magnúsdóttir
- 3 mánuðir síðan
Ég var ætlaði að styðja þessa hugmynd og var að gera það í símanum mínum en svo hefur það eitthvað klúðrast og í staðin er eins og ég sé á móti og ég get ekki breytt því. Heimsku snertiskjáir!!! En ég setti inn rök með þessu !!!! |
|
|
|
|
Sigríður Ragnarsdóttir
- 7 mánuðir síðan
Ég sé að það eru allavega þrjár hugmyndir inná Betri Reykjavík þar sem verið er að biðja um hundasvæði/hundagerði í hverfum borgarinnar. Titill þessara hugmynda er misjafn s.s. Betri aðstöðu fyrir hundana á Geirsnefi og fleiri staði, Hundasvæði í Laugardalnum og svo þessi titill: Búa til útigerði fyrir hunda í Reykjavík.
Ég er náttúrulega búin að styðja þær allar en mér finnst þesi titill/hugmynd útskýra það sem er mest aðkallandi. Vona að þeir sem eru búnir að styðja hinar hugmyndirnar styðji þessa líka. Umræða um þessi mál hefur verið í gangi í hverfisráðum undanfarið og er sennilega uppá borðum hjá umhverfis- og skipulagsviði Reykjavíkur (eða einhverju öðru svið þar sem það á við) bráðum til samþykktar eða ekki. Það er þvi mikilvægt að þrýsta á þetta núna.
|
|
Gunnhildur
- 4 mánuðir síðan
Ánægjulegt að sjá allar þessar hugmyndir um bætta aðstöðu fyrir hunda og eigendur þeirra. Ég styð þær allar. Nú vona ég að borgaryfirvöld taki þetta til athugunar. Hjá umhverfissviðið RVK starfa nú tveir starfsmenn. „Hlutverk Hundaeftirlits Reykjavíkur er að fylgja eftir samþykkt um hundahald í Reykjavík. Hundaeftirlitið veitir leyfi til þeirra er uppfylla skilyrði til hundahalds í borginni, hefur eftirlit með hundahaldi og stuðlar að ábyrgu hundahaldi í Reykjavík. Markmið hundaeftirlitsins eru að bæta hundahald í Reykjavík með aukinni fræðslu til hundaeigenda og borgarbúa og að fækka óskráðum hundum í borginni.“ Það er m.a. stuðlað að ábyrgri hundaeign með því að bjóða afslátt af ársgjaldi fari fólk á hundanámskeið sem er mjög gott. En það að bjóða uppá fleiri útivistastaði þar sem hunda meiga ganga lausir er frumforsenda til þess að stuðla að ábyrgu hundahaldi. Það ætti ekki að þurfa að vera dýrt eða flókið í framkvæmd. Það þarf að sinna þessum málaflokki hjá borginni. Reglur um hundahald eins og þær eru núna eru að mörgu leiti úreltar. |
|
|
|
|
Freyja Kristinsdottir
- 4 mánuðir síðan
Lifum í sátt og samlyndi |
|
|
|
|
Freyja Kristinsdottir
- 5 mánuðir síðan
Biðjum um aukna þjónustu við hundaeigendur |
|
|
|
|
Gummi
- 5 mánuðir síðan
Fjárfestum í æskunni |
|
|
|
|
emil
- 7 mánuðir síðan
Að skuldbindandi reglur um notkun útigerða fyrir hunda verði settar upp á skilti við inngang gerðanna, þ.e. um upphirðu á hundaskít, þannig að fólk og hundar þurfi ekki að eiga von á því að ganga í hundaskít og einnig að hnykkt verði á meginreglum og skyldum hundaeigenda að öðru leyti, á sama stað.
Það ríkir of mikið lauslæti í upphirðu, umhirðu og lausagöngu hunda í mínu hverfi þ.e. neðra Breiðholti þar eru margir hundar.
Gerðin þurfa að vera það stór að hundar geti tekið sprettinn þar, lausir, 300-400 fermetrar væri gott, það er nóg um svona bletti t.d. alla vega innan hverfis í neðra Breiðholti. Einnig þarf að setja upp ílat til að henda skít í og skaffa áhöld til að hreinsa upp skítinn, Borgin þarf svo að hafa eftirlit með þessu reglulega og tæma ílátin,
|
|
Kiddi Ingólfsson
- 6 mánuðir síðan
Gaman að bera saman hesta og hunda. Hestamenn fá reiðhallir upplýsta reiðstíga lokaða stíga þar sem öll önnur umferð er bönnuð ma. hunda. Hestamenn borga engin gjöld fyrir hestana nema fasteignagjöld fyrir hesthús. Hundaeigendur fá skammir og skatta. |
|
|
|
|
Þórgnýr Thoroddsen
- 7 mánuðir síðan
Þess má geta að borgin hefur stundum séð um skautasvell þarna... en það hefur ekki verið hvern vetur.
|
|
Þórgnýr Thoroddsen
- 7 mánuðir síðan
...með tónlist og öllu. Held að hitt húsið hafi séð um framkvæmdina á því.
|
|
|
|
|
Baldur Örn Óskarsson
- 7 mánuðir síðan
Þetta er vissulega góð hugmynd en ég held að það sé mun brýnna að bæta samgöngur fyrir reiðhjól á milli og innan bæjarfélaganna á Höfuðborgarsvæðinu.
|
|
Baldur Örn Óskarsson
- 7 mánuðir síðan
Þó á að hefja framkvæmdir á sameiginlegum göngu/hjólastíg frá Mosó og inn í Reykjavík og er það samvinnuverkefni Mosfellsbæjar og Vegagerðarinnar. Þó að þetta séu ekki nema 2,7km sem um ræðir á að taka 2 ár að klára það verkefni. Svo ég vitni beint í fréttatilkynninguna: "Stígurinn verður hannaður meðal annars með hliðsjón af þörfum hjólreiðamanna og verður um 3 metra breiður og um 2.7 km á lengd.
Hönnun stígsins er lokið, og er gert ráð fyrir að uppbygging hans verði boðinn út nú í haust. Stefnt er að því að fyrri hluti stígarins sem nær að skógræktarsvæðinu við Hamrahlíð verði tilbúinn sumarið 2012 og að hann geti verið fullkláraður sumarið 2013." http://lhm.is/frettir-af-netinu/samgongumal/731-nyr-hjolastigur-meefram-vesturlandsvegi
|
Ég sá svona útigerði víða í Kaupmannahöfn í haust. Skemmtilegt að sjá borgaryfirvöld þar vinna með hundaeigendum og koma með lausnir í stað boða og banna. Þessi gerði þurfa alls ekki að vera stór og nóg er af ónýttu svæði sem gæti hentað vel fyrir svona gerði.
Geirsnef - Laugardalur og Klambratún. En hvað með hin hverfin ? Hvernig væri að þeir sem þekkja sitt hverfi, settu inn hugmynd að staðsetningu.
Nægilega nálægt til að skreppa út - samt nægilega langt frá byggð til að smábörn geti sofnað.
Það er ekki nóg að segja að þetta þrufi að gerast, það þarf líka að koma með hugmyndir.
Grafarvogur - hvað með styttugarðinn neðan við Strandveg ?
Í hlíðinni neðan við Húsahvefið, gegnt Vesturlandsvegi ?
Túnið milli Hallsvegar og Gylfaflatar ?