Kjalarnes rök

Vegurinn liggur um mýrarfen og hefur hann sokkið í mýrina. Er orðinn lægri en landið beggja vegna við. Að hluta lagður (Kirkjul.-Dýjahl. 400m) þegar Hringv. var færður ('81-'83) í V-átt til sjávar í Hofsvík. Og að hluta (Dýjahl.-Skrauth. að Hringvegi 1500m) "gamli Vesturlandsvegurinn" árið 1920. Um er að ræða endurbyggingu vegar í sama vegstæði. Með uppbyggingu má minnka líkur á ófærð vegna snjóa. Heflaður c.a. einu sinni á ári. Fáum dögum eftir heflingu er hann orðinn að sömu vegleysu og fyrir.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Brautarholtsvegur er óupplýstur einbreiður vegur sem bæði akandi, gangandi og hjólandi þurfa að fara um. Vegurinn er stórhætturlegur í myrkri og slæmu skyggni. Hann er eina leiðin fyrir íbúa hér til að fara leiðar sinnar. Börn, unglingar og þeir sem ekki eru á bíl ganga þennan stórhættulega veg í skammdeginu til að komast leiðar sinnar niður í hverfi eða til að ná í strætó. Þetta er falleg gönguleið og frá honum liggja mjög skemmtilegar leiðir í fjöruna og upp í holtin, tilvalinn gönguhringur
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Löngu tímabært að hafja vinnu við að opna reiðleið undir Esjuhlíðum frá Kollafirði inn í Melahverfi. Núverandi reiðvegur liggur með fram þjóðvegi nr 1. Að fara þá leið á hesti er tilræði við eigið líf.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Með vísan í fyrirlestra um veðurfar við Esjuna og reynslu skógræktarfólks er fátt eins öflugt við að hemja vindinn og góð skjólbelti úr trjágróðri. Hægt er að draga verulega úr vindálagi á Kjarlarlesi með skjólbeltarækt í Esjuhlíðum. Þessu væri hægt að hrinda úr vör með samstarfi margra aðila eins og: Skógræktarfélögum, tryggingafélögum, iðnfyrirtækjum og einstaklingum ásamt Borginni. Þetta er mannaaflsfrek framkvæmd og kemur okkur öllum til góða til lengri tíma í auknu öryggi og betra umhverfi.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Ég er viss um að margir íbúar á Kjalarnesinu væru tilbúnir að leggja hönd á plóg til þess að koma upp skjólbelti á þessum slóðum.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Fjarlægja ónýta rennibraut og sitja upp nýrri bruat fyrir börnin í hverfinu.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Vesturlandsvegurinn er stórhættuleg samblanda af hraðbraut og sveitavegi.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Í vinnslu Hesthúsahverfi
Á Kjalarnesið hið góða vantar hesthúsahverfi svo Kjalnesingar geti stundað hestamennsku í heimabyggð. Engin aðstaða er á Kjalarnesi fyrir Kjalnesinga til að halda hross á húsi og er hér því mikil þörf að bretta upp ermarnar í málefnum hestamanna á Kjalarnesi. Skipuleggja hesthúsahverfi á Arnarhamri, staður hestamanna.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Þetta er frábær gönguleið en þá verður fólk að ganga á akveginum sem er nánast einbreiður og því hættulegt sérstaklega gengið er með börn. Þarna aka oft vinnuvélar og stærri tæki. Stofnstígur meðfram Brautarholtsvegi væri því frábær lausn fyrir allt útivistarfólk, bæði á Kjalarnesi og eins ef einhverjir úr nærliggjandi hverfum vilja fá sér göngutúr í fögru sveitaumhverfi.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
það vantar hestahverfi og sumarhaga fyrir hestafolkið á kjalarnesi
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Aksturleið að leikskóla er niður Kollagrund og þvert yfir bílastæðið við íþróttamiðstöðina. Þarna eru börn á ferð á leið til og frá æfingum og ekki er gangstígur meðfram götunni. Að akstursleið sé þvert yfir bílastæðið er fáranleg, fólk leggur bílnum og gengur yfir bílastæðið... en það er ekki bílastæði heldur gata. Legg til að aksturleið verði færð niður fyrir bílastæðið og merkt og aðgreint frá bílastæði.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Meðfram sjó, frá Íþróttamiðstöð norður að Búagrund liggur slóði sem var og er ætlaður sem göngustígur. Raunin varð hins vegar sú að í dag er þarna upphækkaður vegur sem ýmiss ökutæki nýta, jafnt til vinnu eða skemmtunar. Eitthvað var talað um að þessu yrði breytt í göngustíg aftur, ég vil sjá það gerast. Burt með upphækkunina, gerum þetta að þægilegum göngustíg í sömu hæð og umhverfið. Brú yfir hverfislækinn og hindranir við göngustígsendana til að hindra aðgengi ökutækja.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Í vinnslu Háspenna í jörð
Þvert yfir Kjalarnesið liggur háspennulína ofanjarðar 11.000 volt. Þetta rýrir landnýtingu þar sem ekki má byggja nálægt háspennulínum. Nú er árið 2012 og slíkar línur eiga að vera komnar í jörð fyrir löngu. Það er ekkert sem mælir gegn því að koma þessu í jörð meðfram Vesturlandsvegi.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Leikvellir í Seljahverfi eru því miður sumir hverjir ekki í nógu góðu ástandi. Þarf að mála og laga. Einnig þarf að fjölga ruslastömpum í hverfinu. M.a. fyrir hundafólk til þess að losa sig við hundaskítinn.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Fólkvangur er miðpunktur félagslífs á Kjalarnesi, og notkun hans á bara eftir að aukast. Það sem vantar hins vegar þar er eftirfarandi: Gera við leka, það er auðvitað fáránlegt að húsið haldi ekki vatni. Það vantar svið í húsið (svipað og var). Skilrúm milli sala (eins og það var). Almennileg gluggtjöld fyrir alla glugga (möguleiki á myrkvun fyrir sýningar á tjaldi). Og svo mætti gera huggulegra fyrir utan húsið, helluleggja o.þ.h.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það er komið mikið aþreyinga efni asamt iþrottaviðburðum i Egilshöll en er erfitt fyrir Mosfellinga,Kjalnesinga og Akurnesinga að komast þangað nema eftir krokaleiðum.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það verður að laga þrenginguna í Esjugrundinni áður en að einhver lendir undir bíl. Tréin eru orðin svo há að börn sjálst ekki lengur þegar þau eru að bíða eftir að komast yfir fyrr en maður er komin allt of nálægt. Mætti líka gjarnan bæta setja góðar hraðahindranir sitthvoru megin í Esjugrundina til að auka öryggi barnanna okkar
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Ágætis gönguleiðir eru um hverfið en víða á þeim er skortur á lýsingu. Í sumum tilfellum þarf að laga staura sem eru til staðar en í öðrum tilfellum vantar hreinlega nýja staura t.d. á horninu hjá Bergvík (stígurinn sem liggur austan við Esjugrundina, hann beygir inn í Esjugrundina hjá Bergvík og þar er engin lýsing). Í svartasta skammdeginu eru þessir dimmu 'blettir' ansi kvimleiðir, ekki síst fyrir litla krakka sem vita ekki hvað býr í myrkrinu.
1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Ég bý á Álfsnesi og fer því oft þessa leið eða hluta hennar, það er mikil breyting að aka út úr Mosfellsbænum þar sem er götulýsing og inní myrkrið á Álfsnesinu, þarna er mikil umferð og mjög hröð, oft talsverður framúrakstur og oft leiðindaveður. Ég er sannfærð um að lýsing á þessari leið yrði til mikilla bóta fyrir alla sem fara þessa leið, en þeir eru ansi margir. Það getur alveg verið að þetta sé í farvegi hjá Reykjavíkurborg, en ég tel að þetta þurfi strax.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
Það er ekkert sem styður það að upplýstir vegir bæti umferðaröryggi. Í versta falli minnka þeir öryggið því þeir auka hraðann á veginum og eru auk þess hindrun á veginum eins og FÍB benti réttilega á. Upplýstir vegir eru í lagi þar sem búast má við óvörðum vegfarendum og e.t.v. á vegamótun en annars kostar hún bara peninga og er algjört óþarfa bruðl. Miklu nær að nota peningana í eitthvað annað.
1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Frá því að Hvalfjarðargöng komust í gagnið hefur verið nauðsin að tvöfalda Vesturlandsveginn og fá lýsingu frá Mosfellsveit að göngum.Þar sem umferð hefur margfaldast á þessu tímabili.
1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
.....
1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Prufa enn og aftur
1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
prufa
1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
prufa
1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Vegurinn er ófær eins og hann er
1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Ég er hlynnt meiri lýsingu sé vandað til verks. Ekki fleiri fleiri vegljósastaura við göngustíga, hvernig væri að koma upp litlum og sterkbyggðum ljósberum sem lýsa upp göngustíg og ekkert annað? Ljós er líka mengun. Þurfum ekki að lýsa upp allt umhverfið. Ég vil líka hafa myrkrið, ég vil sjá stjörnurnar
1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það er alveg skiljanlegt að fólk vilji lýsingu þarna en það myndi spilla fyrir þeim sem vilja skoða nátturuna og njóta hennar.
1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Hesthúsahverfi er búið að vera mjög lengi á aðalskipulagi þarna, þannig að það er komin tími til að eitthvað verði gert í þeim málum á þessu svæði. Það þarf varla að vera kostnaðarsamt að skipuleggja lóðirnar þannig að hægt sé að selja þær. Það sem þarf er rafmagn og kalt vatn sem að OR sér um, það eru mörg hverfi á Íslandi án skólplagna og götur eru yfirleitt ekki malbikaðar í þeim, þannig að þetta þarf ekki að vera stór framkvæmd.
1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
það ætti ekki að vera mikil breyting á leiðarkerfinu að leið 15 æki um korpúlstaða og víkurveg og þaðan aftur út á vesturlandsveg þá er komin tenging milli Grafarvogs og Mosfellsbæjar, ekki bara við Egilshöllina heldur líka Borgarholtsskóla (stutt í spöngina)svo dæmi sé tekið
1 aðilum fannst þetta gagnlegt.