Umræður um Laugardalur
Ef þú vilt taka þátt, vinsamlegast gerstu áskrifandi. Aðild er ókeypis og þú getur líka tengst í gegnum Facebook.

Guðrún Ægisdóttir - 7 dagar síðan

Sammála hvoru tveggja.

FHS setti inn upplýsingar á Áningarstaðir á Laugarnesinu u.þ.b. 1 mánuður síðan 1 Athugasemd
FHS - u.þ.b. 1 mánuður síðan

´Komst að því fyrir nokkru að Laugarnesið er stórmerkilegur staður. Endilega muna að merkja staðina og lítil upplýsingaskilti um hvern. Allar mínar upplýsingar eru úr bókinni 25 gönguleiðir um höfuðborgarsvæðið.

Sigrún - u.þ.b. 1 mánuður síðan

Dapurlegt að gufunni skyldi verða breytt svona. Sakna bekkjanna til þess að leggja sig í gufubaðinu og búið að skemma það að fara í kalda sturtu eftir gufubaðið þar sem ekki er lengur hægt að stilla hitastigið.

LBH setti inn upplýsingar á Umferðaröryggi í Laugarnesinu 3 mánuðir síðan 1 Athugasemd
LBH - 3 mánuðir síðan

Smá athugasemd við tillögu að úrbótum: "8. Gönguleið að/frá Laugarnesskóla og að/frá Hofteigi
i) Eftir að gönguleið að/frá skólalóðinni var lokað á horni Hofteigs og Reykjavegar þurfa nemendur og aðrir vegfarendur að notast við gönguleið að/frá skóla sem við Hofteiginn liggur á milli bílastæða og yfir götuna miðja.
Tillögur til úrbóta:
ii) Gangbraut/hraðahindrun og setja upp skilti sem minna á börnin og aðra gangandi umferð."

Er ekki einfaldara, fljótlegra og ódýrara að opna gönguleiðina á horni Hofteigs og Reykjavegar, frekar en ráðast í gerð hraðahindrana og auka lýsingu á Hofteignum. Sá ég að það er skilti nú þegar sem segir til um gangandi umferð skólabarna, en það er alveg við girðinguna við skólann og lítt sýnileg keyrandi umferð.
Ef ástæða lokunarinnar var að stöðva "bílaumferð" inn að sparkvellinum, þá má hafa opið á horninu minna eða eins og þekkt er víða erlendis girðingu sem er misvísandi, þannig að hinn gangadi vegfarandi þarf að ganga í Z til að komast þar í gegn.
Eða jafnvel setja staura eins og búið er að gera við "nýju" gönguleiðina.

Verkefnisstjóri setti inn upplýsingar á Köllunarklettur verði merktur með skilti 3 mánuðir síðan 1 Athugasemd
Verkefnisstjóri - 3 mánuðir síðan

Þessi hugmynd kemur frá notandanum Eyberg og er sett inn af verkefnisstjóra vegna tæknilegra örðugleika sem upp komu þegar notandi ætlaði að setja hugmyndina inn.

Baldur Örn Óskarsson - 3 mánuðir síðan

Það þarf líka að lækka hraðann á þessari götu í 30! Það er glórulaust að hafa 50km/klst þarna.
Svo eiga reyndar að koma göng undir Reykjaveginn en þau verða alveg uppi við Suðurlandsbraut.

Elisabet Asmundsdottir - 4 mánuðir síðan

Fór vitlausu megin er með hugmyndinni ekki móti

Helgi Már Erlingsson - 4 mánuðir síðan

Ef stafsetningarvillan í "fjölskyldugarður" verður löguð styð ég hugmyndina.

105 - 4 mánuðir síðan

Bætum öryggi barna með gangstétt báðum megin

Árni Viðar setti inn upplýsingar á Reyklaus strætóskýli 7 mánuðir síðan 5 Athugasemds
Árni Viðar - 7 mánuðir síðan
Á meðan það er ekki ólöglegt að reykja úti í guðsgrænni náttúrunni, þá er ég hræddur um að það sé aldrei hægt að banna fólki að reykja í skýlunum. Þetta er hrikalega pirrandi, og að mínu mati hreinn dónaskapur í reykingafólkinu að taka alls ekkert tillit til fólksins í kringum sig, en á móti kemur að af hverju ætti það fólk að þurfa að standa úti í rigningunni til að reykja bara af því það er svona fatlað? :)
Mynta - 4 mánuðir síðan

Já það væri ekkert mál að setja upp skilti í strætóskýlum. Einfaldast væri kannski að við færum bara að gera það sjálf í stað þess að bíða eftir að það verði gert fyrir okkur.