|
|
Afgreitt
Jólaþorp í Laugardalnum
Frábær staðsetning fyrir jólaþorp. Lýsum upp dalinn með jólaljósum. Nýtum Kaffi Flóru á veturna líka. Markaðir, lifandi tónlistarflutningur, upplestur frá rithöfundum, verk frá ýmsum listamönnum, framlög frá leikskóla- og grunnskólabörnum, eldri borgurum o.s.frv. Kaffihús á hjólum gæti komið vel að notum hér sem og aðrir matarbílar. Endalausir möguleikar.
14 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Það eru þéttbýlar götur í næsta nágernni Skeifunnnar en samt er aðgengi gangandi vegfarenda um svæðið verulega ábótavant. Gangstéttarnar eru margar hverjar komnar í verulega lélegt ásigkomulag og það er mikill skortur á gangbrautum til að auðvelda fótgangandi vegfarendum að komast leiðar sinnar. Sérstaklega finn ég fyrir þessu eftir að ég eignaðist barn og hef reynt að komast um svæðið með barnavagn eða kerru. Þá eru nánast engin hjólastæði og óöruggi mikið þegar farið er um svæðið hjólandi.
11 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Um Suðurlandsbraut fara um þónokkrir strætisvagnar og þar eru staðsett alls kyns fyrirtæki sem nær ómögulegt er að nálgast nema á bíl. Frá glæsibæ og niður að Engjateigi í átt að miðbæ, hægra megin götunnar, er hreinlega engin gangstétt og hinu megin er lítið annað en bílastæði og innkeyrslur. Grensásvegurinn er svipaður og setur maður sig þar í bráða hættu fótgangandi, svo ekki sé minnst á Skeifuna.
11 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Árlega sækja tugir þúsunda svæðið í Laugardal þar sem er Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn, Grasagarðurinn og Skautahöllin. Þá er á svæðinu mikill fjöldi iðkenda í ýmsum íþróttagreinum. Kvartað er undan því að bílar leggi ólöglega og fólk er hvatt til nota annan ferðamáta. Strætó stoppar á Suðurlandsbraut og það er erfitt að fara yfir þessa miklu umferðargötu með stóran hóp barna (t.d. leik- og grunnskólar). Það hlýtur að vera auðvelt í framkvæmd að setja stoppistöð þarna. Það er umhverfisvænt!
11 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
|
|
En að segja að þurfi bara að fjölga þeim, gerir strætó í raun óáhugaverðari kost. Því það gerir hann hægari og óþægilegri.
Í raun þarf bara að endurskoða margar stoppustöðvar (hef ekið strætó, svo ég þekki allar leiðirnar). Og í Sumum hverfum eru alltof margar stoppustöðvar, þar sem tæki fólk 2 mínútur að labba á milli. En svo kemur fyrri að það eru ótrúlegar vegalengdir á milli stöðva. Svo það ætti að endurskoða allt kerfið, og þá staðsetningar stoppustöðva, með tilliti til allra hópa fólks.
9 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Hundaeigendur greiða meira en 50 milljónir árlega í hundaleyfisgjöld. Það væri tilvalið að nota hluta af þeim pening í að setja upp hundagerði. Við hundaeigendur erum ekki að biðja um að nota almenna skattpeninga í þetta verkefni! Það ættu því allir að geta verið sáttir, hundaeigendur sem aðrir.
8 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Laugarnesskóli er stór skóli og mikið af börnum í Laugarnesinu hjóla og ganga í skólann. Frá því þar síðasta vetur er búið að keyra á að minnsta kosti 3 börn hér í hverfinu. Það er mikið umferð og fólk oft á mikilli hraðferð. Bætt umferðareftirlit og hraðahindranir myndu hjálpa einnig væri hugmynd að láta gera skilti í návist skólanns.
8 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Mér finnst skrítið að segja að hundagerði þoli illa aðra grenndarstarfsemi þar sem það virkar í öðrum borgum út um allan heim. Og það er ekkert hundagerði í Öskjuhlíð, það er löngu farið. Eins og er mega hundar bara vera lausir á einum stað í borginni og það er á Geirsnefi. Það er algjörlega óásættanlegt því hundar þurfa að fá að hreyfa sig og hitta aðra hunda lausir. En á sama tíma verða hundaeigendur að fylgja lögum og reglum og hafa hunda ávalt í taumi. Þetta stangast einfaldlega of mikið á!
7 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Bý í Laugardal og verð var við marga hundaeigendur og hunda í hverfinu. Fer oft með hvuttann minn í laugardalinn og stelst að leyfa hvutta að hlaupa frjálsum, gegn lögum jebbs. Enn staðurinn er illa nýttur og vel hægt að koma fyrir afgirtum garði fyrir hunda hverfisins til þess að leika sér og almenningur eflaust glaður að hafa þá innan girðingar.
Sem hundaeigandi myndi ég leggja metnað í það að viðhalda slíkum stað og hreinsa og ég held að flestir hundaeigendur myndur gera hið sama.
9 aðilum fannst þetta gagnlegt, 2 fannst það ekki.
|
|
Smá göngutúr skaðar engan það er rétt hjá þeim sem eru á móti. Það er líka rétt að margir strætóar stoppa á Suðurlandsbraut. Gönguferðin til og frá stoppustöðinni er ekki vandamálið heldur stoppistöðin sjálf. Suðurlandsbraut er ein af fjöfarnari götum borgarinnar og oft mikill hraði þar. Strætóskýlin eru nánast við götuna og að vera þar með stóran hóp t.d. af leik- og grunnskólabörnum er varasamt bæði vegna gífurlegrar mengunar frá bílunum sem og það að halda utan um stóran hóp barnavið götuna.
6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Allt skipulag í Reykjavík er fyrir bílaumferð. Gangandi og hjólreiðamenn og strætótakendur eru annars flokks þegnar. Þessu þarf að snúa við. Setja gangandi og hjólreiðandi númer 1. Þá fengjust fyrist fleirri út úr bílunum. Þá yrðu borgarbúar heilbrigðari. Það er skömm af því að stór hluti borgarbúa er of þungur. Það þarf að tengja saman heilbrigði og hreyfingu. Ég legg til að Borgarstjórn fari til Groningen í Hollandi. Þar er auðvelt að ganga og hjóla en flókið að keyra.
Uppruni: http://billaus.is/
7 aðilum fannst þetta gagnlegt, 2 fannst það ekki.
|
|
Þetta er góð hugmynd, en ég myndi vilja sjá þessa hugmynd útfærða þannig að svona strætó væri rekinn t.d. á álagstímum, á sumrin. Það er argasti óþarfi og peningaeyðsla að hafa slíkan strætó alltaf.. hann yrði ekki ÞAÐ mikið notaður.
Ef á veturna, þá væri hægt að hafa hann á ákveðnum tímum, t.d. eftir að frístundaheimili taka við börnum (þá eru leikskólarnir líka opnir) til að hægt sé að fókusera álaginu og spara pening. Á ákveðnum dögum kannski þar sem garðarnir tækju sérlega á móti börnum.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Í vinnslu
Gular saltkistur
Þegar ég var yngri voru gular saltkistur hingað og þangað á götuhornu. Miðað við hálkuna nú og því að borginn nær ekki að anna hreinsun vegna óvennjulega mikils snjós væri ekki ráð á að setja kistur með salti og sandi á víð og dreyf svo fókl geti þá bjargað sér sjálft.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Ef hægt er að reiða sig á að þurfa ekki að bíða í meira enn 5-10 mín. eftir vagni munu freiri nota vagnana. Þetta mundi minnka bílaumferð í miðborginni og gefa hana aftur fótgangendum. Þetta mundi stuðla að gera miðborgina umhverfisvænni, fjölga göngugötum (undansk. strætó), og gera miðbæinn að umhverfissvæði fótgangenda, sem hefði jafnframmt jákvæð áhrif á íbúa, verslun og atvinnulíf. Til að íbúar úthverfa gætu notið góðs af, ætti að mynda ókeypis (neðanjarðar) bílahús við strætóendastöðvar.
Uppruni: http://Strætó
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Með því að breyta bílastæðum eða hluta bílastæða fyrir framan búðakjarnann efst í Álfheimum( við Langholtsveg) í lítið torg er hægt að búa til samverustað fyrir íbúa hverfisins.Einnig er hægt að draga úr umferð og slysahættu með þessari framkvæmd þar sem bílaumferð minnkar á þessum og færri bílar keyra yfir gangstéttina þar sem fjöldi barna gengur á hverjum degi á leið í og úr skóla.Þetta getur einnig leitt til þess að íbúar hverfisins gangi frekar í búðarkjarnann og njóti samveru hvors annars
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Tíminn á gönguljósunum er allt of stuttur. Fyrir hægfara þá kemur það fyrir að fólk komist bara hálfa leið yfir götuna á meðan græni karlinn logar, og verður fast á óvörðum stað á hraðbrautinni. Ég legg til að tíminn þarna verði mældur og athugað hvort ekki megi lengja hann.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Í vinnslu
Hundastæði líkt og hjóla eða bílastæði.
Í Danmörku þar sem svona fyrirbæri er útbreitt eru þetta ofast bara krókar í útveggi verslunar eða opinbers svæðis þar sem hundaeigendur geta skilið eftir dýr sitt í bandi. Þetta kostar lítið að framkvæma og er til hægðarauka fyrir alla aðila. Á viðheftu bloggi má svo sjá útgáfu sem er aðeins veglegri.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Öryggi barna er sérstaklega ógnað þegar engin gangstétt er þeim megin sem þeirra heimili er við götu. Börn og foreldrar eru hvattir til að ganga í skóla og styð ég það. Hættan er mest þegar gengið er heiman frá okku því þegar gengið er úr garðinum ertu kominn út á götu á milli bíla og því skyggni slæmt bæði fyrir gangandi sem og akandi aðila. Ég skil hreinlega ekki óréttlætið að einungis sé gangstétt öðru megin í götunni, eiga ekki allir íbúar götunnar jafnan rétt á öryggi í umferðinni?
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Börnin renna sér í Ljósheimabrekkunni eftir skóla og það dimmir mjög snemma, eða um 5 leytið. Það eru nokkrir mjög daufir ljósastaurar við göngustíg sem er ofan við brekkuna, en það ljós nær ekki niður í brekkuna og á svæðið þar fyrir neðan. Eins má bæta lýsingu á leikvellinum sem er þarna hjá.
Börnin þurfa að geta leikið sér á öruggan hátt í skammdeginu. Það eru margir foreldrar sem vilja ekki senda börnin sín á þetta flotta leiksvæði af því að það er allt of dimmt þar.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Ég leyfi mér að taka góða hugmynd sem sett var fram fyrir Hljómskálagarðinn um æfingatæki og myndi vilja sjá slík tæki í Laugardalnum. Fínir stígar í dalnum og margir sem ganga og skokka en vantar teygjuaðstöðu, æfingatæki o.þ.h. Hafa vatnsbrunn líka á staðnum.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Bílastæðið við búðarkjarnan við Laugalæk er einstaklega ljótt og ílla hannað til annars en að leggja bílum. Aðal aðdráttarafl augans á stæðinu eru endurvinnslugámar sem alltaf eru yfirfullir og ílla hirt í kring. Erfitt er að gagna um þetta svæði og fara yfir án þess að óttast um öryggi sitt. Þetta svæði væri kjörið til að búa til torg og efla mannlíf í hverfinu.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Það er mjög brýnt að fá gönguljós yfir Reykjaveginn. Um þessa götu er mikil umferð og ekið mjög greitt. Ungir vegfarendur í hverfinu þurfa að fara yfir þessa götu til að stunda sínar íþróttir og aðeins tímaspursmál hvenær stórslys verður.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Mörg börn þurfa að fara yfir Sundlaugaveginn á degi hverjum í skóla. Umferð um Sundlaugaveg hefur aukist verulega undanfarin ár sem og umferðarhraðinn. Það dregur úr öryggi barnanna. Lækkun leyfilegs hámarkshraða myndi draga úr hraða og hugsanlega umferð sem væri enn betra og þar með auka öryggi barnanna sem og annarra fótgangandi og hjólandi vegfarenda.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Snjóruðningur við gatnamótin er eilíft vandamál á þessu svæði. Bílar sem koma norður Reykjaveg og beygja til hægri inn á Suðurlandsveg fara ansi oft yfir á göngustíginn og loka fyrir umferð hjólandi og gangandi. Umferð gangandi/hjólandi til austurs þarf auk þess að bíða eftir umferð sem beygir frá Suðurlandsbraut úr vestri inn á Reykjabraut.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Með því að breyta bílastæðunum í lítið torg geta t.d. ísbúðin og bakaríið/kaffihúsið nýtt sér torgið á sumrin og sett borð og stóla þar sem fólk getur setið úti ef veðrið er gott. Þetta gæti einnig dregið fleiri íbúa og / eða atvinnurekendur að verslunarkjarnanum og gefur hverfinu meira líf.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Ég tek sjálf mjög mikið strætó, og í sumar tók ég eftir auglýsingum í strætó sem sögðu hann vera grænan og umhverfisvænan ferðamáta. Samt virðist svo vera að ekki sé hægt að standa í strætóskýli án þess að einhver þar sé að reykja oní mann. Það finnst mér persónulega ekki sérlega umhverfisvænt. Trekk í trekk í sumar og í haust sat ég í strætóskýli, kasólétt þegar næsti maður/unglingur / kona kveikir sér í þessu drápstæki og reyndi þannig að draga mig og ófætt barnið mitt með sér í sorann.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
|
|
|
Gríðarlega mikil umferð, engin gönguljós neinsstaðar fyrir börnin, mjög mörg börn fara þarna yfir til að komast í íþróttir í Laugardalinn. Hraðahindranirnar duga ekki til að draga úr hraða né eitthvað blikkandi dæmi sem segir á hvaða hraða bílarnir aka. Þau eru nánast alltaf blikkandi þessi ljós því flestir keyra of hratt þarna.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Staurarnir sem Heilsustígar ehf hafa nýlega sett við göngustíginn milli Reykjavegar og Lauga eru á slæmum stað. Þeir eru staðsettir neðst í sleðabrekkunni og því afar hættulegir. Börnunum mínum finnst þetta afar slæmt. Það ætti ekki að vera mikið mál að færa þá um nokkra metra í austurátt, sem fyrst, áður en slys hljótast af.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Í vinnslu
Útigrill í Laugardalinn
Hlaðin útigrill fyrir kol t.d. í Furulundi í Heiðmörk, hafa verið mjög vinsæl hjá vinahópum og barnafjölskyldum undanfarin ár. Það væri gaman að hafa svoleiðis aðstöðu þar sem fyrir eru bekkir og borð á grænum svæðum í Reykjavík. Laugardalurinn væri frábær staður til að prófa þetta innan borgarmarkanna. Þetta þarfnast engrar yfirbyggingar, aðeins ca 1,5 metra há u-laga steinhleðsla, botn, grillgrind og ruslafata.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Það er nauðsynlegt að geta komist yfir þessa miklu umferðargötu án þess að þurfa að stoppa á miðri leið í nokkrar mínútur líkt og nú þarf. Það er bæði stórhættulegt (2010 varð bílslys sem hefði tekið alla sem voru staddir á miðri leið mér sér, sjá tengil) og vonlaust í votviðri að fá gusurnar yfir sig meðan beðið er eftir "seinni" græna kallinum. Ódýr lausn er að hafa grænan kall alla leið yfir þegar grænt er á bílaumferð sem kemur þvert á sæbrautina af Holtavegi. Vinsamlegast drífa í þessu strax.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|