|
|
|
Afgreitt
Föstudagsopnun í Nauthólsvík
Mikið væri dásamlegt ef mögulegt væri að hafa sjósundsaðstöðuna í Nauthólsvík opna milli 11 og 13 á föstudögum. Í dag er hún opin í hádeginu á miðvikudögum og tvo seinniparta, mánudaga og miðvikudaga. Því ber að fagna og aðsóknin er góð. Ég geri mér ekki fyllilega grein fyrir kostnaðinum en veit að margir (allir) eru tilbúnir að borga fyrir þjónustuna. Legg til að það verði hafður baukur í afgreiðslunni þar sem fólki gefst kostur á að leggja í púkkið.
16 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Meðlimir Kayakklúbbsins hafa um árabil nýtt Elliðaárnar til æfinga yfir veturinn. Nú hefur hins vegar verið slökkt á virkjuninni, sem þýðir að ekki er lengur nægilegt vatn til æfinga. Mín hugmynd er að byggja upp manngerða braut, þar sem hægt yrði að stjórna vatnsmagninu og breyta hindrunum eftir behag. Svona brautir er að finna víða erlendis. Sú nýjasta, sem reyndar er enn í byggingu, er í Kaupmannahöfn.
Kajakróður er Ólympíugrein.
14 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Nóg framboð er af námskeiðum fyrir börn undir 6 ára, í dans, fimleika, almennar íþróttir og fleira. Ekki eiga allir kost á að borga gjald þeirra og finnst mér sjálfsagt að frístundakortið verði gert aðgengilegt fyrir börn undir 6 ára. Aldrei of snemmt að byrja að hreyfa sig og frábært að öll börn fái tækifæri á að taka þátt í hreyfingu, bæði vegna heilsu og vegna félagsskaparins sem fylgir.
13 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Afgreitt
Föstudagsopnun í Nauthólsvík
Að geta notið þess að synda í Nauthólsvíkinni tvisvar í viku í hádeginu skiptir höfuðmáli því þá fáum við birtu í kroppinn. Líkamleg ljóstillífun skiptir máli í skammdeginu! Er meira en tibúin að borga fyrir það í bauk svo ekki þurfi auka starfsfólk til innheimtu.
12 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Ég rakst á þessa snilld á veraldarvefnum: klifurveggir á bökkum sundlauga. Þetta virðist vera hrikalega skemmtilegt og myndi auka áhuga ungs fólks á sundiðkun (og klifri) til muna. Ég trúi því ekki að þetta sé mjög kostnaðarsamt, og allavegana vel þess virði. Einmitt svona einfaldar hugmyndir sem myndu setja svip á laugar borgarinnar :)
Uppruni: http://www.aquaclimb.com/
10 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Afgreitt
Föstudagsopnun í Nauthólsvík
Ég barðist einhverju sinni fyrir því að það yrði opið á milli 17 - 19
á föstudögum, það er frábært að láta vinnuvikuna líða úr sér þarna og
hlaða orkuna fyrir helgina
10 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Í vinnslu
Æfingaslár í Hljómskálagarðinn
Hljómskálagarðurinn er vannýttur. Daglega skokka þar í gegn tugir ef ekki hundruðir hlaupara. Mér finnst bráðvanta þar æfingaslár og teygjuaðstöðu líkt og er í Elliðaárdal. Væri snilld að geta stoppað við og rabbað við aðra skokkara í þessum fallega garði.
8 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Kostnaðurinn við að hafa sundlaugarnar opnar skiptist í 90% Hitakostnaður, klór og önnur efnavara, leiga mannvirkja, Þetta er fastur kostnaður hvort sem laugin er opin eða lokuð.. Hin 10% eru laun og launatengd gjöld. Á móti þessu kemur aðgangseyrir. Það kemur engin aðgangseyrir í lokaðar laugar og það þarf alltaf að borga þessi 90% hvort sem er.
6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Afgreitt
Föstudagsopnun í Nauthólsvík
Ég er sammála nauðsyn þess að auka opnunartíma Nauthólsvíkur. Held að það gerði heilmikið fyrir ferðaiðnaðinn og ekki síður styðja almenna notkun á útivistarparadísum borgarinnar. Fyrir mig væri hádegisopnun á laugardögum betri en á föstudögum, hentaði betur vinnandi fólki og eins væri sú opnun mjög fjölskylduvæn.
6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Afgreitt
Föstudagsopnun í Nauthólsvík
Bæði félagsskapurinn og athöfnin eru mannbætandi. Mér myndi henta betur að koma seinnipart eða á laugardegi, myndi þó gera allt sem ég gæti til að mæta í hádeginu á föstudögum. Sjósund kemur í veg fyrir félagslega einangrun og þunglyndi, kvef og pestir og er að öllu leiti til bóta!
6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Í vinnslu
Útisundlaug við Sundhöllina
Mikilvægt er að geta boðið upp á inni- sem og útisund við Sundhöllina. Sundstaðir stuðla að hreyfingu og velferð allra aldurshópa og laða einnig að ferðamenn, innlenda sem og erlendra. Auk þess myndi framkvæmd sem þessi vera atvinnuskapandi fyrir arkitekta, verkfræðinga, iðnaðamenn og fleiri. Áhugasamir geta skoðað Facebook-síðu Torfusamtakanna og tölvuteiknaða mynd af útisundlaug Sundhallarinnar.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Að mínu mati á Fossvogurinn að vera almenningsíþróttarsvæði. Það vantar alveg sundlaug á þetta svæði. Næstu laugar eru í Laugardal og Árbæ. Umferðin hefur aukist jafnt og þétt í dalnum, síðustu tvo áratugi, sérstaklega síðustu tvö ár. Sundlaug hefði mjög hvetjandi áhrif á almenningsíþróttir (s.s. göngur, skokk, hlaup, hjólreiðar). Það mætti byrja smátt (lítil laug, pottar og stórt tún) kostar ekki mikið, sparar skólakeyrslu í sund. Hafa sundlaugina græna þ.e. fyrir gangandi, ekki bílastæði.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Sundlaugin í Grafarvogi lokar kl. 18 um helgar sem gerir það að verkum að maður nær varla í sund ef það eru önnur verkefni fyrirliggjandi þann daginn. Það myndi strax muna mjög miklu að hafa opið til kl. 19 en 20 er ákjósanlegt.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Afgreitt
Föstudagsopnun í Nauthólsvík
Það er fátt betra en að skola af sér hversdagsrykið í sjónum á föstudegi og hlaða batteríin fyrir helgina. Ég myndi sannarlega greiða aðgangseyri ef það er það sem þarf til þess að þessi hugmynd verði að veruleika. Holl og góð líkamsrækt í beinni snertingu við náttúruöflin er ekkert nema dásamleg og til þess fallin að auka jákvæðni og vellíðan sem smitar svo út frá sér í samfélaginu okkar.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Afgreitt
Föstudagsopnun í Nauthólsvík
Þegar þú kemur upp úr sjónum ertu búin að sigra.Smá sigur á sjálfum þér og það er bara gott.Að mínu viti er sjórinn stæðsti og besti heilari sem er í boði,,,,,svo höfum aðgengi að sjónum eins mikið og hægt er.Á þessum árstima þarf heiti potturinn að vera opinn og þar hittir maður bara frábært fólk.Besti félagskapur sem ég hef komist í kynni við ;)
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
hugmyndin er einföld og auðveld í framkvæmd, Ítr á skautana sem til þarf upp í skautahöll, skiptiaðstaða getur verið í ráðhúsinu ásamt kakósölunni, það eina sem vantar er lýsing og einhvern til að mæla ísþykktina svo fólk viti hvenær ísinn er traustur (ítr?), væri reyndar flott að lýsa tjörnina upp neðanfrá, setja td. skjaldarmerki borgarinnar í botninn á tjörninni sem lýsir svo upp skautasvellið en þetta er samt aukahugmynd og meiri framkvæmd en hitt,
Frábær stemming fyrir lítinn pening.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Fyrirmyndin er sótt til Malmö í Svíþjóð þar sem vinsælt útivistarsvæði með "klifursveppum" og hjólabrettabrautum er hluti stærra frístundaverkefnis í svonefndum Stapelbäddsparken.
Svæðið er opið alla daga ársins og allan ársins hring og myndi nýtast hér hvenær sem ekki er snjór á jörðu. Eins mætti hugsa sér að hluti garðsins yrði yfirbyggður e.t.v. með braggalagi!
Leitarorð þar sem sjá má myndir: klättring, stapelbaddsparken, skateboard
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
http://www.pressan.is/pressupennar/Lesa_Roggu_Nagla/island---naestfeitast-i-heimi
Bara henda þessu með inn.
Offita er sívaxandi vandamál og með því að gera greiðari aðgang að hreyfingu fyrir börn undir 6 ára er hægt að vinna betur að því að forða börnum frá offitu.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Er sú stemning sem hér er verið að mæla með, þ.e. mismunandi gjaldskrá eftir þjóðerni, það sem við Íslendingar viljum að mæti okkur þegar við ferðumst út fyrir landssteinana? Fyrir mína parta þá tel ég svo ekki vera og vona að við tökum ekki upp á einhverju svona. Ef menn vilja ekki niðurgreiða þjónustu á borð við sundlaugar þá þurfa barasta allir að borga fullt verð, ekki bara sumir.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Mér finnst það mjög þörf breyting að gera frístundakortið einnig fyrir börn yngri en 6 ára, td niður í 3 ára aldurinn, þau byrja mörg hver í íþróttaskólum 2 ára og svo taka ýmsir möguleikar við, td. fimleikar, dans, sund og aðrar íþróttir.
Ég tel að það myndi breyta miklu að styðja við bakið á foreldrum með svo ung börn og yfirleitt eru þau fleiri en 1 á heimili svo það munar um minna. Því fyrr því betra, og að þau byrji svo ung verður þetta að daglegri rútínu og þau þekkja ekki annað.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Ég leyfi mér að taka góða hugmynd sem sett var fram fyrir Hljómskálagarðinn um æfingatæki og myndi vilja sjá slík tæki í Laugardalnum. Fínir stígar í dalnum og margir sem ganga og skokka en vantar teygjuaðstöðu, æfingatæki o.þ.h. Hafa vatnsbrunn líka á staðnum.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Það er mikilvægt að auka framboð á tómstundastarfi fyrir aldurshópinn 16-25 ára.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
á móti
Sundlaug í Fossvogsdal
Það kostar sitt að reka sundlaug og reka hana. Þessutan nóg af laugum útum allt. Stutt í Kópavogslaug og ekki má gleyma Salarlaug. Hef verið duglegur að synda og sýnist að nýtingin á þeim mannvirkjum mætti gjarnan vera betri.
Væri frekar ráð að setja pening í áframhaldandi uppbyggingu á þeim mannvirkjum sem að fyrir eru en byggja ný á tímum samdráttar og niðurskurðar.
ps: svo væri ráð að setja allar sundlaugar á höfuðborgarsvæðinu undir einn hatt. Að sundlaugarkort myndi gilda allsstaðar!
6 aðilum fannst þetta gagnlegt, 2 fannst það ekki.
|
|
|
Margar götur liggja að túninu og aukinn barnafjöldi í hverfinu kallar á leiksvæði fyrir þau. Þarna væri hægt að skreppa út eftir skóla og eða leikskóla og um helgar. Svo koma þau heim þreytt, glöð og svöng.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Hér voru hjólabrettarampar sem hurfu einn daginn og margir krakkar sátu eftir með sárt ennið og rándýr bretti sem ekki var lengur hægt að æfa sig á. Við viljum að börn hreyfi sig meira og stundi heilbrigðari lífshætti en þá er ekki hægt að koma svona fram við þau. Það ætti að setja upp almennilega rampa á góðu undirlagi með ráðgjöf frá fólki sem stundar þessa íþrótt og veit hvað þarf til. Eflum hreyfingu í hverfinu og aukum fjölbreytni!
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Ég er ekki mjög hávaxin manneskja, aðeins 164 cm á hæð sem er einhverjum 6 cm undir meðalhæð kvennmanns. Ég get sjaldnast setið í heitum pottum í sundlaugum því þá nær vatnið mér upp fyrir munn og ekki er þægilegt að sitja þannig. Í einstökum sundlaugum er halli á sætunum þannig að lágvaxnir geti fundið sæti við sitt hæfi en þurfi ekki að sitja á hækjum sér, en á morgum stöðum er ekkert slíkt. Er ekki hægt að fá sessur (svipað og er fyrir börn í bíó) svo allir geti setið í heitu pottunum?
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Áður fyrr iðaði Tjörnin af lífi og fjöri þegar hún fraus. Því ekki að endurvekja Tjörnina sem skautasvell þar sem hægt er að renna sér á skautum á heiðskírum, frostköldum dögum og kvöldum? Það væri ókeypis skemmtun fyrir alla fjölskylduna og myndi stuðla að hollri útiveru. Miðað við annað kostar lítið að gera þetta að veruleika en það þarf eftirlit, t.d. að sprauta vatni á yfirborðið í frosti svo það sé slétt og setja upp viðvaranir svo öryggis sé gætt.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Mjög óheppilegar breytingar voru gerðar á gufubaðinu í Laugardalslaug nýverið. Til þess að minnka skaðann örlítið mætti slökkva öll þau ógrynni ljósa sem komið var fyrir.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Eldri borgarar eru fólkið sem gerði samfélagið að því sem það er í dag. Þessir einstaklingar hafa að öllum líkindum borgað skatt lengur en þú (lesandi góður) hefur verið til. Enn fremur eru allar líkur á að eldri borgarar verði af þessarri mikilvægu hreyfingu og sundlaugafélagsstarfsemi sem þarna á sér stað ef þeir fá ekki ókeypis ofan í, enda hafa þeir allajafna lægri tekjur en flestir þeir sem eru á vinnumarkaði.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
|
|
|
Margir hafa ofnæmi fyrir klóri. Það hindrar þá í að sækja sund. Eru ekki fleiri aðferðir við sótthreinsun sundlauga en íblöndun klórs ?
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|