|
Bið barna eftir þjónustu talmeinafræðinga "úti í bæ"er iðulega löng og oft líða 2 vikur á milli meðferðartíma. Þó slík inngrip geti nægt börnum með smávægilega framburðargalla, þá eru þau ekki næg fyrir þann hóp sem glímir við meiri frávik. Ég vil sjá talmeinafræðinga við grunnskóla Reykjavíkur, í nærumhverfi barnanna sem þeir þjóna og í daglegu samneyti við aðra fagaðila þar sem vinna að menntun og hagsmunum þessara barna. Slíkt hlýtur að þjóna hagsmunum barna, fjölskyldna og fagfólks.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Einelti er eins og allir vita mannréttindabrot og börnin okkar verða að virða allar manneskjur, ekki bara þá sem eru eins í hópi.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Bið barna eftir þjónustu talmeinafræðinga "úti í bæ"er iðulega löng og oft líða 2 vikur á milli meðferðartíma. Þó slík inngrip geti nægt börnum með smávægilega framburðargalla, þá eru þau ekki næg fyrir þann hóp sem glímir við meiri frávik. Ég vil sjá talmeinafræðinga við grunnskóla Reykjavíkur, í nærumhverfi barnanna sem þeir þjóna og í daglegu samneyti við aðra fagaðila þar sem vinna að menntun og hagsmunum þessara barna. Slíkt hlýtur að þjóna hagsmunum barna, fjölskyldna og fagfólks.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Ef talmeinafræðingar væri við grunnskólana þá gætu þeir leiðbeint kennurum til að fá markvissari þjálfun í allt skólastarfið. Talmein lagast ekki á einni nóttu. Það þarf markvissa þjálfun sem myndi nýtast mun betur ef kennarar væru meira meðvitaðir. Þess vegna styð ég þessa hugmynd.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Ég er sammála mikilvægi þess að talmeinafræðingar vinni í nærumhverfi barnsins. Teymisvinna þeirra sem vinna með börnunum og samvinna við foreldra mun skila góðum árangri. Því miður verður verður líklega biðlisti í leik og grunnskólum eftir þjónustu talmeinafræðinga þangað til að nægilega margir hafa verið ráðnir. Launakjör hafa mikil áhrif á stöðuna. Reykjavíkurborg býður talmeinafræðingum 311 þús. kr. í laun á mánuði.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Vísa í meðfylgjandi hreyfimynd.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Fjarlægja ljósastóra sem eru of nálægt gluggum í 101. Perur í þessum staurum geta verið skaðlegir og auk þess skapa þeir mikil óþægindi fyrir íbúa. Þessir staurar eru oft staðsettir við svefnherbergi og stofur íbúa. Væri hægt að leysa með að færa staurana (augljóslega) eða að setja luktir utaná viðkomandi hús fyrir ofan útibdýrahurðir.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Fólk sem býr í miðbænum þarf að búa við að migið sé á hús þeirra og það sama þurfa verslunareigendur að glíma við. Þó er vart við gerendur að sakast þegar salernisaðstaða almennings í miðbænum er bundin við 3 klósett sem falin eru innaní 5 metra háum ruslatunnum. Skemmtistaður ætlaður 80 manns fengi aldrei úthlutað leyfi með slíka salernisaðstöðu. Afhverju þykir þetta þá nóg fyrir miðbæ Reykjavíkur sem fær 600.000 ferðamenn í heimsókn á ári og tugir þúsunda Íslendinga skemmta sér í hverja helgi?
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Ég við að allir geti nýtt sér bílastæði fattlaðra í borginni. Til þess þurfi einstaklingar að vera líkamlega hreyfihamlaðir í lengri eða skemmri tíma. Ég tel að læknar landsins eigi að geta metið hvort viðkomandi þurfi á slíkri undanþágu að halda, og þá í hve lengan tíma.
Með þessu gætu einstaklingar sem lenda tímabundið í slysum, aðgerðum eða öðrum hvillum nýtt þessi frábæru stæði sem hugsuð eru fyrir hamlað fólk.
1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Brynjólfur Bjarnason - kostnaður Fjölsk og Húsdýragarðs er föst tala óháð aðsókn. Dýrin éta ekki meira þó garðurinn fyllist af fólki, sem borgar ekki aðgangseyri. Hagnaður gæti orðið af þjónustu eins og veitingasölu, sjoppum ofl með aukinni aðsókn.. Reksturskostnaður er óháður aðsókn. Ekki kostar meira að hafa garðinn opinn með 1 gesti eða 10.000.
1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Besti Flokkurinn ætti að láta af ísbjarnarblús Húsdýragarðsins en á móti að hafa þar frían aðgang. Rúmlega 2 m háar girðingar utan um Fjölsk og Húsdýragarðinn eru ekki til að halda búsmalanum innangarðs - heldur til að halda fátækum börnum utangarðs. Börn fátækra einstæðra mæðra hafa ekki efni á þeim lúxus efnaðri barna að sækja dýra afþreyingu. Besti Flokkurinn leggur þar með fátæku börinin í einelti með mismunun á grundvelli efnahags sem gengur gegn 65. gr. stjórnaskrár jafnræðisreglunni.
1 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
|
|
Mér finnst það ekki vera skynsamleg hugmynd að bjóða fólki frítt í Fjölskyldu og Húsdýragarðinn, vegna þess að þá þarf Reykjavíkurborg að borga heilan helling af peningum og hver veit nema garðurinn fyllist einhvern tímann af fólki. Að bjóða fólki frítt í Fjölskyldu og Húsdýragarðinn þýðir það að Reykjavíkurborg þarf að greiða fyrir hvern þann gest sem heimsækir garðinn og það gæti leitt til þess að annaðhvort yrði aðgangur í garðinn mjög dýr eða þá að borgin endi með að geta ekki rekið garðinn.
1 aðilum fannst þetta gagnlegt, 2 fannst það ekki.
|