|
|
Með því að samþykkja hótelbyggingu við Ingólfstorg eru yfirvöld að eyðileggja síðasta góða tónleikahúsið í Reykjavík sem rúmar milli 500 og 800 manns. Með auknu tónleikahaldi og fjölbreyttari tónlist þurfum við í raun fleiri hús á borð við NASA í Reykjavík. Komum í veg fyrir þetta stórslys!
10 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Húsið er kallað Sigtún meðal eldri borgara, jafnvel Sjálfstæðishúsið. Það er lítil sál fólgin í framhliðinni eingöngu og breytingar sem verða á Ingólfstorgi eru gríðarlegar, kalla á aukna umferð stórra bíla um Aðalstrætið.
8 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Miðbærinn og Lækjartorg sérstaklega, líða fyrir ískaldan vind af hafi.
Með því að huga að veðurlagi við skipulag miðbæjarins í grennd við Hörpu er vonandi hægt að gera torgið vistlegra og 17.júní yndislegri
6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
af Vedurvaktin.is:
"Í skipulagi byggðar hér á landi skiptir miklu að byggðin sjálf myndi skjól í algengustu vindáttunum og að einstakar byggingar séu hannaðar og staðsettar þannig að vindstrengir nái sér síður á strik. Vindur eykst alla jafna með hæð og hærri byggingar geta hæglega dregið aukna veðurhæð niður á lóð umhverfis bygginguna. Samsetning og gerð hærri bygginga, innbyrðis staða og bilið á milli þeirra eru allt þætti sem áhrif hafa á vindskilyrði. "
Uppruni: http://www.vedurvaktin.is/um.html#
6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
hugmyndin er einföld og auðveld í framkvæmd, Ítr á skautana sem til þarf upp í skautahöll, skiptiaðstaða getur verið í ráðhúsinu ásamt kakósölunni, það eina sem vantar er lýsing og einhvern til að mæla ísþykktina svo fólk viti hvenær ísinn er traustur (ítr?), væri reyndar flott að lýsa tjörnina upp neðanfrá, setja td. skjaldarmerki borgarinnar í botninn á tjörninni sem lýsir svo upp skautasvellið en þetta er samt aukahugmynd og meiri framkvæmd en hitt,
Frábær stemming fyrir lítinn pening.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Þetta hús hentar einstaklega vel þeirri starfsemi sem þar er núna, og ég vil draga í efa, að nokkurt annað hús sé til sem hefur brúað kynslóðabilið jafn rækilega í gegn um tíðina.
Í þessu húsi hefur kynslóð eftir kynslóð skemmt sér konunglega, og ég tel það stórslys ef húsið verður rifið.
Það eru nógir aðrir staðir sem henta mun betur fyrir hótel.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Þessi tónlist út um allt er alveg að æra mig -- þó svo að hún sé róleg. Ég vil fá að velja hvað ég hlusta á. Og ég vil get heyrt mínar eigin hugsanir. Tónlistin er slævandi og ég þarf á allri minni athygli að halda þegar sótt er að mér úr öllum áttum með hvers konar áreiti.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Jöfnum stjórnsýsluhverfið á bakvið Arnarhól við jörðu og reisum þar veglegan Listaháskóla - jafnvel að útvíkka hann í „Háskóla hinna skapandi greina“, en skapandi greinar eru næstmikilvægasta útflutningsvara þjóðarinnar á eftir fiski. Stjórnarráðið getur hæglega flutt starfssemi sína á Álftanesið, sem er hvort sem er komið í faðm ríkisins. Íbúar þar myndu njóta góðs af að þjónusta bjúrókratanna. MIðbærinn í Reykjavík yrði hundrað sinnum skemmtilegri, jafnt fyrir íbúa sem ferðamenn.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
gaman væri að opna markaðstorg við höfnina yfir sumartíman sem einblínir á íslenska matarframleiðslu svo sem beint frá bíli og ferskan íslenskan fisk. Afhverju ekki að taka þettað út undir beran himin yfir sumartíman það myndi laða að ferðamen og skapa skeptilega stemningu við höfnina þar sem mikli uppbygging hefur verið á síðustu árum með opnun veitinga húsa o.f.l. Ég held að hugmyndin sé einnig tilturlega einföld í framkvæmd og ekki kostnaðarsöm
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Það verður aldrei hægt að finna einhvern almennan tónlistarsmekk sem hentar öllum.
Sá sem vill hlusta á tónlist, hvernig sem hún er, getur notað heyrnartól. Það er ekki búið að banna það ennþá.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Gosbrunnur og útikaffihús á sumrum þar sem borð og stólar eru í básum umhverfis gosbrunninn og e.t.v. þak yfir sem taka mætti niður á góðvirðisdögum, skapar eftirsóknarvert afslappandi andrúmsloft á Lækjartorgi. Gosbrunnurinn prýddur landvættunum fjórum gæti orðið einn af kennileitum Reykjavíkur. Hann mætti hanna þannig að ekki væri hægt að vaða í honum til að koma í veg fyrir óæskilega hegðun. Blómaker til prýðis Efna mætti til samkeppni meðal listamanna til að hanna gosbrunninn.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Setja upp rólega tónlist í allan miðbæ Reykjavíkur þar sem hengt er upp svona sérstaka hátalara sem gefa góðan hljóm. Þetta á að vera róleg tónlist sem er ekki með neinum söng heldur einungis rólega og lága tóna sem maður heyrir varla neitt í en samt getur maður greint einhverja bylgjuhreyfingu sem gerir það að verkum að umferðin verður ekki einungis það sem maður heyrir. Þetta á að vera tónlist sem hefur róandi áhrif á mann og gerir mann hressari.
1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
á móti
Betra veður í miðbæinn
Það er ekki á miðbæinn bætandi með góðu veðri. Ég legg til að hlúð verði að menningu austar í borginni svo fólk þar hafi að einhverju að hverfa í fásinninu í sínu hverfi.
1 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
|
|
|
Af hverju að friðlýsa allt húsið? Er fólk að biðja um að starfsemin verði friðlýst eða húsið? Er fólk bara á móti því að það séu áform um að byggja þarna hótel? Ef svo er, þá á að vera hægt að breyta þeirri ákvörðun með öðrum aðgerðum en friðlýsingu. Hljómar svona eins og að mæta með gröfu þar sem þarf bara skóflu.
1 aðilum fannst þetta gagnlegt, 3 fannst það ekki.
|