Umræður um Miðborg
Ef þú vilt taka þátt, vinsamlegast gerstu áskrifandi. Aðild er ókeypis og þú getur líka tengst í gegnum Facebook.

Fríða - 12 dagar síðan

Það væri betra að hafa sölumarkað á útisvæði og t. D. Á þeim tímum sem skemmtiferðaskipin kæmu og hafa þannig stemningu í miðbænum á virkum dögum. Listamenn kæmu sjálfir með borð og tilheyrandi og myndu greiða borginni fyrir aðstöðuna.

Guðrún Ægisdóttir - 7 dagar síðan

Tek undir þetta.

Askur Tré Asparson - 11 dagar síðan

Planta 2 epl.trjám í Grafarv. í sumar frá mér

FHS setti inn upplýsingar á Gosbrunn með landvættunum á Lækjartorg. 16 dagar síðan 1 Athugasemd
FHS - 16 dagar síðan

og nota tækifærið til að segja sögu þeirra.
( tengist hugmyndinn Hvernig er hægt að fergra Lækartorg ? )

Íbúi101 setti inn upplýsingar á Hvernig er hægt að fegra Lækjartorg ? 21 dagar síðan 2 Athugasemds
Íbúi101 - 21 dagar síðan

Gera Lækjartorg grænna og búa til meira skjól fyrst of fremst. Það er mjög oft hvasst í kringum Lækjartorg þannig að það þyrfti að bæta umhverfið þar með skjólveggjum eða trjám. Torgið er dautt og grátt eins og er og mjög óaðlaðandi - mætti bæta með gróðri. Mætti setja gosbrunn eins og í morgun stórborgum. Líst vel á fyrri hugmynd að gera skrautlegra og skreyta. Synd hvað Lækjartorg er illa nýtt og hálf dauður staður í miðborginni í núverandi mynd.

FHS - 16 dagar síðan

Góð hugmyndin um gosbrunn með landvæætunum - og nota tækifærið til að segja sögu þeirra.

Sigrún Dóra setti inn upplýsingar á Hvernig er hægt að fegra Lækjartorg ? 18 dagar síðan 1 Athugasemd
Sigrún Dóra - 18 dagar síðan

Væri e.t.v. hægt að planta trjám neðst við Hverfisgötuna, Stjórnarráðsmegin, það gæti gefið skjól og grænna yfirbragð fyrir svæðið. Mætti e.t.v. fjarlægja upphækkuðu beðin við Lækjagötuna/Lækjatorg, þannig að það sjáist betur inn á torgið? Þá væri hægt að setja t.d. gosbrunn, eða listaverk (sem mætti klifra í) á torgið...

Steingrímur Árnason - 4 mánuðir síðan

Lækjartorg er grátt og dautt. Um að gera að hressa upp á þetta. Of hár Héraðsdómur, húsið sem átti að rífa og fleiri hönnunarslys.

FHS - 22 dagar síðan

Og reyna að koma í veg fyrir að blómabeðið á Lækjartorgi sé notað sem leiksvæði fyrir börn sem bíða eftir strætó. Hef oft séð foreldra lyfta börnum upp, og segja þeim að fara í feluleik. Einnig eru unglingar mikið fyrir að nota þessi beð sem þrautabraut fyrir reiðhjól. Með þessu er gróðurinn troðinn niður og allt verður óásjálegt. Að ég tali nú ekki um drukkna einstaklinga sem finnst ofboðslega sniðugt að rífa upp gróður og grýta út í loftið. Ég er komin á þá skoðum að það þýði ekkert að planta litlum runnum/blómum þarna - þetta þurfa að vera vel fullorðin tré sem er ekki svo auðvelt að rífa upp, eða hjóla yfir eða troðast á milli.
Kennum okkur sjálfum og börnunum okkar virðingu fyrir því sem grær.

Óskar Guðlaugsson setti inn upplýsingar á Matarmarkaður við Höfnina á sumrin u.þ.b. 1 mánuður síðan 3 Athugasemds
Óskar Guðlaugsson - u.þ.b. 1 mánuður síðan

Mér þætti slíkur markaður sannarlega ánægjulegur en þó er ég ekki viss um að það sé í verkahring borgarinnar að láta það gerast. Fyrir rest snýst lifandi markaður um viðskipti og þá þarf fyrst og fremst aðkomu einkaaðila. Eins og stendur er annars skemmtilegur matarmarkaður í kolaportinu.

FHS - 22 dagar síðan

Það eina sem borgin á að gera er að segja: Þið getið notað þetta svæði, þarna eru innstungur, nú er þetta í ykkar höndum. Hvað með samtök Garðyrkjubænda, Bændasamtökin, Trilllukarlar , Blómabændur og fl.
Þessir aðilar þurfa að tala saman, það þarf bara að byrja.

FHS setti inn upplýsingar á Meiri veggjalist og skrautlegri borg 22 dagar síðan 1 Athugasemd
FHS - 22 dagar síðan

Húseigendur gætu byrjað - hér einu sinni komu nemar í Listaháskólanum að máli við eigendur bílskúra /veggja og báðu um leyfi til að skreyta þá. Ef veggjalistamaður er í fjölskyldunni, byrja þar. Töluvert fallegra að að sjá litríka skúra heldur en útkrotaða.