|
|
Lega Ægisgötu er nokkuð falleg - frá Landakotskirkju niður að gömlu höfninni. Það er mikil synd að hraðakstur skuli vera stundaður á þessari götu og lítið sé um græna nálgun. Það væri mikil bót fyrir þetta gamla, fallega hverfi sem Gamli Vesturbærinn er ef gatan fengi andlitslyftingu og þá hugsanlega einstefnu með hjólreiðastíg um leið.
Einnig er skortur á gangbrautum sem setur börn í hverfinu í stórhættu.
25 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
|
|
|
Hundar hverfa ekki úr borginni þó þjónustan sé lítil sem engin. Það hefur reynslan sýnt, en undanfarin 10 ár hefur hundaeign í borginni meira en tvöfaldast. Íbúar í Reykjavík greiða meira en 30 milljónir í hundaleyfisgjöld á ári og íbúar í öðrum sveitarfélögum borgarinnar meira en 20 milljónir. Samt eru einungis 1-2 hundasvæði í allri borginni. Hundar þurfa hreyfingu og efla félagsþroskann með því að leika lausir við aðra hunda daglega. Því ættu hundagerði að vera í öllum hverfum borgarinnar.
24 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Í vinnslu
Lífvænleg Snorrabraut!
Í dag er Snorrabrautin eins og óskilgetið barn hraðbrautar og beinlínis lífshættuleg gangandi vegfarendum. Ástandið er óviðunandi sérstaklega vegna nálægðar við Norðurmýrina. Það þarf að upphugsa götuna alveg upp á nýtt. Í dag er ástandið þannig að það eru engar hraðahindranir, engin skilti sem gefa til kynna hámarkshraða ofl. í þeim dúr. Umferðaljósin 4 á stuttum kafla hægja ekki á hraðanum nema síður sé, gönguljósin eru enn of stutt! Það þarf að fækka akreinum, gera hjólastíga. Lífvænlegra!
23 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Spennistöð OR stendur ónotuð á lóð Austurbæjarskóla. Hún er 385 fm og lofthæð er 6-7m með millilofti yfir hluta húsnæðisins yrði það um 600 fm. Tilvalið er að henni verði breytt í félags- og menningarmiðstöð auk þess sem skólinn fái afnot að húsnæðinu fyrir ýmsa starfsemi sem nú er á hrakhólum. Aðstaðan gæti einnig nýst fyrir tónleika, leiksýningar,dansleiki, listasmiðjur, íbúasamtök, frjáls félagasamtök og átthagafélögum útlendinga til fundarhalda og annarar starfsemi.
18 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Gerið Hverfisgötuna að mannvænlegri götu. Hér er niðamyrkur og gangstéttir illa farnar. Vantar allan gróður og hlýtt umhverfi. Og hana nú!!!
17 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
|
|
Í dag er mjög erfitt að komast á hjóli frá Lækjartorgi upp á Hlemm. Ekki er hægt að fara upp Laugarveg og Hverfisgatan er í dag stórhættuleg fyrir hjólreiðafólk. Legg til að aðgengi gangandi og hjólreiðafólks verði bætt t.d. með hjólareiðastíg við Hverfisgötu.
17 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Til hvers að útbúa skautasvell á ingólfstorgi þegar við höfum tjörnina?
Þetta er kostnaðarsamt, sérstaklega þar sem torgið hallar.
Skautasvellið skilur torgið eftir í slæmu ástandi, hellurnar allar skakkar og jafnvel lausar og bitnar það á hjólabrettaiðkendum sem líta á ingólfstorg sem nánast heilagan stað.
Seinast þegar svellið var gert var það ekki jafn vinsælt og gert var ráð fyrir, fólk fór frekar á tjörnina.
auk þess eru önnur torg t.d. lækjartorg heppilegri, því það liggur ekki í halla.
16 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Afgreitt
Föstudagsopnun í Nauthólsvík
Mikið væri dásamlegt ef mögulegt væri að hafa sjósundsaðstöðuna í Nauthólsvík opna milli 11 og 13 á föstudögum. Í dag er hún opin í hádeginu á miðvikudögum og tvo seinniparta, mánudaga og miðvikudaga. Því ber að fagna og aðsóknin er góð. Ég geri mér ekki fyllilega grein fyrir kostnaðinum en veit að margir (allir) eru tilbúnir að borga fyrir þjónustuna. Legg til að það verði hafður baukur í afgreiðslunni þar sem fólki gefst kostur á að leggja í púkkið.
16 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Hundahald er alltaf að verða útbreiddara og hundaeigendur eiga misauðvelt með að hleypa þeim út að viðra sig, eins hafa eigendur og hundar auðveldara með samskipti við aðra eigendur ef hægt er að hitta aðra í sama tilgangi. Eins þurfa hundar að læra að umgangast aðra hunda og fólk og geta það á svona stöðum.
15 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Í vinnslu
Lífvænleg Snorrabraut!
Ég horfði á 30 bíla keyra framhjá syni mínum á gatnamótum Flókagötu og Gunnarsbrautar, þar er engin sebrabraut og engin hraðahindrum, einungis niðurlækkuð gangstétt (sem ég veit ekki alveg hvað þýðir) og mér varð nóg um. Það þarf að aðlaga Snorrabrautina að þeirri þéttu byggð sem umlykur hana og setja hraðahindranir á Rauðarárstíg, Flókagötu og Gunnarsbraut og stöðvunarskylti á öll horn.
15 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Með breyttu veðurfari, hver svo sem ástæðan fyrir því er, er í dag kominn góður grunnur til þess að rækta ávaxtatré á Íslandi t.d. epla-, peru-, plómu- og kirsuberjatré.
Hægt er að skipuleggja ákveðin svæði inn í skógum sem eru í Reykjavík, Hljómskálagarðinum, Fjölskyldu- og Húsdýragarðinum og gætu komið í staðin fyrir þær aspir sem verið er að fella um þessar mundir.
Nemendur Landbúnaðarháskóla Íslands geta svo séð um að halda utan um og sjá til þess að ávaxtatré og runnar dafni.
15 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Í vinnslu
Lífga upp á Hverfisgötuna
Það væri lítið mál að lífga upp á Hverfisgötuna þannig að hún væri meira en bara umferðaræð fyrir fólk sem þarf að komast á bílum meðfram Laugavegi - það er mjög margt fallegt og mikilvægt þarna. Hægt væri að hægja á umferð, fjölga trjám, bæta skjól við garðinn á horninu við Smiðjustíg, og hreinsa upp svæðið á móti Regnboganum við Lindargötu, sem er svolítið niðurnítt svæði.
14 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Það eru margir hundaeigendur í Reykjavík en ekki mikill skilningur fyrir hundahaldi. Það má hvergi vera með hunda lausa innan miðbæjarsvæðisin sem er alveg skiljanlegt en í staðin mætti útbúa afgyrt svæði þar sem hundar mættu hlaupa um frjálsir með öðrum hundum og hunda eigendur geta hisst og spjallað. Þetta svæði gæti nýst vel sem notalegur fjöskyldu garður, það væri hægt að hafa bekki og útigrill eins og í hljómskálagarðinum. Ónýtta svæðið við hliðina á Loftkastalanum myndi henta vel.
14 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Í vinnslu
Athvarf geðsjúkra, Vin verði opið ÁFRAM
Vin við Hverfisgötu hefur verið athvarf geðsjúkra í mörg ár. Rauði krossinn hyggst hætta rekstrinum og hvet ég borgina til að tryggja hann áfram. Í Vin koma daglega 25-30 manns og njóta aðhlynningar og félagsskapar - fólk kaupir sér mat og kaffi, teflir, málar, getur farið í sturtu eða í hvíldarherbergi. Starfsfólk er frábært og margir sem væru einir heima hjá sér fá þarna góðan félagsskap sem bætir geðheilsu. Það er ekki lausn að vísa fólkinu á elliheimili eins og einhverjir halda víst.
14 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Skapa flóamarkað í Reykjavík þar sem borgarbúar geta komið með dót úr geymslunni sinni og selt án þess að þurfa borga leigu fyrir aðstöðu líkt og Kolaportið, en þar eru nú uppsettar verslanir meira og minna og dýr leiga fyrir bílskúrssölu með hliðsjón af óvissunni um sölu! Slíkt væri vettvangur fyrir mannlíf og endurnýtingu varnings.
13 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Þegar gengið er upp frá Bergstaðastræti og upp á Freyjugötu er á brattan að sækja. Gamlir og lúnir fætur verða þreyttir. Móðir mín gengur iðulega þessa brekku og þarf að setjast þegar upp er komið. Hún tyllir sér á tröppuna á húsi á Óðinsgötu. Fiskbúðin og Morkinskinna eru samkomustaðir í hverfinu, þar væri upplagt að setja einn af fjölmörgum bekkjum sem nú prýða Baldursgötutorgið. Þá geta þreyttir fætur hvílt sig og gestir á samkomustað tyllt sér.
13 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Gefum spennistöðinni nýtt líf sem félagsmiðstöð, tómstunda og tilraunamiðstöð ungs fólks í miðborg, þar sem áhersla er lögð á að börn og ungt fólk geti þroskað hæfileika sína í öruggu umhverfi og gert tilraunir með það sem hugur þeirra stendur til. Spennistöðin yrði tilrauna- og átaksverkefni, bæði hvað varðar uppbyggingu, starfsemi og samnýtingu. Forgangsröðum framkvæmdum í þágu barna og ungs fólks.
12 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Þetta er ekki spurning um að safna saman hundum í miðbæinn, einfaldlega að bjóða upp á aðstöðu fyrir þá hunda og hundaeigendur sem búa í miðbænum nú þegar. Það þurfa að vera hundagerði í öllum hverfum borgarinnar svo fólk þurfi ekki nauðsynlega að fara út fyrir sitt hverfi til að sinna þörfum hundsins. Fréttin sem Anna vísar í er auðvitað hræðileg, en gerðist í heimahúsi og hefur ekkert með hundagerði að gera. Það er ekki hægt að láta hunda hverfa með því að sleppa þjónustu við hundaeigeigendur.
12 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Afgreitt
Föstudagsopnun í Nauthólsvík
Að geta notið þess að synda í Nauthólsvíkinni tvisvar í viku í hádeginu skiptir höfuðmáli því þá fáum við birtu í kroppinn. Líkamleg ljóstillífun skiptir máli í skammdeginu! Er meira en tibúin að borga fyrir það í bauk svo ekki þurfi auka starfsfólk til innheimtu.
12 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Það vantar tilfinnanlega fleiri útivstarsvæði þar sem hundaeigendur geta lofað hundunum sínum að hlaupa frjálsir án þess að brjóta reglur. Hundaeigendum miðsvæðis sem kjósa bíllausan lífsstíl eru öll sund lokuð. Það ættu að vera afmörkuð svæði, td í Öskjuhlíð, við Ægissíðu, í Hljómskálagarðinum, úti á Grandagarði etc, þar sem hundar mættu spretta úr spori og hittast. Hundahald leyfilegt í borginni og hundaeigendur borga skráningar- og ársgjöld til að fá að halda hunda.
13 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
|
|
|
Um Suðurlandsbraut fara um þónokkrir strætisvagnar og þar eru staðsett alls kyns fyrirtæki sem nær ómögulegt er að nálgast nema á bíl. Frá glæsibæ og niður að Engjateigi í átt að miðbæ, hægra megin götunnar, er hreinlega engin gangstétt og hinu megin er lítið annað en bílastæði og innkeyrslur. Grensásvegurinn er svipaður og setur maður sig þar í bráða hættu fótgangandi, svo ekki sé minnst á Skeifuna.
11 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Ég gæti skrifað langan pistil á móti þessari hugmynd, en læt það nægja að segja þetta:
Gleðigangan hefur verið nákvæmlega það í reykvísku menningarlífi - borgarbúum til gleði, óháð kynhneigð og öðrum atriðum sem stundum skilja okkur að.
Í Gleðigöngunni geta allir tekið þátt og hafa borgarbúar svo sannarlega sýnt afstöðu sína til hennar og þeirra málefna sem barist er fyrir í henni, með gríðarlegri þátttöku sem ekki þekkist í neinni annarri borg.
Gleðigangan fagnar öllum mannréttindum!
10 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Með því að samþykkja hótelbyggingu við Ingólfstorg eru yfirvöld að eyðileggja síðasta góða tónleikahúsið í Reykjavík sem rúmar milli 500 og 800 manns. Með auknu tónleikahaldi og fjölbreyttari tónlist þurfum við í raun fleiri hús á borð við NASA í Reykjavík. Komum í veg fyrir þetta stórslys!
10 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Afgreitt
Föstudagsopnun í Nauthólsvík
Ég barðist einhverju sinni fyrir því að það yrði opið á milli 17 - 19
á föstudögum, það er frábært að láta vinnuvikuna líða úr sér þarna og
hlaða orkuna fyrir helgina
10 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Í vinnslu
Baðhús við Skólavörðustíg
Hegningarhússið við Skólavörðustíg er úrelt sem fangelsi og hefur verið á undanþágu hjá heilbrigðisyfirvöldum lengi. Nú er rætt um að leysa þurfi fangelsisplássavandann og reisa nýtt fangelsi. Þá þarf væntanlega að finna nýja nýtingu á þessu húsi. Og ekki verður það rifið. Og ekki verður útliti þess breytt á nokkurn hátt. Því ekki að hafa eins mikið mannlíf þar og við getum? Eitthvað jákvætt. Sem þjappar okkur saman. Og gerir okkur hraustari.
Uppruni: http://en.wikipedia.org/wiki/Sauna
9 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Í vinnslu
Lífvænleg Snorrabraut!
Það ætti að skoða aðgerðir strax, ekki biða eftir nýju skipulagi, sem er í vinnslu í borgarkerfinu. Í sumar voru ymis verkefni í gangi í miðborginni sem voru undir hatti sem kallaðist torg í biðstöðu. Ódyrar aðgerðir sem gerðu einmitt torgin lífvænlegri. Breytingar sem auðvelt var að snúa við. Að stilla gangbrautarljósin þannig að logi lengur ætti að vera nokkuð auðvelt. Þá mætti taka af nokkur bílastæði þar sem bílar birgja mönnum sýn við gangbrautum. Mögulega mála hjólareinar, hraðamælaskilti
9 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Hundahald er afskaplega vanmetið af Íslendingum, en sannað hefur verið að hundar geta læknað fólk af þunglyndi og aukið vellíðan fólks verulega. Það er ekki af ástæðulausu að hundar eru notaðir við aðhlynningu á sjúkrastofnunum, elliheimilum og vistheimilum fyrir fólk sem þjáist af fötlun eða slíku.
Til að geta sinnt þörfum hunda sinna neyðast flestir borgarbúar til að eiga bíl því að ekki er hægt að sleppa þeim lausum í göngufæri við heimili þeirra og þeir eru ekki leyfðir í almenningssamgöngur
11 aðilum fannst þetta gagnlegt, 2 fannst það ekki.
|
|
Undir yfdirskriftinni "Bæta aðstöðu hjólreiðafólks í miðbænum", mætti líka fjalla um bætta aðstöðu til að geyma reiðhjól með tryggum hætti. Það mætti taka frá eitt eða nokkur bílastæði í bílastæðahúsunum og setja niður boga til eð halla stellinu að og læsa. Það mætti fjölga grænu hjólastæðisbogunum sem borgin hefur sett upp. Það mætti setja "cycleloop" á ljósastaurum til að sýn að hjólreiðamenn sé velkomið að læsa hjólin við ljósastaura (og gera þeim auðveldari fyrir.
9 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
En að segja að þurfi bara að fjölga þeim, gerir strætó í raun óáhugaverðari kost. Því það gerir hann hægari og óþægilegri.
Í raun þarf bara að endurskoða margar stoppustöðvar (hef ekið strætó, svo ég þekki allar leiðirnar). Og í Sumum hverfum eru alltof margar stoppustöðvar, þar sem tæki fólk 2 mínútur að labba á milli. En svo kemur fyrri að það eru ótrúlegar vegalengdir á milli stöðva. Svo það ætti að endurskoða allt kerfið, og þá staðsetningar stoppustöðva, með tilliti til allra hópa fólks.
9 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Afgreitt
Laugarvegur göngugata alla daga !!!
Borghildur mældi þetta. Tölurnar tala sínu máli:
9 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|