Ýmislegt rök

Borgarbanki getur tekið lán hjá Seðlabankanum á stýrivöxtum sem borgarsjóður notar svo til að borga upp dýrari lán borgarinnar og fyrirtækja hennar. Borgin sparar sér vaxtamuninn að frádregnum kostnaði við rekstur bankans. 1% vaxtalækkun getur sparað milljarða. Vandamálið sem Borgarbanki leysir er að borgarsjóður má ekki taka lán í Seðlabankanum. Þar sem reglur Seðlabankans hygla fjármálafyrirtækjum er lausnin sú að borgin stofni fjármálafyrirtæki, Borgarbankann, sem hyglar borgarbúum.
25 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
Skapa flóamarkað í Reykjavík þar sem borgarbúar geta komið með dót úr geymslunni sinni og selt án þess að þurfa borga leigu fyrir aðstöðu líkt og Kolaportið, en þar eru nú uppsettar verslanir meira og minna og dýr leiga fyrir bílskúrssölu með hliðsjón af óvissunni um sölu! Slíkt væri vettvangur fyrir mannlíf og endurnýtingu varnings.
13 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Fylkisbanka módel Bank of North Dakota sem hefur virkað í 90 ár hefur tryggt að fylkið er ekki skuldugt og skilar hagnaði í bankakreppunni. Bankinn lánar til uppbyggingar í framleiðslugreinum í fylkinu. Fulltrúar frá bankanum sem ég talaði við eru tilbúnir að koma til Íslands og hjálpa til við uppsetningu Borgarbankans í Reykjavík.
13 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Heimili geti haldið 3-4 hænum,ýmsar góðar ástæður svo semi til að fá egg ,gæludýr, áburð, minnkar sorp (borða afganga)
11 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það kæmi borginni vel að reka eigin viðskiptabanka laus við alla áhættu fjárfestingabankastarfsemi og standa því betur af sér næsta banka-hrun/kreppu. Setja þyrfti strangar reglur um reksturinn og ávallt lágmarka alla áhættu.
6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Margir neyðast til þess að leggja bílnum sínum í miðbænum, á gjaldskyldum stæðum, þrátt fyrir að búa annarsstaðar. Erfitt getur verið að eiga alltaf til klink í stöðumæla (ekki taka allir við kortum) og fáir nemendur eiga kreditkort fyrir þjónustu leggja.is þar sem rukkað er fyrir þjónustuna, símtölin og bílastæðið. Þess vegna legg ég til að komið verði í gang "Skólakortum" eða "Mánaðarkortum" svo að ekki bara íbúarnir sleppi við að fá sektir. Ekki refsa fólki fyrir skóla-/atvinnuval með sektum!
7 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
Reykjavíkurborg á ekki að stofna fyrirtæki og vera í samkeppni við einkaaðila. Þeir hafa því ekkert með það að gera að vera að stofna kaffihús eða nokkurn annan slíkan rekstur.
7 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
Reykjavík er 21° vestur, sem þýðir að það er eðlilegast að við séum UTC+1 (reyndar 1:24, vilji maður vera nákvæmur), en í rauninni eru tímabelti bara ein af mörgum aðferðum til að "spara sólarljós", og meiraðsegja ein sú allra furðulegasta. Mun betri leið er að nota bara þær tímasetningar sem eru eðlilegastar - til dæmis að skóli byrji frekar 9 eða 10 á morgnanna...
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Í janúar 2012 verða liðin þrjú ár frá Búsáhaldabyltingunni og sjálfsagt að minnast þessa merka viðburðar árlega héðan í frá. Því verður ekki neitað að einn af hápunktum byltingarinnar var þegar mótmælendur tóku niður Oslóartréð og brenndu það. Það er afar viðeigandi að minnast þessara tímamóta með því að endurtaka þennan verknað aðfaranótt (eða kvöld) 21. janúar ár hvert. Oslóartréð fær þar með tvöfaldan virðingarsess sem jólatré yfir friðartímann og sem fóður fyrir byltingareldinn í lok janúar.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Internetið er að verða að normi í hinum vestræna heimi fyrir ferðamenn til að afla sér upplýsinga um staðarhætti, gæði veitingastaða, fjölbreytileika afþreyingar og áfram mætti lengi telja. Það getur reynst flókið og erfitt fyrir ferðamenn að verða sér úti um þráðlaust internet á Íslandi. Flóknir og oft á tíðum kostnaðarsamir og tímafrekir samningar við þjónustufyrirtæki gera það að verkum að einungis hluti ferðamanna hafa aðgengi að interneti allstaðar.
7 aðilum fannst þetta gagnlegt, 3 fannst það ekki.
Frekar myndi ég vilja að ljósin væru slökkt, svo flugeldarnir nytu sín algjörlega!
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Árásagjarn eða sí-geltandi hundur eru ávísun á eiganda sem ekki kunna með hund að fara. Þá er hundurinn orðinn leiðtogi fjölskyldunnar og hlutverk hans - sama af hvaða hundakyni hann er - er að verja sitt yfirráðasvæði.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
Það er ljóst að nú þegar eru margir borgarar farnir að halda hænur setja á í hvelli reglur um þetta í staðinn fyrir að ráðast á fólk með innantómum hótunum og setja svo reglur eftir tiu ár þetta er nýtt og saklaust dýrahald.Það ætti að takmarka fjölda hæna á heimili við max 5 hænur og ekki leifa hana og nota við mið hænufélagssins um stærð á kofum síðan gilda bara almennar reglur um hreinlæti og lausagöngu. Þetta á borgin að laga með borgurunum en ekki að ráðast á þá.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það væri gerlegt að bjóða uppá þennan valkost í samstarfi við fyrirtæki í ferðaþjónustu og verslun ásamt símafyrirtækjum. Notendum væri boðið uppá það að horfa á auglýsingar endrum og eins en innan skynsamlegra marka þar sem væri boðið uppá ýmiskonar þjónustu og tilboð á varningi. Eins gæti fólk bókað sjálft í ferðir eins og hvalaskoðun etc. þannig að rekstraraðili netsins fengi einhverjar prósentur eða fast gjald af þeirri bókun. Væri allra hagur að mínu áliti.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Við höfum öll tekið eftir þeim fjölbreytta hópi tekjulágs fólks sem gægist ofan í ruslatunnur til að safna dósum og flöskum til endurvinnslu. Þetta fólk þykir mér eiga skilið þakklæti, því það hjálpar samfélaginu við flokkun og endurvinnslu. Væri athugandi að setja upp einhvers konar aukahólf við almenningsruslakassa sem taka sérstaklega við flöskum & dósum, sem fólkið gæti svo auðveldlega losað?
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það er mikil eftirspurn eftir grasrótarhúsi þar sem hópar geta hist og fólk dvalið án þess að vera að kaupa eitthvað. Það er sniðugt að hafa slíkt rými í nánd miðbæjar. Iðuhús er á mjög hentugum stað fyrir slíka starfsemi. Það væri sniðugt að hafa "alternativt" kaffihús og iðju (t.d. bókaskiptingar=bookcrossing) ásamt fundarherbergjum sem fólk gæti pantað endurgjaldslaust fyrir fundi í félögum, unglingar verið að lesa fyrir skólann o.s.frv.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Ef þetta yrði leyft yrðu núverandi íbúakort gagnsminni fyrir okkur íbúa. Tilfellið er að það er auðveldara fyrir okkur að fá stæði við okkar hús með íbúakortum, yrði ansi erfitt þegar allir sem vildu gætu keypt sér kort.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Er almennt sammála þér um nekt, en neita að taka afstöðu..því.. a) Það eru margar sandstrendur á Íslandi. Margar þeirra lítið sóttar og fullkomnar til naktrar útiveru. b) Í sundhöllinni, til dæmis, er að finna svalir þar sem leyfilegt er að spóka sig berrassaður. Bæði eru svalir kvenna og svalir karla. Þangað fara margir karlmenn til þess að stunda léttar æfingar án spjara. c) Langsamlega flestir hafa ekki áhuga á að stunda sund naktir. Það væri af og frá að taka sundtíma FRÁ þeim fyrir þetta.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
Það er alltaf verið að stela ú 10 11 í Breiðhollti
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Sama hvernig leikið er með klukkuna verður stysti dagur á Íslandi ekki lengri en rétt rúmar fjórar klukkustundir. Sé klukkunni hagað þannig að sól rísi á stytsta degi klukkan hálf tíu, þá sest hún klukkan hálf tvö. Það er engu skárra en að hún rísi hálf tólf og setjist hálf fjögur.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það á ekki að vera nauðsynlegt að heimsækja lögregluna og gramsa í geymslunni hjá þeim áður en þeir halda uppboðið sitt. Aðrir en borgin gætu haldið utan um miðaframleiðsluna og skráninguna: Tryggingarfélögin, Umferðarskoðun hf, Lögreglan, Hjólreiðafélög eða Hjólaverslanir. Ég vil samt að borgin sjái um þetta vegna þess að lögreglan hefur ekki sýnt í verki að hún sé fær um það, og vegna þess að þetta ætti að vera í höndum opinberra aðila, ekki einkaaðila.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
1) Póker, líkt og Bridge og Skák er hugaríþrótt. Til þess að gerast góður pókerspilari er nauðsynlegt að hafa góða rökhugsun. Einnig er mikilvægt að hafa a.m.k einhverja/góða kunnáttu á tölfræði/stærðfræði og sálfræði. 2) Frelsi einstaklingsins. 3) Spilakassar eru löglegir, þrátt fyrir að vinningslíkur (yfir heildina) séu af skornum skammti. 4) Ef ríkið myndi opna pókerherbergi/spilavíti myndi það búa til fleiri starfsgreinar. 5) Margir hæfileikaríkir Íslenskir spilarar og áhugamenn.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Hér er hægt að setja fram hugmyndir um málefni er varða þjónustu og rekstur borgarinnar. Um leið er hægt að skoða hugmyndir annarra, rökstyðja mál, taka þátt í umræðum og gefa hugmyndum vægi með stuðningi sínum. Reykjavíkurborg skuldbindur sig til að fjalla um hugmyndir af Betri Reykjavík samkvæmt ákveðnum leikreglum.
6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Flott hugmynd. Kolaportið er orðið staður fyrir harkara sem reka sínar verslanir þar. Byrja yfirleitt daginn á því að hlaupa milli bása hjá fólki og hirða það sem er bitastætt í bókum, vinylplötum, listmunum og öðru áður en kolaportið er opnað fyrir almenning. Kolaportið sem markaður er dottið upp fyrir í þeim skilningi bæði hvað þetta atriði sem ég tiltók varðar og eins varðandi verðlagninguna á básunum. Styð þessa ágætu tillögu.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Sjá önnur rök undir "Öll bestu rök". hér tók ég út tillögu um að auka gróður í sundlaugum þar sem þetta er sér tillaga en ekki rök í þessu máli.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt, 2 fannst það ekki.
Það er tímaskekkja að við séum ennþá að láta bjóða okkur fokdýrt 3G internet árið 2012. Ef litið er til UK er búið að bjóða uppá svona í Bristol og Norwich í lengri tíma. Í Norwich var bænum bannað að fara í samkeppni við farskiptafyrirtækin og því þak sett á tengi-tímann og net-hraðann sem fólk fær, en það dugar öllum sem þurfa bara að komast í póstinn sinn eða finna heimilisfang á veitingastað. Þeir sem þurfa meira geta borgað handlegginn sinn til risaeðlanna.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Keyrið inn í þetta kerfi þær hugmyndir sem við settum inn á 1 2 og Reykjavík vefsíðuna ásamt viðeigandi kosningu þar og framkvæmdastöðu.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Td. Hornið milli Lauglæks og Sundlaugavegar mætti lyfta upp. "Í tengslum við endurbætur hjóla-og gönguleiða meðfram Sundlaugavegi, verða áningarstaðir. Áningarstaðirnir eru hugsaðir sem hvíldar eða sælureitur fyrir þá sem leið eiga hjá. Á áningarstöðunum er gert ráð fyrir bekkjum og gróðursetningu trjáa í tengslum við gróðursetningu trjáa meðfram Sundlaugavegi." Tengil að vefsíðu sem er hugmynd að deiluskipulagi. "TEIGAR NORÐAN SUNDLAUGAVEGAR. REITIR 1.346 OG 1.347"
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
M.a. í Laugum sem rekið er af World Class.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.