|
|
|
|
|
|
|
|
Óskar Guðlaugsson
- u.þ.b. 1 mánuður síðan
Mér þætti slíkur markaður sannarlega ánægjulegur en þó er ég ekki viss um að það sé í verkahring borgarinnar að láta það gerast. Fyrir rest snýst lifandi markaður um viðskipti og þá þarf fyrst og fremst aðkomu einkaaðila. Eins og stendur er annars skemmtilegur matarmarkaður í kolaportinu. |
|
FHS
- 22 dagar síðan
Það eina sem borgin á að gera er að segja: Þið getið notað þetta svæði, þarna eru innstungur, nú er þetta í ykkar höndum. Hvað með samtök Garðyrkjubænda, Bændasamtökin, Trilllukarlar , Blómabændur og fl.
|
|
|
|
|
Bergur E. Sigurðarson
- u.þ.b. 1 mánuður síðan
Vissulega væri mikil fegrun í því að losna við Héraðsdóm af Lækjartorgi, en þá ætti að færa húsið aftur í fyrra form - enda nú eins og algert skrímsli, samsett úr mismunandi pörtum!
|
|
|
|
|
Tinni Sveinsson
- u.þ.b. 1 mánuður síðan
Einföld framkvæmd en skiptir máli |
|
|
|
|
Reykjavik+
- u.þ.b. 1 mánuður síðan
Friðlýsa á alla"gömlu"Reykjavík. Þetta mun stemma stigu við niðurrifi og eyðileggingu borgarmyndarinnar og stöðva það að peningamenn geti keypt upp heilu göturnar til að byggja eintóma kassabyggingar í gróðraskini. |
|
|
|
|
FHS
- u.þ.b. 1 mánuður síðan
Tengist hugmyndinni: Leyfi til að rífa hús áður en ákveðið er hvað komi í staðinn |
|
|
|
|
Ham
- u.þ.b. 1 mánuður síðan
Vandamálið að Lækjargata er ekkert annað en fooking autoban dauðans ! |
|
|
|
|
lolo
- u.þ.b. 1 mánuður síðan
svo er land að síga þarna líka held ég , og svo er möguleiki á öðru básendaflóði sem var kannski skjálfti eða neðansjávarskriða. tsunami er ólíklegra hér kannski. svo er þetta opið fyrir norð vestan átt af hafi. þurfa gömul hús skjól fyrir ofsaverðum og standa í kvosum. |
|
|
|
|
Andrea Ásgeirsdóttir
- 6 mánuðir síðan
Ég hef yfirleitt verið á því að flugvöllurinn ætti að fara burt úr Vatnsmýrinni, en það er ekki 2007 lengur og það er hvort sem er enginn að byggja húsnæði, þannig að þetta mál má alveg bíða á meðan versta kreppan gengur yfir. |
|
JTh
- u.þ.b. 1 mánuður síðan
Ef að flugvöllurinn fær ekki að vera í höfuðborginni Reykjavík í nálægð við Landsspítalann, þá mætti flytja flugvöllinn, Landsspítalann og allt stjórnkerfi landsins í annað bæjarfélag og gera þann bæ að höfðuborg landsins. Þannig hefðu allir landsmenn greiðan aðgang að nýrri höfuðborg. Þá myndi losna fullt af plássi (land og húsnæði) og íbúar ReykjavíkurBÆJAR sem vildu flugvöllin burt gætu tekið gleði sína á ný. |
|
|
|
|
Birgir
- u.þ.b. 1 mánuður síðan
Þetta málefni getur ef vel er á málnum haldið haft mun meiri jákvæðar afleiðingar heldur en halda mætti í fyrstu. Í fyrsta lagi þá mun þetta leiða til betri ákvarðana af hálfu yfirvalda. Í öðru lagi mun þetta leiða til betri vinnubragað. Í þriðja lagi mun þetta leiða til hagkvæmari rekstrar í kerfinu öllu og líflegra og mannlegra samfélagi en við erum með í dag. AÐ lokum mun þetta geta skaffað vinnu til fjölda hæfileikaríkra einstaklinga sem hafa það sem hæfileika og sérmenntun að vinna að notendamiðaðri hönnun. |
Næg önnur svæði í nágrenni Reykjavíkur og annarra sveitarfélaga þar sem hraðbátar og sæþotur geta verið öðrum að skaðlausu. Vægast sagt fáránlegt ef ekki klárlega heimskulegt að leyfa umferð þessara farartækja innan um siglingafólk á seglbátum og kajökum og sjósundfólk. Veit ekki betur en að umferð þessara farartækja sé bönnuð á þessu svæði en því hefur verið slælega fylgt eftir. Oft á tíðum dapurlegt að horfa uppá vitleysinga á sæþotum haga sér eins og geðsjúklinga á þessu svæði!
Þetta er mjög gott og skynsamlega orðað innlegg hjá Önnu Ólöfu og er ég sammála flestu sem þar kemur fram. Takk fyrir það. Það sem fyrir mér vakir er einmitt að fá fram umræður og að fólk hugsi um þetta mál.
Kannski var upphaflegt erindi ekki nógu nákvæmlega orðað hjá mér en það var aldrei mín hugmynd að siglingaklúbbarnir ættu að víkja. Mér finnst þvert í móti að þeir séu vel staðsettir þar sem þeir eru og ekkert nema gott um þá að segja. Ég hef sjálfur ekki séð fólk frá siglingaklúbbunum fara óvarlega.
Ég var að gagnrýna aðra umferð sem þarna er, bæði á hraðbátum og sjóköttum. Ekki síst við Geldinganes þar sem kayakræðarar halda sig gjarnan.
Það er ekki rétt sem kom fram í rökum á móti að Nauthólsvíkin sé hafnarsvæði. Eingöngu höfnin sjálf innan hafnarmynnis telst hafnarsvæði og þar gilda reglur um hámarkshraða en utan hafnarinnar eru engar slíkar reglur. Ég er búinn að kynna mér það vel og á bréf frá hafnastjórn um það.
Sjósundfólk (þar á meðal ég) þarf líka að taka sig á og sú umræða er í gangi innan sjósundfélagsins.