Umræður um Samgöngur
Ef þú vilt taka þátt, vinsamlegast gerstu áskrifandi. Aðild er ókeypis og þú getur líka tengst í gegnum Facebook.

Kjartan setti inn upplýsingar á Gera Viðey að kaupstað 8 dagar síðan 1 Athugasemd
Kjartan - 8 dagar síðan

væri líka hægt að flytja árbæarsafn út í viðey

FHS setti inn upplýsingar á Malbika malarstíg meðfram Úlfarsá og setja upp ljósastaura u.þ.b. 1 mánuður síðan 1 Athugasemd
FHS - u.þ.b. 1 mánuður síðan

Sammála með lýsinguna - og stígnum mætti halda betur við - en af hverju þarf að malbika allt ?

Heinrich - 2 mánuðir síðan

Mjög málefnaleg og góð tillaga. Hef einmitt haft þetta í huga og gáttað mig á hvervegna þetta er eins og þetta er.

Óskar Guðlaugsson setti inn upplýsingar á Slysahætta 3 mánuðir síðan 1 Athugasemd
Óskar Guðlaugsson - 3 mánuðir síðan

Ha?

Þú þyrfti að skýra betur hver rökin eru.

Almennt er það bílaumferðin sem skapar slysahættu. Ef ekið er á gangandi vegfaranda, var það þá hann sem olli slysinu með því að "vera fyrir"?

Heinrich setti inn upplýsingar á Bæta aðstöðu hjólreiðarfólks í miðbænum 7 mánuðir síðan 3 Athugasemds
Heinrich - 7 mánuðir síðan
Það verður þá að gera þetta almennilega, Ekki með hangandi hendi og bullandi drullumixi. En hversvegna segirðu að þú getir ekki farið upp laugarveginn?
Óskar Guðlaugsson - 3 mánuðir síðan

Það er rétt að það er ekki hægt að hjóla upp Laugaveginn svo vel sé, eins og Þórður útskýrir. Ég geri það helst aldrei því ég vil sýna af mér ábyrga hegðun á hjólinu - af því að ég vil að ökumenn komi fram af ábyrgð við mig. Ég hjóla hins vegar upp Hverfisgötuna (á götunni). Það er kannski ekki alveg stórhættulegt en það er með óþægilegri götum sem ég hjóla. Bendi á Skúlagötu, Lindargötu eða Grettisgötu, eftir því hvað hentar leiðinni best.

Arnaldur Hilmisson - 3 mánuðir síðan

Þessi hugmynd var of almenn sem sést best á svarinu, það þarf að díla við þetta á verkefna basis. Td. Segja nákvæmlega hvað þarf að gerast á Fríkirkjuvegi; "Taka aðra gangstéttina á Fríkirkjuvegi undir hjólaleið", borgarstarfsmenn eru mjög góðir í að afreiða svona almennar hugmyndir með svörum eins og sjást frá Ólafi Bjarnasyni.

Ætla að henda inn einhverjum hugmyndum... en þegar það eru 350 hugmyndir í vinnslu þá er maður ekkert sérstaklega bjartsýnn að þessi nýji vettvangur sé að skila nokkru af viti. Annaðhvort þarf að sparka í einhverja nefndir til að þær hósti upp lausnum fyrir þessar hugmyndir eða fækka þeim hugmyndum sem eru teknar héðan til athugunar hjá borginni

Bjarni Jens Kristinsson setti inn upplýsingar á Vond hugmynd 4 mánuðir síðan 4 Athugasemds
Bjarni Jens Kristinsson - 4 mánuðir síðan

Sæll Helgi. Með gjaldfrjálsum strætó þarf ekki endilega að fylgja minni peningur í reksturinn. Mín lausn er að hækka útsvar/skatta sem myndi ekki bara spara pening í rekstrinum (Strætó bs. þyrfti ekki að eyða pening í að prenta miða eða borga manninum sem skoðar hvort maður sé með gilt kort o.s.frv.) heldur líka deila kostnaðinum "betur" á þjóðfélagið (þ.e. kostnaðurinn myndi lenda meir á þeim sem eiga meiri pening og minna á þeim sem eiga minni pening).

sunna - 4 mánuðir síðan

mýrarholtshlíð eða holtamýrarhlíð?

Bjarni Jens Kristinsson setti inn upplýsingar á Ókeypis er ekki valkostur notenda 7 mánuðir síðan 2 Athugasemds
Bjarni Jens Kristinsson - 7 mánuðir síðan
Ég er höfundur tillögunnar og ég nota strætó daglega. Ég vil að strætókerfið sé rekið með skattpeningum (útsvari á höfuðborginni) og er búinn að færa margs konar rök fyrir því. Ég hvet þig til að lesa rökin í umræðunum. Ég lít ekki svo mikið á strætó sem 'þjónustu' heldur sem sjálfsagt samgöngukerfi rekið af því opinbera (og því í minni eigu).
Sveinn Thorarensen - 4 mánuðir síðan

Vil baeta vid ad undafarin misseri hefur gjaldid haekkad og ferdum faekkad. Sú thjónusta meikar ekki mikid sense fyrir mig. Áfram Bjarni !

Birgir - 5 mánuðir síðan

Höldum stígum m.a í lagi og án glerbrota!!

Sigga mamma Jóns Braga - 5 mánuðir síðan

Ég lenti í árekstri við innkeyrsluna að Fálkaborg fyrir nokkrum árum. Var að beygja upp úr Arnarbakka og þar sem mikil umferð var niður Fálkabakka þurfti ég að bíða eftir tækifæri á að beygja inn á stæðið. Umferðin niður Fálkabakkann byrgði ökumanni sem kom úr Arnarbakka sýn og hann keyrði með afli aftan á minn bíl. Það var mikil blessun að ég lenti ekki á eða fyrir bílum sem komu niður Fálkabakkann þegar bíllinn minn kastaðist áfram yfir á öfugan vegarhelming. Það var barn í bíl þess sem ók aftan á mig. Sem betur fer slasaðist enginn alvarlega utan hálshnykkja, en þetta hefði getað farið mjög illa. Þessar aðstæður eru verulega hættulegar og sérstaklega er brekkan niður á stæðið hættuleg á vetrum í snjó og hálku. Minni bílar þurfa að taka atrennu til að komast upp á Fálkabakka. Svo er stæðið allt of lítið. Það skapast slysahætta þarna mörgum sinnum á dag.