|
|
Það er óþarfi að hafa ókeypis í strætó. Strætó er þegar ódýr valkostur og ódýrari en í flestum öðrum borgum. Mér finnst sanngjarnt að fólk greiði hóflegt verð fyrir þessa þjónustu. Hins vegar er strætó ekki nógu notendavænn því ferðir eru stjálar og ómögulegt að borga fyrir far nema að maður hafi skipulagt það fyrirfram með því að kaupa kort, miða eða með nákvæma upphæð í vasanum. Að bæta úr því er liggur forgangsatriðið að mínu mati
26 aðilum fannst þetta gagnlegt, 3 fannst það ekki.
|
|
Í dag er mjög erfitt að komast á hjóli frá Lækjartorgi upp á Hlemm. Ekki er hægt að fara upp Laugarveg og Hverfisgatan er í dag stórhættuleg fyrir hjólreiðafólk. Legg til að aðgengi gangandi og hjólreiðafólks verði bætt t.d. með hjólareiðastíg við Hverfisgötu.
17 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Í vinnslu
Fleiri greiðslumöguleikar í Strætó
Útfærsla á áskriftarkortum Strætó gæti verið á þann veg að fólk kaupi kort eins og nú er eða kort sem hafa að geyma fyrirfram ákveðinn fjölda ferða. Slík kort væri svo hægt að fylla á með skafkortum, í heimabanka o.s.frv. Þarf ekki að vera dýrt í framkvæmd. Enn fremur væri um leið hægt að gera það að verkum að hægt væri að greiða með örgjörvagreiðslukortum fyrir stakt fargjald.
15 aðilum fannst þetta gagnlegt, 3 fannst það ekki.
|
|
Ég leyfi mér að giska á að höfundar tillögunnar noti sjaldan strætó. Það er mín reynsla að þeir sem nota strætó reglulega vilja frekar borga og eiga heimtingu á þjónustunni sem viðskiptavinir en ekki þjónustuþegi.
Styð hins vegar aukna tíðni og lengri þjónustutíma, það munar um það.
11 aðilum fannst þetta gagnlegt, 2 fannst það ekki.
|
|
Ókeypis í strætó og tíðari ferðir eru tvær mismunandi hugmyndir. Það ætti að setja þetta í tvö mál en ekki eitt.
Ég persónulega vil ekki hafa ókeypis í strætó. Strætó er mjög ódýr og mín reynsla segir að fólk ber ekki virðingu fyrir því sem er ókeypis.
Tíðari ferðar er aftur a móti ágæt hugmynd. En það ætti að fara varlega í þær breytingar.
10 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
|
|
Undir yfdirskriftinni "Bæta aðstöðu hjólreiðafólks í miðbænum", mætti líka fjalla um bætta aðstöðu til að geyma reiðhjól með tryggum hætti. Það mætti taka frá eitt eða nokkur bílastæði í bílastæðahúsunum og setja niður boga til eð halla stellinu að og læsa. Það mætti fjölga grænu hjólastæðisbogunum sem borgin hefur sett upp. Það mætti setja "cycleloop" á ljósastaurum til að sýn að hjólreiðamenn sé velkomið að læsa hjólin við ljósastaura (og gera þeim auðveldari fyrir.
9 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Einfaldasta leiðin til að auka nauðsynlegt líf- og ferðarými í þröngum götum er að takmarka umferð bifreiða og fækka geymslustæðum þeirra.
7 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Í vinnslu
Fleiri greiðslumöguleikar í Strætó
Vá hvað það væri auðvelt hoppa í strætó ef að á helstu stoppistöðum (ss. Lækjartorgi ofl.) væru sjálfsafgreiðslukassar þar sem maður gæti stungið greiðslukortinu sínu inn og keypt sér miða á meðan maður bíður eftir vagninum. Þetta yrði þá ekki ólíkt því að leggja á bílastæðum eins og á Kolaportsplaninu þar sem maður er enga stund að greiða með korti fyrir stæðið sitt.
Þá þarf maður ekki lengur að ferðast sérstaklega í a) hraðbanka og b) búð fyrir skiptimynt, áður en áætlað er að taka strætó!
7 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Mikilvægt að jafnvægi sé milli almenningssamgangna, einkabíla, gangandi og hjólandi því ójafnvægi leiðir yfirleitt til kollsteypu. Um leið mikilvægt að greitt sé sanngjarnt gjald fyrir alla þjónustu. Ókeypis strætó er ekki ókeypis því kostnaðurinn er falinn í skattgreiðslum. Ókeypis kallar yfirleitt á sóun. Ókeypis er tákn um að þjónustan er ómerkileg, einskis virði. Hvers vegna ætli einkabíllinn sé jafn vinsæll og raun ber vitni þrátt fyrir mikla skattpíningu? Jú, verð miðað við gæði er lægst.
8 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
|
|
|
Í vinnslu
Fleiri greiðslumöguleikar í Strætó
Yfirvöld Strætó hafa nú í áratugi unnið markvist að því að fækka notendum Strætó eins og unnt er. Sett mjög öflugar hindranir á að fólk geti keypt þjónustuna, ekki sé hægt að kaupa miða í vagni, ekki hægt að fá þar greitt til baka við staðgreiðlsu og engin greiðslukort tekin gild. — Ímyndið ykkur aðra sem vildu selja vöru og gerðu það á viðlíka skilmálum — ekki nokkur maður skipti við slíkan aðila — yrði að kaupa afsláttarmiða á einum stað, ekki greitt til baka við staðgr. og engin kort gild.
Uppruni: http://www.facebook.com/helgijh
8 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
|
|
Afgreitt
Ókeypis í strætó og tíðari ferðir
Það hafa verið gerðar tilraunir með þetta á Akureyri og í Reykjanesbæ með mjög góðum árangri. Auðvitað skilar þetta sér í að fleiri fara í strætó, einföld hagfræði segir okkur það. Með því að fá fleiri til þess að nota almenningssamgöngur er hægt að spara sér kostnað við mikil umferðarmannvirki og koma í veg fyrir að borgin verði öll sundurskorin af umferðarmannvirkjum eins og t.d. Houston í Texas. Sjá: http://www.mbl.is/frettir/innlent/2009/07/24/150_prosent_fjolgun_farthega_straeto_a_akureyri
7 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
|
|
|
Stór hluti kostnaðar við að reka strætókerfið er að rukka inn fargjaldið. Það væri einfaldast fyrir farþega að geta bara farið inn í strætó og þurfa ekki að rífast við vagnstjórann hvort sett var næg upphæð í kassann, hvort viðkomandi fái séns því kortið rann út daginn áður og svo framvegis. Það væri líklegra til að draga fólk að.
6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Í vinnslu
Fleiri greiðslumöguleikar í Strætó
Notandi greiðir fyrir ferðina með SMS eða símtali, fær sent MMS með strikamerki sem vagnstjóri les.
Notandi greiðir fyrir ferðina í gegnum snjallsíma-app
10 aðilum fannst þetta gagnlegt, 4 fannst það ekki.
|
|
|
Í vinnslu
Hjólastígur meðfram Miklubraut
Á Miklubraut milli Kringlumýrarbrautar og Snorrabrautar er gjarnan mikil umferð gangandi og hjólandi vegfarenda. Oft liggur við slysum þegar hjólandi og gangandi umferð mætast, t.d. þegar fólk kemur úr eða fer í strætó. Þetta er sérstaklega slæmt í myrkri. Mæli með að gerður verði sérstakur hjólreiðastígur meðfram Miklubraut á þessu svæði. Það myndi auka öryggi vegfarenda, jafnt gangandi sem hjólandi. Plássið fyrir sérstakan hjólastíg á þessu svæði er feykinóg.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Þar sem strætó er ókeypis er hann vondur. Þar sem strætó er góður kostar þjónustan. Stakur miði í köben á RVK-HFJ vegalend mundi kosta 1000 kr. staðgreiddur. Ég vil frekar hafa kerfið eins og í köben og láta það kosta eins og í köben fremur en að hafa það eins og á Akureyri, og jafnlélegt og á Akureyri.
6 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
|
|
Það er gott að hjóla margar götur í miðbænum en myndast oft óreiða á gatnamótum. T.d. er fínt að hjóla í Vonarstræti en erfitt að beygja inn á Lækjargötu. Eins eru gatnamót í kringum Hlemm og við Snorrabraut erfið og svipuð dæmi víðar.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Afgreitt
Ókeypis í strætó og tíðari ferðir
Höfum eitt á hreinu: Strætó er umhverfisvænni og ódýrari í rekstri heldur en einkabíll. Því ætti það að vera samfélaginu til góðs að almenningur noti samgöngukerfi borgarinnar sem mest.
Til þess þarf að breyta tveimur hlutum.
1) Strætó þarf að vera ókeypis.
2) Ferðirnar þurfa að vera tíðari og leiðirnar fleiri.
Frekari rök eru að finna í umræðunni sem tengd er þessum rökum.
9 aðilum fannst þetta gagnlegt, 5 fannst það ekki.
|
|
|
Með því að einn aðili hafi yfirumsjón yfir öllum stígum borgarinnar, nær borgin að slá margar flugur í einu höggi. Fegra umhverfið, ýta undir hjólreiðar og göngur, koma í veg fyrir slys og um leið gera borgina betri og heilsu borgarbúa betri. Í dag er stígakerfið i umsjón margra og engin fer og skoðar hvort eitthvað sé að, einungis bregst við ef einhver kvartar og þá er það spurning um í hvaða forgangsröðun málið lendir.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Nýtt embætti er ónauðsynlegt og flækir bara stjórnsýslu, enn fremur býst ég sterklega við að núþegar sé staða sem felur í sér hönnun samgöngumannvirkja. Frekar ætti að hvetja til þess að viðkomandi aðilar fái frekari menntun í hönnun hjólreiðastíga. Að greina stígana með tilliti til vandamála er síðan aftur ágætis hugmynd...
5 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
|
|
Við myndum hvort sem er þurfa borga fyrir ókeypis ferðarnar af skattpeningum okkar
5 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
|
|
Afgreitt
Ókeypis í strætó og tíðari ferðir
Ég er mjög sammála síðasta ræðumanni um að gera strætóinn ókeypis og sjá hvernig það skilar svo. Við getum tekið reykjanesbæ til fyrirmyndar varðandi að þeir eru með ókeypis vagna sem ganga mjög svipað og strætóinn. Með þessu getum við sévonandi lækkanir á umferðaslisum innanbæjr,
en á móti myndi ég vera sáttur að borga eitthvað láværu verð að ferðast á milli strætósvæða td. frá selfoss í bæinn.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
|
|
Um árabil hafa starfsmenn og foreldrar barna í Fálkaborg rætt um að vegna þrengsla á bílastæði við leikskólann skapist þar iðulega slysahætta, ekki síst á snjóþungum vetrum. Í leikskólanum er pláss fyrir um 63 börn og þar starfar örugglega hátt í 20 starfsmenn. Bílastæði við leikskólann eru um 10 talsins. Flestir foreldrar koma með börn sín í leikskólann á leið sinni til vinnu og flestir sækja líka börnin sín á leiðinni heim. Öngþveiti myndast, óhöpp verða, vörnum slysum, fjölgum stæðum.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
|
|
Það liggur malarstígur meðfram Úlfarsá, fyrir neðan Reynisvatnsveg og Nóatún, sem tengir göngustíga úr Grafarholti við göngustíg niður á Korputorg. Hann lítur út fyrir að eiga að vera malbikaður en er það ekki heldur er hann grýttur og leiðinlegur yfirferðar, svona eins og hann hafi bara ekki verið kláraður. Það gerir manni erfitt fyrir þegar maður vill fara hjólandi eða með barnavagn niður á Korputorg, t.d. til að komast í Bónus. Einnig vantar alveg lýsingu á þessum kafla.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Í vinnslu
Fleiri greiðslumöguleikar í Strætó
Það á að vera hægt að koma með 500.- eða 1000.- kr seðla í strætó og fá til baka. Ef maður ætlar í strætó og á ekki klink þá ertu bara því miður í vondum málum. Það er frekar slæmt!
4 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
|
|
|
Það er ekki nóg að stjórnvöld marki sér stefnu um að efla hjólreiðar og göngu sem fararmáta, það þarf að fylgja henni eftir á öllum sviðum og svona embætti gæti gengt því hlutverki.
Þetta er nefnilega ekki bara samgöngumál. Allt heilbrigðiskerfið hefur ávinning af bættri lýðheilsu ef fleiri kjósa að hjóla. Allir hafa hag af umhverfisáhrifum þess ef fólk velur fararmáta sem menga minna og s.frv. Eitt dæmi er Harpa þar sem fólk er ekki velkomið á hjólum, þvert á stefnu stjórnvalda sem fjármagna þó
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Bráðaþörf er á vitrænni umferðartengingu á milli Skerjafjarðar (687 íbúar + norðurhlutinn) og KR íþrótta- og verslunarsvæðisins í Vesturbæ, líka fyrir strætótengingu. Best er að fylgja jaðri byggðarinnar, enda eru Ægisíða (og Þorragata) einungis með hús öðru megin. Mikil hætta fylgir núverandi ástandi sikk sakk í gegn um hverfin. Beintenging Ægisíðu við hringtorgið fylgir framtíðarsýn með minnstum óþægindum fyrir íbúana. Umferð inn og út úr hverfunum meðfram flugvelli minnkar álag á Melatorgi.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Gott strætókerfi er jafnréttismál ef tíðari strætóferðir væru og vagnarnir keyrðu allavegana til eitt á nóttunni ættu þeir sem ekki eiga bíl fleiri tækifæri á að taka þátt í félags- og tómstundastarfi. Peningasparnaður í viðhaldi á götunum. Aukið öryggi í umferðinni þvi færri færu um á einkabílum. Byrja má með að halda inni öllum leiðum og tímaáætlunum eins og vagnarnir ganga núna um miðjan daginn á virkum dögum og halda því inni alla daga, líka um helgar. Bæta þjónustuna með endurskipulaggningu
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Í vinnslu
Fleiri greiðslumöguleikar í Strætó
Mér er tjáð af tæknifróðu fólki að möguleikinn á greiðslukortamóttöku sé til staðar, að það sé lítið mál að bæta honum við núverandi tækjabúnað og reyndar bara tímaspursmál. En það kemur í ljós.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
|
|
|
Skipulag kerfisins er lykilatriði.
Margir vilja tíðari ferðir - en slíkt er ekki bara kostnaðarsamt, heldur ekkert endileg lausnin.
Mun frekar að dreifa leiðunum svo stutt væri að fara í vagn og að komast nálægt sínum áfangastað - og svo... og þetta er mikilvægi parturinn - að láta leiðirnar hittast á lykil-stöðum á sama tíma.
Þannig væri hægt að hoppa milli vagna án aukabiðar og komast tiltölulega hratt og nálægt áfangastað. Auk þess minnkar álag á smærri götum sem nú eru með margar leiðir.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Systkini á fleiri en einum leikskóla þýða aukinn akstur á milli staða og lengri vistunartíma. Gæðatími fjölskyldunnar minnkar.
Jafnræðisregla stjórnarskrár var notuð til að afnema systkinaforgang en þegar börn eru bara tekin inn á haustin er börnum mismunað eftir hvenær árs þau eru fædd. Börn fædd í ág.-okt. fá t.d. pláss 3ja ára.
Leikskóli í göngufjarlægð frá heimili minnkar bílaumferð, styrkir félagsþroska og öryggistilfinningu barnanna þar sem umskiptin yfir í grunnskólann verða mýkri.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|