|
Bjóða hollari kost til sölu innan veggja skólans. Auka opnunartíma sjoppu innan skólans og velja inn í hana hollari vörur. Samstarf við hverfabúðir um hollustu
8 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Hugmyndin er að gefa öllum nemum tækifæri á að kenna sína uppáhaldsgrein. Jafnel "tossarnir" geta verið "dúxar" á sínu áhugasviði. Svona getur myndast jafnvægi og virðing á milli nema.
6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Jafnvægi milli hugar og líkama: T.d. 20 mín frjálslestur nokkrum sinnum í viku. Teygjur í tímum, Jóga, öndun, slökun.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Efling félagsauðsins: Hverfismiðstöðvar með skiptimörkuðum þar sem útigallar öðlast framhaldslíf, skiptibókamarkaður á sér heimili o.s.frv.
Samnýta húsnæði skóla, frístundastarfs o.fl. Markmiðið er að efla félagsauðinn í hverfinu (social capital)
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Frístundasamgöngur með frístundastrætó eða rútur í KR og tónlistarskóla frá skólum og frístundaheimilum (fyrir allar íþróttir, ekki bara fótbolta). Markmið að auka öryggi barnanna í umferðinni og tryggja þátttöku þeirra yngstu í íþróttum og tómstundum.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Ég væri til í að greiða eitthvað fyrir að skólinn myndi sjá til þess að nemendur fengju grænmetis- eða ávaxta-snarl í nestistímum og geta þá sleppt því að koma með nesti. Það væri mjög einfalt að prófa þetta til reynslu í einhverjum skóla.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Gerum skólana að eiginlegum hverfismiðstöðvum. Gera þar fjölbreytt starf fyrir íbúanna í skólahúsnæðinu. Nýta og virkja betur bókasafn, tómstundaaðstöðuna o.fl. Auka ábyrgð með þessu gagnvart skólahúsnæðinu og tengja með þessu betur foreldra við það uppbyggilega starf sem á sér stað í skólahúsnæðinu víða um borgina.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Mikil þörf er á að efla vitund foreldra fyrir því sem er að gerast í Vesturbæ og til þess að auka samstarf og samskipti á milli veitenda tómstundatilboða, skóla, frístundaheimila og leikskóla.
Setjum upp Viðburðadagatal Vesturbæjar - á aðgengilegu formi og á óháðum stað þar sem allir geta haft aðstöðu að.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Útikennsla bæði eflir virðingu nemenda fyrir umhverfinu og virkar sem hvatning á aukinni samvinnu. Kennsla í gegnum leik. T.d. að skólar taki sér græn svæði/skóga/fjörur í fóstur.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Með skapandi greinum er líklega átt við myndmennt, smíðar, textíl, tónlist og slíkt sem eru afar mikilvægur þáttur í menntun barnanna. Það sem er þó líka og ekki síður mikilvægt er að nota skapandi aðferðir við kennslu í öðrum greinum s.s. stærðfræði, Íslensku, sögu o.s.frv. Þetta er orðið algengari hugsunarháttur, m.a. býður Myndlistarskólinn í Reykjavík uppá frahaldsskólanám þar sem Íslenska er kennd í gegnum skapandi skrif, stærðfræði í gegnum teikningu, m.a. fjarvídd.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Skólaþing nemenda mundi ganga út á:
- skipulag á sameiginlegu skólaþing fyrir nemendur í t.d. Vesturbæ
- Allir skólar leggi áherslu á lýðræðiskennslu á undirbúningstímanum
- Hluti kennslunnar felst í skipulagningu og úrvinnslu skólaþings.
Mikil þekking til á Íslandi eftir nokkra vel heppnaða Þjóðfundi. Aðferð frá Þjóðfundi er öllum opin og mikil tækifæri í að aðlaga að mismunandi þörfum og hugmyndum. (T.d. spratt þessi hugmynd frá slíkri aðferð á Skólaþingi í Vesturbæ, okt '11)
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Ein af fjölmörgum forsendum breytinga og jákvæðrar uppbyggingar í skólastarfi er endurskoðun á kjarasamningum kennara.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Nemendur þurfa að vera upplýstir um kosti og galla internetsins og vera meðvitaðir um möguleika þess.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Skilgreina aðkomu foreldra í þróun skólastarfsins: Þá að skólinn bjóði upp á tækifæri að nemendur og foreldrar hafi greiðan aðgang að þróun skólastarfsins. (enn frekari virkjun og upplýsingagjöf um hlutverk skólaráða).
Skólaþingið í Vesturbænum í okt '11 var jákvætt skref. Það þarf að skilgreina aðkomuna betur, fá samþykki ráðunauta skólanna og þeirra sem koma að menntastefnunni.
Lærum af "open source" aðferðum og opinni nýsköpun. Það er stöðugt verið að nota opnar aðferðir í ýmsum geirum.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
örlítil hreyfing reglulega í tímum eykur einbeitingu og virkni nemenda, það hefur sýnt sig í rannsóknum t.d. á norðulöndum. Myndi örugglega einnig auðvelda kennurum að fá athygli frá þeim nemendum sem eiga erfitt með kyrrsetu í lengri tíma.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Hvert eiga börnin að sækja kunnáttu til þess að "gera [foreldrana] hæfari uppalendur"? Í skólann kannski? Skólar eiga ekki að sjá um uppeldi barna og ennþá síður eiga börn að sjá um uppeldi foreldra eða að upplifa sig í því hlutverki. Uppeldi er hlutverk foreldra. Skólar ættu að hafa nóg á sinni könnu t.d. með að kenna börnum sígildar námsgreinar, gagnrýna og skapandi hugsun og að leita sér að þekkingu.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Hugtakið skapandi fög er kannski heldur óskýrt. Ég geri ráð fyrir því að hér sé átt við list- eða verkgreinar, en þær eru raunar oft kenndar eftir fremur þröngum leiðum og nemendum gefið lítið svigrúm til sköpunar. Bóknámsgreinar ætti ekki síður að kenna á skapandi hátt en þær verklegu. Þátt sköpunar í grunnskólum ætti að auka, bæði í list-, verk- og bóknámskennslu.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Hollfæði í mötuneytum skóla skilar nemendum betri líðan og námsárangri, það er margsönnuð staðreynd.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Komum upp Vesturbæjarstræt því það er mikil þörf á betri tengingum á milli tómstunda og skóla. Verkefnið fæddist úr mörgum tillögum frá Skólaþingi Vesturbæjar í október sem óskuðu eftir samfelldum skóladegi barna. Verkefnið gengur út á hverfisstrætó sem tengir hverfið betur og minnkar skutl foreldra.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Komum upp sameiginlegum starfsdegi starfsfólks skóla í Vesturbæ. Tengja starfsfólk framhaldsskóla hverfisins. Ljúka skal deginum með balli. Uppsprettan er þörf á öflugra samstarfi á milli starfsmanna skólakerfisins í Vesturbæ. Hópur á Skólaþingi Vesturbæjar var sammála um að uppspretta nýrra verkefna er oftast í gegnum persónuleg tengsl. Þar með er komin þörf á að kynnast starfsfólki í öllum skólum.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Með því að brjóta upp kennslustundir með aukinni hreyfingu og leik erum við að fara út fyrir þægindahringinn á jákvæðan máta. Efla á sama tíma hreyfingu í almennri kennslu, auka örvun en umfram allt að byggja á hvatningu.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Framkvæmdin gæti verið t.d. með könnun á meðal nemenda um hvað og hvernig þau sjálf vilja læra. Kanna sérstaklega með hug nemenda til útikennslu, verklegt nám, tungumál, eflingu sjálfsaga.
Þannig gerum við nemendur ennþá virkari í sínu námi. -- Vegna þess að þau áttu þátt í að móta það.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Að taka listamann í fóstur. Árgangur/bekkur/skóli velji í sameiningu listfag. Í framhaldinu taki árgangur/bekkur/skóli listamann í fóstur í skilgreindan tíma. Verkefni unnin út frá listfaginu, skipulagðar heimsóknir listamannsins í skólann, rafræn samskipti nemenda við hann. Markmiðið sé að kynnast starfsháttum og aðstæðum listamanna, kveikja áhuga barna og opna nýjar víddir. Börn heimsæki einnig aðsetur listamanna.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Best practice kennsluhátta í reykvískum skólum (árangursríkustu aðferðunum miðlað til fleiri) – til að gera tjáningu að rauðum þræði allra námsgreina. Að nemendur öðlist færni í að rökstyðja sitt mál og samnemendur leggi jafnt og þétt mat á það á uppbyggilegan hátt. Dæmi: ,,Þrjár stjörnur – ein ósk”, í Hamraskóla. Símenntun kennara er hér lykilþáttur.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Að móta barna- og fjölskyldustefnu fyrir Vesturbæ bætir ánægju og innsýn allra þeirra sem eiga hlut að máli.
Skólaþing Vesturbæjar í október 2011 var fyrsta skrefið og þessi úrvinnsla mikilvæg. Íbúar Vesturbæingar taki þátt í ákvarðanatöku um að koma málum í framkvæmd eða hvað gert verður frekar við niðurstöðurnar, hvenær þær verða endurskoðaðar o.s.frv.. Þjónustumiðstöð hverfisins Vesturgarður taki ábyrgð á niðurstöðunum og utanumhaldinu (sbr: http://www.betrireykjavik.is/issues/skolathing )
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Tengsl skóla og atvinnulífs eflir mikið þekkingu til nema, þar sem atvinnulífið er oftast með púlsinn á þeim nýjungum sem skipta miklu máli. Allir skólar setji sér markmið um að kynna fyrir nemendum fjölbreytt störf. Leitað verði eftir hugmyndum barnanna sjálfra um hvaða geirum/sviðum atvinnulífsins þau vilja kynnast. Heimsóknir í fyrirtæki, fyrirtæki kynni starfsemi sína í skólum.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Fara meira með nemendur út fyrir kennslustofuna. Allt frá stuttum vettvangsferðum út í náttúruna, heimsóknir í fyrirtæki og eins að nemendahópar fái tækifæri til að skipta við aðra nemendur og læra í skólum úti á landi. Markmiðið er að auka fjölbreytni og víðsýni í menntun og virkja fleiri í menntun barnanna.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Stuðla að sjálfbæru, vistvænu hverfi sem tekur mið af lýðheilsumarkmiðum. Setja gangandi og hjólandi í forgang. Skoða skólamörk með tilliti til fjölda og samgangna – og um leið öryggis. Bæta hjólastíga á milli skóla og íþróttasvæðis KR. Virkja foreldra og börn í að fegra umhverfið í sjálfboðavinnu yfir sumartímann (Hvað get ég gert?). Markmiðið er sjálfbært, öruggt og umhverfisvænt hverfi – skipulagt með þátttöku íbúa.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Mjúkt undirlag á hluta skólalóða. Markmiðið er að auka hreyfing í öruggara umhverfi.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Stöðugt að endurmeta aðferðir við að kenna gamlar greinar.
Beitt verði nýjum aðferðum við að kenna gamlar greinar.
Er t.d. hægt að nota tónlist til að kenna stærðfræði? O.s.frv.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|