Íþróttir rök

Klifurfélag Reykjavíkur hefur rekið Klifurhúsið undanfarin 10 ár og rutt brautina fyrir klifuríþróttina á Íslandi. Aðsókn hefur að sjálfsögðu vaxið með hverju árinu en húsið ekki, svo félagið hefur neyðst til að takmarka aðgang öryggisins vegna og gæti þurft að gera enn frekar, sem heftir og skerðir þjónustu. Með stærra húsnæði gæti félagið vaxið áfram og stutt við klifuríþróttina sem er fyrir alla, ásamt því að bjóða uppá bestu æfingarstöðu innanhús í grjótglímu og línuklifri. Heyr Heyr !
104 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Rannsóknir sýna að umhyggja, aðhald og eftirlit foreldra er einn mikilvægasti þátturinn í að börn velji heilbrigðan lífsstíl. Samverustundir foreldra og barna eru ennfremur mjög mikilvægar. Klifur er íþrótt sem opnar fyrir þátttöku allrar fjölskyldunnar, hlið við hlið. Allir geta klifrað hlið við hlið, mismunandi erfiðar leiðir, eftir getu hverju sinni. Frábært tækifæri fyrir fjölskyldur til að upplifa skemmtilegar og heilsusamlegar stundir saman.
28 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Við iðkun klifurs geta ungir, gamlir, færir og byrjendur; - stelpur og strákar, klifrað hlið við hlið. Við iðkunina þurfa klifurfélagar að treysta á hvorn annan með tryggingar og leiðbeiningar. Við þetta skapast öflugt félagslegt umhverfi þar sem ríkir mikið traust og velvild milli iðkenda. Iðkendur keppa við sjálfan sig í stað hvor við annan. Íþróttin gengur út á að þjálfa upp getu þar sem ríkir jafnvægi milli þyngdar, styrks og liðleika og höfðar hún þess vegna til breiðs hóps iðkenda.
27 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Hefðbundnar íþróttir eins og handbolti, fótbolti, körfubolti o.fl. njóta styrkja og velvilja opinberra aðila, m.a. í mannvirkjagerð. Þær íþróttir henta ekki öllum en margir hafa fundið sig í klifri. Það er ákveðinn skortur á jafnræði meðal þegnanna ef valið á góðum kostum til heilsuræktar og tómstundastarfa er takmarkað með slíkum hætti.
23 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Klifurhúsið þarf nýtt húsnæði til þess að geta annað allri aukningunni sem hefur verið í klifri síðustu ár.
21 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Klifur er frábæ afþreying sem ræktar jafnframt líkama og sál. Þetta er mikil erfiðis íþrótt en heldur fólki samt sem áður áhugasömu og uppteknu. Málið er einfaldlega þannig að húsið er orðið of lítið fyrir þessa ört vaxandi aðsókn í húsið. Þegar orðið er þröngt í húsinu eykst mikið hættan á slysum þar sem fólk einfaldlega fylgist ekki nógu grant með öðrum klifrurum og geta þá farið undir ef klifrarinn dettur. Þó er ekki mikið um svona slys en með opnara umhverfi er auðveldara að sjá klifrarana.
18 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Einn af fyrstu strandblaksvöllunum landsins var við Vesturbæjarlaug, það var grasvöllur. Strandblak er ört vaxandi íþrótt á Íslandi, og er að verða ein stærsta sjónvarpsíþróttin á heimsvísu. Hér á landi eru keppnisvellirnir orðnir 31 á 16 stöðum á landinu. Einungis þrír keppnisvellir eru í allri Reykjavík nánar tiltekið í Grafarvogi. Á sumrin eru þeir vellir svo vel sóttir að færri komast að en vilja. Því væri gaman að fá keppnisvöll í Vesturbæinn og auka þannig íþrótta- og mannlíf í hverfinu.
17 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Hegningarhússið við Skólavörðustíg er úrelt sem fangelsi og hefur verið á undanþágu hjá heilbrigðisyfirvöldum lengi. Nú er rætt um að leysa þurfi fangelsisplássavandann og reisa nýtt fangelsi. Þá þarf væntanlega að finna nýja nýtingu á þessu húsi. Og ekki verður það rifið. Og ekki verður útliti þess breytt á nokkurn hátt. Því ekki að hafa eins mikið mannlíf þar og við getum? Eitthvað jákvætt. Sem þjappar okkur saman. Og gerir okkur hraustari.
9 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Mikilvægt er að geta boðið upp á inni- sem og útisund við Sundhöllina. Sundstaðir stuðla að hreyfingu og velferð allra aldurshópa og laða einnig að ferðamenn, innlenda sem og erlendra. Auk þess myndi framkvæmd sem þessi vera atvinnuskapandi fyrir arkitekta, verkfræðinga, iðnaðamenn og fleiri. Áhugasamir geta skoðað Facebook-síðu Torfusamtakanna og tölvuteiknaða mynd af útisundlaug Sundhallarinnar.
8 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Í kringum tankana er malbikaður hringur sem hallar innávið, á einum stað í hringnum eru tröppur. Það sem þyrfti að gera að að leggja gólf úr krossvið og byggja þak.
6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Helsti munurinn á íþróttum og trúarbrögðum er að íþróttirnar styrkja lýðheilsu, og þá sérstaklega lýðheilsu og félagsvitund barna. Vissulega er það svo að stærstu félögin myndu lifa góðu lífi án styrks frá borg og ríki þá er það ljóst að minni íþróttafélög ættu erfitt uppdráttar. Borgin greiðir fyrir félagsstarf ungmenna, að félagsmiðstöðvum, skátum og íþróttafélögum undanskyldum, hvað eiga krakkarnir að gera? Í stuttu: Þetta snýst ekki um áhugasvið heldur lýðheilsu ungmenna og annarra.
7 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
Yngstu iðkendur Fylkis í knattspyrnu hafa sl ár stundað sumaræfingar á grassvæðum við Hraunbæ þar sem umferð bifreiða er talsverð. Til að komast að svæðinu fyrir gangandi þarf að fara yfir umferðargötuna. Mörg börn eru keyrð á æfingar með tilheyrandi umferð. Með því að búa til afgirt grassvæði á Brennuhól ( þar sem Fylkisbrennan var áður ) verður hægt að skipuleggja æfingar barna á frá fjögurra ára aldri í öruggu umhverfi og við höfuðstöðvar Fylkis, ýmist á gervigrasvellinum eða Brennuhól.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Áhugi fyrir strandblaki er sífellt að aukast og eru allt of fáir strandblakvellir í boði í Reykjavík. Aðeins 1 í Nauthólsvík og 2 Gufunesi. Þessir vellir anna engan veginn eftirspurninni sem komin er. Fylkir hefur verið með blakdeild í 20 ár og er mikið búið að reyna að fá setta niður strandblakvelli fyrir blakdeildina við Fylkishöll eða Árbæjarlaugina en það strandar alltaf á borginni. Pressum á að fá upp strandblakvelli fyrir næsta sumar!
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Hlaupabrautin á Laugardalsvelli er lokuð almenningi og því ekki aðgengileg til hlaupaæfinga. Það væri gott að hafa hlaupabraut sem er opin almenningi enda verða hlaup vinsælli með ári hverju.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
alltof mörg kerfi eru í gangi, það hlýtur að vera einfaldara fyrir marga að geta verið með eitt kort og farið í hvaða sundlau sem er.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Níu skólar stunda skólasund í höllinni. Sundhöll Reykjavíkur er í raun löngu sprungin, skólarnir virðast ekki geta uppfyllt kennsluskyldu í sundi eins og málum er háttað.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
ég sé fótbolltavelli útum allt, en samt er ekki fjármagn og vilji til að setja upp snjóframleiðslu í bláfjöllum, uppbyggingu á öðrum íþróttum t.d hjólreiðar, litbollti, hjólabretti osfr.Fólk sem notar hjólabretti, hjól, hlaupahjól hefur vantar almennilegan hjólabrettagarð í langan tíma, alltaf er sett upp eitthvað smávegis en skilboðin eru skýr.Þeir vilja 1 stórt og almennilega gert frekar en öll þessi litlu reyna að sega að það sé búið að snúast nó í kringum fótbolta og tími til að hugsa um aðr
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Aðstaðan í klfurihúsinu í dag er frábær en er löngu búin að sprengja utan af sér. Áhuginn á klifri hefur stóraukist. Það geta allir stundað klifur óháð aldri og kyni því er þetta almennings íþrótt sem klárlega þarf að hlúa að.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það að geta farið í sund, stundað potta og gufu án þess að borga uppsprengt verð eru mannréttindi okkar Íslendinga. Ódýrt sund hefur sjarma og er eitt síðasta vígið sem gerir okkur sérstök í þessu landi. Sameinumst um að halda sundverðinu niðri!
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Fylkir verður að geta spilað heimaleiki á eigin knattspyrnuvelli
5 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
Vantar góða sundlaug í miðbæinn
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Íþróttir fyrir æsku þessa lands er besta forvörn og best fyrirbyggjandi heilsugæsla sem hægt er að styðja og er þannig fjárfesting í æsku og framtíð. Þá er ég að vísa tl íþróttastarfs 18 ára og yngri. Ríkistjórnin á að sjá um afreksíþróttir eða félögin á eigin vegum. Ekkert tómstundastarf fyrir eldri en 18 ára á að styðja , hvort íþróttir , menningu eða listir, fullorðið fólk getur borgað sínar tómstundir sjálft.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það sem vantar til að gera Laugardalslaug að enn betri laug er alvöru nudd í pottana. Það er aðeins 1 pottur með nuddi og það er allur gangur á því hvort það virki eða ekki. Það væri frábært að fá svona Vatns-fossanudd (eins og þekkist í Kópavoginum) og ætti ekki að vera mikið mál. Það mætti líka laga nuddið í pottinum sem er inni. Krafan er betra nudd hvar sem því er hægt að koma fyrir í Laugardalslaug sem er mest sótta laug landsins.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Rugby er spiluð í yfir 100 löndum go er 4-5 vinsælasta hópíþrótt í heimi. Hér á landi eru þeir sem stunda þessa íþrótt heftir við það að fá lánaða fótboltavelli. Skortur á rugby velli gerir það einnig að verkum að erfitt er að bjóða erlendum liðum til þess að keppa hér á landi við viðunnandi aðstæður. Rugby er íþrótt sem fyllir uppí það gat sem er á boltaíþróttum hér á landi og stuðlar að fjölbreyttari íþróttamenningu.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það er búið að griða af og loka stórum hlutum Laugardals. Stöndum vörð um grænu opnu svæðin í borginni og forðumst að loka þeim af fyrir t.d. golfvelli eða annarri aðstöðu sem væri seldur aðgangur að.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Ég er í körfubolta í Íþróttasal Austurbæjarskóla tvisvar í viku. Í þessari viku verður lokað til næsta hausts þrátt fyrir að þeir sem leigja salinn vilji áfram leigja salinn og húsvörður vilji starfa yfir sumartímann. Allir sem leigja salinn borga úr eigin vasa án styrkja frá borginni og skv mínum upplýsingum salurinn rekinn með hagnaði og annar framboð ekki eftirspurn. Semsagt: Borgin hagnast fjárhagslega á valfrjálsri hreyfingu borgara og skapar nokkur störf í leiðinni. WinWinWin?
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
eins mætti einfaldlega opna laugardagsvöll fyrir almenningi þegar ekki eru æfingar/leikir.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Þetta er skemmtileg hugmynd, sérstaklega í ljósi offituvandamáls á Íslandi. Það á heldur enginn að þurfa missa af neinu vegna peningaskorts. Með þessu værum við að hvetja fólk til hreyfingar og útiveru. Eini gallinn er að það væri kannski dýrt að útfæra þetta, - ætti að vera tölvukerfi sem fylgist með kennitölum þeirra sem hafa farið í sund? Kannski væri sniðugt að menn gætu nálgast klippikort hjá borginni með 12 skiptum, merkt mánuðunum ( jan - feb o.s.frv.)
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
það vantar hestahverfi og sumarhaga fyrir hestafolkið á kjalarnesi
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Mér finnst Sundhöllin öll orðin frekar sjúskuð og næstum sóðaleg. Nuddið í heitu pottunum virkar ekki, kalt í búningsklefum og sturtum ásamt því að sturturnar sjálfar eru lélegar. Tröppur upp á sólþak sóðalegar og sólþak kvenna með grænu sjúskuðu plastteppi, vatnsgufa ógeðsleg. Tími til kominn að endurbæta almennilega en ekki bara einhverjar reddingar. Þessi sundlaug virðist sitja á hakanum hjá Reykjavíkurborg.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.