|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Guðmundur Heinrich
- 4 mánuðir síðan
Hvernig ætlarðu að tryggja að strætisvagn komi á réttum tíma þegar venjulegir bílar komast ekki leiða sinna? (vegna umferðartafa eða færð). Eftir að gps kerfið kom í þá, og núna er hægt að sjá þá á rauntíma á netinu, er vandamálið með að þeir komi of snemma orðið nær hverfandi. |
|
|
|
|
Bjarni Jens Kristinsson
- 4 mánuðir síðan
Sæll Helgi. Með gjaldfrjálsum strætó þarf ekki endilega að fylgja minni peningur í reksturinn. Mín lausn er að hækka útsvar/skatta sem myndi ekki bara spara pening í rekstrinum (Strætó bs. þyrfti ekki að eyða pening í að prenta miða eða borga manninum sem skoðar hvort maður sé með gilt kort o.s.frv.) heldur líka deila kostnaðinum "betur" á þjóðfélagið (þ.e. kostnaðurinn myndi lenda meir á þeim sem eiga meiri pening og minna á þeim sem eiga minni pening). |
|
sunna
- 4 mánuðir síðan
mýrarholtshlíð eða holtamýrarhlíð? |
|
|
|
|
|
|
|
Bjarni Jens Kristinsson
- 7 mánuðir síðan
Ég er höfundur tillögunnar og ég nota strætó daglega. Ég vil að strætókerfið sé rekið með skattpeningum (útsvari á höfuðborginni) og er búinn að færa margs konar rök fyrir því. Ég hvet þig til að lesa rökin í umræðunum. Ég lít ekki svo mikið á strætó sem 'þjónustu' heldur sem sjálfsagt samgöngukerfi rekið af því opinbera (og því í minni eigu).
|
|
Sveinn Thorarensen
- 4 mánuðir síðan
Vil baeta vid ad undafarin misseri hefur gjaldid haekkad og ferdum faekkad. Sú thjónusta meikar ekki mikid sense fyrir mig. Áfram Bjarni ! |
|
|
|
|
Ingibjörg Stefánsdóttir
- 6 mánuðir síðan
Þetta er alveg sjálfsagt mál. Skil ekki af hverju þetta hefur ekki verið gert fyrir löngu. |
|
|
|
|
Bjarni Rúnar Einarsson
- 6 mánuðir síðan
Einföld breyting sem kostar lítið! |
|
|
|
|
Bjarni Jens Kristinsson
- 6 mánuðir síðan
Látum Reykjavíkurborg taka málið fyrir! |
|
|
|
|
Guðlaugur Kr. Jörundsson
- 6 mánuðir síðan
Það þarf að kanna hvort ávinningur hefur orðið af þessari breytingu, og hvort ekki væri ávinningur í því að breyta leið 4 þannig að hún gangi upp í Hólahringina og sleppi því að keyra þennan stóra hring. Og hvort leiðir 12 og 17 eigi ekki að fara upp í Álftahóla. (enda stór brekka sem aldraðir íbúar hólahverfis þurfa að ganga upp frá stoppistöðvum 12 og 17) Varðandi strætóleiðir almennt þá eiga hverfisvagnar að fara sem víðast og með sem sneggstum hætti um hverfin og fara styðstu leið út á næstu stóru skiptistöð við aðalbrautir. Þar á að vera hægt að komast á mikillar biðar í vagn sem fer með fljótum hætti, án þess að fara inn í hverfi, á milli stórra skiptistöðva. Að auki er sanngjarnt ef hverfisvagnar keyri hring um hverfið, frekar en að fara beina leið á endastöð og snúa við nákvæmlega sömu leið. Keyri vagninn í hring þá jafnast meira vegalengdin sem farþegar þurfa að sitja. Margir eru þá snöggir heim en lengur út úr hverfinu, og öfugt. En eins og t.d. leið 4 er núna þarf fólk í Fellahverfi að ferðast mun lengri leið innan hverfis en íbúar Hólahverfis, báðar leiðir. Þá má alveg breyta nafni leiðar 4 úr Berg/Fell í Hólar/Fell. (já og leið 4 mætti alveg fara beint niður í bæ og sleppa kópavoginum, líkt og leiðir 112 og 13 gerðu á sínum tíma) |
@Gunni: Nei, þetta er ekki "aðgengilegt".
1) API-inn er hvergi skjalaður af strætó. Það að hann sé "opinn út á vefinn" þ.e. ekki lokað fyrir aðgang, þýðir ekki að hver sem er megi nota hann. Þetta þarf að vera skjalfest og staðfest af Strætó bs. til að geta talist opinn og aðgengilegur API.
2) Eins og þú bendir á í bögg listanum þínum vantar haug af upplýsingum í þessi gögn. T.d. einkvæm númer á vagna, staðsetningu biðskýla og leiðakerfið.
Þetta er langt frá því að vera eins og það ætti að vera. En eins og Einar bendir á koma vonandi fréttir af málinu í vikulokin. Ég hlakka til að heyra hvað verður opnað "almennilega" þá.