|
|
Það er óþarfi að hafa ókeypis í strætó. Strætó er þegar ódýr valkostur og ódýrari en í flestum öðrum borgum. Mér finnst sanngjarnt að fólk greiði hóflegt verð fyrir þessa þjónustu. Hins vegar er strætó ekki nógu notendavænn því ferðir eru stjálar og ómögulegt að borga fyrir far nema að maður hafi skipulagt það fyrirfram með því að kaupa kort, miða eða með nákvæma upphæð í vasanum. Að bæta úr því er liggur forgangsatriðið að mínu mati
26 aðilum fannst þetta gagnlegt, 3 fannst það ekki.
|
|
Í vinnslu
Auglýsa leiðakerfið inn í strætisvögnum
Það væri gagnlegt ef inni í vögnum væru útprentanir sem sýndu leiðarkerfið, svipað því sem tíðkast í almenningssamgöngum margra helstu nágrannaríkja okkar, bæði leið viðkomandi vagns og yfirlitsmynd leiðakerfis. Eins og er, er engin leið til að fá svar við því hvar vagn stoppar eða hvar hægt er að skipta um vagn eftir að maður er lagður af stað, nema trufla vagnstjórann. Kostnaður er hverfandi: efnið er allt til, það þarf bara að prenta út og hengja upp.
Uppruni: http://www.straeto.is/leidakerfi/
16 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Í vinnslu
Auglýsa leiðakerfið inn í strætisvögnum
Spurningin kom upp utan Betri Reykjavík hvort ekki væri gaman að leysa þetta með Android smáforriti eða annarri tæknilausn. Ég tel það að setja upp merkingar í vögnunum vera bæði ódýrari og betri lausn, þar sem hún gagnast strax öllum sem nota strætó, og sérstaklega ferðamönnum, þeim sem nota strætó ekki á hverjum degi og þeim sem ekki eiga snjallsíma. Ég nota skilti af þessu tagi mjög mikið þegar ég ferðast í erlendum stórborgum.
13 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Það eru GPS tæki og fjarskiptabúnaður í öllum strætisvögnum núna. Það er búið að smíða demó forrit sem sýnir staðsetningu allra vagnanna á korti, uppfært á nokkurra sekúndna fresti. Það þyrfti mjög lítið til að gera þetta aðgengilegt almenningi, eina sem þarf er ákvörðun um það frá stjórnendum strætó.
13 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Í vinnslu
Fleiri greiðslumöguleikar í Strætó
Útfærsla á áskriftarkortum Strætó gæti verið á þann veg að fólk kaupi kort eins og nú er eða kort sem hafa að geyma fyrirfram ákveðinn fjölda ferða. Slík kort væri svo hægt að fylla á með skafkortum, í heimabanka o.s.frv. Þarf ekki að vera dýrt í framkvæmd. Enn fremur væri um leið hægt að gera það að verkum að hægt væri að greiða með örgjörvagreiðslukortum fyrir stakt fargjald.
15 aðilum fannst þetta gagnlegt, 3 fannst það ekki.
|
|
Ég leyfi mér að giska á að höfundar tillögunnar noti sjaldan strætó. Það er mín reynsla að þeir sem nota strætó reglulega vilja frekar borga og eiga heimtingu á þjónustunni sem viðskiptavinir en ekki þjónustuþegi.
Styð hins vegar aukna tíðni og lengri þjónustutíma, það munar um það.
11 aðilum fannst þetta gagnlegt, 2 fannst það ekki.
|
|
Ókeypis í strætó og tíðari ferðir eru tvær mismunandi hugmyndir. Það ætti að setja þetta í tvö mál en ekki eitt.
Ég persónulega vil ekki hafa ókeypis í strætó. Strætó er mjög ódýr og mín reynsla segir að fólk ber ekki virðingu fyrir því sem er ókeypis.
Tíðari ferðar er aftur a móti ágæt hugmynd. En það ætti að fara varlega í þær breytingar.
10 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
|
|
|
Sýnt hefur verið fram á hagræði þess að gera upplýsingar um almenningssamgöngur(Strætó t.d.) aðgengilegar opinberlega. Það getur aðstoðað mjög við nýsköpun á lausnum sem snúa að upplýsingagjöf til viðskiptavina.
Þar sem þetta er gert, þarf fyrirtækið sem sér um samgöngurnar jafnvel ekki að þróa hugbúnað til að birta staðsetningu og tíma fyrir ökutæki.
Áhugasamir taka það því í sýnar hendur, að búa til forrit til að auðvelda öðrum viðskitpavinum að sjá ferðir Strætó. http://bit.ly/iBiCeG
Uppruni: http://bit.ly/iBiCeG
10 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
|
|
|
Í vinnslu
Fleiri greiðslumöguleikar í Strætó
Vá hvað það væri auðvelt hoppa í strætó ef að á helstu stoppistöðum (ss. Lækjartorgi ofl.) væru sjálfsafgreiðslukassar þar sem maður gæti stungið greiðslukortinu sínu inn og keypt sér miða á meðan maður bíður eftir vagninum. Þetta yrði þá ekki ólíkt því að leggja á bílastæðum eins og á Kolaportsplaninu þar sem maður er enga stund að greiða með korti fyrir stæðið sitt.
Þá þarf maður ekki lengur að ferðast sérstaklega í a) hraðbanka og b) búð fyrir skiptimynt, áður en áætlað er að taka strætó!
7 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Mikilvægt að jafnvægi sé milli almenningssamgangna, einkabíla, gangandi og hjólandi því ójafnvægi leiðir yfirleitt til kollsteypu. Um leið mikilvægt að greitt sé sanngjarnt gjald fyrir alla þjónustu. Ókeypis strætó er ekki ókeypis því kostnaðurinn er falinn í skattgreiðslum. Ókeypis kallar yfirleitt á sóun. Ókeypis er tákn um að þjónustan er ómerkileg, einskis virði. Hvers vegna ætli einkabíllinn sé jafn vinsæll og raun ber vitni þrátt fyrir mikla skattpíningu? Jú, verð miðað við gæði er lægst.
8 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
|
|
|
Í vinnslu
Fleiri greiðslumöguleikar í Strætó
Yfirvöld Strætó hafa nú í áratugi unnið markvist að því að fækka notendum Strætó eins og unnt er. Sett mjög öflugar hindranir á að fólk geti keypt þjónustuna, ekki sé hægt að kaupa miða í vagni, ekki hægt að fá þar greitt til baka við staðgreiðlsu og engin greiðslukort tekin gild. — Ímyndið ykkur aðra sem vildu selja vöru og gerðu það á viðlíka skilmálum — ekki nokkur maður skipti við slíkan aðila — yrði að kaupa afsláttarmiða á einum stað, ekki greitt til baka við staðgr. og engin kort gild.
Uppruni: http://www.facebook.com/helgijh
8 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
|
|
Afgreitt
Ókeypis í strætó og tíðari ferðir
Það hafa verið gerðar tilraunir með þetta á Akureyri og í Reykjanesbæ með mjög góðum árangri. Auðvitað skilar þetta sér í að fleiri fara í strætó, einföld hagfræði segir okkur það. Með því að fá fleiri til þess að nota almenningssamgöngur er hægt að spara sér kostnað við mikil umferðarmannvirki og koma í veg fyrir að borgin verði öll sundurskorin af umferðarmannvirkjum eins og t.d. Houston í Texas. Sjá: http://www.mbl.is/frettir/innlent/2009/07/24/150_prosent_fjolgun_farthega_straeto_a_akureyri
7 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
|
|
|
Stór hluti kostnaðar við að reka strætókerfið er að rukka inn fargjaldið. Það væri einfaldast fyrir farþega að geta bara farið inn í strætó og þurfa ekki að rífast við vagnstjórann hvort sett var næg upphæð í kassann, hvort viðkomandi fái séns því kortið rann út daginn áður og svo framvegis. Það væri líklegra til að draga fólk að.
6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Í vinnslu
Fleiri greiðslumöguleikar í Strætó
Notandi greiðir fyrir ferðina með SMS eða símtali, fær sent MMS með strikamerki sem vagnstjóri les.
Notandi greiðir fyrir ferðina í gegnum snjallsíma-app
10 aðilum fannst þetta gagnlegt, 4 fannst það ekki.
|
|
|
Mikilvægt væri að geta séð tímaáætlun sem sýnir líka hvenær leiðir koma á öðrum stöðum en þar sem maður er staddur.
Ef ég er ekki notandi leiðarinnar almennt - verð ég að geta séð auðveldlega hvaða vagn ég ætti að taka til að koma tímanlega ... ekki allt of snemma og ekki of seint - og þannig nýtast ferðir og tími betur!
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Borgarstjórn Edinborgar opnaði þetta og til varð frítt open source app fyrir Android. Sjá link.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Þetta er frábær hugmynd, ég hef einmitt nýlega haft þessa hugmynd og var að velta fyrir mér að hafa samband við strætó um að framkvæma þetta. Ég gæti meirasegja boðið mig fram til að forrita svona API sem forritarar gætu svo notað og búið til eitthver frábær apps eða eitthvað álíka.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Mér finnst að það ætti að stofna opinn hóp áhugasamra borgara sem fengi allar upplýsingar um hvaða upplýsingar séu fáanlegar. T.d. hversu oft hver strætó sendi staðsetningar upplýsingar? Síðan finnst mér að hver sem er ætti að hafa aðgang að "hráum" upplýsingunum. Það gefur möguleika á að t.d. krakkar geti búið til sniðug og skemmtileg forrit sem nota upplýsingarnar með óvæntum hætti.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Þar sem strætó er ókeypis er hann vondur. Þar sem strætó er góður kostar þjónustan. Stakur miði í köben á RVK-HFJ vegalend mundi kosta 1000 kr. staðgreiddur. Ég vil frekar hafa kerfið eins og í köben og láta það kosta eins og í köben fremur en að hafa það eins og á Akureyri, og jafnlélegt og á Akureyri.
6 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
|
|
Í vinnslu
Auglýsa leiðakerfið inn í strætisvögnum
Ég er sammála því að það myndi hjálpa mikið ef leiðarkerfi væri hengt upp á vegg í strætó. Þegar farið er með nýjum leiðum sem maður þekkir ekki er gott að geta fylgst með því hvaða leið strætó keyrir og þá veit maður líka betur hvenær maður á að fara út. Þetta myndi líka auðvelda öllum þeim ferðamönnum sem nýta sér strætó að "rata" með strætó.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Afgreitt
Ókeypis í strætó og tíðari ferðir
Höfum eitt á hreinu: Strætó er umhverfisvænni og ódýrari í rekstri heldur en einkabíll. Því ætti það að vera samfélaginu til góðs að almenningur noti samgöngukerfi borgarinnar sem mest.
Til þess þarf að breyta tveimur hlutum.
1) Strætó þarf að vera ókeypis.
2) Ferðirnar þurfa að vera tíðari og leiðirnar fleiri.
Frekari rök eru að finna í umræðunni sem tengd er þessum rökum.
9 aðilum fannst þetta gagnlegt, 5 fannst það ekki.
|
|
Við myndum hvort sem er þurfa borga fyrir ókeypis ferðarnar af skattpeningum okkar
5 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
|
|
Afgreitt
Ókeypis í strætó og tíðari ferðir
Ég er mjög sammála síðasta ræðumanni um að gera strætóinn ókeypis og sjá hvernig það skilar svo. Við getum tekið reykjanesbæ til fyrirmyndar varðandi að þeir eru með ókeypis vagna sem ganga mjög svipað og strætóinn. Með þessu getum við sévonandi lækkanir á umferðaslisum innanbæjr,
en á móti myndi ég vera sáttur að borga eitthvað láværu verð að ferðast á milli strætósvæða td. frá selfoss í bæinn.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
|
|
|
Það þarf að bæta strætó þjónustu í Grafarholtinu. Á virkum kvöldum, laugardagsmorgnum og -kvöldum og alla sunnudaga gengur leið 18 einungis á klukkutíma fresti. Það þarf að fjölga þessum ferðum þannig að hálftími líði á milli. Einnig þarf strætó að byrja að ganga fyrr á sunnudagsmorgnum, ég hef oftar en ekki þurft að sleppa vinnu eða guðþjónustu á sunnudögum vegna þess að strætó er ekki byrjaður að ganga. Einnig þarf að virkja leið 5 á kvöldin og um helgar aftur!
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Ég styð þetta. Ég held að vandamálið liggi í skipulagningu sumra leiða. Þegar ákveðnar leiðir eru alltaf seinar (t.d. leið 12 og 15) hlýtur það að liggja í tímatöflunni en ekki hjá bílstjórunum eða aðstæðum s.s. að lenda oft á rauðu ljósi eða umferð. Kannski er þeim ekki gefinn rúmur tími fyrir bílstjórana að fylgja eftir. Það þarf að leggjast í endurskipulagningu nokkurra leiða og athuga hvort aðrir þættir eru að spila inní.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Í vinnslu
Fleiri greiðslumöguleikar í Strætó
Það á að vera hægt að koma með 500.- eða 1000.- kr seðla í strætó og fá til baka. Ef maður ætlar í strætó og á ekki klink þá ertu bara því miður í vondum málum. Það er frekar slæmt!
4 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
|
|
|
Það geta fáir treyst á strætókerfið út af því að þeir koma oft allt of seint eða snemma. þetta myndi auka notkun á strætó töluvert mikið.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Í vinnslu
Fleiri greiðslumöguleikar í Strætó
Mér er tjáð af tæknifróðu fólki að möguleikinn á greiðslukortamóttöku sé til staðar, að það sé lítið mál að bæta honum við núverandi tækjabúnað og reyndar bara tímaspursmál. En það kemur í ljós.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
|
|
Í Ártúnsbrekku er oft umferðarstífla sem kemur í veg fyrir að vagnar haldi áætlun. Með því að framlengja forgangsakrein á Miklubraut að minnsta kosti upp í Ártúnsbrekku yrðu vagnarnir fýsilegri kostur en einkabílarnir. Jafnframt mætti huga að breyttu leiðakerfi, fjölga leiðum úr hverfunum sem gengju þá í Ártún og aftur til baka í hverfin. Í Ártúni tækju tæku við vagnar í vestur og þá væri einnig unnt að fjölga ferðum þaðan.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Afgreitt
Ókeypis í strætó og tíðari ferðir
Thetta er búid ad virka á Akureyri í nokkur ár + Ókeypis í stodumaela - Why ?
Mér finnst alveg thess virdi ad gera tilraun med thetta. Veit ekki med tídari ferdir hinsvegar. En svona ad ollu gamni sleppt thá er ekki eins og thad sé val um adrar almenningssamgongur og finnst mér alveg fáránlega dýrt ordid í straetó.
Benefits eru augljós í mínum huga. Minni umferd + mengun o.s.frv.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|