|
|
|
|
|
|
|
Lilja Sigrún Jónsdóttir
- 6 mánuðir síðan
Veðurfar í Reykjavík er oft þannig að frost helst ekki lengi í senn. Hins vegar tel ég að landslagsarkitektar mættu víða horfa til þess að gera lítil torg í hverfum þannig að hægt sé að búa til svell þegar þannig viðrar. Þetta er algengt víða erlendis og ekki flókið í framkvæmd, ytri rammi, aðgengi að stýringu á niðurfalli og vatni sem við eigum sem betur fer nóg af. |
|
|
|
|
Guðmundur Arngrímsson
- 7 mánuðir síðan
Mér finnst það góð hugmynd að setja upp skautasvell á Ingólfstorgi, það var gert á sínum tíma og mæltist vel fyrir. Ég held að það sé betra að setja upp skautasvell á hluta torgsins, til dæmis syðri hluta þess. Í þetta þarf þó töluverðan búnað sem er nokkuð dýr og dýr í rekstri. Ég mæli þó sterklega með þessari hugmynd.
|
|
|
|
|
Sverrir Bollason
- 7 mánuðir síðan
Mér finnst Laugavegurinn bara standa nokkuð vel undir nafni sem verslunargata, nærri öll verslunarpláss eru í notkun. Þokkalegur hluti þeirra búða höfða fyrst og fremst til túrista. Ef eitthvað er finnst manni nóg um.
Laugavegurinn þarf ekkert að gerast miðja verslunar fyrir ferðamenn, hann er það. Hins vegar ætti miðborgin að fagna hlutverki sínu sem miðstöð hönnunar og viðskipta með íslenska hönnun t.d. með því að fá Hönnunarsafn Íslands á svæðið.
Það má hins vegar gera ýmislegt til að halda uppi stemningunni kringum jólin og aðrar hátíðir með skreytingum, viðburðum og ýmsu sem gleður.
|
|
Viktor Hrafn Gudmundsson
- 7 mánuðir síðan
En það eru svo mikill peningur sem verslunarmenn og Íslendingar fara á mis við með því að hafa ekki jafn öfluga verslun í miðbænum og finnst í verslanamiðstöðunum.
Þetta þyrfti ekki að vera verslun einungis fyrir túrista, heldur líka fyrir Íslendinga. Túrista myndu hins vegar skapa meiri viðskipti í þeim, og hjálpa þeim þannig að keppa við Kringluna og Smáralind. Þetta myndi gera Laugarveg að mun sterkari verslunarkjarna, ekki ósvipað og fyrir u.þ.b. 20 árum, áður en Kringlan kom til sögunnar.
|
|
|
|
|
Vorvindar
- 7 mánuðir síðan
Hvernig er það kæru ábúendur ... það eru ótrúlega margir á móti en lítið um rökstuðning! Þeir sem eru á móti endilega segið þeim sem eru með af hverju! Þannig skapast umræður sem færa okkur nær niðurstöðu. Að kjósa bara eins og flokkurinn eða Jói vinur og Sigga vinkona er ekki nógu sterkt! Ef við við erum ekki viss er betra fyrir okkur að sleppa því að hafa skoðun á hugmyndinni!
|
|
|
|
|
|
|
|
Hallgrímur Eggert Vébjörnsson
- 7 mánuðir síðan
Ágætis hugmynd en álitamál hvort borgin eigi að gera þetta. Held að samtök ferðaþjónustuaðila og verslunar væru ákjósanlegir til að setja eh svona uppá og þá vonandi þannig að menning, listir, landafræði o.fl. myndi njóta sín í ratleiknum en ekki bara kaupa kaupa:)
|
|
Ingibjörg Stefánsdóttir
- 7 mánuðir síðan
Góð athugasemd Hallgrímur. Á Borgundarhólmi held ég að þetta hafi verið samstarf sveitarfélagsins og ferðaþjónustuaðila, líklega með einhverjum styrk frá danska ríkinu. Þetta er dæmigert verkefni sem þarf að vinna í samstarfi margra aðila. Þar gæti borgin átt frumkvæði.
|
|
|
|
|
Þórgnýr Thoroddsen
- 7 mánuðir síðan
Hahaha! Prýðilegt!
|
|
Þórgnýr Thoroddsen
- 7 mánuðir síðan
Þvert á móti, borginokkar og Höfuðborgarstofa standa fyrir ýmsu til að skerpa á ímynd borgarinnar og auka flæði ferðamanna. Þetta gæti alveg verið hluti af þesskonar.
|
|
|
|
|
Viktor Hrafn Gudmundsson
- 7 mánuðir síðan
En hver er munurinn á verslun með túrista og Íslendinga í huga? Við erum nú þegar með þessar túristabúðir niðri á Laugarvegi. Verslunarrekstur sem beinist að Íslendingum virkar greinilega ekki sem skildi í miðbænum. Því ekki að nota túrista sem markhóp og leyfa síðan Íslendingum að njóta góðs af? Yrðu þetta hvort eð er ekki svipaðar búðir og eru nú þegar í Kringlunni og Smáralind? Hver yrði munurinn?
|
|
Viktor Hrafn Gudmundsson
- 7 mánuðir síðan
Vegna þess að þarf samstillt markaðsátak til að endurvekja Laugarveginn sem verslunargötu. Ef markhópurinn er einungis Íslendingar, eins og hann hefur að mestu leiti verið hingað til, þá er ekki eftir miklu að slæðast þar sem það er mikil samkeppni fólgin í Kringlunni og Smáralind. Eins og má sjá er Laugarvegurinn ekki aðlaðandi verslunargata í dag. Ef það næst að gera Laugarveginn að aðlandi götu fyrir túrista til að versla á, þá munu allir njóta góðs af. Íslendingar eru að fara á mis við gífurlegt magn gjaldeyristekna vegna tækifæra sem þeir nýta sér ekki í verslun.
|
|
|
|
|
Baldur Magnússon
- 7 mánuðir síðan
Erlendir ferðamenn þekkja vel til svona gatna, setjum einfaldar lokanir á gatnamótin. t.d rafknúna polla sem hægt er að setja upp og niður
|
|
Viktor Hrafn Gudmundsson
- 7 mánuðir síðan
Það gefur auga leið að túristar eru ekki að fara í Kringluna og Smáralind að neinu ráði til að versla. Maður sér það bara þegar maður verslar þar sjálfur, ekki mikið um túrista, enda er erfitt fyrir túristana að komast upp í þessar verslanamiðstöðvar. Hins vegar er auðséð að það er mjög mikið um túrista í miðborginni. Því er mun líklegra að þeir versli þar, þeir eru einfaldlega flestallir þar.
Það er tvennt sem þarf að gera til að bæta umhverfi fyrir verslun í miðborginni. Í fyrsta lagi þarf að hreinsa upp borgina, það er of mikið af ljótum görðum og húsum í niðurníðslu. Það væri fínt að byrja á Laugarveginum.
Í öðru lagi þyrfti að skoða þann möguleika að breyta Laugarveginum í göngugötu. Ná upp svipuðum fíling og á Strikinu í Kaupmannahöfn, þar er btw skítkalt stóran hluta ársins, engu að síður kjósa mjög margir að versla þar, þrátt fyrir möguleika á að versla í verslanamiðstöðum.
Það þarf einfaldlea að ná upp ákveðnum sjarma, og það er ekki gert með bílaröð niður Laugarveginn. Verslunareigendur þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að sú röð hverfi. Flestallir sem í henni eru, eru ekki þar til að versla, enda er illmögulegt að fá stæði á Laugarveginum sjálfum.
http://img1.eyefetch.com/p/5l/420122-32dc2858-ae06-4fe0-bdf3-5041b64d9057.jpg
|
Leiðrétti stafsettningu. Það heitir Laugavegur ekki LaugaRvegur.