Umræður um Samgöngur
Ef þú vilt taka þátt, vinsamlegast gerstu áskrifandi. Aðild er ókeypis og þú getur líka tengst í gegnum Facebook.

Eiríkur Sigurðsson - 3 dagar síðan

Auka öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda

FHS setti inn upplýsingar á Undirgöng undir eða göngubrú yfir Bústaðaveg. 3 dagar síðan 1 Athugasemd
FHS - 3 dagar síðan

á mótum Tunguvegs og Bústaðavegar - og síðan á mótum Réttarholtsvegar og Bústaðavegar. Og lengja tímann á gangbrautarljósunum við Grímsbæ.

Eiríkur Sigurðsson - 5 dagar síðan

Mjög mikilvægt öryggismál!

Eiríkur Sigurðsson - 5 dagar síðan

Mjög mikilvægt öryggismál!

Sigurður Jónas Eggertsson - 6 dagar síðan

Auka öryggi barna í umferðinni

Svavar Elliði Svavarsson setti inn upplýsingar á Sporvagnar eru fokdýrir. 12 dagar síðan 2 Athugasemds
Svavar Elliði Svavarsson - 12 dagar síðan

Þú ert ekki að skilja punktinn sem ég var að setja. Hægt er að framleiða sporvagna á Íslandi með átaki hjá vinnumálastofnun til dæmis og hægt er að setja þá saman á Íslandi þarf ekkert að vera gert í útlöndum og þá er kostnaðurinn mun minni, það gefur náttúrulega augað leið að flytja inn drasl í sporvagn kostar miklu meira en að búa til hann heima. Myndi líka auka atvinnu hér heima. Svo er strætó stundum stút fullur og við erum að tala um að það séu 4 strætóar að ganga á klukkutíma fresti af hverju ekki að hafa sporvagn, hann eyðir engu bensíni, og svo eru strætóar ekkert ódýrir í rekstri, eitt stykkti af strætó kostar 20 milljónir króna og það þarf að endurnýja þá og svo er bensín nokkuð dýrt á hann. Ég held það myndi borga sig að hafa sporvagn á fjölförnustu leiðunum.

Brynjolfur Johann Bjarnason - 8 dagar síðan

Já, en ég er bara þvert á móti þessu. Ef að það á að fara að búa til sporvagna, þá fylgir sá kostnaður að leggja teina fyrir þá og það gæti orðið dýrt. Svo er fólk orðið duglegra að nota strætó. Þannig að ég vil ekki að sporvagnar verði teknir hér í notkun.

Einar Örn Benediktsson - 7 mánuðir síðan
Það eru nú þegar komið GPS upplýsingakerfi í strætó, og nú í byrjun árs verður það komið í snjallsíma þannig að hægt verður að fá rauntíma á strætó. Síðan verða LED skilti sem gefa til kynna hvenær og hvaða strætó kemur næst.
Stefan Freyr Stefansson - 13 dagar síðan

@Gunni: Nei, þetta er ekki "aðgengilegt".

1) API-inn er hvergi skjalaður af strætó. Það að hann sé "opinn út á vefinn" þ.e. ekki lokað fyrir aðgang, þýðir ekki að hver sem er megi nota hann. Þetta þarf að vera skjalfest og staðfest af Strætó bs. til að geta talist opinn og aðgengilegur API.

2) Eins og þú bendir á í bögg listanum þínum vantar haug af upplýsingum í þessi gögn. T.d. einkvæm númer á vagna, staðsetningu biðskýla og leiðakerfið.

Þetta er langt frá því að vera eins og það ætti að vera. En eins og Einar bendir á koma vonandi fréttir af málinu í vikulokin. Ég hlakka til að heyra hvað verður opnað "almennilega" þá.

Sirrý setti inn upplýsingar á Aukin tíðni strætóferða 14 dagar síðan 1 Athugasemd
Sirrý - 14 dagar síðan

Strætó er kominn með einhvern stimpil á sig sem sísta leið til samgangna í borginni, það er einsog fólk vaði frekar eld og brennistein frekar en taka strætó því að það er búið að stimpla í fólk að það sé dýrt í strætó, leiðirnar séu langar og bílstjórarnir seú allir útlendingar sem ekki geta sagt til vegar fyrir ókunnuga, gamalt fólk veigrar sér við að fara í strætó af því ökumennirnir flýta sér of mikið að taka af stað, gamalt fólk nær ekki að setjast áður en rykkt er af stað, ég sjálf hef oft séð fólk detta og hrasa í strætó, svo vil ég fá næturstrætókerfið aftur, fólk getur ekki sótt fundi eða skemmtanir af ótta við að komast ekki leiðar sinnar á kvöldin með strætó, þetta er skammarlegt núna árið 2012

Óskar Guðlaugsson setti inn upplýsingar á Höggva að rótum vandans 20 dagar síðan 1 Athugasemd
Óskar Guðlaugsson - 20 dagar síðan

Þetta er eiginlega kjarni málsins. Ökumenn eru annars ekkert minna útsettir fyrir þessa mengun (hvaðan kemur loftið inn í bílana?), svo ekki sé minnst á íbúa við ákveðna vegakafla eins og Miklabraut við Hlíðar og Hringbraut í Vesturbæ. Mengun bílaumferðar er bara ein af mörgum mikilvægum ástæðum til að draga úr þessari umferð.