Samgöngur rök

Lega Ægisgötu er nokkuð falleg - frá Landakotskirkju niður að gömlu höfninni. Það er mikil synd að hraðakstur skuli vera stundaður á þessari götu og lítið sé um græna nálgun. Það væri mikil bót fyrir þetta gamla, fallega hverfi sem Gamli Vesturbærinn er ef gatan fengi andlitslyftingu og þá hugsanlega einstefnu með hjólreiðastíg um leið. Einnig er skortur á gangbrautum sem setur börn í hverfinu í stórhættu.
25 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
Það er óþarfi að hafa ókeypis í strætó. Strætó er þegar ódýr valkostur og ódýrari en í flestum öðrum borgum. Mér finnst sanngjarnt að fólk greiði hóflegt verð fyrir þessa þjónustu. Hins vegar er strætó ekki nógu notendavænn því ferðir eru stjálar og ómögulegt að borga fyrir far nema að maður hafi skipulagt það fyrirfram með því að kaupa kort, miða eða með nákvæma upphæð í vasanum. Að bæta úr því er liggur forgangsatriðið að mínu mati
26 aðilum fannst þetta gagnlegt, 3 fannst það ekki.
Í dag er Snorrabrautin eins og óskilgetið barn hraðbrautar og beinlínis lífshættuleg gangandi vegfarendum. Ástandið er óviðunandi sérstaklega vegna nálægðar við Norðurmýrina. Það þarf að upphugsa götuna alveg upp á nýtt. Í dag er ástandið þannig að það eru engar hraðahindranir, engin skilti sem gefa til kynna hámarkshraða ofl. í þeim dúr. Umferðaljósin 4 á stuttum kafla hægja ekki á hraðanum nema síður sé, gönguljósin eru enn of stutt! Það þarf að fækka akreinum, gera hjólastíga. Lífvænlegra!
23 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Þeir sem vinna á kvöldin, eiga ekki möguleika á að nýta sér þjónustu SVR þar sem vagnar hætta að ganga upp úr kl. 22.
19 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Í vinnslu Hjólagrindur
Með aukinni hjólaumferð þarf fleiri hjólagrindur á fjölfarna staði, t.d. í miðbæinn og við verslunarmiðstöðvar. Það eru t.d. fáir staðir í miðbænum til að skilja hjól eftir nema þá einna helst að læsa þeim við næsta ljósastaur.
19 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það er mikilvægt að breyta Hofsvallagötu, þannig að umferðin verði hægari, gatan verði öruggari og fólki líði betur á og við götuna. Bílar aka mjög hratt um þessa götu, sem þó sker bæði skóla og frístundahverfi. Tvö gönguljós eru á götunni, en á hverjum degi hlaupa krakkar yfir fjarri ljósunum. Við getum öll nýtt þessa götu saman, en til þess þurfa bílarnir að hægja á sér. Það gerum við best með nýrri hönnun, þar sem gróður, hjólastígar og falleg 'samrými' spila saman.
19 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
Gerið Hverfisgötuna að mannvænlegri götu. Hér er niðamyrkur og gangstéttir illa farnar. Vantar allan gróður og hlýtt umhverfi. Og hana nú!!!
17 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
Í dag er mjög erfitt að komast á hjóli frá Lækjartorgi upp á Hlemm. Ekki er hægt að fara upp Laugarveg og Hverfisgatan er í dag stórhættuleg fyrir hjólreiðafólk. Legg til að aðgengi gangandi og hjólreiðafólks verði bætt t.d. með hjólareiðastíg við Hverfisgötu.
17 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það væri gagnlegt ef inni í vögnum væru útprentanir sem sýndu leiðarkerfið, svipað því sem tíðkast í almenningssamgöngum margra helstu nágrannaríkja okkar, bæði leið viðkomandi vagns og yfirlitsmynd leiðakerfis. Eins og er, er engin leið til að fá svar við því hvar vagn stoppar eða hvar hægt er að skipta um vagn eftir að maður er lagður af stað, nema trufla vagnstjórann. Kostnaður er hverfandi: efnið er allt til, það þarf bara að prenta út og hengja upp.
16 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Ég horfði á 30 bíla keyra framhjá syni mínum á gatnamótum Flókagötu og Gunnarsbrautar, þar er engin sebrabraut og engin hraðahindrum, einungis niðurlækkuð gangstétt (sem ég veit ekki alveg hvað þýðir) og mér varð nóg um. Það þarf að aðlaga Snorrabrautina að þeirri þéttu byggð sem umlykur hana og setja hraðahindranir á Rauðarárstíg, Flókagötu og Gunnarsbraut og stöðvunarskylti á öll horn.
15 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Í vinnslu Hjólagrindur
Fleiri hjólagrindur væru skýr og góð skilaboð borgaryfirvalda til þeirra sem kjósa að nota reiðhjólið sem samgöngutæki. Hjólagrindur þurfa að vera við alla skóla og leikskóla og hjá öllum stofnunum borgarinnar. Einnig þyrfti að koma hjólagrindum fyrir í bílastæðahúsum borgarinnar.
14 aðilum fannst þetta gagnlegt.
TIl að auka vegferð hjólreiða sem eru einn öruggasti, ódýrasti og skilvirkasti ferðamáti í borgarlandslagi mætti setja hjólavísa () á allar götur þar sem hámarkshraði er 50 km eða lægri. Kostir: -Hjólreiðamenn upplifa sig velkomna í umferðinni -Ökumenn verða meðvitaðri um hjólreiðamenn -Fleiri myndu velja reiðhjólið sem samgögnumáta (umhverfisvænt, ódýrt og heilbrigt)
13 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Sérstaklega myndi muna um þennan tíma fyrir fólk í vaktavinnu. Það er nauðsynlegt svo fólk upplifi Strætó sem raunhæfan valkost. Ef maður þarf að kaupa bíl til að geta unnið er lítil ástæða til að nota hann þá ekki sem mest. Svo er miðstöð skemmtana og menningar í miðborginni þar sem strætósamgöngur eru einna bestar. Það ætti að vera sjálfsagt að fólk geti tekið strætó heim af tónleikum í Hörpu, úr leikhúsi eða kvikmyndahúsi, sérstaklega ef fólk er hvatt til að koma með öðrum leiðum.
13 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Spurningin kom upp utan Betri Reykjavík hvort ekki væri gaman að leysa þetta með Android smáforriti eða annarri tæknilausn. Ég tel það að setja upp merkingar í vögnunum vera bæði ódýrari og betri lausn, þar sem hún gagnast strax öllum sem nota strætó, og sérstaklega ferðamönnum, þeim sem nota strætó ekki á hverjum degi og þeim sem ekki eiga snjallsíma. Ég nota skilti af þessu tagi mjög mikið þegar ég ferðast í erlendum stórborgum.
13 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það eru GPS tæki og fjarskiptabúnaður í öllum strætisvögnum núna. Það er búið að smíða demó forrit sem sýnir staðsetningu allra vagnanna á korti, uppfært á nokkurra sekúndna fresti. Það þyrfti mjög lítið til að gera þetta aðgengilegt almenningi, eina sem þarf er ákvörðun um það frá stjórnendum strætó.
13 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Afgreitt Næturstrædóar
Nokkrar valdar strætóleiðir gangi allan sólarhringinn, t.d. S-leiðirnar, annað hvort alla daga eða þá bara um helgar. Eftir miðnætti myndi kosta aðeins meira í strætó heldur en vanalega, e.t.v. 500-700 kr farið. Þar sem þetta er ódýrara en að taka leigubíl myndi Reykjavíkurborg ábyggilega hagnast á þessu eins og íbúar höfuðborgarsvæðisins.
12 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Útfærsla á áskriftarkortum Strætó gæti verið á þann veg að fólk kaupi kort eins og nú er eða kort sem hafa að geyma fyrirfram ákveðinn fjölda ferða. Slík kort væri svo hægt að fylla á með skafkortum, í heimabanka o.s.frv. Þarf ekki að vera dýrt í framkvæmd. Enn fremur væri um leið hægt að gera það að verkum að hægt væri að greiða með örgjörvagreiðslukortum fyrir stakt fargjald.
15 aðilum fannst þetta gagnlegt, 3 fannst það ekki.
Sporvagnar eru nokkur hundruð ára samgönguhugmynd og tímaskekkja. Þeir eru óhentugir á alla vegu, og síðast en ekki síst fokdýrir. Sporvagn fer hægt yfir, ekki má breyta leiðakerfinu eftirá, né stækka það svo glatt, og ef vagn bilar eða óhapp verður á teinunum er allt stopp. Lagningarkostnaðurinn getur verið allt að 7.5 milljarðar (!) á km. Fyrir þá upphæð (aðeins 1 km) væri hægt að hafa ofurfyrirsætu í hverjum strætisvagni sem gæfi farþegum ókeypis að drekka franskt eðalkampavín -í áratugi.
13 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
Götur eru einstefnu vegna þess að þær eru ekki nógu breiðar fyrir bíla til að mætast. Reiðhjól geta vel mæst en samt er ólöglegt fyrir þau að fara í báðar áttir. Með skilti "Nema reiðhjól" undir bannmerkinu er búið að gera tvístefnu hjóla löglega og sýna um leið að hjólreiðar eru velkomnar í Reykjavík. Á vefsíðunni má sjá svona skilti í Frakklandi: https://picasaweb.google.com/103070871140047710631/20070915#5110402734576796562
11 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Börn úr Stekkjarhverfi þurfa að fara yfir Arnarbakka á leið sinni til Breiðholtsskóla en þar er umferð mikil og hröð, þrátt fyrir 30km hámarkshraða. Auk þess eru aðstæður við þá gangbraut sem þorri barnanna notar á leið til og frá skólanum ekki nógu góðar (gangbrautin næst Dvergabakka). Þar skyggja trjágróður og strætóskýli á útsýni bæði gangandi og akandi vegfarenda. Ég tel þetta mikilvægt mál, við þurfum að huga betur að öryggi barnanna okkar.
11 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Um Suðurlandsbraut fara um þónokkrir strætisvagnar og þar eru staðsett alls kyns fyrirtæki sem nær ómögulegt er að nálgast nema á bíl. Frá glæsibæ og niður að Engjateigi í átt að miðbæ, hægra megin götunnar, er hreinlega engin gangstétt og hinu megin er lítið annað en bílastæði og innkeyrslur. Grensásvegurinn er svipaður og setur maður sig þar í bráða hættu fótgangandi, svo ekki sé minnst á Skeifuna.
11 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Árlega sækja tugir þúsunda svæðið í Laugardal þar sem er Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn, Grasagarðurinn og Skautahöllin. Þá er á svæðinu mikill fjöldi iðkenda í ýmsum íþróttagreinum. Kvartað er undan því að bílar leggi ólöglega og fólk er hvatt til nota annan ferðamáta. Strætó stoppar á Suðurlandsbraut og það er erfitt að fara yfir þessa miklu umferðargötu með stóran hóp barna (t.d. leik- og grunnskólar). Það hlýtur að vera auðvelt í framkvæmd að setja stoppistöð þarna. Það er umhverfisvænt!
11 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
á móti Wi-Fi Strætó
Strætóferðir eru of strjálar, það er erfitt að greiða í strætó og finna staði þar sem hægt er að kaupa miða, tímatöflur eru ógagnsæar og kerfið allt óhagkvæmt eins og er. Það eru ótalmörg önnur málefni strætó sem eru meira aðkallandi en svona gæluverkefni. Fyrir utan að sífellt fleiri geta nýtt sér 3G tengingu, svo þegar röðin gæti komið að þessu máli verður hún væntanlega úrelt.
10 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það kemur vissulega fyrir að hjólreiðafólk tekur strætó en það er bæði óþægilegt að fara með hjól inn í strætó og enn fremur er hjólið yfirleitt mikið fyrir. Rýmið inní strætó er betur nýtt undir barnavagna. Með einföldum breytingum má hinsvegar setja hjólagrindur utan á strætisvagna. Ég sé t.d. fyrir mér að það myndi nægja að setja slíkar grindur á stofnleiðir og sleppa hverfisleiðum (enda geta hjólreiðamenn vel ferðast innan hverfis fyrir eigin afli..).
12 aðilum fannst þetta gagnlegt, 2 fannst það ekki.
Í dag einkennir það kerfi strætó að margir vagnar leggja af stað í einu frá tilteknum stöðum. Þetta er væntanlega gert til að fólk geti skipt um vagn án þess að bíða, en hefur þau undarlegu áhrif að meðalbiðtími, jafnvel á leiðum þar sem margir vagnar koma til greina, er óþarflega hár. Með því að auka tíðnina minnkar þörfin á samstillingu og hægt væri að jafna umferðina um tengipunktana. Meðalbiðtími gæti því lækkað mun meira heldur en einungis sem nemur fjölguninni.
10 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það er ekki skynsamlegt að fjárfesta í yfirbyggðum strætóstöðvum heldur nota frekar fjármagn sem færi í þannig framkvæmda að auka tíðni vagna. Þá þarf að bíða styttri tíma á stoppistöðvum. Almenningssamgöngur eiga að vera ódýrar og þá þarf rekstrarkostnaður að vera lágur og þá er ekki skynsamlegt að eyða í flottheit. Viðskiptavinirnir eru ekki tilbúnir að borga fyrir flottheitin heldur vilja tíðni á hagstæðu verði.
10 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það eru 121 hús í Stekkjunum sem hafa hag af þessum ljósum (amk. 3-400 manns) fyrir utan alla sem búa í Bökkunum og þurfa að komast í Fálkaborg eða njóta Elliðaársdalsins.
9 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Ég leyfi mér að giska á að höfundar tillögunnar noti sjaldan strætó. Það er mín reynsla að þeir sem nota strætó reglulega vilja frekar borga og eiga heimtingu á þjónustunni sem viðskiptavinir en ekki þjónustuþegi. Styð hins vegar aukna tíðni og lengri þjónustutíma, það munar um það.
11 aðilum fannst þetta gagnlegt, 2 fannst það ekki.
Það ætti að skoða aðgerðir strax, ekki biða eftir nýju skipulagi, sem er í vinnslu í borgarkerfinu. Í sumar voru ymis verkefni í gangi í miðborginni sem voru undir hatti sem kallaðist torg í biðstöðu. Ódyrar aðgerðir sem gerðu einmitt torgin lífvænlegri. Breytingar sem auðvelt var að snúa við. Að stilla gangbrautarljósin þannig að logi lengur ætti að vera nokkuð auðvelt. Þá mætti taka af nokkur bílastæði þar sem bílar birgja mönnum sýn við gangbrautum. Mögulega mála hjólareinar, hraðamælaskilti
9 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Ókeypis í strætó og tíðari ferðir eru tvær mismunandi hugmyndir. Það ætti að setja þetta í tvö mál en ekki eitt. Ég persónulega vil ekki hafa ókeypis í strætó. Strætó er mjög ódýr og mín reynsla segir að fólk ber ekki virðingu fyrir því sem er ókeypis. Tíðari ferðar er aftur a móti ágæt hugmynd. En það ætti að fara varlega í þær breytingar.
10 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.