Umferðaröryggi rök

Tíminn sem er núna, eitthvað um tíu sekúndur sýnist mér, er ekki nægur. Til að komast yfir þarf maður að hlaupa, ella er maður á rauðu ljósi þegar um helmingurinn er eftir af leiðinni. Maður kemst helst yfir ef maður er á reiðhjóli. Þetta er einföld breyting, myndi auka öryggi. Einnig mætti virkja gangbrautarhnappa. Þeir virðast ekki gera neitt. Mig grunar að þeir séu placebo buttons (sjá hér: http://tinyurl.com/m9hutg).
6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Við austurenda Hæðargarðs er bílum lagt beggja vegna götunar. Þetta er tenging Hæðargarðs við Réttarholtsveg þar sem mikið er um gangandi vegfarendur. Bílamergðin orsakar það að lítið útsýni er oft fyrir þann sem beygir inn á Réttarholdsveg til að sjá gangandi vegfarendur. Einnig er mjög erfitt fyrir tvo bíla að mætast í götunni þar sem bílum er svona lagt. Nóg pláss er í grasbala upp að heitaveitustokknum sem er notaður sem göngustígur til að búa til auka bílastæði. Það myndi stórbæta öryggi.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Frakkastígurinn er fjölfarinn af skólabörnum sem sækja Austurbæjarskóla. Þrátt fyrir þetta eru engar merkingar í götunum sem liggja upp að Austurbæjarskóla sem gefa ökumönnum til kynna að skólabörn séu á ferli. Hraðakstur á Frakkastíg er vandamál sem ógnar lífi barna sem ganga í skólann. Það vantar gangbraut og skilti sem sýnir skólabörn við Bergþórugötuna og Drekann - staðir sem krakkarnir fara flest yfir í og úr skólanum.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Biðstöð Strætó á Vesturlandsvegi við Viðarhöfða er stórhættuleg. Þar er engin gangstétt en umferð mikill og hröð. Farþegar þurfa að paufast upp og niður snarbratta brekku og eiga á hættu að velta í veg fyrir bíla sem koma frá Viðarhöfða. Neðan brekkunnar er ekki heldur gangstétt. Ökumenn sem koma undan brúnni geta ekki séð gangandi vegfarendur fyrr enn á síðustu stundu. Einfaldur stigi með góðu handriði og ljósastaur eða kastari væru til mikilla bóta meðan betri leiða er leitað.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Í mörgum löndum hef ég séð þar sem græna umferðarljósið blikkar 3-4 sinnum áður en gula ljósið kemur, svo þú veist hvort þú ert að fara að ná ljósinu eða ekki. Þetta er einkar mikilvægt fyrir vörubílstjóra og aðra á þungum tækjum, að vita svolítið fyrirfram hvort þeir er að fara að ná græna eða geta byrjað að bremsa rólega niður. Tæknilega breytingin á þessu ætti ekki að vera svo svakalega miða við ávinningin. Toppurinn væri þó að fá teljara sem telur í grænt og svo í rautt, eins og sjá má víða.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Sem íbúi við Reynisvatnsveg hef ég miklar áhyggjur af hraðakstri á veginum. Hámarkshraði á veginum er lögum samkvæmt 50 kílómetrar á klukkustund en hér bruna bílar framhjá á allt að rúmlega tvöföldum hámarkshraða. Sé litið til þess að mikið er um börn í hverfinu segir það sig alveg sjálft að þetta er stórhættulegt.
1 aðilum fannst þetta gagnlegt.

Hálfgerð blindhorn og hef margoft horft á að legið hefur við árekstri, því báðir ökumenn halda að þeirra sé rétturinn. Margt eldra fólk býr í húsunum þarna og engin umferðarmerki eru á þessum gatnamótum!!
1 aðilum fannst þetta gagnlegt.