|
|
|
|
|
|
|
|
Sigríður Ragnarsdóttir
- 7 mánuðir síðan
Ég sé að það eru allavega þrjár hugmyndir inná Betri Reykjavík þar sem verið er að biðja um hundasvæði/hundagerði í hverfum borgarinnar. Titill þessara hugmynda er misjafn s.s. Betri aðstöðu fyrir hundana á Geirsnefi og fleiri staði, Hundasvæði í Laugardalnum og svo þessi titill: Búa til útigerði fyrir hunda í Reykjavík.
Ég er náttúrulega búin að styðja þær allar en mér finnst þesi titill/hugmynd útskýra það sem er mest aðkallandi. Vona að þeir sem eru búnir að styðja hinar hugmyndirnar styðji þessa líka. Umræða um þessi mál hefur verið í gangi í hverfisráðum undanfarið og er sennilega uppá borðum hjá umhverfis- og skipulagsviði Reykjavíkur (eða einhverju öðru svið þar sem það á við) bráðum til samþykktar eða ekki. Það er þvi mikilvægt að þrýsta á þetta núna.
|
|
Gunnhildur
- 4 mánuðir síðan
Ánægjulegt að sjá allar þessar hugmyndir um bætta aðstöðu fyrir hunda og eigendur þeirra. Ég styð þær allar. Nú vona ég að borgaryfirvöld taki þetta til athugunar. Hjá umhverfissviðið RVK starfa nú tveir starfsmenn. „Hlutverk Hundaeftirlits Reykjavíkur er að fylgja eftir samþykkt um hundahald í Reykjavík. Hundaeftirlitið veitir leyfi til þeirra er uppfylla skilyrði til hundahalds í borginni, hefur eftirlit með hundahaldi og stuðlar að ábyrgu hundahaldi í Reykjavík. Markmið hundaeftirlitsins eru að bæta hundahald í Reykjavík með aukinni fræðslu til hundaeigenda og borgarbúa og að fækka óskráðum hundum í borginni.“ Það er m.a. stuðlað að ábyrgri hundaeign með því að bjóða afslátt af ársgjaldi fari fólk á hundanámskeið sem er mjög gott. En það að bjóða uppá fleiri útivistastaði þar sem hunda meiga ganga lausir er frumforsenda til þess að stuðla að ábyrgu hundahaldi. Það ætti ekki að þurfa að vera dýrt eða flókið í framkvæmd. Það þarf að sinna þessum málaflokki hjá borginni. Reglur um hundahald eins og þær eru núna eru að mörgu leiti úreltar. |
|
|
|
|
Freyja Kristinsdottir
- 4 mánuðir síðan
Lifum í sátt og samlyndi |
|
|
|
|
Freyja Kristinsdottir
- 5 mánuðir síðan
Biðjum um aukna þjónustu við hundaeigendur |
|
|
|
|
Birgir
- 5 mánuðir síðan
Höldum stígum m.a í lagi og án glerbrota!! |
|
|
|
|
Þorsteinn Magni Björnsson
- 5 mánuðir síðan
Stöðvum hættulegan hraðakstur |
|
|
|
|
Þorsteinn Magni Björnsson
- 5 mánuðir síðan
Umferðaröryggi í íbúðarhverfi |
|
|
|
|
lolo
- 6 mánuðir síðan
eiga þá að vera göng eða rör eða holræsi undir tunnunum fyrir sorpið með loftsogi eða færiböndum, eða á að skjóta því upp í loftið í þjöppuðum pokum og lenda í stóru neti á arnarhóli eða miðri tjörn |
|
|
|
|
Selma Þorvaldsdóttir
- 6 mánuðir síðan
Ég er að tala um endurskipulagningu á kerfinu eins og sjá má neðst í textanum en leiðarkerfið er glatað eins og það er og gæti ég farið í smáatriði hér inni ef því er að skipta og hef verið dugleg að skrifa inn athugasemdir til strætó. En þangað til þá væri hægt að byrja strax að bæta kerfið með því að halda inni tímaáætlunum sem til eru og hafa þær áætlanir eins og þær eru um miðjan daginn alla daga vikunnar þar sem margir vagnar ganga á 15 mínútna fresti þó ekki allir en margir ganga á 30 mín fresti sem auðvitað er mjög bagalegt eins og t.d. kópavogsvagnanna 28 og 35. Ef þetta yrði sett í gang þá þarf ekki að láta fólk bíða í óratíma eftir nýju skipulagi og svo hægt að fara í vinnu á endurskipulagi og gefa sér þann tíma sem þarf og biðja fólk að setja inn athugasemdir með tilliti til þess að fólk fái tækifæri til að vera með í vinnunni og svo hlusta á þessar tillögur því þeir sem taka strætó vita hvað þarf en ekki skrifstofufólkið sem sér um endurskipulagninguna og notar einkabílinn og kemur jafnvel aldrei uppí strætó. |
|
|
|
|
Selma Þorvaldsdóttir
- 6 mánuðir síðan
Varðar það ekki alla borgarbúa að Borgin bæti strætókerfið en það dregur úr einkabílanotkun og eykur því öryggi og fólk sem á ekki bíl gæti betur tekið þátt í því sem er í boði í tómstundum og öðru eftir áhugasviði hvers og eins. |
|
Hallur Hallsson
- 6 mánuðir síðan
Heyr Heyr. Öraris trætóferðir á álagstímum og láta strætó ganga lengur. Það kostar peninga en ef þetta er gert rétt þá taka fleiri strætóinn góða. |
Ég sá svona útigerði víða í Kaupmannahöfn í haust. Skemmtilegt að sjá borgaryfirvöld þar vinna með hundaeigendum og koma með lausnir í stað boða og banna. Þessi gerði þurfa alls ekki að vera stór og nóg er af ónýttu svæði sem gæti hentað vel fyrir svona gerði.
Geirsnef - Laugardalur og Klambratún. En hvað með hin hverfin ? Hvernig væri að þeir sem þekkja sitt hverfi, settu inn hugmynd að staðsetningu.
Nægilega nálægt til að skreppa út - samt nægilega langt frá byggð til að smábörn geti sofnað.
Það er ekki nóg að segja að þetta þrufi að gerast, það þarf líka að koma með hugmyndir.
Grafarvogur - hvað með styttugarðinn neðan við Strandveg ?
Í hlíðinni neðan við Húsahvefið, gegnt Vesturlandsvegi ?
Túnið milli Hallsvegar og Gylfaflatar ?