Vesturbær rök

Gróðurhúsið verður með svipuðu sniði og skólagarðarnir nema innandyra. Hver fær sinn reit til umráða og ræktar þar til eigin brúks matvæli og jurtir allt árið um kring eða þann tíma sem reiturinn er til leigu. Leigutímabilið er hálft ár í senn. Einungis verður hægt að rækta lífrænt í húsinu. Hitinn verður í kringum 20° svo hægt verður að rækta margskonar tegundir innan marka laganna þó. Notast verður við ljósaperur og affalsvatn úr hitaveituleiðslum borgarinnar.
25 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það er mikilvægt að breyta Hofsvallagötu, þannig að umferðin verði hægari, gatan verði öruggari og fólki líði betur á og við götuna. Bílar aka mjög hratt um þessa götu, sem þó sker bæði skóla og frístundahverfi. Tvö gönguljós eru á götunni, en á hverjum degi hlaupa krakkar yfir fjarri ljósunum. Við getum öll nýtt þessa götu saman, en til þess þurfa bílarnir að hægja á sér. Það gerum við best með nýrri hönnun, þar sem gróður, hjólastígar og falleg 'samrými' spila saman.
19 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
Einn af fyrstu strandblaksvöllunum landsins var við Vesturbæjarlaug, það var grasvöllur. Strandblak er ört vaxandi íþrótt á Íslandi, og er að verða ein stærsta sjónvarpsíþróttin á heimsvísu. Hér á landi eru keppnisvellirnir orðnir 31 á 16 stöðum á landinu. Einungis þrír keppnisvellir eru í allri Reykjavík nánar tiltekið í Grafarvogi. Á sumrin eru þeir vellir svo vel sóttir að færri komast að en vilja. Því væri gaman að fá keppnisvöll í Vesturbæinn og auka þannig íþrótta- og mannlíf í hverfinu.
17 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Garðurinn við Vesturbæjarlaugina er lúmskt stór og synd að hann er ekki mikið nýttur. Í tengslum við eflingu Hofsvallagötu væri hægt að gera meira úr þessum garði til að efla þetta svæði sem miðpunkt Vesturbæjarins. Þarna væri hægt að koma fyrir púttvelli, tennisvelli, sparkvelli eða öðrum íþróttavöllum. Auk þess þarf ekki að kosta miklu til að gera þetta að "piknikk" garði Vesturbæinga, útbúa einfalda en skemmtilega aðstöðu til að borða nesti eftir góða sundferð.
16 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Gott aðgengi í fjöruna við Eiðisgranda myndi auðga líf Reykjavíkurbúa. Áður en að steinkanturinn kom var mjög gaman að fara í fjöruna en nú er bara hættulegt að klöngrast niður steinhleðsluna. Fjaran er mjög falleg og gaman er að geta gengið niður í fjöru. Ég sé fyrir mér að settur verði upp stálstigi utan á grjótgarðinn. Þessi fjara er algjör perla í Reykjavík og synd að hún skuli ekki vera nýtt meira til útivistar og skoðunar.
9 aðilum fannst þetta gagnlegt.
En að segja að þurfi bara að fjölga þeim, gerir strætó í raun óáhugaverðari kost. Því það gerir hann hægari og óþægilegri. Í raun þarf bara að endurskoða margar stoppustöðvar (hef ekið strætó, svo ég þekki allar leiðirnar). Og í Sumum hverfum eru alltof margar stoppustöðvar, þar sem tæki fólk 2 mínútur að labba á milli. En svo kemur fyrri að það eru ótrúlegar vegalengdir á milli stöðva. Svo það ætti að endurskoða allt kerfið, og þá staðsetningar stoppustöðva, með tilliti til allra hópa fólks.
9 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Bjóða hollari kost til sölu innan veggja skólans. Auka opnunartíma sjoppu innan skólans og velja inn í hana hollari vörur. Samstarf við hverfabúðir um hollustu
8 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Íbúar Skerjafjarðar þurfa að fá greiðari aðgang að Vesturbænum en þangað sækja þau skóla, íþróttir og tónlistarnám. Í dag þarf að taka 2 vagna til að komast út í KR. Þvíeru nánast öll börn sem búa í Skerjafirði keyrð til og frá KR sem eykur umferð umtalsvert um íbúahverfi. Ef leið 15 tæki þennan litla krók (inn í Skerjafjörð á leið sinni til og frá litla-Skerjafirði og þ.m.t. Vesturbæ) myndu íbúar Skerjafjarðar fá aðgengi að íþróttafélagi sínu, skólum, búð, apóteki, sundi, kirkju, Vesturgarði..
8 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
Milli garðanna á Sólvallagötu og Ásvallagötu (frá Hofsvallagötu að Bræðraborgarstíg) liggur stórskemmtilegur stígur sem er töluvert mikið notaður af fjölskyldunum sem búa þar. Hann er í algjörri niðurníslu og ekki bætti úr skák þegar ljósleiðari var lagður síðasta sumar og allur stígurinn grafinn upp. Í kjölfarið er hann eitt stórt drullusvað og sáralítið notaður fyrir vikið. Það þarf að hreinsa hann upp og setja nýja möl, jafnvel malbika.
6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Hugmyndin er að gefa öllum nemum tækifæri á að kenna sína uppáhaldsgrein. Jafnel "tossarnir" geta verið "dúxar" á sínu áhugasviði. Svona getur myndast jafnvægi og virðing á milli nema.
6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Reykjavíkurborg á ekki að stofna fyrirtæki og vera í samkeppni við einkaaðila. Þeir hafa því ekkert með það að gera að vera að stofna kaffihús eða nokkurn annan slíkan rekstur.
7 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
Það er engin leið að komast út að sjó alla leið frá Granda og út á Seltjarnarnes. Engin gangbraut, engin gangbrautarljós og oft mikil og hröð umferð og því erfitt að komast að mikið notaðri gönguleið meðfram sjónum. Nákvæmlega hvar ljósin yrðu sett er ekki aðalmálið en einhversstaðar á milli Boðagranda og Öldugranda. Sjá meðfylgjandi kort.
6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Frábær hugmynd, ónýtt auðlind í vesturbænum.
6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Í dag er Kaplaskjólsvegur norðan Hagamels botnlangi og lítið notaður. Á sama tíma vantar græn svæði í vesturbænum og því væri kjörið að taka upp malbikið og vera þarna með fallegan gróður, bekki og leiktæki. Svæðið er skjólgott og gæti vel nýst til útisvistar fyrir fólk úr hverfinu. Við suðurendann mætti gera fallegt torg sem gæti þá nýst viðskiptavinum ísbúðarinnar. Kostnaður við framkvæmd og viðhald kæmi líkast til út á sléttu á móti þeim sparnaði sem vinnst með því að hætta að viðhalda götunn
6 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
Hundaeign í borginni hefur meira en tvöfaldast síðustu 10 ár og ekkert lát virðist vera á þeirri fjölgun. Það er ekki hægt að loka augunum fyrir þessari staðreynd og hafa Reykjavík áfram eins hundaóvæna og hún er. Hundar þurfa hreyfingu og fá að leika við aðra hunda lausir. Margir hundaeigendur í Vesturbæ velja bíllausan lífsstíl og verða að geta sleppt hundinum í eigin hverfi. Öruggast er að gera það innan hundagerðis svo það ónáði ekki gangandi vegfarendur. Hvað með hundagerði á Ægissíðu??
6 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
Gönguljósin yfir Hringbraut við Vesturbæjarskóla eru það stutt að maður kemst ekki yfir á grænu ljósi nema hlaupandi eða á hjóli. Það getur reynst erfitt fyrir gamalt fólk og aðra sem geta ekki farið hratt yfir og stórhættulegt fyrir börn. Þessi ljós eru alveg við grunnskóla svo að það eru líklega mjög mörg börn á ferð og brýnt að úr þessu verði bætt sem fyrst.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Betri aðgangur gangandi og hjólandi yfir á Fiskislóð tengir íbúðahverfi vestast í Vesturbæ við þjónustu og verslanir á Fiskislóð og Hólmaslóð. Nú er frágangur hringtorgs þannig að gangandi fólk á í vanda með að komast yfir Mýrargötu og Ánanaust. Það léttir á umferðaræðum þarna ef hægt er að auka aðra umferð en bílaumferð, og meira líf færist yfir hverfið. Fyrst nærþjónustan vildi fara út á hafnarsvæðið og út að Örfirisey, er rétt að gangbrautirnar fylgi þangað líka.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Um langt skeið hafa framkvæmdir við lóð við enda Mýrargötu og Vesturgötu, þar sem þær mæta Ánanausti, legið niðri. Ef ekki er útséð um að þarna rísi neitt næstu þrjú árin, er rétt að ganga frá lóðinni á meðan svo hún sé ekki geymslusvæði fyrir verktaka, heldur geðfelldari fyrir íbúa á svæðinu. Á hverjum degi fara þarna fram hjá þúsundir bæjarbúa og Nesbúa, og skiptir máli að umhverfið sé þekkilegt.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Slippsvæðið þarf að lagfæra strax í vor og tyrfa auða malarsvæðið. Setja upp almenningsgarð með útimörkuðum, tónleikahaldi ofl. Næst má flytja gömul hús á slippsvæðið og reka þar veitingastaði, gallerí, kaffihús, söfn, markaði ofl. Síðar má flytja sögufræg hús frá Árbæjarsafninu sem geyma sögu okkar um sjómennsku og fiskveiðar. Markaður með ferskan fisk, kjöt og grænmeti hentar vel á þessu svæði. Gatan aftan við stóra Slipphúsið gæti verið göngugata sem tengir slippsvæðið við miðbæinn.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Ef hægt er að reiða sig á að þurfa ekki að bíða í meira enn 5-10 mín. eftir vagni munu freiri nota vagnana. Þetta mundi minnka bílaumferð í miðborginni og gefa hana aftur fótgangendum. Þetta mundi stuðla að gera miðborgina umhverfisvænni, fjölga göngugötum (undansk. strætó), og gera miðbæinn að umhverfissvæði fótgangenda, sem hefði jafnframmt jákvæð áhrif á íbúa, verslun og atvinnulíf. Til að íbúar úthverfa gætu notið góðs af, ætti að mynda ókeypis (neðanjarðar) bílahús við strætóendastöðvar.
Uppruni: http://Strætó
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Fyrirmyndin er sótt til Malmö í Svíþjóð þar sem vinsælt útivistarsvæði með "klifursveppum" og hjólabrettabrautum er hluti stærra frístundaverkefnis í svonefndum Stapelbäddsparken. Svæðið er opið alla daga ársins og allan ársins hring og myndi nýtast hér hvenær sem ekki er snjór á jörðu. Eins mætti hugsa sér að hluti garðsins yrði yfirbyggður e.t.v. með braggalagi! Leitarorð þar sem sjá má myndir: klättring, stapelbaddsparken, skateboard
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Mýrargatan milli Slippsins og Netagerðarinnar (vestan Ægisgötu) er furðuverk, með örmjórri gangstétt öðru megin. Það er nokkurn veginn ómögulegt fyrir fólk að komast leiðar sinnar gangandi eða hjólandi, og eins og þeir sem hafa farið þarna um geta vottað, þá flýtir þetta ekki fyrir akandi umferð heldur. Setja þarf eina vel afmarkaða akrein í hvora átt og nota plássið til að gera reitinn þægilegri til að komast í þjónustu og verslun. Þarna er mikil umferð ferðamanna og á eftir að aukast.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Því meira aðgengi sem fólk hefur að því að rækta eigin mat, því betra.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Jafnvægi milli hugar og líkama: T.d. 20 mín frjálslestur nokkrum sinnum í viku. Teygjur í tímum, Jóga, öndun, slökun.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Efling félagsauðsins: Hverfismiðstöðvar með skiptimörkuðum þar sem útigallar öðlast framhaldslíf, skiptibókamarkaður á sér heimili o.s.frv. Samnýta húsnæði skóla, frístundastarfs o.fl. Markmiðið er að efla félagsauðinn í hverfinu (social capital)
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Frístundasamgöngur með frístundastrætó eða rútur í KR og tónlistarskóla frá skólum og frístundaheimilum (fyrir allar íþróttir, ekki bara fótbolta). Markmið að auka öryggi barnanna í umferðinni og tryggja þátttöku þeirra yngstu í íþróttum og tómstundum.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Í frímínútum verða börn fyrir einelti, eða eru skilin útundan sökum þess að þau taka ekki þátt í vinsælasta og ráðandi leiknum svo sem fótbolta. Tillagan er að öll börn í bekk/árgangi komi með tillögu að leikjum sem svo róterast yfir mánuðinn, í stað þess að einn leikur sé ráðandi. Börnum getur verið skipt upp í minni hópa sem styður nánari tengsl nema og dregur úr hjarðstemningu. Kennari getur fylgst betur með félagsfærni nemanda og hjálpað við að beina þeim á rétta braut, með þáttöku sinni.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Eftir að ég flutti á Grandana 1983 fór ég iðulega með börnin að leika í fjörunni fyrir neðan Öldugranda, en eftir að grjótið kom hef ég bara tvisvar hætt mér með barnabörnin niður grjótið og þá töluvert vestar, nálægt hreinsunarstöðinni, sem bara er gerlegt um hásumar í þurru veðri. Væri ekki hægt að hlaða eða höggva til þrep og reka niður járnstaura og þræða í þá kaðal sem handrið?
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Sammála að Hofsvallagatan býður upp á skemmtilega möguleika þar sem hún er mjög breið og því nóg pláss til að gera hana skemmtilegri og öruggari. Tengt þessu mætti nýta háskólabyggingarnar við Hofsvallagötu til að styðja við þessa "miðju" vesturbæjarins, t.d. reyna að fá þangað tannlækna, hárgreiðslustofur og jafnvel kaffihús, a.m.k. á jarðhæðina. Einnig hægt að gera meira úr garðinum kringum vesturbæjarlaugina, gera þar tennisvöll, púttvöll eða langþráðan sparkvöll.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Þetta er nú bara hægt nú þegar held ég. Ég fækkaði um tvær tunnur hjá okkur og fékk tvær tunnur frá öðrum aðila. Held að það sé ekkert því til fyrirstöðu að þú getir fækkað tunnum niður í ekki neitt. Skoðaði bæði gamur.is og gamar.is og þótti gamar.is betri þar sem þeir bjóða upp á að taka við batterýum í sérstökum pokum. Annars var lítill munur á þeim.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.