|
|
|
|
|
|
|
Solla
- 18 dagar síðan
Það væri nú fínt ef borgin færi að huga betur að húsnæði fyrir fatlaða er búin að heyra sömu tugguna í mörg ár því miður engin þjónusta |
|
|
|
|
Sigrún Dóra
- 18 dagar síðan
Væri e.t.v. hægt að planta trjám neðst við Hverfisgötuna, Stjórnarráðsmegin, það gæti gefið skjól og grænna yfirbragð fyrir svæðið. Mætti e.t.v. fjarlægja upphækkuðu beðin við Lækjagötuna/Lækjatorg, þannig að það sjáist betur inn á torgið? Þá væri hægt að setja t.d. gosbrunn, eða listaverk (sem mætti klifra í) á torgið... |
|
|
|
|
FHS
- 22 dagar síðan
Þó ekki nema af félagslegum toga. Atvinnulausir, amk sumir, fara varla út úr húsi, finnst þeir ekkert gagn gera o.s.frv. Með svona dagskrá væri hægt að koma í veg fyrir að einhverjir einangrist, en þá þyrfti að vera skyldumæting amk klst á dag, ekki að setja það upp sem 8 klst á viku. |
|
|
|
|
witch123
- 27 dagar síðan
Útigangsfólk er líka fólk. Við megum aldrei gleyma því. |
|
|
|
|
emil
- 28 dagar síðan
Mér finnst nú það lykta af þrælahaldi að "láta" einhvern vinna.Þaðmætti segja gefa kost á að vinna. Það gæti hjálpað fólki að fá aðra vinnu. Einnig ætti
|
|
|
|
|
Arnaldur Máni
- u.þ.b. 1 mánuður síðan
Hér er um litlar fjárhæðir að ræða í tilviki húsaleigubóta (ca. 9.000kr á mánuði) en hægt er að lýsa vandanum sem skapast af lögunum um lögheimili barna i ítarlegra máli: Ég leyfi mér að búa til tvö dæmi þar sem munurinn á réttindum foreldra er gífurlegur, burtséð frá réttinum til að fá greiðslu barnabóta skipt jafnt. Dæmi A. Ef tveir einstaklingar eru í námi. Almenn námslán eru ca. 120.000 þúsund. Þegar einstaklingarnir geta ekki skipt forræði/lögheimili jafnt í samræmi við umgengni og skyldur fær annar einstaklingurinn framfærslulán í samræmi við að hafa 1 barn á framfæri (tala nú ekki um ef börnin væru fleiri) - en á þeim greiðslum munar ca. 50.000 krónum á mánuði. (Þar sem um lán er að ræða væri eðlilegast að báðir fengju greitt í samræmi ca.150 þús.kr í stað þess að a fái 173.000 en b 120 þús.) Ef við skoðum dæmi B af tveim öryrkjum og því sem snýr að borginni (ekki öryrkjagreiðslunum sjálfum) þá skulum við gefa okkur að báðir hafi þörf á að sækja um "sérstakar húsaleigubætur" vegna þess að húsnæðið miðast við að geta verið með börnin aðra hverja viku. Þegar umsókn a (með barn á lögheimili) væri afgreidd er tekið tillit til framfærslu barns og líkurnar á samþykkt umsóknar mjög miklar. Aðili b hefði barnið ekki skráð hjá sér - en þinglýstan samning um jafna umgengni og skyldur - en líkurnar á samþykkt umsóknar væru jafn litlar nema um annan sérstæðan vanda væri að ræða. Munurinn á venjulegum húsnæðisbótum og sérstökum er 50.000 kr. á mánuði.
|
|
|
|
|
Arnaldur Máni
- u.þ.b. 1 mánuður síðan
Börn eiga rétt á að eiga 2 einstæða foreldra! |
|
|
|
|
Jóna Jónsdóttir
- 3 mánuðir síðan
Þetta á að vera félagsstarf en ekki félafsstar |
|
|
|
|
Mynta
- 4 mánuðir síðan
Góð og falleg hugmynd. |
Gera Lækjartorg grænna og búa til meira skjól fyrst of fremst. Það er mjög oft hvasst í kringum Lækjartorg þannig að það þyrfti að bæta umhverfið þar með skjólveggjum eða trjám. Torgið er dautt og grátt eins og er og mjög óaðlaðandi - mætti bæta með gróðri. Mætti setja gosbrunn eins og í morgun stórborgum. Líst vel á fyrri hugmynd að gera skrautlegra og skreyta. Synd hvað Lækjartorg er illa nýtt og hálf dauður staður í miðborginni í núverandi mynd.
Góð hugmyndin um gosbrunn með landvæætunum - og nota tækifærið til að segja sögu þeirra.