|
|
|
Í vinnslu
Alvöru húsaleigukerfi í Reykjavík
Núverandi ástand á leigumarkaði er grafalvarlegt. Það er of dýrt að kaupa en það er ennþá dýrara að leigja. Margir íbúðaeigendur neyðast til að setja ofurprísa á leigu svo hún standi undir kostnaði. Aðrir leigusalar nýta sér ástandið og leggja himinn hátt á leiguverðið. Frjáls leigumarkaður hefur sýnt að hann gengur ekki upp. Nú þurfa sveitarfélög að stíga inn í og styðja við hálfopinbert leigukerfi þar sem leiga er á kostnaðarverði. Ég óska eftir umræðu. Ég óska eftir tillögum.
18 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
|
|
Í vinnslu
útiskýli fyrir útigangsmenn
Ég hef sent bréf til borgarstjóra um hugmynd af útiskýli fyrir útigangsmenn....upphitað skýli þar sem að aðgangur er að borðum, stólum, og klósetti. Skyli þar sem að útigangsmenn geta sitið á daginn þegar gistiskýlið er lokað. Skýli sem þeir geta sitið inni .
17 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Í vinnslu
Athvarf geðsjúkra, Vin verði opið ÁFRAM
Vin við Hverfisgötu hefur verið athvarf geðsjúkra í mörg ár. Rauði krossinn hyggst hætta rekstrinum og hvet ég borgina til að tryggja hann áfram. Í Vin koma daglega 25-30 manns og njóta aðhlynningar og félagsskapar - fólk kaupir sér mat og kaffi, teflir, málar, getur farið í sturtu eða í hvíldarherbergi. Starfsfólk er frábært og margir sem væru einir heima hjá sér fá þarna góðan félagsskap sem bætir geðheilsu. Það er ekki lausn að vísa fólkinu á elliheimili eins og einhverjir halda víst.
14 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Í vinnslu
Alvöru húsaleigukerfi í Reykjavík
Sammála hugmyndinni. Það er borgarstjórn líka. 2.11.2010 samþykkti hún tillögu meirihlustans um að gerð yrði húsnæðisstefna og þróað húsaleigukerfi í borginni. Nú er að athuga hversu langt sú vinna er komin og þrýsta á að þróun í átt til fjölbreyttara húsnæðiskerfis verði að veruleika.
12 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Í vinnslu
Athvarf geðsjúkra, Vin verði opið ÁFRAM
Ef vandinn við rekstur Vinjar er fólginn í því að Rauði Krossinn hafi ekki bolmagn til að reka það á þeim forsendum sem þegar er verið að gera, þá er brýnt að Borgin skoði möguleika á aðkomu fleiri aðila. Í Vin fer fram frábært starf og Hollvinasamtökin fyrsta skrefið í að tryggja áframhaldandi starf þar. Borgin þarf að tryggja að átak Vinafélagsins nýtist og ef nýtingin á húsnæðinu er talin ónóg þarf að þróa aukna starfsemi fyrir fleiri hópa frekar en að leggja niður hið góða starf í Vin!
7 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Afgreitt
Betri hjálp við mig geðveikan
Mjög lítil eftirfylgni er við fólk oft á tíðum sem fer út af geðdeild.
Því er boðið í viðtöl, en mjög auðvelt er að hafna þeim eða mæta ekki.
Fólk sem "útskrifast" vill oft á tíðum líta á sig sem heilbrigt eftir dvölina, eða þá að það vill fara í felur og það er auðvelt án þeirrar eftirfylgni sem þyrftir að vera.
10 til 15 þúsund krónu kostar að fara á stofu til sálfræðings eða geðlæknis.
Hefur sá hin sami og henti öllu sínu eða seldi það, fyrir sjálfsmorðtilraun efni á því?
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Kannski tengist Reykjavík ekki beint en má endilega vekja athygli á þessu. Lágmarkslaun á Íslandi eru 182 þús kr. samkvæmt VR og atvinnuleysisbætur eru 161.523 kr. því er óskiljanlegt að fæðingarstyrkur námsmanna sé einungis 113.000 kr. á mánuði. Það getur hver sem er séð að það er ansi óraunhæft að geta lifað á þessari fjárhæð miðað við hve dýrt það er að lifa í samfélaginu í dag. Hvernig væri að sýna í verki að okkur séð umhugað um þá sem eru að reyna mennta sig.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Í vinnslu
Athvarf geðsjúkra, Vin verði opið ÁFRAM
Það er nauðsynlegt að reka Vin áfram því að þangað koma margir sem þurfa að hafa fastan punkt í tilverunni og Vin er þeirra fasti punktur.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Ég veit um nokkra einstaklinga hér á höfuðborgarsvæðinu á aldrinum 17-25 ára sem búa á götunni. Meðferðir taka þessa einstaklinga oft ekki inn, geðdeild hafnar þeim og eini staðurinn sem þessir einstaklingar geta verið á er gistiskýlið og konukot. Það vanntar stuðning við þessa einstaklinga. Það vanntar lausn fyrir þá og það vanntar einhverskonar heimili eins og gistiskýlið en meira fyrir þeirra aldur
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Mikil þörf er á að efla vitund foreldra fyrir því sem er að gerast í Vesturbæ og til þess að auka samstarf og samskipti á milli veitenda tómstundatilboða, skóla, frístundaheimila og leikskóla.
Setjum upp Viðburðadagatal Vesturbæjar - á aðgengilegu formi og á óháðum stað þar sem allir geta haft aðstöðu að.
4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Barnafólk og fleiri þurfa hollar og ódýrar afþreyingar, ótrúlegt að sundlaugin í svona hverfi lokar kl. 18 um helgar. Nær að loka fyrr í miðri viku.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Vegna endurtekinna tilfella í borginni þar sem börn eru að stinga sig á sprautunálum þykir Litla forvarnarteyminu á Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts kominn tími á að Reykjavíkurborg setji upp svokallaða sprautunálabauka í hverfum borgarinnar. Þar geta sprautufíklar losað sig við notaðar sprautur á öruggan hátt í stað þess að henda þeim frá sér á t.d. leiksvæðum barna.
Þetta er afar brýnt verkefni þar sem öll viljum við búa börnunum okkar öruggt umhverfi þar sem þau eru að leik.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Leikhús, tónleikar og hvaðeina geta dregist á langinn, ömurlegt að þurfa alltaf að fara út fyrr......
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Nýlega auglýsti borgin eftir rekstraraðila til að reka Konukot: http://www.mbl.is/frettir/innlent/2011/10/25/auglyst_eftir_folki_til_ad_reka_konukot/. Konukot á að heyra undir velferðarsvið borgarinnar og jafnvel þó að Rauði krossinn sjái sér ekki fært um að útvega sjálfboðaliða til starfa þá ætti borgin að geta það með átaki eins og RK gerði um sjálfboðaliða. Konukot hefur fest sig í sessi fyrir konur sem eru án heimilis og eiga í fjölþættum vanda. Þetta á að heyra undir velferðarsvið.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Reykjarvíkurborg komi á fót ráðgjafa(stofu) í eineltismálum fyrir skóla og stofnanir borgarinnar þar sem foreldrar geta sótt sér aðstoð í að eiga við skóla og aðra málsaðila. Það er algjör tímasóun að hvert og eitt foreldri þurfi að finna upp hjólið í hvert skipti sem einelti kemur upp. Auk þess fengi borginn mun betri upplýsingar um umfang eineltis í skólum og þá fengist samræmd aðferð við að takast á einelti. Nú virðist þetta vera allt of mikið í höndum skólastjóra hvernig tekið er á málum.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Skrautlegt biðskýli - slöngu/stiga leikurinn á hellurnar - litaðar hellur ( blóm, eða mynstur ) - listaverk sem má klifra í - vegg sem má skreyta ( upp að gluggum á Héraðsdómshúsinu ) - skærlitaðir bekkir og borð - kort á/í borði sem vísar á áhugaverða staði í nágrenninu - gamlar myndir af svæðinu á Héraðasdómshúsinu -
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Í vinnslu
útiskýli fyrir útigangsmenn
Min hugmynd er að gera utiskyli sem er staðsett miðsvæðis, Skýli sem er með borðum, stólum, ruslatunnum, kamar og vel heitt þar inni. Skyli sem væri alltaf hægt að fara i þar að segja væri alltaf opið. Min hugmynd var að rauðakross bílinn myndi vera þar 2 i viku og læknir myndi fara þangað lika 2 i viku þa gætu utigangsmenn raðfært sig við lækni um heilsufarsvandamal.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Að móta barna- og fjölskyldustefnu fyrir Vesturbæ bætir ánægju og innsýn allra þeirra sem eiga hlut að máli.
Skólaþing Vesturbæjar í október 2011 var fyrsta skrefið og þessi úrvinnsla mikilvæg. Íbúar Vesturbæingar taki þátt í ákvarðanatöku um að koma málum í framkvæmd eða hvað gert verður frekar við niðurstöðurnar, hvenær þær verða endurskoðaðar o.s.frv.. Þjónustumiðstöð hverfisins Vesturgarður taki ábyrgð á niðurstöðunum og utanumhaldinu (sbr: http://www.betrireykjavik.is/issues/skolathing )
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Mannsæmandi aðbúnað fyrir útigangsfólk í formi skýla með fagfólki þar sem boðið er upp einn heitan málsverð á dag að lágmarki og opið er á daginn líka.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Ég er viss um að þessi hugmynd kemur að góðum notum í stórborgum líkt og London, sparar peninga og bjargar lífum. Hins vegar efast ég um að hún bæti nokkru við á Íslandi, þar sem viðbragðstími sjúkrabíla er stuttur og verkefnin tiltölulega fá sökum mannfæðar á Íslandi. Get ekki séð að það sé beinlínis þörf fyrir aukaapparat eins og þetta hér heima.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Það á að taka einelti fastari tökum á stofunum Reykjavikurborgar það á ekki að líðast að fullorðið fólk leggi annað fullorðið fólk í einelti sá er slíkt gerir er með mjög skerta sjálfsmynd það er ekki nóg að hafa stór orð það þarf að koma í veg fyrir svona lagað . Þetta er vaxandi vandamál og er dulið því þolendur þora oft ekki að stíga fram. Það þarf að framfylgja eineltisáætluninni sem er til en ekki að stinga henni undir stól.
Uppruni: http://Vinnueftirlitið.ir
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Fleiri möguleikar ættu að vera fyrir börn sem þurfa aðstoð gagnvart aðstæðum í skóla eða á heimili.
Barnaverndarnefnd, Félagsþjónustan, Umboðsmaður Barna, Sálfræðingar og Ráðgjafar eru ekki að standa sig. Vinur minn býr við slæmt heimilishald og hefur reynt að bjarga sér út úr því í gegnum allar þessar stofnanir, en fær aldrei nein svör! Honum líður illa og honum vantar aðstoð, líklega öðrum börnum líka! Þess vegna ætti að gera eitthvað í þessum málum og halda þessum stofnunum virkari. Þakkir.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
þar sem sparnaður kemur verulega niður á fötluðum ungmennum, sem að mörg hver ekki geta barist fyrir réttindum sínum sjálf, þykir mér að skoða mætti þá stórgóðu hugmynd að fá stuðningsfjölskyldur, þar sem að viðkomandi væri hjá ca. 1 helgi í mánuði. þarna er ég að tala um 18 ára og eldri sem að ekki fá nein úrræði. Það fer mikið fyrir brjóstið á mér þegar stjórinn hyggst gera borgina hundavænni, á sama tíma og fatlaðir einstaklingar sitja heima alla daga og fá engin úrræði.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Vísa í meðfylgjandi hreyfimynd.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Mér finnst byggt og byggt handa öldruðum en ekkert fyrir fatlaða..ég hef t.d beðið í 12 ár eftir góðri íbúð
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|
Það ætti að snúa frá þeirri vitleysu sem borginn er að gera með því að innleiða þetta sjálfbæra félagsstarf , hveju skilar það í sparnaði engu fólkið hættir að koma og koðnað niður heima hjá sér og bara fjárútlát til sjálfboðaliðana það er skömm hvernig borg og ríki fara með fólkið sem byggði upp fyrir okkur sem yngri erum svei
3 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
|
|
Það vantar algerlega varanlega viðveru Lögreglu í miðbæinn - stöðin við Hlemm er ekki einusinn með opið aðgengi að Lögreglunni allan sólahringinn (og fáránlegt að þurfa að hringja í 112 til að ná sambandi við lögregluna, og þurfa í sífellu að tvíútskýra tilefnið!)
Sú litla varðstöð sem var í Tollhúsinu var svosum ekki merkileg og gæti hafa verið betri - en lausnin var svo sannarlega ekki að FJARLÆGJA hana !
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Aukum aðgengi bauka í hverfin þannig að sá sem notar sprautur geti látið þær frá sér þannig að börnin í hverfinu séu ekki að taka þær upp og jafnvel stinga sig á þeim. Flestir sem nota sprautunálar vilja sýna ábyrgð.Sprautunálabauka í hverfin=Betri Reykjavík=Öruggari Reykjavík fyrir börnin okkar
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Félagsbústaðir hf er hlutafélag alfarið í eigu Rvk en starfar sem hf á frjálsum markaði gagnvart leigutökum. Til þess að fá úthlutað fél. húsnæði þarf velferðarsvið að ákveða um það skv. lögum um fél.húsnæði sveitarfélaga. Það er s.k. stjórnvaldsákvörðun. Um leið fél húsnæði er úthlutað er hann ekki lengur á vegum Rvk. Umboðsmaður alþingis sendi borginni fyrirspurn 31.12.08 og óskaði svars 9.2. 09 en það hefur enn ekki borist.http://www.umbodsmaduralthingis.is/ViewCase.aspx?Key=1267&skoda=mal
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Það eru gengi að ráðast á gangandi vegfarendur berja og stórslasa að tilefnislausu í miðbænum um helgar og ef árásirnar eru kærðar þá ertu sóttur heim og barinn þar. Það þarf að tryggja að lögreglan sé sýnileg til klukkan 3 eftir miðnætti og með varðstöð í Austurstræti. Lögreglan þarf fjármagn til að berjast gegn svona gengjum. Reykjavík er smáþorp og það hlýtur að vera viðráðanlegt að tryggja öryggi borgaranna.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|