Netfang

Lykilorð


Gleymt lykilorð
Illa farinn stígur í Vesturbæ

Illa farinn stígur í Vesturbæ

Milli garðanna á Sólvallagötu og Ásvallagötu (frá Hofsvallagötu að Bræðraborgarstíg) liggur stórskemmtilegur stígur sem er töluvert mikið notaður af fjölskyldunum sem búa þar. Hann er í algjörri niðurníslu og ekki bætti úr skák þegar ljósleiðari var lagður síðasta sumar og allur stígurinn grafinn upp. Í kjölfarið er hann eitt stórt drullusvað og sáralítið notaður fyrir vikið. Það þarf að hreinsa hann upp og setja nýja möl, jafnvel malbika.

Authors
Tinni Sveinsson 4s
1 endurskoðun/anir