icon
x

Rök

Á þessari síðu má finna rökstuðning með og á móti hugmyndum sem settar hafa verið á Betri Reykjavík, t.d. eftir því hvaða rök eru nýjust, hverjir eru höfundar þeirra svo og þín eigin rök. Endurskoðað birtir þær hugmyndir þar sem texta hefur verið breytt af notanda (textinn þá merktur með gulu).

  • Nýjustu rök
Ég sá í Kastljósi um daginn að verið væri að biðla til fólks að gefa ekki öndunum brauð í sumar því það kallar bara á fleiri máva sem éta andarungana. En þessi boðskapur hefur held ég ekki farið víða, ég heyri marga í kringum mig vera að leggja leið sína að tjörninni að gefa brauð. Hvernig væri að henda upp einhverri lítilli sætri mynd með þessum skilaboðum og láta hana ganga á Facebook og kannski nefna þetta öðru hvor í útvarpinu svo allir séu með á nótunum. Hjálpum ungunum að komast á legg:-)
1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Umferðarþungi er mikill um Bústaðaveg og öryggi barna og ungmenna sem sækja þurfa skóla, tómstundir og íþróttir með því að fara yfir Bústaðaveg yrði betur tryggt. Hentugust staðsetning væri líklega hjá verslunarmiðstöðinni Grímsbæ og t.d. við Bústaðakirkju.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Einu sinni var Blesugrófin og það hverfi e.k. „sveit í borg". Að leyfa t.d. hænur í takmörkuðu magni myndi auka fjölbreytnina í borgarlífinu. hægt að takmarka fjöldann sem hver væri með við t.d. 3–4 stk. Að hvetja t.d. íbúana til krydd- og matjurtaræktunar og moltugerðar væri skref í áttina að gera hverfið „vistvænt“. Smám saman yrði hverfið ákjósanlegur kostur fyrir fólk sem hefur áhuga á gróðri og sjálfbærni.
1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Náttúruminjasafnið er í kössum. Hvernig væri að það eignaðist samastað í fallegu húsi sem liti út fyrir að vera 100 ára gamalt ( ég treysti arkitektum til að teikna svoleiðis hús ) í hjarta bæjarins ? Þannig hús þurfti ekki að vera meira en 4 hæðir, torgið þyrfti ekki að minnka og væri jafnvel hægt að nýta sem útisýningarsvæði og Nasa gæti jafnvel verið þarna áfram.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Fólk sem býr í miðbænum þarf að búa við að migið sé á hús þeirra og það sama þurfa verslunareigendur að glíma við. Þó er vart við gerendur að sakast þegar salernisaðstaða almennings í miðbænum er bundin við 3 klósett sem falin eru innaní 5 metra háum ruslatunnum. Skemmtistaður ætlaður 80 manns fengi aldrei úthlutað leyfi með slíka salernisaðstöðu. Afhverju þykir þetta þá nóg fyrir miðbæ Reykjavíkur sem fær 600.000 ferðamenn í heimsókn á ári og tugir þúsunda Íslendinga skemmta sér í hverja helgi?
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Ef fólk er að hugsa um svifryk þá er lausninn að keyra minna og taka strætó. Svifreyk eykst með umferð, því er hægt að halda niðri með því að sópa götur og gangstéttir meira á veturna Það var mælt í einhverri borg á norðurlöndum hvort svifryk hefði minkað eftir að nagladekk voru bönnuð , það minkað aðeins enn ekkert sem um munaði. Það minkaði svifryk þegar var sópað. Reykjavíkurborg hefur státað sér af því að hafa minkað kostnað við gatnahreinsun á kostnað aukins svifryks, það er umhugsunarvert.
1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Fólk á bara að ganga betur um og svo á bara að kæra sóðana . Sektir við sóðaskap eiga að vera háar þannig að fólk hugsi sig um áður enn það hendir rusli. Það er alveg stór furðulegt að það þurfi að vera nokkur tæki á morgnana í miðborgini til að taka til eftir sóða næturnir á kostnað okkar skattgreiðenda. Ein aðferðinn gæti verið að handtaka sóðana og láta þá taka til í miðborgini eftir næturskemmtunnina , ætli mest sjarminn færi þá ekki af þeim.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Á að sjálfsögðu að að leyfa Gideon mönnum að dreifa Nýja testamentinu í skóla landsins. Þau börn sem vilja taka við bókini önnur ekki. Þessi undirlægju háttur að vilja ekki boða kristni í skólum er óskyljanlegur þar sem við búum í kristnu landi. Þeir foreldrar sem ekki vilja að börn sín séu í þeim tímum segja það og þá væri boðið uppá einhverja aðra kennslu. Þettað er bara fámennur minnihluta hópur sem við eigum að taka tilit til enn ekki láta beygja okkur til hlýðni.
1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Þá finnst mér algjör óþarfi að það verði gefið leyfi fyrir fleirri hundum með ástandið er eins bágborið og það er. Til dæmis er bannað að vera með hund á Laugaveginum og fleirri stöðum , enn samt eru hundaeigendur með hunda sýna þar stór sem sérstaklega þessi smá hunda. Meðan fólk getur ekki farið eftir þeim reglum sem gilda um hundahald er langbest að banna það.
1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Þar sem mikil og hröð umferð er um Bústaðaveginn er stórhættulegt að fara yfir hann. Það er alls ekki hægt að treysta því að ökumenn stoppi á rauðu gangbrautarljósi, frekar en annarsstaðar og ekki síst er börnum hverfisins bráð hætta búin, þar sem þau þurfa td. að komast á æfingar hjá hverfisfélaginu Víkingi. Einnig þurfa unglingar úr Fossvoginum að komast í Réttó. Það ætti að vera forgangsmál í þessu hverfi að bæta möguleika gangandi og hjólandi fólks til að komst örugglega þarna yfir,eða undir
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Hleðslutækin eru til. 3fasa rafmagn er í all flestum húsum á landinu, svo rafmagnskerfið er til staðar. það sem þarf eru innstungurnar í bílana. þau eru til, svo það sem orkuveitan þarf að gera er að kaupa þær í massavís, fá þau þannig á hagstæðu verði og selja á kostnaðarverði til notenda. í staðinn græðir orkuveitan á aukinni rafmagnsnotkun.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
þessi gatnamót með þeim verri á Íslandi eða í 15 til 18 sæti. Sjá tengil. Gatnamótin eru austu vestur Lyngháls með stöðvunarskyldu við Stuðlaháls. Byggingar við gatnamótin og halli Stuðlaháls koma að mestu í veg fyrir að ökumenn flestra farartækja sjái umferð sem fer um Stuðlaháls. Afleiðingar þessa virðast koma fram í þeim slysatölum sem hér er haldið fram. Þegar þessi orð eru rituð þá eru skráð umferðarslys á þessum gatnamótum frá 2002 til dagsins í dag orðin 50.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það er vel hægt að afmarka siglingaleiðina inn í litlu höfnina gegnt Nauthólsvík þannig að hún liggi með landinu að sunnanverðu (Kópavogsmegin) Afmarkaðar og/eða aðgreindar siglingaleiðir eru víða til .Það mundi minnka hættuna til muna þar sem siglingafólk og sjósyndarar halda sig mest að norðanverðu. Kópavogur og Reykjavík geta líka komið sér saman um reglur fyrir Fossvoginn sem t.d. gætu bannað umferð sjókatta.
1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Það þarf að endurskoða fyrirhugaðar breytingar á vetraráætlun hjá strætó. Ég er ekki sáttur með fyrirhugaðar breytingar á leið 5, þar sem fyrirhugað er að vagninn færi í akstur á kvöldin og um helgar, en bara á milli Hlemms og Sundahafnar. Það dugar ekki, því það er þörf á leið 5 í árbæ á kvöldin og um helgar. Ég tók eftir fleiri breytingum, sem eru óþarfar, t.d. að láta leið 21 fara í Mjóddina, þó að hann þjónusti í Hafnarfirði. Að láta leið 5 fara árbæinn á kvöldin og um helgar, þarf forgang.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Hreyfihamlað fólk sem þarf að nota Ferðaþjónustu Fatlaðra hefur ekki sömu möguleika og aðrir á ferðafrelsi. Ákveða þarf með dags fyrirvara hvort og hvenær skuli bregða sér af bæ. Þetta dregur verulega úr frelsi einstaklinganna til athafna. Til að mynda getur einstaklingur ekki stokkið með vinum sínum í bíó - kaffihús eða tekið þátt í öðrum félagslegum athöfnum nema hafa ákveðið það með góðum fyrirvara.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.