-
Nýjustu rök
Eins og áður sagði felst hugmyndin í því að útvíkka notkun stoppistöðvanna með það að leiðarljósi að gera almenningssamgöngurnar að eðlilegri hluta af lífi borgarbúa og minnka vægi einkabílsins. Undirritaður telur að um einfalda og ódýra aðgerð sé að ræða sem muni auðvelda mjög almennari notkun almenningssamgangna sem einnig muni skila sér í sparnaði við viðhald gatnakerfisins ásamt sparnaði í útvíkkunum þess ef hugmyndin verður til þess að notkun einkabílsins dragist saman eða standi í stað.
Umferð austur Bústaðav fær grænt ljós áfram og líka til vinstri inn á Grensásv.. Fyrsti bíll í vesturátt treystir á flæðið þar sem rauða "hjólaljósið" sést illa (er ekki fyrir framan hann) og fer af stað þegar mótlæg umferð gerir það. Bifreið sem fer inná Grensásv. beygir því í veg fyrir þann sem fer vestur Bústaðaveginn. Þetta er stórhættulegt! Hvet ykkur til að setja aftur upp götuvitann eins og hann var.
styður
Sundlaug í Fossvogsdalinn
Rök fyrir sundlaug eru augljós. Betri heilsa og vellýðan öllum til handa. Ungum sem öldruðum og allt þar á milli.
Eins og fyrirkomulagið er í Árbænum í dag eru hálftómir vagnar frá Strætó og Fylki að aka sömu leið.
Í starfi mínu hef ég skoðað þetta mjög vel. Þetta kostar óheyrilegar fjárhæðir. Einnig geta skapast hættulegar aðstæður í frosti þar sem er snjóbræðsla, þannig að þetta er ekki trygging fyrir færri slysum.
Af hverju ekki að fjárfesta í komandi kynnslóðum , að íslenkir grunnskóla nemendur , að hafi aðeins meiri kunnáttu enn ,nemendur frá öðrum löndum og líklegri að fá vinnu , í sammkeppni um atvinnu frá mörgum nemendum frá öðrum löndum .
Rök mín eru skýr, hugmyndir bætir líf eldri borgar og hvetur til samskipta, samvista og virkni. Hún fegrar umhverfið og hvetur til útivistar.
nei, það ætti að gefa út skólakort fyrir grunnskólanema á höfuðborgarsvæðinu. Grunnskólanemar ættu að geta fengið frítt far með strætisvögnum með þessu grunnskólanemakorti.
Hár gróður sem aldrei er hirtur ásamt húsagrunninum eru svæðinu til vansa og bjóða upp á annan sóðaskap, t.d. til að fela hundaskít.
Girðingin við fótboltavöllinn er hreinlega hættuleg eins og hún er í dag.
Ef það á að vera með fótboltavöll á svæðinu yfir höfuð, þarf að viðhalda vellinum og mörkunum. Þetta má þó ekki verða einhvert KR svæði, heldur öllum til nota.
Mikil umferð er af hlaupurum og hjólafólki á götunni sem er til ama fyrir íbúa. Stígur sem tengist Ægissíðu eykur gæði svæðisins
Það einfaldlega verður að vera amk einn staður í miðbænum sem selur kort. Alltaf verið að ota að bæjarbúum að nota almenninssamgöngur, en um leið er það gert erfiðara með því að sala kortanna er á mjög fáum stöðum. Og margir útlendingar nota strætó líka, og þurfa dags/viku kort. Af hverju er þetta ekki selt t.d. Ráðhúsinu, eða Tourist information ?
Það er ekki sérstaklega mikil umferð þarna, hvorki gangandi né akandi. Fyrir flesta mun taka styttri tíma að bíða þar til enginn bíll er sjáanlegur en að bíða eftir grænu ljósi.
hjólreiðafólk á eftir að halda að akbraut Fossv. sé stígur
Ég held að þessar lokanir séu óþarfar.
styður
Lagfæra Hverfisgötu
Að vetri er skuggalegt að koma heim eftir kl. 18:00, vegna myrkurs. Ergilegt að geta hvergi sest niður og hvílt sig. Gersamlega gróðurlaus, allsbert malbikið! Kuldaleg og ekki mönnum bjóðandi.
Íslenska